Fréttablaðið - 13.01.2009, Side 38

Fréttablaðið - 13.01.2009, Side 38
26 13. janúar 2009 ÞRIÐJUDAGUR 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 BESTI BITINN Í BÆNUM LÁRÉTT 2. sinni, 6. í röð, 8. laus greinir, 9. erlendis, 11. mun, 12. kál, 14. afspurn, 16. tónlistarmaður, 17. traust, 18. for, 20. hreyfing, 21. íþróttafélag. LÓÐRÉTT 1. krukka, 3. skammstöfun, 4. fitlari, 5. svelg, 7. baukur, 10. angan, 13. sigað, 15. fiskur, 16. kóf, 19. guð. LAUSN LÁRÉTT: 2. sefi, 6. rs, 8. hið, 9. úti, 11. ku, 12. salat, 14. umtal, 16. kk, 17. trú, 18. aur, 20. ið, 21. fram. LÓÐRÉTT: 1. krús, 3. eh, 4. fiktari, 5. iðu, 7. staukur, 10. ilm, 13. att, 15. lúða, 16. kaf, 19. ra. VEISTU SVARIÐ Svör við spurningum á síðu 8. 1 Á Klörubar á Kanaríeyjum. 2 HB Grandi. 3 Yrsu Sigurðardóttur. „Hvaðan hefurðu þetta? Jú, þetta hefur verið í umræðunni. En það er ekki búið að fastnegla þetta,“ segir Bubbi Morthens. Fréttablaðið hefur heimildir fyrir því að Björgvin Halldórsson og Bubbi Morthens séu að undir- búa stórsýningu í Laugardalshöll. Ráð er fyrir gert að hún verði með Vegas-ívafi, lítil hljómsveit en tekið sé mið af því sem Frank Sin- atra, Dean Martin og félagar voru að gera um miðja síðustu öld: Syngja lög hver annars og spjalla við áhorfendur. Ráð er fyrir gert að sýningin verði frumsýnd í haust eða um miðjan september. Síðan ræður eftirspurn hversu lengi sýningin verður keyrð. Varla þarf að efast um að íslenskir dæg- urlagaunnendur muni taka þess- um tíðindum opnum örmum – hér er um að ræða tvo dáðustu tónlist- armenn þjóðarinnar. „Þú veist þá meira en ég. Segðu mér meira,“ segir Bó að hætti hússins þegar þetta er borið undir hann. „Já, já, ég neita því ekki að þessi hugmynd hefur komið upp. Við höfum verið að henda þessari hugmynd á milli okkar. Þetta gæti orðið spennandi og allt í lagi að gera fína tónleika saman en fyrst verður að koma á daginn hvað við getum brallað saman,“ segir Bó. Poppsögusérfræðingar staldra gjarnan við lagið Rækjureggí þar sem Bubbi söng á sínum tíma: „Ég er löggiltur hálfviti, hlusta á HLH og Brimkló.“ Og hafa til marks um það þegar kynslóðum laust saman snemma á níunda áratug síðustu aldar. Sjálfir hafa Bubbi og Bó aldrei viljað gera mikið úr meintum ágreiningi þeirra á milli og hafa komið fram saman. Bó hefur spilað á munnhörpu með Bubba og sungið með honum á tónleikum. „Já, já, það er eitt og annað. Svo komum við saman þegar ég setti saman big-band sem kom fram í einhverri fræg- ustu afmælisveislu síðari ára. Og við létum Elton John hita upp fyrir okkur,“ segir Bó – og er þar að vísa til fimmtugsafmælis Ólafs Ólafssonar sem kenndur er við Samskip. Og Bubbi svarar spurn- ingunni hvort ekki hafi oft verið grunnt á því góða milli Bé-anna tveggja snaggaralega: „Nei! Ekki aldeilis. Það er „tótal ríspekt“ fyrir Bó af minni hálfu.“ jakob@frettabladid.is BUBBI MORTHENS: ALDREI VERIÐ GRUNNT Á ÞVÍ GÓÐA MILLI OKKAR BÓS Turnarnir Bó og Bubbi sameinast á stórsýningu BUBBI OG BÓ VINNA AÐ SAMEIGINLEGRI SÝNINGU Í HÖLLINNI Stórtíðindi hljóta það að teljast í íslensku tónlistarlífi að þessir tveir ástsælustu tónlistarmenn landsins vinni nú að því að setja upp sýningu saman. Ráðgert er að sýningin verði með Vegas-ívafi og þeir félagar syngi öll sín þekktustu lög og spjalli við áhorfendur þess á milli. Stefnt er að frumsýningu í september. „Maður er hættur að fara út að borða eftir að kreppan kom en leyfir sér einn og einn dýran kaffibolla í staðinn. Ég nefni því Café Haítí í Tryggvagötu og Kaffismiðjuna, Kárastíg 1. Þar eru miklir fagmenn sem segja manni hversu oft á að hræra í bollanum.