Tíminn - 21.08.1982, Blaðsíða 15
LAUGARDAGUR 21. ÁGÚST 1982
15
og leikhus - Kvikmyndir og leikhús
kvikmyndahornið
'
■ Christoper Reeve og Michael Caine í hlutverkum sínum í Deathtrap.
Kynvilla hal-
ar inn peninga
■ Kvikmyndahópur hefur komið
sér fyrir á Spike, harðsoðnum
leðurbar í „hýra-hverfinu“ í Vestur-
Hollywood. Aukaleikarar sem ráðn-
ir hafa verið eru viðskiptavinir •
barsins, ákafir í að komast á hvíta
tjaldið. Áður en atriðið er tekið upp,
öskrar „Hells-Angels“ náungi að
kvikmyndamönnunum: „Um hvað
fjallar þessi mynd?“
Aðstoðarleikstjórinn setur fram
stuttan úrdátt úr söguþræði myndar-
innar, hún fjallar um lækni sem er
hamingjusamlega giftur fyrir utan
eitt „smáatriði“, hann getur ekki
lengur dulið kynvillutilhneigingar
sínar. „Og hvernig endar hún“ segir
aðstoðarleikstjórinn.
Barinn rifnar af fagnaðarlátum:
Þannig hefst grein í bandaríska
tímaritinu Cosmopolitan um hið
nýjasta í kvikmyndagerð vestra, um
kynvillu en þær hala inn peninga fyrir
kvikmyndafyrirtækin um þessar
mundir, peninga sem þessi fyrirtæki
þurfa sárlega á að halda.
Atriðið sem að framan greinir er
úr myndinni Making Love gerð af
Arthur Hiller (Love Story) en með
aðalhlutverk fara Michael Ontkean
sem læknir er yfirgefur konu sína
Kate Jackson og flytur inn með
rithöfundi, Harry Hamlin.
Making Love er ekki einangrað
tilfelli meðal þeirra mynda sem nú
hafa komið á markaðinn eða eru í
framleiðslu á þessu sviði má nefna
Personal Best fyrsta verk Robert
Towne sem leikstjóra en hann hefur
áður unnið að myndunum China-
town og Shampoo. Þessi mynd fjallar
um kynferðislegt samband tveggja
íþróttakvenna, önnur þeirra leikin af
Mariel Hemingway (Woody Allens
Manhattan).
Partners gamanmynd með þeim
John Hurt og Ryan O’Neal í
aðalhlutverkum. Hurt leikur hýra
löggu og O’Neal félaga hans sem er
eðlilegur en þeir látast vera par til að
hafa upp á kynvilltum morðingja í
Hollywood.
Deathtrap leikstýrt af Sidney
Lumet með þeim Michael Caine og
Cristopher Reeve í aðalhlutverkum
í þrillerleikriti Ira Levin. Fyrir utan
þessar myndir er fjöldi annarra á
leiðinni og spurningin er hvað
veldur?
Kynvilla hefur löngum verið algert
bannorð í kvikmyndagerð Holly-
wood allt fram á þennan dag. Fyrir
1961 var hún einfaldlega ekki til og
á tveimur síðustu áratugum var
yfirleitt um að ræða að kynvilltir, ef
þeir komu fyrir, voru óhamingju-
samir og niðurdregnir einstaklingar.
Til eru örfáar undantekningar á
þessu eins og til dæmis myndimar
Sunday, Bloody Sunday, og Dog
Day Afternoon.
Það er athyglisvert að flestir þeirra
sem eru að gera þessar myndir núna
segjast ekki vera að gera myndir um
kynvillu per se.
„í okkar hugum erum við ekki að
gera kynvillumynd“ segir Sherry
Lasing forseti 20th Century-Fox er
hann er spurður um Making Love.
„Myndin fjallar alls ekki um það.
Þetta er saga um áfall kvenmanns.
Ef þú hefur einhverntíma verið
í sambandi sem gekk ekki þá höfðar
myndin til þín.“
Svo mörg voru þau orð. Sennilega
liggur skýringin á þessum fjölda
mynda að miklu leyti í orðum Robert
Towne: „Það er áætlað að 10-15%
Bandaríkjamanna séu kynvilltir. Við
erum hér að tala um 40 milljónir
kynvilltra. Ef þeir heyra að mynd sé
athyglisverð fara þeir að sjá hana,
ekki bara brot af þeim, heldur
helmingur þeirra.
- FRI
Ti
ft-Jörik
Indribason
skrifar
O Einvígi kóngulóarmannsins
★★ Okkar á milli í hita og
þunga dagsins
★ Justyouandme,kid
★★★ Flóttinn frá New York
★★
★★★
★★★★
Barist fyrir borgun
Síðsumar
Kagemusha
★★ Sólin einvarvitni
★★ Amerískur varúlfur í London
★★ Cat Ballou
★★★ Fram í sviðsljósið
★★ Hvellurinn
Stjörnugjöf Tfmans
+ * * + frábær • ★ * * mjög gód * * * gód * * sæmileg * O léleg