Tíminn - 05.09.1982, Blaðsíða 23
SUNNUDAGUR 5. SEPTEMBER 1982
23
nútíminn
voru Konunglega flugeldarokksveitin og
Stockfield Big Noze Band áberandi
lélegustu sveitirnar.
Melarokk hófst einum og hálfum tíma
á eftir áætlun, með leik sveitarinnar
Reflex. Þá sveit sá ég fyrst á Borginni
fyrir nokkru en Reflex er í mikilli
framför frá þeim tíma. Tónlist þeirra var
hresst rokk og í einu laganna tók
gítarleikarinn, Guðmundur illvígt gítar-
sóló fyrir áheyrendur.
Á eftir Reflex lék Tappi tíkarrass
sem óðum er að skipa sér sess sem ein
besta nýbylgjurokksveitin hérlendis og
mun sveitin nú vera með plötu í
smíðum. Söngkona Tappa Tíkarrass,
Björk, hefur geysiskemmtilega rödd og
kann að nota hana en telja verður
sönginn meðal rósanna hjá sveitinni.
KOS léku á eftir Tappanum en þetta
er í fyrsta sinn sem þeir koma fram
hérlendis, ef undan er skilið eitthvert gig
um Verslunarmannahelgina í Galtalæk.
Þeir komu undirrituðum verulega á
óvart með góðum leik en tónlistin var
svona blanda af mörgu þar á meðal voru
þeir með ein tvö reagge lög á prógrammi
sínu.
Grýlurnar, fyrsta kvennahljómsveit
landsins, voru traustar að vanda. Hafa
náð gífurlegum framförum að undan-
förnu en gítarleikurinn er enn veikasta
hliðin hjá þeim. Raunar átti Bára í
nokkrum erfiðleikum því tvisvar slitnaði
strengur hjá henni og var hún því ekki
mikið með.
Konunglega flugeldarokksveitin
byrjaði leik sinn eins og mjög fátæk
útgáfa af Purrk Pillnikk en síðan rugluðu
þeir eitthvað áfram, ekki mjög áheyri-
legir.
Stockfield Big Nose Band barðist um
í einhverju rokki með heldur litlum
tilþrifum. Tónlistin hjá þeim í gamla
stílnum, efni sem hundruðir annarra
hafa gert mun betur.
Q4U kom mjög vel út. Tónlist þeirra
hefur verið kallað „tölvupönk" og er sú
nafngift við hæfi. Þeir nota trommuheila
og fellur hann vel að liðskipan sveitar-
innar en leikurinn var allur þéttur
hraður og góður og sviðsframkoma
söngkonunnar mjög athyglisverð en hún
lagði Andreu kynni tvisvar í sviðið.
Það hefur komið áður fram hér í
Nútímanum að Vonbrigði séu með
efnilegust nýju nýbylgjurokksveitunum
og er þetta alls ekki fjarri lagi ef mið er
tekið af leik þeirra á Melarokki.
Nokkur endurnýjun hefur orðið á
prógrammi þeirra en aðallinn er sem fyrr
hratt og gott nýbylgjurokk.
Luigi og Benni Pís
Þegar hér er komið .. sögu á
Melarokki varð undirritaður að yfirgefa
svæðið er við lýsingunni taka þeir Luigi
og Benni Pís heimildarmenn blaðsins á
svæðinu.
Fræbbblarnir og Þrumuvagninn voru
eins og við mátti búast en síðan kom
hljómsveitin Púngó & Daisy sem gerðu
garðinn frægan í Atlavík. Tónlist
þeirra er af nýbylgjuslektinu en fremui
léleg.
LOLA var frábær, tjáir Luigi mér.
Söngkonan gekk að vísu aðeins of langt
í stælingum á Chrissie Hynde úr
Pretenders en var að öðru leyti góð,
raunar voru lög þeirra í miklum
Pretendersstíl en upphafs lagið nokkur
stef úr laginu Lola sem flestir ættu að
kannast við og mun það vera venja
sveitarinnar að hefja tónleika á þessu
gamla Kinks-lagi.