“ Úlfur Eldjárn tónlistarmaður Ari Matthíasson, fráfarandi fram- kvæmdastjóri SÁÁ, ætlar að láta til sín taka að nýju í leikhúsinu. Ari er menntaður leikari en með meistaraprófsgráðu í viðskiptum og stjórnun. Hann er nú að undirbúa uppsetningu á farsanum Við borg- um ekki eftir Daríó Fó. Nýja Ísland heitir fyrirtæki Ara sem setur verkið upp í samvinnu við Borgarleikhúsið þar sem frumsýna á í maí. Leikstjóri er Edduhafinn Þröstur Leó Gunn- arsson en sjálfur hyggst Ari leika í verkinu ásamt Ilmi Kristjánsdóttur, Þrúði Vilhjálms- dóttur og Jóhanni G. Jóhannssyni. Þá mun vera í sigtinu stórstjarna í íslenskum gamanleik en ekki er búið að ganga frá ráðn- ingu hennar. Fréttablaðið greindi á dögunum frá átökum STEFS og Gay Pride en STEF taldi einsýnt að af Gleði- göngunni og öllu húllumhæinu í tengslum við hana bæri að greiða STEF-gjöld. Markaðs- og inn- heimtustjórinn Gunnar Stefánsson sótti málið nokkuð og vildi á aðra milljón. Þorvaldur Kristinsson, forseti Hinsegin daga, taldi það af og frá. Nú hefur málið verið látið niður falla þannig að Gleðigöngu- menn þurfa ekki að reiða fram féð. - jbg FRÉTTIR AF FÓLKI „Ef ég væri ekki væskill þá myndi ég berja fíflið sem braust inn í bíl- inn minn um helgina,“ skrifar her- skár Sigmar Guðmundsson sjón- varpsmaður á Facebook-síðu sína. Eitthvað var Kastljóssstjarnan orðin rólegri í gær og sagðist Sig- mar í samtali við Fréttablaðið ekki vilja tjá sig frekar um málið − þetta væri ekki neitt neitt. En eftir því sem blaðið kemst næst braut ein- hver vandali hliðarrúðu aftur í bif- reið Sigmars og rótaði eitthvað í bílnum en engu var stolið. Þetta gerðist nú um helgina. Sigmar býr við Laugaveginn og þar ríkir oft stríðsástand um helgar. Mun þetta ekki vera í fyrsta skipti sem Sig- mar og fjölskylda verða fyrir því að bíll í þeirra eigu verður fyrir hnjaski. Þannig hefur Þóra Tómas- dóttir, kona Sigmars, einnig orðið fyrir svipuðu − að bíll hennar var skemmdur á átakasvæðinu. Ýmsir urðu til að leggja orð í belg á Facebook-síðu Simma: Tónlistar- maðurinn Hjörtur Howser býður fram aðstoð sína við að lumbra á viðkomandi skemmdarvargi, einn bendir Simma á að setja sig í sam- band við Arnar Grant og athuga hvort þetta hafi nokkuð verið stæð- ið hans en Stefán Pálsson kommún- isti bendir á að eign sé glæpur. - jbg Rúða brotin í bíl Sigmars Guðmundssonar SIGMAR GUÐMUNDSSON Býr við Lauga- veginn þar sem oft ríkir stríðsástand um helgar og vandalar vaða uppi. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM „Þriðja október árið 1999 fór ég til eins afskekktasta staðar á jörð- inni … Reykjavíkur, Íslands! Ástæðan fyrir ferðinni var að mig langaði til að sjá Bláa lónið með mínum eigin augum (ég hafði lesið um það í Wallpaper). Og til að sofa hjá eins mörgum strákum og ég gat. Ef 27 strákar á minna en þremur vikum er ekki mikið, þá veit ég ekki hvað er mikið. Hah- aha! Bara að grínast. Nei, reyndar, ég er ekki að grínast. LOL.“ Svona hefst upprifjun fil- ipps eyska bloggarans Bryanboys um ferð sína til Íslands. Blogg- færslan hefur vakið mikla athygli í íslenska hommaheiminum því Bryanboy birtir nöfn og myndir af nokkrum þeirra íslensku stráka sem hann átti náin kynni við. Lýs- ingar hans eru bersöglar í meira lagi og ekkert dregið undan. Foreldrar Bryanboys eru millj- ónamæringar í Maníla og hann var ekki nema sextán ára þegar hann kom hingað. Bryanboy blogg- ar aðallega um tísku og er eins konar Perez Hilton Asíu. Hann er gríðarlega vinsæll, fær tvö hundr- uð þúsund heimsóknir á dag og um hann hefur verið fjallað í öllum helstu tískutímaritum heimsins. Ferðasagan fær góðan endi þegar Bryanboy kemst loksins í Bláa lónið. „Ég kynntist enn öðrum strák (man ekki hvað hann heitir), við héngum og sváfum saman,“ skrifar hann. „Hann var að læra flug. Hann átti bíl og bjó nálægt Bláa lóninu. Hann sagðist myndu fara með mig þangað. Og hvað gerði ég? Ég hringdi í vin minn og bauð honum með. Við fórum allir þrír og það var æðislegt. Ég efast um þeir hafi vitað að ég var búinn að sofa hjá þeim báðum. Djö, ég hefði átt að stinga upp á trekanti! Ég er að segja ykkur það … Ég er svooooo á leiðinni til helvítis fyrir syndir mínar.“ - drg Svaf hjá 27 íslenskum karl- mönnum á þremur vikum KOMST Í BLÁA LÓNIÐ Skrif tískublogg- arans Bryanboys um Íslandsheimsókn sína hafa vakið mikla athygli. Auglýsingasími – Mest lesið

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.