Tíminn - 03.10.1982, Blaðsíða 2

Tíminn - 03.10.1982, Blaðsíða 2
fslenska óperan: Frnm- sýning nm helgina H Nú um helgina frumsýnir íslenska óperan leikóperu handa börnum sem nefnist Búum til óperu. Tónlist hefur Benjamin Britten samið, og texta gerði Eric Crozier. Þýðingu annaðist Tómas Guðmundsson skáld. Eins og áður hefur komið fram í Tímanum fjallar leikópera þessi um lítinn strák sem veikur og örsnauður faðir hefur neyðst til að selja tveimur sóturum. Þeir láta strákinn vinna alls kyns erfiðisstörf fyrir sig, m.a. láta þeir hann príla í reykháfum og hreinsa þar sót. Það verður strák til happs að eitt sinn festist hann í slíkum strompi og hópur krakka bjargar honum og forðar að lokum undan sóturunum. Þórhildur Þorleifsdóttir leikstýrir óperunni, en henni til aðstoðar er Guðný Helgadóttir. Sviðsmynd gerði Jón Þórisson og nafni hans Jón Stefánsson æfði tónlist og stjórnar flutningi hennar. ■ Ásrún Davíðsdóttir, Sólveig Arnarsdóttir og Hrafnhildur Bjömsdóttir í h lutverkum sínum í óperanni sem frumsýnd verður nú um helgina. Tímamynd: Ella Sofendadans, ný ljóðabók Hjartar Páls- sonar ■ Innan skamms sendir Almenna bókafélagið frá sér nýja ljóðabók eftir Hjört Pálsson, dagskrárstjóra hjá útvarp inu. Þetta er þriðja ijóðabók hans og hefur hlotið nafnið Sofendadans. „Sama nafn ber eitt Ijóðið í bókinni“, sagði Hjörtur í samtali við Helgar- Tífflann, „og þar er ma. verið að víkja að því hversu maðurinn geti verið sofandi fýrir örlögum sínum, dauðanum og ýmsum hættum í veröldinni. Þarna er verið að segja að við höldum áfram að dansa hvað sem hlutunum líður í kringum okkur. Hitt er líka að mér fannst nafnið lýrískt.“ Hjörtur kvað ljóðin á þessari nýju bók vera ort á mislöngum tíma. Sumt væri nokkuð gamalt, en annað frá því í fyrra. „Ljóðin eru af ýmsu tagi, mjög mislöng og bæði í hefðbundnu bragformi og frjálsu", sagði hann. „Ég skipti þessari bók ekki niður í kafla eins og hinum bókunum tveimur, heldur raða ég efninu þannig upp að þetta sé eins og hver og önnur ljóðasyrpa: fjölbreytt að formi, lengd og viðfangsefni.“ Fyrri ljóðabækur Hjartar voru Dyn- faravísur (1972) og Fimmstrengjaljóð (1977). Nú um mánaðamótin fer Hjörtur Pálsson í vetrarleyfi frá útvarpinu og hyggst sinna ritstörfum erlendis, einkum í Danmörku. Eins og kunnugt er fékk hann þriggja mánaða starfslaun lista- manna í vor. „Ég vil ekki fullyrða mikið um þessi ritstörf mín í vetur“, sagði Hjörtur. „Ég hef fleira en eitt í takinu, Ijóðagerð og annað, og það verður bara að koma á daginn hver uppskeran verður." _GM Sex krakkar fara með hlutverk í Buam til óperu OPERA MEIRA SPENN- ANDI EN SKÓLAKÓR ■ „Jú mér finnst hlutverkið svolítið væmið“ sagði Steinunn Þorsteinsdóttir, 13 ára, en hún leikur góðu stúlkuna Önnu í leikóperunni Búum til óperu, sem verið er að frumsýna í Gamla bíó nú uln helgina. Helgar-Tíminn hitti krakkana sex, sem ásamt fimm lærðum söngvurum, fara með hlutverk í óperunni, að máli á æfingu í miðri vikunni. Það var svolítill fiðringur í þeim, enda frumsýning að nálgast, en svo sviðsvön virtust þau öll að það var sem þarna væru æfðir leikarar á ferð. Steinunn ér þeirra elst og er í áttunda bekk í Hvassaleitisskóla. Hún sagðist ekki hafa átt í neinum erfiðleikum með að læra textann, og þótti mikið gaman að syngja í óperu. Ekki vildi hún þó meina að söngur yrði endilega hennar framtíðarstarf. Það væri allt of snemmt að ákveða svoleiðis hluti. Þorbjörn Rúnarsson, ellefu ára gamall nemandi í Rataskóla í Garðabæ, var aftur á móti staðráðinn í að leggja fyrir sig óperusöng í framtíðinni. Hann hefur sungið í kór frá 7 ára aldri og er að læra á fiðlu. „Það er dálítið öðruvísi að syngja í svona óperu heldur en skólakórnum" sagði hann, en fannst óperan meira spennandi. Þorbjörn sagðist mest hafa gaman af sígildri tónlist og þá cinkum hljómsveitartónlist. „Ég hef haft áhuga á söng frá því ég man eftir mér“ sagði Halldór Örn Ólafsson, tíu ára gamall nemandi í Flataskóla. Hann leikur tvíburann Hörð í óperunni. Halldór er að læra á píanó og byrjaði að syngja í skólakórnum í fyrra. Éins og Þorbjöm hefur hann mest gaman af sígildri tónlist. í framtíðinni hefur hann hugsað sér að verða leikari. Gtsli Guðmundsson, tíu ára gamall strákur í Hólabrekkuskóla, fer með hlutverk litla sótarans í óperunni. Hann sagðist hafa mikla samúð með honum, og var feginn að leikurinn endaði vel. Gísli sagði að það gæti stundum verið erfitt að muna textann, og æfingar gætu verið þreytandi, en hann hlakkaði til sýninga, og af því sem við sáum til hans á æfingu erum við vissir um að hann á eftir að standa sig með prýði. Gísli hefur lært á orgel og langar til að halda því áfram síðar meir. Hrafnhildur Björnsdóttir er tíu ára gömul og nemandi í Flataskóla eins og Halldór Örn og Þorbjörn. Hún hefur sungið í skólakórnum frá því að hún var sjö ára og líka verið að læra á fiðlu frá sama aldri. „Ég ætla að verða leikari eða söngkona í framtíðinni" sagði hún. Hún sagðist hafa gaman af hljómsveitartón- list, en hlustaði líka á margs konar popp-tónlist. Var hún nokkuð farin að kvíða frumsýningu? „Svolítið" sagði hún, „en ég hlakka líka til.“ Yngst í hópi krakkanna er Sólveig Arnardóttir, níu ára gömul dóttir Þórhildar leikstjóra. Hún er í Austurbæjar. skóla og ætlar að fara í kórinn þar þegar tími vinnst til, enda af öllum hlutum mest gaman að syngja. Sólveig leikur tvíburann Tinnu og þótti hlutverkið skemmtilegt, og sagði það lítinn vanda að muna textann. Þegar ég verð stór ætla ég að verða ieikari eða bóndi“, sagði hún, áréttaði „ekki bóndakona." ■ Þorbjöra Rúnarsson. ■ Gísli Guðmundsson. i ■ Halldór Örn Ólafsson. ■ Hrafnhildur Bjömsdóttir. ■ Sólveig Arnarsdóttir. ■ Steinunn Þorsteinsdóttir. Tímamyndir: Ella

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.