Fréttablaðið - 13.01.2009, Side 14

Fréttablaðið - 13.01.2009, Side 14
14 13. janúar 2009 ÞRIÐJUDAGUR greinar@frettabladid.is FRÁ DEGI TIL DAGS FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík SÍMI: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is og Höskuldur Daði Magnússon (dægurmál) hdm@frettabladid.is MENNING: Páll Baldvin Baldvinsson fulltrúi ritstjóra pbb@frettabladid.is VIÐSKIPTARITSTJÓRAR: Björn Ingi Hrafnsson bih@markadurinn.is og Óli Kr. Ármannsson olikr@markadurinn.is HELGAREFNI: Anna Margrét Björnsson amb@frettabladid.is og Sigríður Björg Tómasdóttir sigridur@frettabladid.is ALLT OG SÉRBLÖÐ: Emilía Örlygsdóttir emilia@frettabladid.is og Roald Eyvindsson roald@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Henry Birgir Gunnarsson henry@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. RITSTJÓRAR: Jón Kaldal jk@frettabladid.is og Þorsteinn Pálsson thorsteinn@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út í 103.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871 UMRÆÐAN Marsibil Sæmundardóttir skrifar um forgangsröðun í borgarstjórn Nú er kreppa í þjóðfélaginu. Ég þarf að forgangsraða launum fyrir nauðsynjum, eins og mat, húsnæði, hita, rafmagni og lækn- isþjónustu. Vasapeningar og frístundaþátt- taka eru skorin niður, bíóferðir, fatakaup og ferðalög eru slegin af. Fjölskyldan sammælist um að þreyja þorrann og taka slátur og borða hafragraut. Allir sameinast um að skera niður eins og hægt er. Þrátt fyrir það er fyrirséð að endar munu ekki ná saman. Kannski Jói litli gæti farið að bera út blaðið, Anna hætt í fótbolta og Einar í píanónáminu? Ég gæti aflað aukatekna með því að spá í spil og heimilisfaðirinn gæti selt jeppann sinn og fengið sér reiðhjól. Ég er afskaplega ánægð með niðurstöðuna, við gerðum öll okkar besta og ég trúi því að okkur muni takast að ráða fram úr hallanum. Á þessum tímapunkti er komið að því að ég láti gera minnismerki um virtan forföður minn. Það kost- ar mikla peninga en hann var bara svo frábær og virðingarverður. Eru ekki allir í fjölskyld- unni tilbúnir til að spara meira svo að ég geti látið gera minnismerki um þennan frábæra mann? Þetta er nákvæmlega það sem meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks í borgarstjórn gerði þegar hann samþykkti fimm milljónir króna til myndastyttugerð- ar á sama tíma og allt borgarkerfið hafði þurft að skera niður í viðkvæmum mála- flokkum. Pólitík á að snúast um forgangs- röðun fjármagns í mikilvæg samfélagsleg verkefni. Þetta dæmi snýst reyndar ekki um pólitíska stefnu. Þegar harðnar á daln- um þá hættir allt venjulegt fólk einfaldlega að eyða peningum í það sem er hvorki mikilvægt, nauðsyn- legt né áríðandi. Í kreppu forgangsraðar fólk peningunum í nauð- synjar. Það er heilbrigð skynsemi. Það er ekki hægt að finna meðvitund né skilning á aðstæðum fólks hjá meirihluta borgarstjórnar. Borgarfulltrúar meiri- hlutans eru fastir uppi í skýjunum og gera þar jafn mikið gagn og myndastyttur í kreppu. Höfundur er fyrrverandi varaborgarfulltrúi. Myndastyttur í kreppu MARSIBIL SÆMUNDARDÓTTIR Árið 1948 var ákveðið á vettvangi Sameinuðu þjóðanna að stofna tvö ríki í Palestínu, annað fyrir innflytjendur gyðinga en hitt fyrir arabana sem höfðu búið þar um aldir. Í átökum sem fylgdu í kjölfarið lagði hið nýja ríki gyðinga, Ísrael, undir sig mun meira land en Sameinuðu þjóðirn- ar höfðu úthlutað því. Tæp milljón Palestínumanna hraktist í útlegð á Gazasvæðið og á vesturbakka Jórdanár. Árið 1967 hernam Ísrael enn meira land, þ.