Tíminn - 05.09.1982, Blaðsíða 27

Tíminn - 05.09.1982, Blaðsíða 27
SlMvUtíAGUR 5*. SEPTEMBER 1982 -w* 1 >■» 1 > 27 ■ Ingrid Bergman og Alfred Hitchcock höfðu mikiö álit hvort á öðru. Hér sjást þau saman á góðri stund, ■ Golda Meir og Moshe Dayan í kvikmyndinni um Goldu - síðustu myndinni sem Ingrid Bergman léjk í. en þau eru nú bæði horfin til feðra sinna. Hún fer að sjálfsögðu með hlutverk Goldu, en Yossi Graber nefnist Dayan myndarinnar. ■ Frá töku kvikmyndarinnar Casablanca. Ingrid og Humphrey sitja við borð fyrir miðju. Samantekt mn k^kmyndaferil leikkonunnar Ingrid Bergman, sem andaðist síðastliðinn sunnudag ■ í „Under Capricom“ fór Ingrid Bergman með, hlutverk drykkfclldrar konu, sem verður fyrir áreitni Peck. Hinn þekkti handritahöfundur Ben Hecht gerði handritið fyrir Hitch- cock. í myndinni segir frá nýjum yfirmanni á geðveikrahæli. Sá þjáist af minnisleysi og grunsemdum um að hann hafi í raun og veru myrt mann. Með aðstoð glæsilegs samverkamanns síns á hælinu, en Ingrid fer með það hlutverk, tekst að afhjúpa hinn raun- verulega morðingja. „Spellbound" þótti ekki ein af bestu myndum Hitchcocks, en „Notorious“, þar sem Ingrid Bergman var einnig í aðalhlutverkunum, bætti þar um betur og er ein allra bestu mynda hans. Sú gerist í Rio de Janeiro og segir frá baráttu bandarískra njósnara við nasista þar á stríðsárunum. Cary Grant fór með hlutverk bandaríska njósnarans, Devl- in, sem er að reyna að afhjúpa njósnara nasista í Rió. Hann fær sér til aðstoðar unga stúlku, Aliciu, sem Ingrid Berg- man lék. Alicia er dóttir manns, sem dæmdur hafði verið fyrir landráð og ráðið sér bana í fangelsi. Hún vill bæta fyrir afbrot föður síns og fellst á að giftast Sebastian, leiðtoga nasistahóps- ins (Claude Rains fór með það hlutverk) í því skyni að afhjúpa hann og félaga hans. En Sebastian kemst brátt að því hvað til stendur og reynir að drepa eiginkonu sína á eitri. Priðja Hitchcock-myndin, sem Ingrid Bergman lék í, var gerð árið 1949 og nefnist „Under Capricom". Þar segir frá ungri, ískri hefðarfrú, sem fer ásamt eiginmanni sínum (leikinn af Joseph Cotten) til Ástralíu árið 1830. Eigin- maðurinn var í reynd fyrrverandi fangi sem hafði auðgast í Ástralíu, og þegar hann kemur heim með eiginkonuna er þar fyrir afbrýðisöm ráðskona sem reynir hvað hún getur til þess að hrella hana. Þetta var óvenjulegt viðfangsefni fyrir Hitchcock og myndin hlaut dræmar viðtökur almennings. Heilög Jóhanna Á þessum árum lék Ingrid Bergman í mörgum öðrum myndum en þeim, sem Hitchcock leikstýrði. Þar má nefna „Saratoga Tronk“ (1945) með Gary Cooper um milljónamæring frá Texas og unga stúlku sem hyggst verða rík, „The Bells of St. Mary‘s“ (líka 1945), þar sem sagði á gamansaman hátt frá nunnu (Bergman) og presti (Bing Crosby) sem reyna að fá auðkýfing til að byggja nýtt stórhýsi yfir starfsemi kirkjunnar; „Arch of Triumph“ (1948), sem gerð var eftir samnefndri sögu Remarques og fjallar um lækni, sem er flóttamaður, og unga stúlku „með fortíð“ eins og það heitir, í París rétt áður en nasistar lögðu borgina undir sig, (Lewis Milestone leikstýrði myndinni, en hann gerði fræga mynd eftir annarri skáldsögu Remar- ques - Tíðindalaust á vesturvígstöðv- unum); og svo „Joan of Arch“ (1948), sem Ingrid Bergman var sjálf mjög ánægð með að hafa fengið að leika aðalhlutverkið í. Hún gerði heilagri Jóhönnu góð skil í myndinni, sem Victor Flemming leikstýrði, en þar var saga Jóhönnu rakin allt frá því hún var 13 ára að aldri og fékk fyrsta sinni sýnir, og þar til æfi hennar lauk á báli breskra stjórnvalda. Stromboli og nýtt líf Ingrid Bergman gerði „Under Capri- corn“ strax á eftir myndinni um heilaga Jóhönnu, en síðan fór hún að leika í kvikmynd á Italíu. Sá atburður átti eftir að gjörbreyta lífi hennar og hafði nær stöðvað feril hennar sem kvikmynda- stjörnu. Þetta var myndin „Stromboli“, sem ítalski leikstjórinn Roberto Rossel- lini gerði. Þau urðu yfir sig ástfangin og Ingrid Bergman ákvað að yfirgefa eiginmann sinn, Peter Lindström, og dóttur sína, Piu Lindström, og giftast Rossellini. Viðbrögð við þessum atburð- um urðu mjög hörð í Bandaríkjunum, þar sem hún hafði fengið ímynd sem siðprúð og nánast heilög kona. Hún varð fyrir heiftúðugum árásum frá trúar- félögum, kvenfélögum af ýmsu tagi og jafnvel stjórnmálamönnum. í