Tíminn - 22.08.1982, Síða 20
20
SUNNUDAGUR 22. ÁGÚST 1982
nútíminn
Purrkur Pillnikk hættír
— Einar og Bragi
í tvær nýjar
hljómsveitir
■ „Það var kominn tími til að hætta,
þetta gekk ekki lengur að lifa upp í
einhverja ímynd sem fólk vill hafa okkur
í“ sagði Einar Örn Benediktsson
söngvari og driffjöður hljómsveitarinn-
ar Purrkur Pillnikk í samtali við
Nútímann en Purrkurinn hefur lagt upp
laupana, mun að vísu leika á Melavellin-
um um næstu helgi en varla nokkuð
annað.
„Fyrir utan þetta hafði Frikki ekki
tíma, ég og Bragi vorum orðnir leiðir og
Ásgeir er að pæla í dansnámi. Hinsvegar
vil ég taka það fram að PP er að hætta
í núverandi formi, það er margt sem
kann að gerast í framtíðinni" segir
Einar.
Einar og Bragi eru þegar farnir að
leika með tríóinu Jisz auk þess sem þeir
æfa í annarri hljómsveit. „Það er stærra
verkefni sem mun koma á óvart" sagði
Einar en vildi að öðru leyti ekki tjá sig
um þetta mál. Fyrstu tónleikarnir með
þessari hljómsveit verða sennilega
haldnir í október.
Á næstu dögum kemur síðasta plata
Purrksins; á markað „No time to think"
en hún var upphaflega gefin út á
Englandsmarkaði.
„Tvímælalaust besta platan okkar“
segir Einar um No time to think en titill
þeirrar plötu mun tilkominn af þeim
kringumstæðum sem sköpuðu þessa 4
laga plötu.
„Purrkur Pillnikk starfaði í rúmt ár en
eftir þá liggur þó nokkurt efni. Þeir
vöktu fyrst athygli með útgáfu litlu
plötunnar Tilf en hún innihélt 10 lög og
var því oft kölluð „stóralitlaplatan“.
Síðan var haldið til London og platan
Ekki enn tekin upp í Southern Studios.
Þeir léku með bresku hljómsveitinni
The Fall hér heima og ytra gáfu þeir út
Googooplexið og nú að lokum No time
to think.
PP fór ávallt sínar eigin leiðir í tónlist
og það er mikill sjónarsviptir af brottför
PP af nýbylgjusviðinu hérlendis.
- FRI
■ Einar Öm söngvarí og Bragi
bassaleikari hafa þegar haflð leik með
tveimur nýjum hljómsveitum.
Rokk-Festival á Melavelli:
mim
SVEITA
— og enn bætist við
■ Tveir tugir hljómsveita hafa boðað
komu sína á Rokkfestivalið á Melavell-
inum þann 28. ágúst, n.k. og enn eru
hljómsveitir að bætast við.
Hallvarður E. Þórarinsson sagði að
allt efni yrði tekið upp á vellinum og ef
þær upptökur heppnuðust myndi verða
gefin út tvöföld eða þrcföld tónleika-
plata.
Meðal þeirra tuttugu hljómsveita sem
öruggt er að koma fram eru flestar okkar
þekktustu nýbylgjusveitir auk margra
óþekktra sveita sem bæjarbúar, og
aðrir, berja augum í fyrsta skipti.
Hljómsveitirnar eru Baraflokkurínn,
- Pungó & Daisy - Kos - Ekki -
Bandóðir - Vonbrigði - De Thorvald-
sens Trío Band - Stockfield Big Nose
Band - Reflex - Lola - Fræbbblarnir -
Tappi Tíkarrass - Purrkur Pillnikk -
■ Pungó & Daisy
COMSAT
I ■ Breska nýbylgjuhljómsveitin
| Comsat Angels hélt hér tvenna
tónleika í síðustu viku í Tjarnarbíó.