á m. bæði Vesturbakkann og Gaza. Er það um helmingur þess lands sem Palestínumönnum var ætlað samkvæmt upphaflegum samning- um Palestínumanna. Í raun hafa deilur Ísraelsmanna og Palestínu- manna staðið um þessar landspild- ur undanfarin 40 ár, en ekki hefur verið rætt af mikilli alvöru að Ísrael skili hernumdu landi frá 1948. Báðir aðilar hafa einu sinni gefið rækilega eftir til að ná samn- ingum, í Ósló árið 1993. Í kjölfarið var stofnuð heimastjórn Palestínu- manna en því miður varð mis- brestur á því að hún fengi sjálfstjórn í eigin málum. Ísraelski herinn vakir yfir hernumdu svæðunum og stjórnar mestum meirihluta landsvæðisins. Nokkur hundruð þúsund ísraelskir landnemar búa á tvöfalt stærra svæði en rúmar tvær milljónir Palestínumanna. Árið 2002 hóf Ísrael byggingu öryggisgirðingar, „aðskilnaðarmúrsins“, inni á þessu svæði og eiga um 40% Vestur- bakkans að vera Ísraelsmegin hennar. Erfitt er að sjá þetta sem annað en tilraun til varanlegs hernáms á enn meira landi Palestínumanna. Grafið undan samningum Vonbrigði Palestínumanna með vanefndir Ísraels á Óslóarsamn- ingunum eru líklega meginástæða þess að hin róttæku samtök Hamas fengu meirihlutastuðning Palestínumanna í frjálsum kosningum 2006. Samningaleiðin hefur einfaldlega ekki skilað Palestínumönnum nógu miklu. Ísraelsmenn hafa jafnvel enn þá minni áhuga á henni, enda virðast þeir geta farið sínu fram í krafti hervalds. Ísraelsmenn drógu sveitir sínar og landsetumenn frá stærstum hluta Gazasvæðisins árið 2005, en hafa síðan haldið því og íbúum þess í herkví. Í fyrra framkvæmdi forseti palestínsku heimastjórnarinnar, Mahmud Abbas, hins vegar valdarán á Vesturbakkanum, með liðsinni Bandaríkjanna og Ísraels. Ríki Palestínumanna klofnaði í tvennt og er Fatah-hreyfing Abbas við stjórn á Vesturbakkanum en Hamas á Gaza. Stríðið sem nú stendur yfir í Gaza er þegar komið í kunnan farveg. Báðir aðilar hafa beitt ofbeldi gegn óbreyttum borgurum, en það er þó margfalt á annan veginn. Ísraelsmenn hafa nú myrt tæplega 900 manns, á meðan mannfall í þeirra röðum er á annan tug. Meirihluti Ísraels- manna sem hafa fallið er hermenn en meðal Palestínumanna óbreyttir borgarar. Hernaður Ísraelsstjórnar stangast á við alþjóðalög af ýmsu tagi, en augljósust eru þó brotin gegn Genfarsáttmálanum um vernd óbreyttra borgara. Forsenda hernaðarins er að miklu leyti ísraelsk innanlandspólitík; ríkisstjórnin beitir sér fyrir árásum á Palestínumenn vegna þess að hún óttast fylgistap til hægri öfgamanna. Á meðan situr umheimurinn máttlaus á hliðarlín- unni. Hvað er hægt að gera? Enginn vafi er á því að almenn andúð og fordæming á aðgerðum Ísraels er ríkjandi. Mótmæli hafa verið haldin um allan heim, hundruð þúsunda hafa skrifað sig á mótmælalista á Facebook, fólk hættir við að kaupa appelsínur frá Ísrael og ríkisstjórnir víða um lönd hafa