Tíminn - 05.09.1982, Blaðsíða 3

Tíminn - 05.09.1982, Blaðsíða 3
SUNNUDAGUR 5. SEPTEMBER 1982 jfólk T listum ■ Torsten Föllinger „Eg reyni að finna það sem söngvarinn í raun og veru býr yfir,” segir Torsten Föllinger ■ Á morgun lýkur heimsókn sænska listamannsins Torsten Föliinger hingað tU lands, en hann hefur og leiðbeint íslenskum nemum í Leiklistarskóla Islands að undan- fömu og auk þess var hann karlakófnum „Fósfbræðrum“ til ráðgjafar, en kórinn er á næstunni að leggja upp í ferð til Banda- ríkjanna, þar sem hann mun syngja við opnun sýningarinnar „Scandinavia Today“. En þótt Thorsten sé mjög fjölhæfur leiðbeinandi söngvara, þá er hann listamaður sjálfur sem fyrr segir og það kom í Ijós er hann hélt tónleika í Norræna húsinu s.l. fimmtudag og spreytti sig þar á þeim Mozart, Schumann, Ture Rangstöm, Hanns Eisler, Ruben Nilson, Charles Trenet, Tom Lehrer og fleirum. Við hittum Torsten Föllinger að máli í byrjun fyrri viku og komumst að ýmsu um hann sjálfan, svo sem því að hann leggur auk sönglistarinnar stund á listmálun og hefur getið sér verulegan orðstír sem slíkur. Að fínna listamanninn í hverjum einstaklingi Eins og fram kemur af höfundum þeim sem Föllinger flutti lög eftir í Norræna húsinu eru það ekki einvörðungu klassískir höfund- ar sem hann fæst við. Það á einnig við um leiðbeinendastarf hans en hann segir jafnt til I óperusöngvurum í Verdi og Wagner, sem poppsöngvurum og vísnasöngvurum eða jasssöngvurum. „Ég geri miklar kröfur til nemendanna, bæði um stundvísi, undirbúning og vinnu- semi,“ segir Föllinger. „Hins vegar segi ég ekki við neinn nemanda: „Þú átt að gera svona og nákvæmlega þessi atriði". Ég reyni að leita þess sem listamaðurinn raunverulega hefur en ekki að búa eitthvað til sem hann hefur ekki. Ég byrja á að spyrja nemandann hvers vegna hann leiti til mín. Sumir segja að ástæðan sé sú að þeir þyki hafa fallega rödd, en þá bendi ég þeim á að falieg rödd sé ágæt út af fyrir sig, en að því fari fjarri að allir söngvarar hafi fallega rödd og að það sé ekki neitt skilyrði. Ég reyni að fá menn til þess að gefa sjálfa sig og koma til skila einhverju frá eigin hjarta. Það er skilyrði til þess að verða listamaður og það fæst ekki með neinni tækni. Ég tek oft þann kost að bíða eftir að þetta komi af sjálfu sér, fremur en leggja fólki einhverjar lífsreglur. Þegar ég sé að eitthvað er að fæðast og eitthvað er gert vel, þá bendi ég nemandanum á það. Það er mjög mikilvægt, því menn heyra ekki sjálfa sig syngja og söngur og rödd manna byggist aðeins á vöðvaminni. Raddböndin eru aðeins vöðvar." Torsten Föllinger þykir mikill snillingur í því að losa söngvara við margskonar hömlur sem há þeim á listabrautinni, bæði í sjálfum söngnum og í sviðsframkomu og hann er þekktur langt út fyrir eigið land, enda liggur leið hans eftir að hann fer héðan um England og Þýskaland, þar sem beðið er eftir tilsögn hans í söngskólum. Hanr. hefur haft nemendur svo sem Birgit Nilson, mestu Wagner-primadonnu samtímans og leik- arann Max von Sydow, en þetta fræga listafólk á honum mikið að þakka og það mun hafa verið Föllinger sem kenndi Nilson sviðsframkomu á sínum tíma, sem í upphafi var ábótavant. Föllinger kallast „sangpádagog" og von- andi hefur það upplýst að nokkru af framansögðu hvað í orðinu felst. Hann þykir sem söngvari frábær Brecht-túlkandi og hefur starfað með heimsfrægu listafólki, svo sem Gieselu May og Rudolf Penks. Svissneskur ljósmyndari í Listmunahúsinu H Sýningin „Annað sjónarhorn“ verð- ur opnuð í Listmunahúsinu, Lækjargötu 2, laugardaginn 4. september kl. 14.00. Þetta er ljósmyndasýning svissneska ljósmyndarans Max Schmid og er myndefnið sótt í náttúruna. Alls eru 74 myndir á sýningunni og eru flestar frá íslandi. Sýningin er sölusýning. Max Schmid er 37 ára frá Winterthur í Sviss. Hann er ekki skólagenginn Ijósmyndari heldur hefur hann lært af eigin reynslu. Hann ferðast mikið og hefur m.a. verið í Alaska og Klettafjöll- um N.