Tíminn - 12.09.1982, Síða 21
SUNNUDAGUR 12. SEPTEMBER 1982.
erlendir leigupennar
■ Sölumenn á „The New Covent Garden“ mnarkaðinum fá sér kafTisopa kl. 6 að
morgni.
21
RAKA-
TÆKIN
komin aftur
VERÐ
KR. 968,-
Póstsendum
Ifemediahf.
Borgartúni 20
Sími 27511.
heitum sumardegi. En það sem vekur
mesta athygli gesta eru burðarkarlar
staðarins sem aka löngum hjólbörum
fram og til baka af ótrúlegri lipurð um
annasamt markaðssvæðið.
Camden Passage
Markaðurinn er staðsettur í fátækra-
hverfi en ber þess ekki merki. Hann er
ekki í Camden hverfi eins og nafnið
gefur til kynna heldur í Islington,
hvernig sem á því stendur. Þarna er
urmull af rándýrum forngripaverslun-
um. Á markaðsborðum utandyra eru
hins vegar fáanlegir ódýrir smámunir.
Það er e.t.v. dæmigert fyrir staðinn að
um það leyti er ég var þarna á ferli rann
gljáfægður Mercedes Benz (einn tvö-
faldur) í hlað og út vippaði sér
einkennisklæddur bílstjóri er opnaði
fyrir óvenju velklæddum hjónum. Fólki
er sem sagt eindregið ráðlagt að gleyma
'ekki seðalveskinu ef það ætlar að versla
í Camden Passage.
Berwick Street
Það er hins vegar alveg nóg að hafa
budduna með í ferð inn í hjarta Soho,
konar rusli geta sjálfsagt gert góð kaup.
Til sölu eru meðal annars snjáð föt,
eldspýtustokkar, gömul ryðguð hnífa-
pör og þar fram eftir götunum. Þrátt
fyrir þessar hrakspár fnn ég Ijómandi
góða blómapotta á markaðinum fyrir
einu ári. Það eru hins vegar öllu meiri
dýrgripir í verslunum rétt við markaðinn
og augljóst að í þessu hverfi búa ekki
einungis þeir sem eru á bænum.
Það var farið að síga á seinni hluta
þessa laugardags og enn var eftir að
heimsækja einn skemmtilegasta
markaðinn að mínum dómi.
Portobello Road
Portobello Road er gata í Notting Hill
Gate hverfi sem hlykkjast í mörgum
bogum norður eftir borginni. Gatan
dregur nafn af Puerto Bello við
Mexicoflóa þar sem Vernon sjóliðsfor-
ingi sigraði Spánverja árið 1735.
Hefur gatan verið þekkt fyrir góðar
forngripaverslanir og markaðsborð allt
frá árinu 1950. Aðalblómaskeið göt-
unnar var seint á 6. og í byrjun 7.
áratugsins þegar hippar höfuðborgar-
innar hreiðruðu um sig á staðnum.
■ Benvick Street markaðurinn í hjarta Soho er þekktur fyrir góða ávexti og
grxnmeti.
nánar tiltekið á Berwick Street markað-
inn. Þama ku vera besti ávaxta og
grænmetismarkaður borgarinnar. Fatn-
aður og ýmiss konar smámunir eru líka
til sölu. Sölumennimir eru vinalegir en
nokkuð ágengir og ráðlegast að trúa
ekki öllu sem þeir segja. Gera má ráð
fyrir að mæta söngkonum, dansmeyjum
eða jafnvel fatafellum meðal vegfarenda
enda er urmull af slíkum samkomustöð-
um í hverfinu.
Kl. 8 á morgnana byrja hróp og köll
sölumanna þar sem þeir reyna að lokka
viðskiptavininn og þeir endast til 6 eða
7 á kvöldin sem er ótrúlegt úthald.
Gámngar segja að „Sardiníukonungur“
eða nærliggjandi pub „The King of
Sardinia" hjálpi til að mýkja raddböndin
þegar líða tekur á daginn.
Camden Lock
Með hendur fullar af grænmeti var
arkað af stað norður borgina eða í
Camden Lock markaðinn sem er í
samnefndu hverfi. Það er gaman að ráfa
þarna meðfram síkjum Lundúnaborgar,
inn í gömul hesthús og önnur útihús er
breytt hefur verið í markað. Hins vegar
virtist lítið um dýrgripi þarna. Þeir sem
áhuga hafa (hins vegar) fyrir ýmiss
Tímarnir hafa breyst og mennirnir með.
Nú er ekki óalgengt að mæta „punk-
urum“ eða ræflarokkurum með rauðan
hanakamb á höfði og einhvem veginn
virðist vera tíska líka að vera heimsku-
legur á svipinn. Sölumenn við götuna
eru ekki síður sérkennilegir klæðum og í
háttum. „Gipsy-Dan“ er einn þeirra
með tattóveraðar hendur upp að öxlum
og beyglaðan hattinn. Ekki má gleyma
„Wally og Smartie" sem sett hafa svip á
götuna í fjöldamörg ár. Ég hef aldrei
verið viss hvor er hvað og áræddi því að
spyrja gamla manninn að því þessu
sinni. Hann svaraði að bragði með
tannlausum gómi hvor finnst þér
„smartari" kænskari, en það var augljós-
lega fuglinn. Wally bætti því við um leið
og hann sneri áfram spilatæki sínu að
upphaflega vildi hann kalla páfagaukinn
„Lovely".
Eins og fram kom í upphafi þessarar
greinar er fjöldinn allur af alls konar
götumörkuðum um borgina og alls ekki
meiningin að gera tilraun að segja frá
þeim öllum en eitt er Ijóst af þessu rambi
mínu að margt verra er hægt að gera við
laugardag í höfuðborginni en að eyða
honum á einum af slíkum mörkuðum.
Það er a,m.k. ein af ódýrustu skemmtun-
um í stórborginni.
í London 25. ágúst 1982
afgreiðsiuhættir
bætt þjónusta
Viö bjóöum ykkur velkomin í nýtt útibú Landsbankans í
Breiöholti.
í Breiðholtsútibúi kynnum við ýmsar nýjungar, sem stuöla aö
bœttri þjónustu.
Viöskiptavinir geta tyllt sér niöur hjá starísmönnum okkar og rœtt
viö þá um fjármál sín og viöskipti. Peir geta íengið aöstoð viö
gerö íjárhagsáœtlana og upplýsingar um hugsanlegar
lánveitingar, án þess aö bíöa eítir viötali viö útibússtjóra.
Hraökassinn er nýjung, sem sparar viöskiptavinum okkar tíma
og íyrirhöín. Par er veitt skjót aígreiösla t.d. þegar innleysa þarí
ávísun eöa greiöa gíróseöil.
í rúmgóöri öryggisgeymslu má koma verðmœtum munum í
geymslu, t.d. meðan á feröalagi stendur.
Fyrir yngstu borgarana höíum við TINNA sparibauka og sitthvaö
fleira.
Komið viö í Breiöholtsútibúi og kynnist breyttum afgreiösluháttum
og betri þjónustu.
LANDSBANKINN
Breióholtsútibú, Álfabakka 10, Mjóddinni,Sími 79222