sent frá sér harðorðar ályktanir. Það er vissulega einhvers virði að fordæma athæfi Ísraels en hefur engin áhrif nema það dragi dilk á eftir sér. Þessi almenna vandlæting hefur ekki alið af sér aðgerðir sem eru á nokkurn hátt fallnar til þess að knýja ríkisstjórn Ísraels að samningaborðinu. Og í því felst tvískinnungur velmein- andi ríkisstjórna í Evrópu. Þær hafa í hendi sér að beita Ísrael gríðarlegum þrýstingi, bæði í gegnum viðskiptabann en líka með því að hætta diplómatískum samskiptum. Því valdi er ekki beitt heldur má segja að hið gagnstæða sé raunin. Til dæmis hefur NATO aukið hernaðarsamstarf við Ísrael undanfarin ár og vopnin sem beitt er gegn óbreyttum borgurum á Gazasvæðinu koma nánast eingöngu frá NATO-ríkjum. Ljóst er að á meðan ekki er aðgerða að vænta frá þeim ríkjum mun Ísrael fara sínu fram í Gaza í krafti hnefaréttarins. Ef ríkisstjórn Íslands vill standa undir fullyrðing- um um að hún líti hernaðinn á Gaza alvarlegum augum þá þarf hún að beita sér fyrir beinum aðgerðum gegn pólitískum og viðskiptalegum hagsmunum Ísraels. Það eru einu skilaboðin sem hrífa. Hvað getum við gert? SVERRIR JAKOBSSON Í DAG | Ófriður á Gaza Fimmtán hýrudregnir Fimmtán fyrrverandi starfsmenn Viðskiptablaðsins hafa hvorki fengið greidd laun né uppsagnarfrest eftir að útgáfufélagið Framtíðarsýn óskaði eftir greiðslustöðvun í nóvember. Var þá öllum starfsmönnum útgáfunnar, alls fjörutíu, sagt upp. Hluti þeirra var hins vegar endurráðinn á blaðið, sem kemur nú út vikulega á vegum félags sem ekki fæst gefið upp hverjir eiga. Þeir sem ekki voru endurráðnir hafa leitað til Blaðamannafélags Íslands sem mun gera kröfu í bú Framtíðarsýnar fyrir hönd fyrrverandi starfs- manna, verði það tekið til gjaldþrota- skipta. Örnu þáttur Schram Í hópi þeirra starfsmanna sem voru endurráðnir á „nýja“ Viðskiptablaðið er Arna Schram, formaður Blaða- mannafélags Íslands. Skýtur það ekki skökku við að formaður stéttar- félagsins hafi tekið þátt í þessum gjörningi og hafið störf hjá fyrirtæki þar sem eignarhaldið er á huldu, en ætli á hinn bóginn að sækja rétt félagsmanna sem voru skildir eftir og hlunnfarnir? Nýr gæðabloggari Vefgáttin Eyjan kynnti í gær nýjan bloggara til sögunnar, Sigmund Davíð Gunnlaugsson, sem býður sig fram til formanns Framsóknarflokks- ins. Eyjan er eftirsóknarverðasti vett- vangur svonefndra gæðabloggara og viðtekin skoðun að miklu ofar verði ekki komist í skipuriti bloggheima. Sigmundur Davíð er ekki eini for- mannsframbjóðandinn úr Framsókn sem bloggar á Eyjunni, það gerir líka Páll Magnússon enda altalað í heitu pottunum að Eyjublogg geti skilið milli feigs og ófeigs í formannskosn- ingunum. Höskuldur Þórhallsson, Lúðvík Gizurarson og Jón Vigfús Guðjónsson hljóti því að róa öllum árum að því að fá líka úthlutaðri Eyjukví. bergsteinn@frettabladid.is Uppsprettan, miðstöð og vettvangur fyrir atvinnulaust fólk opnar föstu- daginn 16. janúar í safnaðarheimili Hjallakirkju í Kópavogi og verður starfrækt virka daga frá kl. 9-12. Allir velkomnir. Þeir sem vilja aðstoða við verkefnið með námskeiðum eða fyrirlestrum eru beðnir að hafa samband við Guðrúnu Huldu í síma 893-3230 á milli kl. 9-13 eða Eddu í síma 