Tíminn - 05.09.1982, Blaðsíða 22

Tíminn - 05.09.1982, Blaðsíða 22
22 nútrminn SUNNUDAGUR 5. SEPTEMBER 1982 PONKIÐ LIFIR! ■ Animal söngvarí ANWL Anti-Nowhere-League We Are... The League WXYZ Records/Grammið ■ Það er langt síðan maður hcfur komið krumlunum yfir jafnfrábæra pönk-plötu og „We Are... The League“ en þessi plata sannar það svo ekki verður um villst að pönkið lifir. Hljómsveitin Anti-Nowhere League er um þessar mundir skærasta stjarna pönksins í Bretlandi og auðvelt er að sjá af hverju með því að hlusta á þessa plötu. Strákarnir í ANWL eru kunnir fyrir yfirgripsmikla þekkingu sína á fjagrastafa orðum, fuck...suck...o.sv.fr. og eru þau mikið notuö í textum laganna sem öll eru hráasta, grófasta og besta pönk sem nokkur maður getur fengið. Tónlist þeirra félaga í ANWL sver sig öðru fremur í ætt við Sex Pistols sálugu er þeir voru upp á sitt besta. Nafn söngvarans Animal er vel til fallið því söngur hans er dýrslegur og minnir á stundum á eitthvað sem slapp úr 'dýragarðinum. Allur leikur þeirra félaga er góður, á pönkvísu, en sumir gítarfrasar Magoo minna mann stundum á það grófasta hjá Keith Richards í Rolling Stones. Besta lag þessarar plötu er „Streets of London“ en það tók Breta með áhlaupi á sínum tíma og trónaði lengi á toppi „Sjálfstæða" listans þar. Onnur góð lög eru Nowhere Man, I Hate People og Can’t Stand Rock’N ’Roll. -FRI Saxon: The Eagle Has Landed. Carrere/Steinar hf. ■ Vitiði að ég veit bara alvcg sáralítið um hljómsveitina Saxon. Þó held ég að ég geti fullyrt eftirfarandi: Saxon er bresk bárujárnsrokkhljómsveit: (einsog Siggi Sverris segir). Hún hefur gefið út þrjár breiðskífur, þessi þar ótalin. Þær eru: Saxon (1979)7, Wheels Of Stcel (1980) og Strong Arm Of The Law (1980). Örninn er sestur er hljómleika- plata, sem tekin var upp á samnefndu tónleikaferðalagi um Bretland og Evrópu 1981. Á þessu feröalagi drukku meðlimir hljómsvcitarinnar um 500 lítra af áfengi og eyddu yfir 19.0ÍK) tepokum en komust þó yfir 56.000 mílur og héldu Síðasta tónleika- förWHO? ■ Hljómsveitin The Who hefur hafið æfingar fyrir næstu tónleikaför sína sem hefjast á í Bandaríkjunum á komandi hausti, en fregnir hafa borist um að þetta verði síðasta tónleikaför hljómsveitarinnar. Who hafa bætt við sig öðrum hljómborðsleikara, eru með full- búna plötu í fórum stnum, ekkert ákveðið um hvenær hún kemur út og munu sennilega leika einn konsert í Bretlandi áður en þeir halda vestur. fjölda tónleika. Eins og vcnja er með hljómleikaplötur saknar maður alltaf einhverra laga sem.manni finnst endi- lega hafa átt að vera með. Hér sakna ég þó aðeins lagsins To Hell And Back Again af Strong Arm... Platan er í hcildina þrusu góð járnplata og óhætt að mæla með henni sem klæðningu á eyru hvers bárujárnsaðdáanda. Bestu lög: Strong Arm Of The Law, Heavy Metal Thunder og Motorcycle Man. vika. h mentál R Hs finyl hing 1 * * * Mental As Anything: Cats and Dogs. Steinar hf. ■ Mental As Anything eða The Mentals eins og þeir eru kallaðir í Ástralíu, var stofnuö í Sydney 1977 og varð brátt afar vinsæl og er nú ein vinsælasta hljómsveit þar í landi. Fyrsta breiðskífa þeirra Gct Wet skaust beint inn á top 20 listann og önnur plata þeirra Expresso Bongo náði einnig miklum vinsældum: Fyrsta breiðskífan var síðan gefin út í Englandi 1980 og náði þareins og víðar þó nokkrum vinsældum. Hér á landi eru þeir sjálfsagt þekktastir fyrir lagið If You Leave Me Can I Come Too? sem er á safnplötunni Á Fullu sem út kom nú í sumar. Tónlist Mcntals er léttrokkað popp alveg ótrúlega gamal- dags. Ég get ómögulega skilið hvernig þeir fóru að því að ná slíkum vinsældum hjá andfætlingum okkar. Út á hljóðfæra- leik þeirra er ekkert hægt að setja. Mér finnst þetta bara ekkert gaman. Bestu lög: Ég man ekki eftir neinu ofsagóðu en það leiðinlegasta er If You Leave Me... vika. Melarokk: Pinrknr Pillnikk með fiuim ný lög ■ Fyrir viku síðan sagði undirrítaður hér á síðunni að No time to think vxrí síöasta plata hljómsveitarinnar Purrkur Pillnikk. Það mun ekki vera sannleikan- um samkvxmt því mikið er til af áður óútgefnu efni eftir þá sveit og er jafnvel xtlunin að gefa út enn eina plötu með þeim. Á Melarokki var Purrkurinn með bestu hljómsveitum sem fram komu og í prógrammi þeirra þá var að finna fimm ný íslensk lög sem þeir fluttu þrátt fyrír að þetta eru síðustu opinberu tónleikar þeirra. Melarokk var að mörgu leyti mjög velheppnuð tónlistarhátíð. Þar komu fram margar af þekktustu hljómsveitum nýbylgjurokksins hérlendis auk nýrra hljómsveita þó segjast verði eins og er að sumar hinna nýju áttu ekkert erindi á hátíðina. Hjá nýju hljómsveitunum virtist fara saman löng nöfn og lélegur leikur og ■ Grýlur ■ KOS

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.