Tíminn - 05.09.1982, Blaðsíða 16

Tíminn - 05.09.1982, Blaðsíða 16
■ Þeir voru þekktustu grásleppukarlamir á Grímsstaðaholti og settu sinn svip á manniíiið þar: Jón Kyjólfsson, faðir Eyjólfs, Eyjólfur Guðbrandsson á Smyrilsvegi 21 og Ámi Jónsson frá Grímsbæ. ■ Á hernámsdaginn, 10. maí 1940 við Reykjavíkurhðfn. ■ Þrír glaö- beittir dátar stilia sér upp til myndatöku. ■ Sumir hermannanna vora ekki mikið eldri en Eyjólfur og í hópi þeirra eignuðust strákar á Holtinu góða kunningja. Hér er Eyjólfur með einum úr liði Skota. Ég fór upp í Baldur. Voru látnar nýjar rúllur í hjólið. Kostaði að 2 krónur og 50 aura. Herflutningaskipin eru komin hingað. Um kvöldið var ég með Oddi í Jónshúsi. MIÐVIKUDAGUR 29. MAÍ Veðrið: All hvass á austan. Klukkan 7 fór ég að sendast. Ég hjólaði niðrá höfn og skoðaði herflutningaskipin. Klukkan hálf 8 fór ég með fisk til Fínu. Stríðsfréttir: Bandamenn tóku Narvík úr höndum Þjóðverja. Narvík er í Noregi. Bandamenn berjast enn þá í Belgíu móti Þjóðverjum, þótt belgíski herinn hafi gefist upp. Um kvöldið las ég bókina „Bjarnar- greifarnir". meistari. Að síðustu fórum við í fótbolta með hermönnunum. ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚNÍ Klukkan 7 fór ég að sendast. Sogamýrardagur. Klukkan 2 komum við Halldór á Sjónarhól. Hermennirnir halda áfram að grafa skotgrafir heima. Stríðsfréttir: ítalir sögðu Bretum og Frökkum stríð á hendur í gær. Breskar flugvélar gerðu loftárásir á Libyu og Abissiníu. Abbissiníumenn hafa gert uppreisn móti ítölum. Bretar hafa tekið 31 ítölskskip. Loftárásvargerðáeyjuna Möltu, en hún er bresk. Þjóðverjar eru komnir í úthverfi Parísar, eiga aðeins eftir 26 mílur heim að borginni. Ogurlegir bardagar eru við Rheims. FIMMTUDAGURINN 30. MAÍ ...Mamma er að þvo í dag. Klukkan hálf níu fórum við Halldór á íþrótta- völlinn. Kepptu meistaraflokkarnir Vík- ingur og Fram 1-0. Settu Víkingar markið í fyrri hálfleik. Eftir kappleikinn var slagur á vellinum. Var dómarinn sleginn niður. Handsamaði lögreglan 30 menn. FIMMTUDAGUR 6, JÚNÍ í nótt sást til þýskra herflutningaskipa og flugvéla hér við land. Voru breskir hcrmenn alls staðar í Reykjavík. Voru 14-16 hermenn heima. Klukkan 7 fór ég að sendast. Sogamýrardagur. Klukkan hálf 2 komum við Halldór á Sjónarhól. Þvoði ég vagninn. Um kvöldið fórum við Oddur í Jónshúsi í Spaðaleik. Fóru leikar svo að ég vann alla leikina. LAUGARDAGUR 8. JÚNÍ Klukkan 7 fór ég að sendast. Sogamýrardagur. Klukkan 2 komum við HalldóráSjónarhól. Þvoðiégvagninn. Hermennirnir eru að grafa skotgrafir rétt við dyrnar hcima. Um kvöldið kepptum við Oddur, Óli og Kristján í Spaðaleik. Varð ég MÁNUDAGUR 17. JÚNÍ Risaherflutningaskip eru komin