-Ameríku. Einnig hefur hann verið í S.-Ameríku, Ástralíu og Nýja- Sjálandi. Til íslands kom Max fyrst árið 1968. Síðan hefur hann komið hingað a.m.k. einu sinni á ári og þá dvalið í óbyggðum landsins og tekið Ijósmyndir þar. í Iceland Review birtust myndir hans einna fyrst á prenti og oft síðan. Ýmis þekkt tímarit hafa síðar birt myndir hans og fremsta ljósmyndatímaritið í Sviss gaf á þessu ári út risastórt almanak með myndum eingöngu eftir hann. Max hefur haldið nokkrar sýningar síðustu árin í Sviss og Þýskalandi. Sýningin er opin virka daga frá kl. 10.00 til 18.00, laugardaga og sunnudaga frá kl. 14.00 til 18.00. Lokað á mánudögum. Sýningin stendur til 26. september. MEST SELDU HJÓLIN1981 Það er ekki að ástæðulausuaðKalkhoff hjólin eru lang mest seldu ieiðhjólin á íslandi 1981. Hjá Kaikhoff faia saman þýsk ná- kvæmni og vandviikni. Vegna mjög hagstæðia samninga við Kalkhoff-Weike GmbH, stæistu og viitustu ieiðhjólaveiksmiðju Vestur-Þýskalands, bjóðum við Kalkhoff hjólin á ótiúlega lágu kyrmingarverði. Yfii 40 gerðir á boðstóium og héi eru nokkiai þeina. /f\^ GerdNo. 6309 lOgíra Kr. 1.818,- 48 cm stell Dekk: 24 x 1% Litur: Silfur I\ GerdNo. 6339 lOgíra Kr. 1.720,- 50 cm stell Dekk: 26 x I3/e Litur: InkaguII *NS. Gerd No. 6563 An gíra Kr. 1.280,- GerdNo.6551 3\agira Kr. 1.583.- Dekk: 24 x 1.75 Aldur írá 9 ára Litir: Silíurog Rautt Gerð No. 6513Án gíra Kr. 1.220,- Gerð No. 6501 3ja gíra Kr. 1.495.- Dekk: 24 x 1.75 Aldur 9 ára Litir: Sillur og Blátt GerðNo. 2622 lOgíra 53 cm stell Dekk: 27 x l'U Litir: Burgundyrautt Verð: Kr. 2.134,- Gerö No. 4655 Stelpu Kr. 1.155,- Gerð No. 4605 Stráka Kr. 1.140,- Dekk: 20 X 1.75 Aldur írá 7 ára Gerd No. 6408 10 gíra 58 cm stell, Dekk: 27 x l'U Litur: Sillur Verð: Kr. 1.675.- Gerd No. 6411 á Kr. 2.4Uu.- Lúxusgerð, með sveiíum og öðrum fylgihlutum úr léttmálmi. 58 cm stell Dekk: 27 x l'U Litir: Silfur og Blátt w T& GerðNo. 6031 Þrekþjálíunarhjól með stillanlegri þyngc og hraðamæli. Stór og mjúkur hnakkur. Litur: Silfur Verð: Kr. 1.280.- Til viðmiðunar um val á stærri reiðhjólum Aukabúnaður: Hjálparhjól á Kr. 50.- ATH. Fótbremsa á öllum barnahjólum innanfótaimál 70-73, 74-78, 79 og hæni stellhæð í cm 48 cm, 53 cm, 58cm Allir tylgihlulir serr. sjást a myndunum tylgja meðhjólunum, svo sem Ijósabúnaður, pumpa, endurskinsmerki, standari og II. ÖII verð eru miðuð við 17. ágúst 1981 Gerð No. 2167, án giraáKr. 1.290.- GerðNo. 2171, 3ja gíra á Kr. 1.510,- Gerd No. 5605, án gíra á Kr. 1.220.- 58 cm stell Dekk: 26 X 13/a, nema 5605 sem ermeðmjög breiðum dekkjum: 26 x 1.75 Litir: Silfur og Blátt Gerd No. 5655, án gíra á Kr. 1.280,- Gerd No. 5652, 3ja gira á Kr. 1.580,- 53 cm stell Dekk: 26 x 1.75 Litir: Silfur og Rautt Sendum í póstkiöfu um allt land Þekking - Þjónusta - Reynsla .. Reiöhjólaverslunin ORNINN Spítalastíg 8 og við Óóinstorg símar: 14661,26888 Sérverslun i meira en hálfa öld - AM

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.