Tíminn - 05.09.1982, Blaðsíða 2

Tíminn - 05.09.1982, Blaðsíða 2
SUNNUDAGUR 5. SEPTEMBER 1982 fólk í listum Hörður og Haukur í Gallerí Lækjarforgi ■ Nú í dag opna þeir sýningu á nokkrum listaverka sinna í Gailerí Lækjartorgi, þeir Hörður og Haukur Harðarsynir, - eða bara Hörður og Haukur, eins og þeir kjósa að nefna sig. Þetta eru skúlptúrverk sem þeir sýna og eru þau orðin til í rannsóknastofu þeirra félaga á undanförnum árum. Þeir hafa verið að helga sig samspili mismunandi efna og áferðar og eru verkin ýmist gerð úr viðarspón og efninu HH-37, sem er einkauppfinning þeirra og hefur eigin- leika postulíns og steinsteypu og er að sögn þeirra nýjung í skúlptúr. l>á kynna þeir hér.aðra nýjung úr rannsóknastofu sinni, - Micro-grafík-relif formið, sem erfitt er að útlista he'r. Þess skal getið að í 8 daga er sýningin með þeim hætti að hstaverið sem er burðarás sýningarinnar verður sýnt í hlutum, en næsta laugardag verður ný opnun og verður verkið þá sýnt samsett. En sjón er auðvitað sögu ríkari. Sex binda verk um íslenska þjóðmenningu í vændum 20-30 fræðimenn hafa verið kvaddir til starfa ■ Hafsteinn Guðmundsson, forstjórí Þjóðsögu, ásamt þeim Þór Magnússyni þjóðminjaverði, Haraldi Ólafssyni, dósent og dr. Jóni Hnefli Aðalsteinssyni. (Tímamynd Ella) ■ Á blaðamannafundi hjá bókaút- gáfunni Þjóðsögu í gær kynnti Hafsteinn Guðmundsson, forstjóri bókaútgáfunn- ar, áformaða útgáfu á verki um íslenska þjóðmenningu, og hcfur hann kvatt til þrjá menn í ritstjórn verksins, þá Harald Ólafsson, dósent, dr. Jón Hnefil Aðalsteinsson og Þór Magnússon, þjóð- minjavörð. Voru þeir þremenningarnir staddir á fundinum og sátu fyrir svörum um hið fyrirhugaða rit, en áhugi er á að hefjast handa sem allra fyrst við söfnun efnis. Hér verður um yfirlitsrit að ræða sem væntanlega verður all mikið að vöxtum, eða fimm til sex bindi. Til þessa hefur einkum verið stuðst við hið merka rit Jónasar frá Hrafnagili, „íslenskir þjóðhættir", þegar kemur að þessum vettvangi, en það er nú orðið gamalt, þótt gildi þess sé enn ómetanlegt. Er því augljóst hver ávinningur er að nýja verkinu, sem ætlað er að taka yfir öll svið þjóðmenningar og taka mið af nýjustu rannsóknum á hverju sviði. Því er ætlað að standast vísindalegar kröfur sem alhliða heimildarit, en jafnframt verður lögð áhersla á að það verði læsilegt og aðgengilegt almenningi. 20-30 höfundar Um einstaka þætti þjóðmenningar verður fjallað frá upphafi byggðar í landinu eftir því sem heimildir ná til. í frumdrögum efnisyfirlits eru m.a. eftir- talin kaflaheiti: Landið og lífsskilyrðin. Mannfræði og upphaf menningar. Dag- leg störf til sjávar og sveita. Skepnurnar. Fatnaður. Útsaumur. Hagleiksverk. Miðaldalist. Handritaskreytingar. Al- þýðulist. Húsagerð. Samfélagsgerð. Bændafjölskyldan. Æviskeiðin. Sam- göngur og verslun. Mataræði. Heilsufar. Fomsögur. Sagnadansar. Skemmtanir. Tónmenntir. Alþýðuskáld. Leikir og íþróttir. Þjóðsögur og sagnir. Hátíðir. Trú og kirkja. Þjóðtrú. Alþýðleg