„Það voru bara ég og Bubbi Morthens
sem höfðum gaman af Bandóðum" segir
Luigi en sú sveit skartaði Ásgeiri úr
Purrknum á trommur, Mike og Rúnari
úr Bodies og Herbert nokkrum Guð-
mundssyni fyrrum úr Eik og Pelican en
hann hyggur á afturkomu í poppið.
Tónlist þeirra var eldgamalt og raust
rokk.
Svanasöngur Purrks Pillnikks þótti
mörgum vera hið besta sem boðið var
uppá. Fimm ný lög og krafturinn og
keyrslan sjaldan verið betri hjá þeim.
Baraflokkurinn var síðasta númer
kvöldsins þar sem ÞEYR gáfu sig.
Akureyringarnir áttu í einhverjum
tæknierfiðleikum sem fóru alveg með
leik þeirra, en inn á milli áttu þeir
nokkur góð lög.
Skrifstofustjóri
Ólafsvíkurhreppur óskar að ráða skrifstofustjóra.
Nánari upplýsingar um starfið veitir undirritaður í
síma 93-6153.
Umsóknum ásamt upplýsingum um menntun og
fyrri störf sendist skrifstofu Ólafsvíkurhrepps,
Ólafsbraut 34 Ólafsvík, fyrir 15. sept. n.k.
Sveitarstjóri.
Iðngarðar á Selfossi
Stjórn Iðnþróunarsjóðs Selfoss auglýsir hér með
aðstöðu í nýbyggðum iðngörðum á Selfossi, skv.
samþykktum um iðngarða á Selfossi sem liggja
frammi á tæknideild Selfossbæjar Eyrarvegi 8.
Teikningar af iðngörðum liggja frammi á sama
stað.
Umsóknir þurfa að hafa borist formanni stjórnar
Iðnþróunarsjóðs Selfoss, Guðfinnu Ólafsdóttur,
Engjavegi 83, 800 Selfossi fyrir 10. sept. n.k.
Stjórnin.
Ráðskona
óskast á rólegt sveitarheimili á Norðurlandi. Má hafa með sér börn.
Tilboð sendist augl. blaðsins merkt „sveit".
Verslunarstjóri
Óskum eftir að ráða, nú þegar eða sem allra fyrst,
verslunarstjóra í Vöruhús okkar á Selfossi.
Starfssvið:
Umsjón með daglegum rekstri allra deilda
vöruhússins, sem m.a. felst í:
Eftirliti með innkaupum, sölu, verðlagningu,
birgðahaldi, mannaráðningum og starfs-
mannahaldi.
Viðskiptamenntun og starfsreynsla ásamt stað-
góðri þekkingu á vöruvali nauðsynleg.
Skriflegar umsóknir er greini aldur, menntun og
fyrri störf, sendist kaupfélagsstjóranum Oddi
Sigurbergssyni, ásamt meðmælum.
Umsóknarfrestur er til 15. sept. nk.
Farið verður með umsóknir sem trúnaðarmál.
©
Kaupfélag Árnesinga
Selfossi
1. Þú hellir köldu
vatni í flöskuna
2. færðgosúr 3. ogsetursvo
SodaStream tækinu bragðefnið útí.
Svona einfalt er það. Þú geturvalið
um 5 bragðtegundir; Appelsín, Cola,
GingerAle, Límonaði og Tonic. Úr
hverri bragðflösku færðu 50 flöskur
af gosdrykkjum.
SodaStream gosdrykkjagerðin þín
sparar þér ekki aðeins peninga, heldur
líka pláss, svo ekki sé minnst á þægindin.
SodaStream
það besta er aldrei of gott.
Sól hf.
ÞVERHOLT119 SÍMI26300
REYKJAVÍK
- FRI