Fréttablaðið - 13.01.2009, Qupperneq 11
ÞRIÐJUDAGUR 13. janúar 2009 11
Umsjón: nánar á visir.is
MESTA HÆKKUN
STRAUMUR +7,62%
MAREL +1,05%
ÖSSUR +0,93%
MESTA LÆKKUN
ATLANTIC AIRW. -1,18%
ATLANTIC PETR. -0,96%
FØROYA BANKI -0,43%
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Alfesca 4,15 +0,00% ... Atlantic Air-
ways 168,00 -1,18% ... Atlantic Petroleum 620,00 -0,96% ... Bakkavör
1,90 +0,00% ... Eik Banki 91,50 +0,00 ... Eimskipafélagið 1,57
+0,00% ... Føroya Banki 117,00 -0,43% ... Icelandair Group 13,25
+0,00% ... Marel Food Systems 77,30 1,05% ... SPRON 1,90 +0,00%
... Straumur-Burðarás 1,13 +7,62% ... Össur 97,60 +0,93%
VIÐSKIPTI Hrein eign lífeyrissjóðanna
jókst um tæpan 51 milljarð króna á milli
mánaða í lok nóvember í fyrra og nam þá
502,6 milljörðum króna. Greining Glitnis
bendir þó á að hrein eign lífeyriskerfisins
hafi rýrnað um 11 prósent að raungildi
frá upphafi síðasta árs til nóvemberloka.
Fall krónunnar í mánuðinum og gengis-
hækkun á erlenda eignasafninu skýra
hækkunina að langmestu en hækkunin
jafngildir því að verðmæti erlendu eign-
anna hafi aukist um 11,2 prósent á sama
tíma og verðmæti innlendra eigna dróst
saman um 2,1 prósent. Þetta kemur fram
í nýjustu hagtölum Seðlabankans um
hreinar eignir lífeyrissjóðanna.
Hrein eign lífeyrissjóðanna nam 1.713
milljörðum króna í lok nóvember síðast-
liðins. Hrein eign lífeyrissjóðanna nam
1.636 milljörðum króna í október og dróst
þá saman um 11 prósent milli mánaða
eftir hrun fjármálakerfisins.
Seðlabankinn segir enn nokkra óvissu
um endanlegt mat á eignum lífeyrissjóð-
anna og í sama streng tekur Greining
Glitnis. „Enn ríkir nokkur óvissa um
útkomu lífeyrissjóðanna eftir áfallaárið
2008. Þeir hafa yfirleitt reiknað tilteknar
afskriftir inn í eignasafn sitt vegna
skuldabréfa innlendra banka og fyrir-
tækja, en ekki liggur enn fyrir hversu
hátt hlutfall þessara eigna fáist borgað út
á endanum,“ er þar bent á, en um leið
áréttað að til lengri tíma litið sé raun-
ávöxtun sjóðanna með ágætum og
íslenska lífeyrissjóðakerfið eftir sem
áður „eitt hið öflugasta á byggðu bóli“.
- jab, óká
BANKARNIR Fall krónunnar í nóvember dró úr tapi lífeyrissjóðanna eftir bankahrunið í mánuðinum
á undan. FRÉTTABLAÐIÐ/SAMSETT MYND
Óvissa um afkomu eftir áfallaárið 2008
Alþingiskosninga er að vænta um
mitt þetta ár, að því er segir í nýrri
umfjöllun Economist um íslenskt
efnahagslíf. Taldar eru líkur á að
vinstristjórn taki við í landinu.
„Þótt ný stjórn yrði að halda sig
við setta efnahagsáætlun [Alþjóða-
gjaldeyrissjóðsins, AGS] gæti hún
reynt að finna leiðir til að mýkja
áhrif hennar“ segir í greininni sem
birtist í vefútgáfu Economist undir
yfirskriftinni „Ísland stendur
frammi fyrir hörmungartíð“ (eða
Iceland faces the worst of times).
Rakin er saga falls bankakerfis-
ins hér og landið sagt verða einna
harðast úti í heiminum í kjölfar
alþjóðlegu fjármálakreppunnar.
Búist er við jákvæðri niðurstöðu í
fyrstu úttekt á framfylgni efna-
hagsáætlunar stjórnvalda og AGS í
næsta mánuði. - óká
Boða kosningar
um mitt árið
POUL THOMSEN Poul er formaður sendi-
nefndar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Fyrsta
reglubundna endurskoðun efnahagsáætl-
unar stjórnvalda vegna lánafyrirgreiðslu
AGS er í næsta mánuði. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf]
Fjöldi viðskipta: 77 Velta: 92 milljóni
OMX ÍSLAND 15 OMX ÍSLAND 6
335 +0,31% 899 +1,53%
Frestað var um tvo daga reglu-
bundinni birtingu nýjustu talna úr
efnahag Seðlabanka Íslands. Birta
átti upplýsingarnar í gær, en þær
verða í staðinn birtar á morgun
miðvikudaginn 14. janúar. - óká
Birtingu frestað
Straumur-Burðarás fjárfestingar-
banki hefur tekið yfir dönsku hús-
gagnakeðjuna Biva og leggur
rekstrinum jafnframt til nýtt fjár-
magn.
Að því er fram kemur í frétt
Berlingske Tidende fór Biva
Möbler Odense í greiðslustöðvun
um áramótin, en Straumur kaupir
fyrirtækið af Odin Equiti Partners
og Dania Capital. Berlingske segir
kröfuhafa með þessu fá sitt greitt,
en viðbúið að skorið verði niður í
rekstrinum með fækkun starfs-
fólks, útibúa og niðurskurði i sam-
starfssamningum.
Hjá Biva Möbler Odense starfa
nú um 350 manns.
Eftir Oscar Crohn, forstjóra
Straums í Danmörku, er haft að í
grunninn sé í lagi með rekstur
Biva, markaðshlutdeild sé góð og
stjórn fyrirtækisins styrk. - óká
Straumur kaupir
Biva í Danmörku
H.C. ANDERSEN Þjóðskáld Dana var
fætt í Óðinsvéum í Danmörku en þar
eru heimastöðvar húsgagnakeðju sem
Straumur hefur tekið yfir. NORDICPHOTOS/AFP 40%
40%
40%
ALLTAF NÝTT
Aðei
kr./kg.
40
Ali grísasnitsel
1.127 kr./kg.merkt verð 1.878 kr./kg.
40
Ali grísahnakki úrbeinaður
1.079 kr./kg.merkt verð 1.798 kr./kg.
40
Ali svínagúllas
1.127 kr./kg.merkt verð 1.878 kr./kg.