Tíminn - 12.09.1982, Page 2
2
fólk i listum
SUNNUDAGUR 12. SEPTEMBER 1982.
Norræn tónlistarhátíð ungs fólks í Reykjavík:
Jane Manning syngur
í Austurbæjarbíói
/ ' /
■ Ingólfur Margeirsson.
Ingólfur
Margeirsson
kynnir nýja
skáldsögn
sína
■ Á mándudagskvöld, 13. september,
kl. 20.30 gangast Leikfélag Mosfells-
sveitar og Héraðsbókasafn Kjósarsýslu
fyrir kynningu á nýrri bók eftir Ingólf
Margeirsson rithöfund í héraösbóka-
safninu, sem er til húsa í Gagnfræða-
skóla Mosfcllssveitar.
Bók Ingólfs, sem kemur út á forlagi
Iðunnar i næsta mánuði, nefnist Erlend
andlit og greinir þar frá minnistæðum
persónum sem orðið hafa á vegi
höfundar.
Ingólfur Margeirsson skráði í fyrra
endurminningar Guðmundu Elíasdótt-
ur söngkonu, sem út kom á bókinni
Lífsjátning. Sú bók vakti mikla athygli
og hefur nú verið tilnefnd af íslands
háhu til árlegra bókinenntaverðlauna
Noiiiurl.andaráðs.
■ Hin víðkunna enska sópransöng-
kona Jane Mannings syngur á norrænni
tónlistarhátíð ungs fólks sem hefst í
Reykjavík 19. september og stendur til
26. þessa mánaðar. Tónleikar hennar
verða í Ausubæjarbíói miðvikudaginn
22. september, en að auki flytur hún
erindi um nútíma söngtækni í Tónlistar-
skólanum og gengst fyrir sex söngnám-
skeiðum.
Jane Manning lærði söng í London og
í Sviss. Hún kom fyrst fram opinberlega
í London 1964 og söng þá lög eftir
Webcrn, Dallapiccola og Messiaen og
hefur æ síðan sungið mikið af 20. aldar
tónlist. Hún hefur einnig sungið í
óratoríum og klassískum óperum.
Til þess er tekiö hve tær rödd Jane
Manning er, og hvílíkt vald hún hefur á
henni. Hún hefur verið fengin til að
frumflytja fjölmörg tónverk og tónskáld
víða um heima og samið verk handa
henni. Árið 1973 veitti Breska tón-
skáldafélagið henni sérstök verðlaun
fyrir flutning á breskri tónlist.
Jane Manning er gift tónskáldinu
Anthony Payne.
Tónlistarhátíðin hefsf, sunnudaginn
19. september með tónleikum strengja-
sveitar sem Guðmundur Emilsson
stjórnar. Þar verða flutt verk eftir
hollenska tónskáldið Ton de Leeuw. Á
mánudag og þriðjudag verða kammer-
tónleikar á Kjarvalsstöðum, og aftur í
Neskirkju á fimmtudagskvöld. Föstu-
daginn 24. sept verða tónleikar með
raftónlist í Norræna húsinu. Kammer-
tónleikar verða síðan í Menntaskólan-
um við Hamrahlíð þann 24. og
Norræna húsinu 25. september. Hljóm-
sveitartónleikar verða í Háskólabíói og
Hamrahlíðarskóla25. sept. og26. sept.
Tíminn mun síðar greina nánar frá
dagskrá hátíðarinnar.
Sópransöngkonan Jane Manning.
■ Það hefur stundum andað köldu á milli gagnrýnenda fjölmiðla og listafólks.
Einkum hafa verið deildar meiningar með leikurum og gagnrýnendum, og væntanlega
verða gömul ágreiningsefni frá sýningum i Þjóðleikhúsinu og Iðnó riijuð upp á
málþinginu nú um helgina.
MÁLÞING UM
GAGNRTNI f
FJÖLMIBLUM
Veggblað norrænu tónlistarhátíðarinnar.
■ „Við ætlum að reyna að komast yfir
þann vegg sem stundum virðist vera á
milli listamanna annars vegar og okkar
gagnrýnenda hins vegar", sagði Jón
Viðar ‘Jónsson, formaður Samtaka
gagnrýnenda, í samtali við Helgar-
Tímann, en nú um helgina gangást
gagnrýnendur og nokkur samtök lista-
manna fyrir ráðstefnu um gagnrýni í
fjölmiðlum. Samtök gagnrýnenda áttu
frumkvæðið að ráðstefnunni, en hug-
myndin að henni hefur hlotið góðar
undirtektir meðal listamanna. Mark-
miðið er að auka skilning á aðstöðu og
sjónarmiðum gagnrýnenda annars vegar
og listamanna hins vegar.
