Tíminn - 05.09.1982, Blaðsíða 20
SUNNUDAGUR 5. SEPTEMBER 1982
20___________
á bókamarkaði
UIA/AHIH >1 s l ltl K M li' >ss
nn.iiim >t i >i i iii
WOKI IH' UIK.II \l>\ I N 11 Kl
STOMvSOI
SIIÆMi:
JOl R.MASIN t III IIIM VI.AVA
l.l IMH.I ILM II VI l.l II
„Slones of Silence"
Höfundur: George B. Schaller.
Utgefandi: Bantam
■ 1 þessari bók segir einn fremsti
dýralíffræðingur heims, Georgc Schaller
frá. Hann er áður þekktur af bókum
sínum „The Year of the Gorilla“ og „The
Serengeti Lion“, en byggir í þessari bók
á sex ára leiðangri sem hann tókst á
hendur til dulmögnuðustu landsvæða
heims - hinna snæviþöktu Himalaya-
fjalla. Tilgangurinn var að rannsaka
dýralíf, sem vænta mátti að senn dæi út.
Schaller segir frá för um dali, sem engin
nöfn hafa verið gefin til Kathmandu og
Annapurna og leggur upp í ævintýralega
för til Crystal fjalls með félaga sínum
Peter Matthiesscn. Tilgangurinn er að
hafa uppi á fágætu dýri, - snæhlébarða.
Meðal þeirra sem styrktu Schaller til
ferðarinnar voru N.Y. Zoological Soci-
ety og National Geograpic Society.
SOCIAL
MOBILITY
AnthonyHeath
The Best of Ephraim Kishon
AIN'T
rm jrr »r nrrB jm. m mI m
taigr. ccc gtg B ar»
„The Best of Ephraim Kishon - New
York ain’t America"
Utgefandi: Bantam
■ „Ephraim Kishon er næst besti
húmoristi í heimi, -það hlakkar í honum
og ég hata hann,“ segir Art Buchwald
um höfund þessarar bókar og hefur
eflaust sína skoðun á hver sé bcsti
húmoristinn.
(sraelsmenn hafa ekki þótt míklir
húmoristar að undanförnu og því er það
góð tilbreyting að fá þessa spánnýju bók
í hendur sem sönnun þess að þeir eiga
þó talsverðan húmor til. „Hér kemur
Ephraim Kishon, besta leynivopn ísracls-
manna“, segir í kynningu á bókarkápu
og fleiri upplýsingar. Kishon hefur ritað
bækur sem selst hafa í 20 milljóna
upplagi og vinsældir sínar á hann að
þakka því hve gamansömum augum
hann getur litið á háttu og siðgæði
mannanna, stjórnmál, hunda, reikni-
vélar, leigubíla og sjónvarp. Menn ættu
að gcta skemmt sér vel yfir þessari bók,
en höfundi hcfur verið líkt við þá alla, -
James Thurber, Harry Golden og Mark
Twain.
DIAN DiNClN BUCHMAN
„Social Mobility“
Höfundur: Anthony Heath.
Útgefandi: Fontana
■ Nýjar rannsóknir hafa sýnt að menn
hafa færst mjög uppávið í þjóðfélagsstig-
anum í Bretlandi, þ.e. lágstéttirnar, á
árunum eftir stríðið. Fólk sem komið er
frá verkamannaheimilum hcfur orðið
framkvæmdastjórar, forstjórar og hásér-
þjálfað fólk. En hve hátt er þessu fólki
fært að komast? Eru efstu þjóðfélags
hóparnir, hin ríkjandi „elíta“ lokuð fyrir
utanaðkomandi? Hve miklir eru mögu-
leikar kvenna í samanburði við karla?:
Hve mikið hefur menntun að segja,
uppruni og hörundslitur? Hver er staða
þess sem kemur frá fjölskyldu sem er
fjölmenn og býr í leiguhúsnæði? Eru
einhverjir alveg útundan? Eru einhverjir
sem hafa sérstök forréttindi?
Hvaða þjóðfélög heimsins eru félags-
lega „opnari" en önnur og hvar er
erfiðast að afla fjár og frama?