ræðu í öldungadeild bandaríska þingsins var hún m.a. kölluð „postuli siðspillingar- innar í Hollywood" og „boðberi frjálsra ásta“, og henni var meinað að leika í bandarískum kvikmyndum í sjö ár. Það var þeim mun bagalegra þar sem myndir þær, sem hún lék í á Ítalíu, náðu litlum vinsældum. Það átti jafnvel við um Stromboli, þar sem Ingrid Bergman lék unga stúlku, sem lent hefur á flækingi í stríðinu og giftist ungum fiskimanni til þess eins að losna úr flóttamannabúð- um. En hún fellur illa inn í þröngt samfélag fiskimannanna og finnst hún vera fangi þar. Annar Óskarinn Þótt Ingrid Bergman léki í nokkrum öðrum ítölskum myndum næstu árin, þá náðu þær lítilli útbreiðslu og almennt var talið að kvikmyndaferli hennar væri í reynd lokið. En árið 1956 fékk hún hlutverk í kvikmynd Renoirs „Elena et les Hommes", og skömmu síðar í bandarískri kvikmynd, sem tekin var upp í Englandi. Sú hét „Anastasía“ og þar lék Ingrid Bergman svo frábærlega flóttakonu, sem gæti hafa verið eftir- lifandi dóttir rússnesku keisarahjón- anna, að hún fékk á nýjan leik Óskar fyrir besta leik í aðalhlutverki. Henni var loks „fyrirgefið“ í Hollywood. Um svipað leyti urðu á ný umskipti í lífi hennar. Hjónaband hennar og Rossellinis var fellt úr gildi árið 1958 og hún giftist í þriðja sinn; að þessu sinni sænskum manni, Lars Schmithe, sem lifði konu sína. Hún hafði eignast þrjú börn með Rossellini; fyrst son og síðan tvíburadætur. Fjöldi kvikmynda og þriðji Óskarinn Sama árið og hún skipti um ciginmann lék Ingrid Bergman í tveimur kvikmynd- um; „Indiscrcet" með Gary Grant og „The Inn of the Sixth Happiness“ með Curt Jurgens og Robert Donat. Sú fyrrnefnda er gamanmynd um ástarsam- band auðugs bandarísks diplómats og evrópskrar leikkonu og fengu bæði Ingrid og Cary lof fyrir frammistöðu sína. Hin myndin gerist í Kína á tímum stríðsátaka og segir frá konu, sem starfað hefur við trúboð þar í landi og reynir að koma hópi barna á öruggan stað en þarf til þess að fara með þau um stríðshrjáð landsvæði. Ingrid hlaut mjög góða dóma fyrir þessa mynd og sömuleiðis Robert Donat, sem lék kínvcrskan mandarína, en þetta var hans síðasta kvikmynd. Mark Robson leikstýrði. Af kvikmyndum, sem Ingrid Berg- man lék í á sjöunda áratugnum, má m.a. nefna „Goodbye Again“, sem gerð var eftir skáldsögu Francois Sagan sem nefnd hefur verið Dáið þér Brahms? á íslensku, og „The Vistit“ sem byggir á frægu leikriti eftir Friedrich Durren- matt. Þær þóttu ekki takast vel, en „The Yellow Rolls Royce“ hlaut nokkrar vinsældir. Þetta er gamanmynd með fjölda annarra þekktra kvikmynda- stjama í aðalhlutverkum, svo sem Rex Harrison, Shirley MacLaine, Omar Sharif og George C. Scott, og fjallar um ævintýri Rolls Royce-bifreiðar og ým- issa eigenda hennar. „Cactus Flower“, sem gerð var eftir gamanleikriti sem sló í gegn á Broadway, þótti hins vegar mislukkuð að öðru leyti en því að Goldie Hawn fékk þar sitt fyrsta tækifæri í aukahlutverki í kvikmynd og fékk Óskar fyrir. Á síðasta áratug lék lngrid Bergman í allnokkrum myndum, en það eru einkum tvær þeirra, sem ástæða er til að minnast á. Ónnur er „Murder on the Orient Express" frá 1974. Hún lék þar aukahlutverk, eins og reyndar margar aðrar þekktar kvikmyndastjörnur, og gcrði það svo vel að hún fékk Óskarsverðlaun fyrir vikið. Mynd þessi cr sem kunnugt er byggð á einni af sögum Agatha Christie. Hin myndin er „Autumn Sonata“ eftir Ingmar Berg- man. Mynd þessi fjallar um uppgjör á milli rr.óður og dóttur, og lék Ingrid móðurina en Liv Ullman dótturina. Frammistaða Ingrid í þessu erfiða hlutverki vakti mikla athygli. Á síðustu árum átti Ingrid Bergman við alvarleg veikindi að stríða. Þrátt fyrir það féllst hún á að leika enn eitt veigamikið hlutvcrk á liðnum vetri; Goldu Meir eins og frá var sagt hér í upphafi. Og þar hefur hún unnið leiksigur sem jafnast á við það besta, sem hún hefur áður gert í Casablanca, Jóhönnu af Örk, Anastasíu og svo mörgum fleiri góðum kvikmyndum. Hún var heppnari en margir aðrir kvikmyndaleikarar að því leytinu, að hún fékk tækifæri til að leika í ýmsum kvikmyndum, sem seint falla í glatkist- una, sem í raun eldast ekki og verða því sýndar aftur og aftur. Slíkir listamenn lifa sinn eigin dauða. Elias Snæland Jónsson skrifar

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.