Á ráðstefnunni verða haldin tíu stutt
framsöguerindi. Þeir sem tala eru
gagnrýnendurnir Árni Bergmann, Jón
Þórarinsson, Aðalsteinn Ingólfsson,
Ólafur Jónsson og Bryndís Schram, og
listamennirnir Guðbergur Bergsson,
Gunnar Egilsson, Benedikt Gunnars-
son, Helga Bachmann og Ólafía Bjarn-
leifsdóttir. Á eftir fylgja umræður í
hópum.
Auk Samtaka gagnrýnenda standa að
ráðstefnunni Rithöfundasamband ís-
lands, Félag íslenskra leikara, Tón-
skáldafélag íslands, Félag íslenskra
listdansara og Félag íslenskra myndlist-
armanna.
Ráðstefnan er haldin í stofu 201 í
Árnagarði við Suðurgötu. Hún hefst kl.
10 f.h. á laugardag með ávörpum forseta
Bandalags íslenskra listamanna og
formanns Samtaka gangrýnenda, og
stendur síðan yfir fram á sunnudag með
eðlilegum hléum.
Guðmundur frá Miðdal
hafður fyrir
rangri sök
í dagbókarköflum Eyjólfs Jóns-
sonar, sem birtust í síðasta tölublaði
Helgar-Tímans, var á einum stað
minnst á Guðmund Einarsson frá
Miðdal og sagt, að hann hefði haft
undir höndum sendistöð, sem notuð
var í þágu Þjóðverja. Athugasemd
staðaholtið aðalbxkistöð enska hersins
á íslandi. Búið er að finna leyniútvarps-
stöðina hér á íslandi. Hét hann
Guðmundur Einarsson frá Miðdal, sem
hafði hana. Pað er verið að reisa |
grjótgarða í Kringlumýrinni, hjá Vatns-
geyminum og hjá Mulningsvélinni fyrir I
Brcta. Klukkan hálf 4 komum við I
hefur verið gerð við þennan stað í
dagbókuni Eyjólfs og bent á, að
þetta sé ekki rétt - hér sé aðeins um
að ræða gamla slúðursögu, sem eigi
sér enga stoð í veruleikanum.
■ Jospeh Bloch.
Píanótónleik-
ar Joseph
Bloch n.k.
mánudags-
kvöld á
Kjarvals-
stöðum
■ Á vegum Félags tónlistarkennara er
staddur hér á landi bandaríski píanó-
leikarinn og fyrirlesarinn Joseph Bloch.
Mun hann halda fyrirlestra og ieiðbeina
í píanóleik dagana 11.-16. september.
Meðan Joseph Bloch dvelst hér á
landi, mun hann halda eina opinbera
tónleika. Verða þeir á Kjarvalsstöðum
mánudagskvöldið 13. september klukk-
an 20:30. Fyrir hlé verða eingöngu flutt
verk eftir Scriabin, þ.e. 5 preludíur op.
74, sónata nr. 9, þrír Morceaux op. 4 og
sónata nr. 5. Eftir hlé mun hann leika
2. heftið af preludíum Debussys.
Joseph Bloch kom fyrst fram sem
einleikari í Town Hall í New York árið
1950. Síðan hefur hann ferðast víða um
heim, haldið einkatónleika og komið
fram sem einleikari með hljómsveitum.
Hefur hann hlotið einróma lof gagnrýn-
enda í öllum heimsálfum.
Síðan 1948 hefur Bloch kennt píanó-
tónbókmenntir við Juilliard tónlistar-
skólann í New York. Vinsældir þessara
kennslustunda hafa spurst víða og því
hefur Joseph Bloch verið fenginn til þess
að kenna sem gestur við ýmsar virtar
tónlistarstofnanir og háskóla víða um
heim auk þess sem hann hefur haldið
fyrirlestra í útvarpi og sjónvarpi.
Nýlistasafnið:
Verk
Dieter Roth
á sýningu
■ Áhugamenn um nýlist geta nú
klappað saman lófunum. í byrjun
október efnir Nýlistasafnið til sýningar
á listaverkum eftir Dieter Roth, sem
Ragnar Kjartansson hefur gefið safninu.
Meginuppistaðan í sýningunni verða
u.þ.b. 20 grafíkmyndir, hreyfilistarverk,
collage, blýafsteypa, kort og 20-30
bókverk.
Dieter Roth hefur sem alkunna er,
verið mikill framsóknarmaður í listum
um langt skeið; hann var t.d. einn af
upphafsmönnum svokallaðrar op-Iistar
og concretpoetri, áhrifamaður í vestur-
evrópsku Flux-hreyfingunni, og upp-
hafsmaður í bókverkagerð. Hann bjó
hér og starfaði um árabil og hafði mikil
áhrif á hugmyndir og verk íslenskra
myndlistarmanna.