Tíminn - 05.09.1982, Blaðsíða 19

Tíminn - 05.09.1982, Blaðsíða 19
SUNNUDAGUR S. SEPTEMBER 1982 erlend hringekja „Dallas” er ekki handaþeim sem hugsa segir höfundur þessaraþátta,David Jacobs - Meðan ég var að skrifa þetta var mér ekki í huga Larry Hagman sem J.R. En þegar við vorum að prófa okkur áfram með fimm fyrstu þættina, kom í ljós að hann var einmitt sá burðarás sem myndirnar þörfnuðust, enda lét honum vel að leika þennan ófyrirleitna rusta, - J.R. Þar með varð Sue Ellen aðeins að aukapersónu. „Dallas" á velgengni sína þvi að þakka að ekki cr auðvelt að geta sér til um það sem mun gerast og atburðir brjóta í bága við það sem menn f Bandaríkjunum eiga að venjast. Það er ekki mjög amerískt að hetja berst áfram með svindli og svikum og er kvænt konu sem sætir illri meðferð af hans hálfu. Þegar J.R. yfirgaf Sue Ellen í fyrsta þættinum eftir rifrildi, kom til skjalanna kúrekatýpan Ray Keebs og vildi leggja henni liðsinni sitt. í vanalegri „sápuóperu" hefði hann fengið svarið: „Nei, ég er gift.“ En þess í stað kemur Sue Ellen áhorfendum að óvörum og býður eljara sínum inn fyrir. Kynferðislegir undirstraumar af þessu tagi höfðu ekki tíðkast áður. Þeir ríku Aðstæðumar verða enn melódrama- tískari, vegna óheyrilegra auðæva Ew- inganna. Ekki einu sinni Rockefeller hefði getað hagað sér eins og Bobby, sem hringdi eftir 100 milljónum dollara í banka sinn og fékk það svar að þetta yrði í lagi eftir morgunmatinn. En ekki mátti heldur gera fjölskylduna frá- hrindandi vegna taumlauss óhófs, - hún varð að vera rík og pen um leið. Þannig gátu menn nú sest við sjónvarps- skerminn og lifað sælir í þeirri vissu að hinir ríku gætu haft það jafnt skítt og þeir sjálfir, - amk. stundum. - Þegar fólk sest við sjónvarpið vill það getá umflúið um stund það líf sem ekki býður upp á næga tilbreytingu og tilfinningahræringar. Mannkynssagan sýnir að meira að segja verstu harðstjór- ar hafa getað brostið í grát. Því skyldi sjónvarpið þá ekki rækja það hlutverk auðveldlega að hreyfa við venjulegu fólki. - Það er í sjálfu sér óhugnanlegt, hve mikið það hlutverk er sem sjónvarpið gegnir í lífi sumra, segir David Jacobs. - Fólk kveikir á tækinu um leið og heim er komið og borðar matinn fyrir framan skerminn. Það fær ekki einu sinni neitt til þess að hugsa um. Gott sjónvarp ætti ekki að gefa áhorfendum svör, heldur spurningar. Flestar sápuóperanna eru varla mikið meira en upphrópunarmerk- in. í „Dallas" má þó segja að hér og hvar sé mönnum gefið færi á að brjóta heilann um J.R., - hvort hann geri rétt og hvort menn sjálfir mundu hafa gert eins og hann. En vilji fólk fá eitthvað til aö hugsa um ætti það heldur að fá sér góða bók. Þá er hægt að staidra við og hugleiða efnið, en í sjónvarpinu streymir sögu- þráðurinn bara fram hjá. 19 Nú eru engin vandræði . .. . . . með bílastæði, því við erum fluttir í nýtt húsnæði að Smiðjuvegi 3, Kópavogi. Sími: 45000 — Beinn sími til verkstjóra: 45314 Skráningarstörf Óskum eftir aö ráöa starfskrafta til skráningar- starfa. Starfsreynsla æskileg. Skriflegar umsóknir meö upplýsingum um menntun og fyrri störf, sendist starfsmannastjóra, er veitir nánari upplýsingar. PRENTSMIÐJAN la HF. d^ddc SAMBAND ÍSL.SAMV1NNUFÉIAGA STARFSMANNAHAU) VAKA Á VEGI Á NÓTTU SEM DEGI AUKIN LANAKJOR A Nú geta allir eignast WARTBURG - Stóra bílinn á lága verðinu, með sérstökum lánakjörum. STÓR - HÁR - STERKUR Þeir sem kaupa einu sinni ^■/kortirur^ kaupa hann aftur og aftur. TRABAIMT/WARTBURG UMBOÐIÐ hngvar Helgason Sýningarsalurinn v/Rauðagerði, sími 33560 ♦ H

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.