hing- að með smærri skipum. Eru þetta Kanada-menn. Er búið að reisa mörg hermannatjöld hér á Grímsstaðaholti handa þeim. Klukkan 7 fór ég að sendast. Nesdag- ur. í dag er 17. júní. Hann er helgidagur fyrir okkur íslendinga... Um kvöldið var ég í einu tjaldinu hjá Kanadamönnunum. Sýndu þeir mér myndir frá Kanada. Enginn Vestur-ís- lendingur hefur komið með þeim. Spiluðu Kanadamennirnir á gítar og munnhörpu að síðustu. Stríðsfréttir: Rússar hafa hertekið öll Eystrasaltsríkin í dag, Eistland, Lettland og Litháen. ... Frakkar biðja um vopnahlé, en þeir munu aldrei fallast á skilyrðislausa uppgjöf... FIMMTUDAGUR 20. JÚNÍ Veðrið: All hvasssuðaustan. Rigning. Klukkan 7 fór ég að sendast. Sogamýrar- dagur. Ég var allur rennandi blautur af rigningunni. Þegar ég var að hjóla hjá Elliðaánum sprakk hjólið og ég varð að labba með það heim að Sjónarhóli. Halldór kláraði Kleppsholtið. Fór ég síðan með hjólið upp í Baldur. En stýrið brotnaði, ryðgaði það í gegn. Tobbi á að fara á morgun í unglingavinnuna. „....alltaf verið sólskin á Moltinu99 komið upp í hendurnar á mér skjótlega með hernáminu. Já, byggðin á Holtinu á þessum árum. Það má segja að hún hafi afmarkast af Fálkagötunni, sem var þéttasti byggða- kjarninn, en út frá henni stóðu bændabýli á strjálingi. í kring um þau voru gömul og gróin tún eins og Grímsstaðir og grjótgarðar í kring. Þetta var eins og áður segir nokkuð út af fyrir sig, Grímsstaðaholtið, og það voru því talsvcrð ferðalög sem ég tókst á hendur í fiksöluferðunum út á Nes og inn í Sogamýri með vagninn og hann Molda gamla, - það var hesturinn. Ég gæti talið upp helstu hús og heimamenn á Holtinu og ef við byrjum á Hólabrekku, þá bjó þar m.a. Þorsteinn Ö. Stephensen og Einar Ólafsson. Á Litlu-Brekku bjó Ingibjörg Jónsdóttir með börnum sínum, - þar á meðal Eðvarð Sigurðssyni, alþingismanni. Á Brú bjó enn Oddgeir Sveinsson, málara- meistari. Aðalból var niðri hjá sjónum og á Lambhóli bjó m.a. Magnús Jónsson, sem var lengi formaður Hins ísl. prentarafélags. Þá er að nefna Suðurhlíð og Túnsberg, þar sem Olsen gamli bjó og hans synir en margir flugmenn eru í þessari ætt sem kunnugt er. Þá er að nefna Þormóðsstaði, Brúarland og Austurhlíð. Þetta voru helstu húsin næst sjónum að austan- verðu. Lóugata og Þrastargata voru að norðanverðu við Holtið. Þrastargata var þar sem núna er Hjarðarhaginn, - við Suðurgötuna, - sem þá var kölluð Melavegur. Á Bergsstöðum bjó Helga Jónsdóttir með sínum börnum. Hún var kölluð Helga þvottakona, og var annáluð fyrir dugnað. Garðavegurinn skar Holtið í sundur, þ.e. Fálkagötuna. Þar var Engihlíð og næst kom Garðavegur 4 þar sem Lárus Sigurbjörnsson bjó, en hann var fyrsti safnvörður