vísindi. Alþýðulækningar. Alþýðleg veðurvísindi. Alþýðlegir tímatals- útreikningar. Þéttbýlismyndun. Kvennamenning. Leitað hefur verið til milli tuttugu og þrjátíu manna til að rita í verkið eða vera til ráðuneytis um gerð einstakra kafla. Eftirtaldir menn eru í hópi þeirra sem þegar hefur náðst til: Ágúst Georgsson fil. kand. Dr. Alda Möller, Árni Björnsson safnvörður, Elsa E. Guðjónsson safnvörður, Frosti F. Jó- hannsson fil. kand. Dr. Gísli Pálsson, Gunnlaugur Haraldsson þjóðháttafræð- ingur, Hallfreður Örn Eiríksson cand. mag. Hallgerður Gísladóttir safn- vörður, Jón Samsonarson handrita- fræðingur, Jón Steffensen prófessor, Jón Þórarinsson tónlistarmaður, Krist- ján Eldjárn prófessor, Lúðvík Krist- jánsson rithöfundur, óskar Halldórsson dósent, Páll Jónsson bókavörður, Páll Bergþórsson veðurfræðingur, Ragn- heiður Helga Þórarinsdóttir forstöðu- maður, Dr. Selma Jónsdóttir forstjóri, Sigurður Þórarinsson prófessor, Dr. Stefán Aðalsteinsson, Sveinbjörn Rafns- son prófessor, Vésteinn Ólason dósent, Þórður Tómasson safnvörður, Dr. Þorsteinn Sæmundsson stjarnfræðingur. Fyrirhugað er að hraða vinnu við verkið eftir föngum og koma því út á næstu fimm árnm ■ Eitt verka þeirra Harðar og Hauks, - gert úr undraefninu HH-37. ■ Laugardaginn 21. ágúst verður opnuð sýning á teikningum í sýningar- sölum Norræna hússins. Þetta er norræn farandsýning sem kemur til íslands frá Noregi. Aðdragandi þessarar sýningar er sá, að Norræna listamiðstöðin á Sveaborg í Finnlandi, sem hóf starfsemi sína 1978, bauð í árslok 1980 norrænum listamönn- um að taka þátt í stórri sýningu á teikningum, og 600 listamenn sendu 3000 teikningar þangað. Þriggja manna dómnefnd, skipuð Per Bjurström frá Nationalmuseet í Stokkhólmi, Sam Vanni frá finnsku akademíunni og Tage Martin Hörling frá Norrænu listamið- stöðinni, valdi síðan úr 162 teikningar eftir 52 listamenn. Jafnframt ákvað dómnefndin að bjóða nafnkunnum teiknara frá hverju Norðurlandanna að sýna, og af íslands hálfu var Kristjáni Davíðssyni boðið, frá Danmörku var það Jörgen Römer, frá Finnlandi Ulla Rantanen, frá Noregi Aase Gulbrand- sen og frá Svíþjóð Lena Cronquist. Aðrir fslendingar sem myndir eiga á þessari sýningu eru Sigrún Guðjóns- dóttir, Sigurður Þórir Sigurðsson og Valgerður Bergsdóttir. ■ Ur myndinni „Clarence og Angel“. Þessi mynd Roberts Gardners lýsir heimi og umhverfl barna í svertingjahverfí í New York. AMERÍSKAR KVIKMYNDIR I TJARNARRÍÓ UM HELGINA „Kaflístofa kjamorkunnar“ kl. 9. Á sunnudaginn eru „Tylftimar11 á dagskrá kl. 3, „Kafflstofa kjamork- unnar“ Id. 5, „Yfir-undir, skáhalt- niður" ld. 7 „Hjartland" kl. 9 og „Varanlegt frí“ kl. 11. Kristján Davíðsson, listmálarí ■ Nokkrar myndanna á Amerísku kvikmyndavikunni verða sýndar í Tjamarbíói í dag, laugardag, og á morgun, sunnudag. Á laugardaginn verður „Clarens og Angel“ og „Yfir-undir, skáhalt-niður“ sýndar kl. 5, „Varanlegt frí“ kl. 7 og KRISTJAN DAVIÐSSON SÝNIR ÁSAMT NORRÆNUM MÁLURUM

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.