Tíminn - 05.09.1982, Page 21

Tíminn - 05.09.1982, Page 21
SUNNUDAGUR 5. SEPTEMBER 1982 á bókamarkadi „A History of the Crusades." Höfundur: Steven Rundman. Útgefandi: Penguin ■ Hér er rakin saga krossferðanna í þremur bindum. í því fyrsta er rakin sagan frá því er byrjað var að prédika fyrir fyrstu krossferðina og hrifningu þeirra sem sá málflutningur mætti, til þess er krossfararnir stofnuðu sigri hrósandi konungsríkið Jerúsalem. ( öðru bindi er sagt frá velmektar- dögum ríkis Franka og endalokum þcss, frá stofnun konungsríkisins Jerusalem til endurheimtar borgarinnar af Saladin. í þriðja bindi er sagt frá þriðju krossferðinni, frá ríki Franka í Jerúsalem og hruni þess öld síðar, frá dvínandi áhuga á boðskap krossferða og býzönsku krossferðinni einkennilegu. Penguin hefur einnig gefið út „Chron- icles of the Crusades" sem hcfur að geyma tvær franskar sögur sem tcngjast krossferðum, „Villohardouin’s Conquest of Constantinopel,” sem segir frá því hvemig fjórða krossferðin snérist upp í árás á kristna menn ortódox kirkjunnar og „Joinville’s Life of Saint Louis,” sem er all lífleg frásögn höfundat af þátttöku hans í einni krossferðanna og af kynlegum háttum fólks í Austurlöndum. Fhílip K.I Iilii Islam: AWiyof Li'fe „Islam - a Way of Life“ Höfundur: Philip K. Hitti. Útgefandi: Regnery Gateway ■ Prófessor Hitti er mikill sérfræðingur um menningu Austurlanda og í þessari bók skoðar hann múhameðstrú ekki aðeins sem trúarbrögð, heldur einnig sem ríkisform og menningu, - sem lífsform. Múhameðstrú byggðist upp á kostnað Persaríkis og Aust-rómverska ríkisins og náði hátindi veldis síns um 750 eftir Krist. Þessi menning átti eftir að hafa bókmenntaleg, vísindaleg og heim- spekileg áhrif meiri en nokkrar aðrar andlegar hræringar á miðöldum. Álítur prófessor Hitti að heimurinn megi vænta margvíslegra menningarlegra verðmæta á komandi tímum frá hendi araba. Kannske rétt sé að vitna hér í orð rabbínans Nahum Schulman um þessa bók: „Löngu er kominn tími til að kristnir menn hætti að líta á múslíma, Araba og Tyrki, sem hirðingja og heiðingja og vantrúarmenn. Þeir eiga sér tni á einn guð og lífshætti sem eru af hámenningarlegu tagi.“ „Sea Stories". AJuu Richards valdi sögumar. Útgefandi: Penguin ■ Margir mætir höfundar hafa ritað eftirminnilegar sögur af sjónum, en margir stflsnillingar hafa kynnst sjónum ýmist sem sjómenn eða þá sem miklir langferðamenn og nægir að minna á Joseph Conrad sem dæmi um hið fyrra, en Somerset Maugham sem dæmi um hið síðara. Þeir eiga báðir sögur í þessu safni, Conrad söguna „The Secret Sharer” og Maugham „Honolulu.” Af öðrum höfundum má nefna C.S. Forester, sem ritaði söguna „The Cargo of Rice”, Jack London með söguna „The Seed of McCoy”. Ritstjóri bókarinnar hefur tekið þann kost að taka stundum frásagnir út úr stærri verkum og enn segist hann hafa sleppt ýmsum frægum meisturum sagna af sjónum, til þess að gefa minna kunnum mönnum með góða sögu pláss. Þá er loks að geta þess að bókinni er skipt í tvo hluta og er skáldskapur uppistaðan í fyrri hlutanum en sannsögulegir viðburðir í þeim seinni. Þá má vera lítil ævintýralöngun eða þörf fyrir læsilega bók ef menn finna ekkert við sitt hæft innan spjalda bókarinnar „The Penguin Book of Sea Stories.” „The Storm Force to Narvik" Höfundur: Alexandcr Fullcrton. Útgefandi: Pan Books x Hér er spennandi stríðsskáldsaga byggð á raunverulegum atburðum þ.e. innrás Þjóðverja í Noreg og tilraun Breta til þess að taka þar land árið 1940. Urðu inni á fjörðum Norður-Noregs hinar hörðustu sjóorrustur og Bretar komust á land, en voru reknir til baka eftir nokkra hríð. Hér segir frá Nick Everard, sem fyrst lenti í sjóorrustu í orrustunni við Jótland 1916, en endurnýjar nú kynnin við sæguðinn og stríðsguðinn eftir aldar- fjórðungs hvíld. Hann er nú skipstjóri á tundurspillinum „lntent”. Við Noregs- strönd er annar sægarpur sem tilheyrir nýrri kynslóð í hópi byssuskytta á tundurspillinum „Hoste”. Báðir komast þeir félagar í harða raun í bardögum um Narvik. Höfundurinn, Alexander Fullerton er enginn nýgræðingur í ritun ævintýra- sagna úr sjóhernum og hefur hann t.d. áður ritað þrjár skáldsögur um ævintýri Nick Everard. ■ Ofannefndar bækur fást í bókaverslun Máls og menningar. Tekið skal fram að hér er aðeins um kynningu að ræða, en enga ritdóma. 21 BORGARSPÍTALINN Lausar stöður HJÚKRUNARFRÆÐINGAR Á skurðlækninga- og lyflækningadeildum spítalans. Á Grensásdeild er um að ræða 1/2 starf. Vinnutími frá 7.30-12 virka daga. Upplýsingar á skrifstofu hjúkrunarforstjóra í slma 81200. Reykjavík, 3. sept. 1982 Borgarspítalinn Snjóruðningstæki: Framleiðum snjóruðnings- tennur fyrir vörubíla og dráttarvélar. Pantanir þurfa að berast sem fyrst svo hægt verði að afgreiða þær fyrri part vetrar StálIækni sf. Síðumúla 27, sími 30662 Árgerð 1983 ER KOMIN Á GREIÐSLUKJÖRUM SEM EKKI HAFA ÞEKKST HÉR Á LANDI Verðið er lægra, en á nokkrum öðrum bíl ÞEIR SEM HUGSA KAUPA TRABANT TRABANT/WARTBURG UMBOÐIÐ Ingvar Helgason Sýningarsalurinn v/Rauöageröi Sími 33560

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.