Árbæjarsafns. í Görðum bjó svo sjálf kempan Sigurður Jónsson og kona hans Guðrún Pétursdóttir. Að Fálkagötu 36 var æskuheimili mitt, þar sem þau bjuggu faðir minn Jón OO S 0^772 JLu/y ztí/ Vinnur hann við Þingvallavatn. Þrír tundurspillar eru nú að lóna kring um Reykjavíkurhöfn. Klukkan 9 náði ég í hjólið upp í Baldur. Kostaði 12 krónur að gera við það. SUNNÚDAGUR 23. JÚNÍ Við Oddur og Halli fórum í landaparís og kúluboltaleik. Ég hjólaði með Svavari inn í Skerjafjörð til Magga og Siggu. Klukkan 7 fór pabbi að vaka í Shell. Stríðsfrétir: Frakkar gáfust upp fyrir Þjóðverjum í dag. Fá Þjóðverjar öll vopn og allan flota franska hersins. FÓSTUDAGUR 28. JÚNÍ ... Var í nótt mikið rok, svo að flugvélamóðurskipið rak uppí Örfirisey og strandaði þar... Klukkan hálf 6 fór Magni til flugvélamóðurskipsins og reyndi að draga það úr strandinu. Tókst það. LAUGARDAGUR 29. JÚNÍ Stríðsfréttir: Balbó flugforingi ftala og landstjóri Libýu beið bana í flugorrustu yfir Libyu. Hefur Balbo komið hingað til lands. Það var í hinum fræga leiðangri hans, er hann flaug vestur um haf. SUNNUDAGIJR 7, JÚLÍ Veðrið: Hægviðri og sólskin. í morgun sigldi risaherflutningaskip inn á höfnina. Eftir hádegi fórum við Tobbi inn í bæ. Var verið að skipa á land hermönnum úr herflutningaskipunum. Fór allt liðið til Grímsstaðaholts og Skerjafjarðar. Eru þetta franskir, skoskir og kanadiskir hermenn. Klukkan 8 fór Tobbi til Þingvalla. Um kvöldið kom einn Fransmaður heim með Magga. Talaði hann svo vel að ptamma skildi hann. MIÐVIKUDAGUR 10. JÚLÍ ... Tvö herflutningaskip sigla inn á höfnina í fylgd með tundurspillum. Eyjólfsson og Þórunn Pálsdóttir og bræður mínir Magnús, Þorbjörn og ég. • Einnig Svavar bróðursonur minn. Þar á móti var lítill stígur, sem lá niður að sjá. Hann var mjög bugðóttur og hét því fallega nafni Súlugata. í Björnshúsi við Súlugötu bjó Kristján Kristjánsson og í Jónshúsi Steinþór Oddsson og þeirra fjölskyldur. Þá kom næst Bjarg, en þar bjó Hannes Hannesson, sonur Hannesar pósts. Á Bjarnarstöðum bjó svo Guðjón Bjarna- son, ásamt Guðrúnu Guðjónsdóttur, og þar var stundaður búskapur og grásleppuveiði. Björn Guðjónsson, sonur þeirra, er mesti grásleppuveiði- maðurinn á Holtinu enn í dag. Gömlu Grímsstaðimir, sem stóðu við Ægissíðu 58 eru nú horfnir, en þar bjó Andrés q 1 | t 'ytCyiCut 2&>'l Jjjv ÁJu&U&m*. M//ou.'LúmÁl ojjuA, ct$t A/a^cLcUJÁ/Clwttx i XCJ acf *jt /. Am fisjcja/t.arj QtCvt QKfJijÓlci j'Hxyn/fö Áx/o'ÁycJcoí ’»*. Ácvý i mý/jua sofön CctfA>/ó. c 'J'lÆJtytv&u/rrt, cJaJ\ÁctÁa i j- /\.Ác<í-ori‘h'* OCj cí O’ViotuJitMyri, 'i'Ctf Cc////ci/é/ Czjf ÁMrhflOnvruo/n-. JÁrvc/uyJ.QzJ'yyrzi'y-aÁjci/, cuum cx cTVi£/H. . ... AjCrrn/ylcrt'IrQAtJ ót/ Otí <Z>Crh>w/Oc GtóaU/ríc/. mmöo/ý/ Cl <OCa/ t u/x f CKc'JM- ?