Tíminn - 24.09.1982, Blaðsíða 4
4_________________________
Forsætisnefnd
Norðurlandaráðs
auglýsir stöðu
upplýsingastjóra
í skrifstofu hennar í Stokkhólmi
Verkefni upplýsingastjórans er m.a.:
1) að sjá í samvinnu við innlenda skrifstofustjóra ráðsins um
upplýsingar á þingum Norðurlandaráðs og öðrum fundum;
2) að miðla innan Norðurlanda og utan fræðslu um Norðurlandaráð
og norrænt samstarf á öðrum sviðum;
3) að stjórna upplýsingadeildinni;
4) að vera ritari upplýsinganefndar Norðurlandaráðs.
Umsækjandi þarf að þekkja vel til norrænnar samvinnu,
þjóðfélagsmála og stjórnskipunar.
Laun og starfskjör fara að nokkru eftir reglum um sænska
ríkisstarfsmenn, að nokkru eftir sérstökum norrænum reglum. Laun
eru samkvæmt 23.-25. flokki í sænskum launastiga (10.753-12.910
sænskar krónur á mánuði), auk uppbótar vegna dvalar erlendis og
persónuuppbótar.
Starfstími er fjögur ár frá og með 1. nóvember 1982 eða sem fyrst
að þeim degi liðnum. Ríkisstarfsmaður á samkvæmt samkomulagi
milli Norðurlanda rétt á fjögurra ára leyfi til að starfa í sameiginlegri
skrifstofu Norðurlanda.
Nánari upplýsingar veita llkka-Cristian Björklund skrifstofustjóri
forsætisnefndarinnar, Inger Jágerhorn upplýsingastjóri (sími í
Stokkhólmi 14 34 20) eða Friðjón Sigurðsson ritari íslandsdeildar
Norðurlandaráðs, skrifstofu Alþingis (sími 1 15 60)
Umsóknir skal stíla til forsætisnefndar Norðurlandaráðs, (nordiska
Rádets presidium) og senda forsætisskrifstofunni (Nordiska Rádets
presidesekretariat, box 19506, A-10432 Stokkholm) í síðasta lagi
miðvikudaginn 29. september 1982.
Auglýsing
um verkamannabústaði á Selfossi
Stjórn Verkamannabústaða á Selfossi auglýsir hér með til sölu ,
eftirtaldar íbúðir að Háengi 12-14.
Byggðar skv. lögum n. 51/1980 og reglugerð nr. 527/1980 8 íbúðir
13ja herbergja 57 ferm. 2 íbúðir 5 herbergja 114 ferm. Upplýsingar
um rétt til kaupa á íbúð í Verkamannabústöðum liggja frammi hjá
bæjarritara á skrifstofu Selfossbæjar Eyrarvegi 8.
Einnig veitir hann upplýsingar um áætlað verð og greiðsluskilmála.
Umsóknum skal skilað eigi síðar en 15. okt. n.k. til skrifstofu
Selfossbæjar á þar til gerðum eyðublöðum sem liggja frammi á sama
stað.
Seifossi 21. sept. 1982
Stjórn Verkamannabústaða á Selfossi
ERNIR P „ímar
ftAFmm Slm0agr 369S
Bflaleíga
JEPPAR FÓLKSBÍLAR^^
Undirmenn f verkfall á hádegi f dag:
FiÖRUTÍU FAR-
SKIP STÖDVAST
— hafi samningar ekki tekist fyrir þann tíma
■ Allt bendir til þess að verkfall skelli
á hjá undirmönnum á farskipaflotanum
á hádegi í dag. Að vísu hefur verið
boðaður sáttafundur hjá ríkissáttasemj-
ara klukkan níu árdegis með vinnuveit-
endum og fulltrúum Sjómannafélags
Reykjavíkur, en mikið ber enn á milli
og engin hreyfing hefur verið á þessum
málum undanfarna daga.
Að sögn Guðmunds Hallvarðssonar,
formanns Sjómannafélags Reykjavíkur
nær boðað verkfall undirmanna til um
250 manna og um 40 farskip munu
stöðvast, ef ekki semst fyrir hádegi.
Undanþegin verkfallsboðuninni eru
hafrannsóknarskipin, varðskipin og
sanddæluskipin.
-Ef til verkfalls kemur þá munum við
sjá til hvað gerist í sambandi við
leiguskipin, sagði Guðmundur Hall-
varðsson.
-Ef þeim fjölgar frá því sem orðið er
þá munum við grípa inn í og fá þau
stöðvuð með hjálp frá Alþjóðaflutninga
verkamannasambandinu.
Guðmundur sagði annars að þróunin
í leiguskipamálunum væri uggvænleg.
Þeim virtist hafa fjölgað mjög
undanfarin ár og til marks um það mætti
nefna að árið 1975 komu þau 10 sinnum
til hafnar í Reykjavík, en sambærileg
tala fyrir árið í fyrra væri 117
skipakomur.
- Það hafa verið eitt til tvö norsk
leiguskip í stöðugri leigu hjá ríkisskip,
eftir að Heklunni var lagt, en um borð
í þessum skipum eru norskar áhafnir,
sagði Guðmundur.
Guðmundur tók fram að þetta skyti
nokkuð skökku við á sama tíma og verið
væri að tala um að efla íslenskt, en bæði
Farmanna-og fiskimannasambandið og
Sjómannafélag Reykjavíkur hefðu fært
þessi mál í tal við samgönguráðherra.
Þar hefði verið lofað að athuga málin,
en ekkert hefði verið gert enn sem
komið er.
- ESE.
Yfirnefnd
f jallar um
verð á síld til
frystingar
Verðlagsráð sjávarútvegsins fjallaði á
fundi sínum í gær um verð á síld til
frystingar.
Niðurstaða fundarins varð sú að
ákveðið var að fela yfirnefnd Verðlags-
ráðs sjávarútvegsins að komast að
niðurstöðu um verðið. Kemur yfirnefnd
fljótlega saman til fundar um þetta mál,
en yfirnefnd hefur nýlega ákveðið verð
á síld til söltunar og hækkaði það um
37% á milli ára.
-ESE
Notaðir lyftarar
í miklu úrvali
2. t. raf/m. snúningi
2.5 t raf
1.5 t pakkhúslyftarar
2.51 dísil
3.2 t dísil
4.3 t dísil
5.0 t dísil m/húsi
6.01 dísil m/húsi
UÁ
■sf
K. JÓNSSON & CO. HF.
Vitastíg 3
Sími 91-26455
HVAÐ
MEÐÞIG
m u
Snjóruðningstæki:
Framleiðum snjóruðnings-
tennur fyrir vörubíla og
dráttarvélar. Pantanir þurfa að
berast sem fyrst svo hægt'
verði að afgreiða
þær fyrri part vetrar
Stáliækni sf.
Síðumúla 27, sími 30662
BORNIN LÆRA AÐ DANSA
Það er hverju
barni hollt að
læra að dansa.
Það eykur sjálfs-
traustið og skap-
ar gleði.
Kennslustaðir ^
Reykjavík Kópavogur
Brautarholti 4, Hamraborg 1,
Drafnarfell 4, Seltjarnarnes '
Ársel (Árbæ) Félagsheimilið
Bústaðir Hafnarfjöður
Tónabær Gúttó
INNRITUN OG UPPLÝSINGAR
KL. 10—12 OG 13—19 Símar
g 20345, 24959,
A 1,, 38126,74444.
DnnssHOu
■
Veist
þú hverju
það getur
forðað
yUJJFEROAR
Hvenær
byrjaðir þú Jf*
-llX
IFERÐAR