896-1240 eftir kl. 17. Uppsprettan – sjálfshjálparhópur M ikil tillitssemi Samfylkingarinnar og formanns hennar, Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur, við Sjálf- stæðisflokkinn, þykir mörgum undarleg. Í síðustu viku vakti til dæmis athygli hversu einarðlega Ingi- björg varði samstarfsflokkinn og ráðherra hans í viðtali í ríkissjónvarpinu. Hvað gengur Ingibjörgu til, er spurt, þegar hún er jafnvel farin að taka málstað Árna Mathiesen sem er nýkominn með falleinkunn frá umboðsmanni Alþingis fyrir óvenju ósvífna skipun í embætti héraðsdómara? Það er örugglega ekki óskastaða formanns Samfylkingarinnar að taka við höggum fyrir slíkar æfingar, eða yfirhöfuð að fá í fang- ið skammir sem eru með réttu Sjálfstæðisflokksins, aðalhöfundar kerfisins, sem sprakk upp í andlit þjóðarinnar í haust. En hvað gengur þá Ingibjörgu og Samfylkingunni til? Af hverju slítur hún ekki stjórnarsamstarfinu og lætur reyna á hvort það dugi ekki til að knýja fram kosningar, eins og svo víða er krafist? Slíkar vangaveltur hafa gerst háværari með hverri stefnulausu og aðgerðalitlu vikunni sem hefur liðið, og fylgið um leið tínst af Samfylkingunni í skoðanakönnunum. Ein greindarlegasta tilgátan um þolinmæði Samfylkingarinnar var lögð fram fyrir einum og hálfum mánuði, og það af góðum og gegnum sjálfstæðismanni: Benedikt Jóhannessyni, framkvæmda- stjóra útgáfufélagsins Heims. Hann skrifaði grein í Fréttablaðið í nóvember þar sem sagði meðal annars: „Það virðist viss þver- sögn, en ríkisstjórnin sem hefur að undanförnu sætt miklu aðkasti almennings, gæti enn komist á spjöld sögunnar sem tímamóta- stjórn. Líklega sér Ingibjörg Sólrún þetta og vill ekki spilla þessu tækifæri með ótímabærum kosningum.“ Ástæðan, samkvæmt mati Benedikts, var sú að Ingibjörg metur stöðuna á þá leið að nú er lag að fá Sjálfstæðisflokkinn til liðs við þá stefnu að sækja um aðild að Evrópusambandinu. Það myndi aftur leiða til þess að „eftir nokkur ár væru Íslendingar betur sett- ir en nú og sú staða væri mun styrkari en sú spilaborg sem nú er hrunin“. Frá því þetta var skrifað hefur ýmislegt gerst, sem rennir stoð- um undir þessa kenningu Benedikts. Það þarf ekki djúpan lestur í spilin til að átta sig á að dagar stjórnarsamstarfsins eru væntan- lega taldir ef Landsfundur Sjálfstæðisflokksins kemst að annarri ákvörðun en að sækja beri um aðild að Evrópusambandinu. Ef sú verður niðurstaðan er alveg víst að það mun aðeins verða til að hella olíu á eld óvissunnar; í stjórnmála- og efnahagslífinu, þar sem ákvörðun um skipan peningamálastefnunnar er mikilvægasta verkefnið. Það sem mest er kallað eftir er framtíðarsýn og vegvísir um hvert við ætlum að stefna sem þjóð. Innganna í Evrópusambandið og upptaka evru eru skýr markmið. Til þess að ná þeim verður að uppfylla ströng efnahagsleg skilyrði. Það er skynsamlegt að leggja sem fyrst í það ferðalag, jafnvel þó þjóðin sætti sig ekki við aðildarsamninginn þegar til kastanna kemur, því ferðin sjálf kallar á aga, festu og framtíðarsýn, sem okkur sárvantar núna. Ríkisstjórnarflokkarnir og stjórnmálaástandið: Tillitssemi Samfylkingar JÓN KALDAL SKRIFAR

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.