■ . * * />jC/Yí /~) Q/yr> /wssfmxxtíu sc, c"//é/cc• <Ác>iCfCvc '/rsd//cc /cvta <£/ axmvu* /ruxtí* 'O Jc/ d/ tjty cx c>cj nridótí. ZMtítxtí aocx JCtxyah TUirf >7 icyrVYXtC'rri o^éenu/óru 'iucm. Hermennirnir eru farnir af Holtinu, en tjöldin standa enn. Ég fór inn í fornbókaverslun og keypti tvær gamlar landafræðibækur og mannkynssögu á 1.75. FÖSTUDAGUR 12. JÚLÍ Klukkan 7 fór ég að sendast. Nesdagur. Hermenn eru komnir að Hrófsskála og Bakka. Seldi einn hermaðurinn mér hálfan kjötskrokk og eina kílódós af smjöri fyrir tvo gríðarstóra þorska. 3-4 þúsund hermenn eru komnir á Holtið. SUNNUDAGUR 14. JÚLÍ Veðrið: All hvass austan. Um kvöldið fór ég í fótbolta með tveimur Englendingum. Voru þeir að safna íslenskum frímerkjum. Gaf ég þeim öll íslensku frímerkin mín og myndir af íslandi. Gáfu þeir mér myndir frá Afríku af Angóla nýlendunni, sjálfblekung og þrjú R.E. (Royal Engineers) merki, en það er herdeildarmerki þeirra. Bauð ég þeim heim og fengu þeir kaffi. Auk þess kort af íslandi og kort af vesturvígstöðv- unum. Hétu þeir Albert frá Angóla í Afríku og Martin frá Edinborg. Börðust þeir í Norður Noregi í Harstad, rétt hjá Narvik. MIÐVIKUDAGUR 17. JÚLÍ Klukkan 7 fór ég að sendast. Nesdagur... Um kvöldið fórum við Halldór í fótboltaleik við Englendingana Kom Albert heim, en ég bauð honum þangað á eftir. Er hann hermaðurinn sem kom á laugardaginn. LAUGARDAGURINN 20. JÚLÍ ... Klukkan 2 komum við Halldór á Sjónarhól. Hermennirnir eru búnir að taka miðhæðina á Sjónarhóli og melana fyrir ofan. Eru þeir búnir að láta fallbyssur þar. Jónsson og hans kona, en á nýju Grímsstöðum bjó bróðir hans, Árni Jónsson og kona hans. Áfastur við Bjamastaði var Staður og þar bjuggu foreldrar Guðrúnar á Bjarnastöðum. Norðaustan við Grímsstaðholtið var Grund, og þar bjuggu Pétur Runólfsson og Katrín Þórarinsdóttir. Það hús er þar sem Hjarðarhagi 36-42 er nú. Þá komu Signýjarstaðir og þar bjó Hermann Björnsson og Una Jónsdóttir og þeirra böm. Það er við Hjarðarhaga 33. Einarsstaðir stóðu þar sem nú eru gatnamót Fornhaga og Hjarðarhaga. Þá er að nefna Haga, þar sem Kóka kóla var með sína starfsemi, en þar var fiskstæði og kallað Fisk-Hagi. Þetta eru húsin sem lágu út frá Fálkagötunni og ég held að égsé kominn nokkurn veginn hringinn. Samt er freistandi að taka með austasta húsið á Seltjarnarnesi, Austurkot, sem nú er Faxaskjól 17. Þar bjuggu hjón með 12 börn og var Gísli Halldórsson, fyrrum formaður ÍSÍ, eitt þeirra. Við Arnargötuna, sem enn er til, var Litli Bær, en þar bjó Halldór Jónsson og Guðbjörg Magnúsdóttir. Halldór var

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.