Mikil og þétt keyrsla einkennir öðru
fremur leik þeirra en persónulega þótti
mér tónlistin full drungaleg. Hljóm-
t sveitin hefur á að skipa geysigóðum
trymbli, Mick Glaisher sem aftur
hlýtur góðan stuðning frá öðrum
meðlimum sveitarinnar einkum gítar-
leikaranum og söngvaranum S. Fell-
ows.
Persónulega var ég lítt kunnur
þessari hljómsvek áður en hún kom
hingað en snarlega var bætt úr því eftir
fyrri tónleikana. Hér tóku þeir einkum
lög af Ip plötu sinni Sleep no more auk
gamalla laga og eitthvað mun hafa
verið af nýju efni.
Nokkrir hnökrar voru á fyrirkomu-
lagi fyrri tónleikanna, Vonbrigði áttu
að leika á undan en brugðust og fór
þetta í taugarnar á viðstöddum sem
þurftu að bíða hátt í tvo tíma eftir að
tónleikarnir hæfust af þessum sökum.
Seinni tónleikarnir voru mun betri
hvað þetta atriði varðar, fleira fólk og
mikil stcmmning.
Myndina tók gel af Comsat á seinni
tónleikunum. -FRI
Þrumuvagninn - Q4U - Þeyr - Grýlur
- Kvöldverður frá Nesi - Sonus Futurae
- hluti af Spilafiflum. Þetta er það sem
komið er á hreint.
Meðal þess sem síðan er væntanlegt
má nefna Sokkabandið frá ísafirði en
það mun vera kvennahljómsveit sem
undirritaður veit nákvæmlega engin
deiii á.
Pungó & Daisy hefur starfað um árs
skeið. Þeir léku í Atlavík og stóðu sig
vel, einna best af borgarsvcitunum.
Kos kemur úr Kópavogi, ársgömul
sveit, sem m.a. hefur leikið eitthvað í
Svíþjóð, allavega sem upphitunarsveit
fyrir Þeysarana.
Ekki hefur starfað í nokkra mánuði
og fyrir skömmu tróðu þeir upp í
Breiðfirðingabúð en munu samt ekki
vera „Hann elskaði þilför hann Þórður
sveit“ að sögn kunnugra.
Bandóðir eru með athyglisverðustu
sveitunum á festivalinu. Hana skipar
Herbert Guðmundsson söngvari úr
Pelikan en með honum eru þeir Rúnar
og Mike úr Bodies og Ásgeir purrkur á
trommur.
Það sem ég veit ekki um De
Thorvaldsens Trio Band má auðveld-
lega koma fyrir á Laugardalsvellinum.
Þetta er leyninúmer hátíðarinnar svo
maður bara bíður og sér til.
Hvað Big Nose Bandið varðar þá mun
Pétur nokkur rauði vera forsvarsmaður
þar.
Kvöldverður frá Nesi kemur úr
Neskaupstað þar sem þeir hafa dygga
sveit fylgismanna, a.m.k. náðu þeir
langt í keppninni í Atlavík.
Reflex er úr Reykjavík og komu þeir
aðeins fram á rokkhátíðinni á Hótel
Borg fyrir skömmu Aðrar
hljómsveitir ættu menn að þekkja.
Á festivalinu verða veitingastaður,
kaffistofa, markaður og ýmislegt fleira
til staðar, óvæntar uppákomur, kynning
á ýmsu tónlistarefni eins og nýju
sólóplötu Þorsteins Magg. úr Þey , og
fleira. -FRI
Sting og Virgin
sættast
■ Baráttu Sting úr Police við
útgáfufyrirtækið Virgin Publishing
fyrir dómstólunum bresku, vegna
kröfu hins fyrrnefnda um að endur-
heimta höfundarrétt; ■ sínniá söngv-
um sínum, er lokið með sáttum utan
réttarsalarins. Sting krafðist einnig
700 þús. punda frá Virgin sem hann
sagði að fyrirtækið hefði fengið fyrir
ekki neitt. Sættir felast í því að Sting
fær höfundarréttinn að rúmum 7
árum liðnum, auknar tekjur af
plötum Police og 220 þús. pund.