Þetta eru spumingar sem gaman er að
fá svarað á grundvelli athugana.
500 ways to use our oldest
natural medicine
„Water Thenipy“
Höfundur: Dian Dincin Bucham.
Útgef.: E.P.Dutton, New York
■ Já, þetta er eftirtektarverð bók, án
þess að við viljum neinu lofa um hver
árangurinn kann að verða af læknismeð-
ferðinni. En vatnslækningar voru afar
vinsælar á öldinni sem leið og fram á
þessa öld og miklir læknar og heimsfrægir
gcrðust sérfræðingar í vatnslækningum.
Hinn gamli landlæknir okkar (slendinga,
Jón Hjaltalín, rak vatnslækningastöð i
Danmörku á sinni tíð.
Hér eru samankomnar í einni bók 5(X)
aðferðir til þess að lækna sjúkdóma með
þcssari aðferð sem er orðin ævagömul.
Sumir virtir sérfræðingar ráðleggja vatns-
lækningar enn þann dag í dag við ýmsum
sjúkdómum. Okkur er sagt á bókarkápu
að m.a. megi hér finna leiðir til þcss að
lækna svefnleysi, taugabilun þreytu, sár
og skurfur. Uppskriftirnar eru af mjög
fjölbreytilegu tagi og bæði er notað heitt
vatn og kalt og stundum gufa, og
stundum er jurtum bætt í heilsuböðin.
Hver veit nema þama sé lausn á
cinhverjum meinscmdum okkar, sem við
höfum litið fram hjá á öld lyfjanna.
■ Ofannefndar bækur fást í Bókaverslun Sigfúsar Eymundssonar. Tekið
skal fram að hér er aðeins um kynningu að ræða, en enga ritdóma.
Birgir og
Asdís
Höfundur „Gegnum bernskumúrinn”
sendir frá sér nýja sögu hjá Æskunni
■ Æskan svipast um á heimaslóðum og
gefur út tvær nýjar íslenskar sögur í ár.
Fyrri bókin heitir Birgir og Ásdís.
Höfundur er Eðvarð Ingólfsson, sem
kunnur er fyrir unglingaþætti sína í
útvarpinu. Þetta er þriðja bók Eðvarðs.
1980 sendi hann frá sér fyrstu bók sína
Gegnum bernskumúrinn, scm vakti
mikla athygli, m.a. fyrir það að
höfundurinn var ekki nema 19 ára og
skrifaði skáldsögu um hið svonefnda
unglingavandamál. Birgir og Ásdís er
sjálfstætt framhald þeirrar bókar. Hún
fjallar í stuttu máli um 18 ára
kærustupar, sem er að hefja sambúð og
ýmsa þá byrjunarörðugleika, sem henni
geta fylgt. Á hispurslausan og hrein-
skilinn hátt er fjallað um ýmis þau mál
er snerta líf unglinga í heild sinni. Þarna
tekur Eðvarð fyrir söguefni, sem lítið
sem ekkert er skrifað um hér á landi.
Útkoma þessarar bókar hlýtur því að
vekja allnokkra forvitni.
Hin bókin er Neyðarópið hjá stál-
smiðunni og er eftir Ragnar Þorsteins-
son, sem áður hefur ritað nokkrar
vinsælar barna- og unglingabækur. Þessi
nýja saga Ragnars fjallar um sjó-
mennsku öðrum þræði eins og margar
fyrri sögur hans, en þar koma ýmis
önnur hugðarefni unglinga líka til
sögunnar.
■ Eðvarð Ingólfsson, - tekur upp
þráðinn þar sem frá var horfið.
Sendum
um land
allt
Vörumarkaðurinn bf.
JSími 86112
Kynntu þér
Vörumarkaðsverð
Á FURU-MATBORÐUM OG STÓLUM
Furu-matborðMassíft Lakkað Stærð 83x135cm
- 74x74+40 cm stækkuð
- 74x115 cm
_ 74x115+47 cm stækkuð
- 74x74 +47cmstækkuð
- 110cm
- 80x160 cm
- 90x190 cm
Stólar 3 gerðir