Fréttablaðið - 13.01.2009, Side 40
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja
Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
BAKÞANKAR
Karenar D.
Kjartansdóttur
Í dag er þriðjudagurinn 13.
janúar, 13. dagur ársins.
10.59 13.36 16.15
11.06 13.21 15.37
Lof mér að segja þér hvers vegna okkur Ísraelsmönnum er í nöp
við Móses. Það tók hann fjörutíu ár
að leiða okkur í gegnum eyðimörk-
ina að þessum eina bletti Mið-Aust-
urlanda þar sem olíu er hvergi að
finna.“ Þetta á Golda Meir, fyrrver-
andi forsætisráðherra Ísraels, að
hafa sagt í kvöldverðarboði með
Willy Brandt, þáverandi utanríkis-
ráðherra lands þar sem skömmu
áður hafði verið unnið að útrým-
ingu þjóðar hennar. Í orðum hennar
má þó ekki greina annað en gaman-
semi til leiðtoga Þjóðverja og ást til
Ísraels, þar sem hún vonaði að þjóð
hennar fyndi frið.
ENN ríkir ófriður á þessum litla og
olíulausa bletti. Átökin sem geisa
um þessar mundir verða svo til þess
að flestir eru sannfærðir um að
aldrei muni ríkja friður á svæðinu.
Sadat, fyrrverandi forseti Egypta-
lands, minntist Goldu Meir hlýlega
þegar hún lést 1978, sagði hana hafa
verið heiðarlegan andstæðing. Ein-
hvern veginn grunar mig að leið-
togar þessara ríkja myndu ekki
hafa slík ummæli um hvor annan
nú. Friður virðist í órafjarlægð.
EFTIR að hafa fylgst með stöðug-
um fréttum af harmleiknum er
skiljanlegt að miklar umræður fari
fram í veröldinni. Einhvern veginn
þykir mér þó útséð með að slíkar
umræður skili nokkru á meðan
stuðningsmenn Ísraels kjósa helst
að hengja sig í hártoganir um hvaða
hugtök eigi að nota um illskuna,
hvort rangt sé að nota orðið helför
um morðin á svæðinu, í raun sé bara
um slátrun að ræða og eðlilegan
fórnarkostnað. Slíkt þvaður hefur
áður valdið vandræðum svo sem
þegar Sameinuðu þjóðirnar brugð-
ust ekki við ástandinu í Darfúr þar
sem það vantaði á tölfræðina til að
hægt væri að kalla ódæðisverkin
þar þjóðarmorð.
HIN hliðin á forheimskunni er svo
sífelldar yfirlýsingar um að fólk sé
hætt að hafa samúð með gyðingum,
það ætli barasta að hlæja næst
þegar það sér Lista Schindlers eða
Píanistann. Það þarf ekki að leita
langt aftur í sögubókum til að sjá að
stjórnvöld, jafnvel friðsömu Norð-
urlandaþjóðirnar, komu almennt
viðurstyggilega fram við þessa
þjóð. Atburðir nútímans gera hörm-
ungar fortíðarinnar aldrei léttbær-
ari.
Í hugtakahártogunum og sagnfræð-
iupprifjunum gleymist aðalatriði þó
oft í kraðaki orðagjálfurs og áróð-
ursbragða – það er verið að myrða
fólk.
Olíulausa landið
Fyrir mistök voru Bakþankar Þór-
hildar Elínar Elínardóttur í gær
eignaðir Gerði Kristnýju Guðjóns-
dóttur. Beðist er velvirðingar á
þessu.
Leiðrétting
%40
Korputorgi. Opið: mán-fös kl. 11-19, lau kl. 10-18, sun kl. 12-18
af not
uðum
bílum
...og ja
fnvel m
eira!
Kíktu til o
kkar í dag
!
11-19 virka daga
BÍLAOUTLET
NOTAÐIR BÍLAR Á SPOTTPRÍS
KORPUTORGI Ve
l yfi r
300 bíla
r
Einstak
t
verð!
GERÐU EIN
STÖK KAU
PÚTSALA
Fólksbílar
Jeppar
Sendife
rðabílar
Litlir bíla
r Stórir
bílar Je
pplingar
Smábíla
r