Tíminn - 03.10.1982, Blaðsíða 12
Adorjan hressist
■ Á móti í Budapest tókst Adorjan
allt í einu að verða efstur. Menn
minnast þess kannske, að ungverski
stórmeistarinn komst mjög óvænt í
kandidatakeppnina 1980, en var
sleginn þar út af Hubner. Eftir þetta
hélt hann sig aðallega við jafnteflin,
ef hann varð þá ekki að hætta í miðju
móti vegna krankleika. Sú kenning
er við lýði, að Adorjan hafi ekki
nægan taugastyrk í kappmót. En í
Búdapest leit dæmið þannig út:
Adorjan 8'/5 af 11, Judashin og
Taimanov 7'A, Petran og Uhlman 7
o.s.frv.. Adorjan tefldi vel og hirti
fegurðarverðlaunin:
Adorjan : Glat - Enski leikurinn.
1. c4 e5 2. Rc3 Rf6 3. R13 Rc6 4. g3
Bb4 5. Rd5 Bd6 (Óvenjulegt, en þarf
þó ekki að vera slæmt. Þegar
Bronstein teflir þannig með hvítu í
Sikileyjartafli, eru menn fljótir að
kalla það snilld.) 6. Bg2 Rxd5 7. cxd5
Re7 8. e4 c6 9. o-0l? cxd5 10. d4
dxe4 11. Rxe5 Dc7(?). Full vogað.
12. Bf4 f6 13. Hcl Db8 14. Bxe4!
(Þvingað, en einnig mjög svo sterkt.
Á óvart kemur þegar hin róiega og
stöðulega enska byrjun, er skyndi-
lega orðin vettvangur sóknar og
leikfléttustíls. En hér hefur svartur
hleypt skriðunni af stað.) 14. .. fxe5
15. dxe5 Bc7 (Ekki lítur 15. ..Bxe5
16. Dh5 gæfulega út.) 16. Dh5+ g6
17. Dh6 Bxe5. Vissulega verður
svörtum hér á í messunni, en hverju
átti hann annars að leika?
I « »
18. Hxc8+! Rxc8 19. Bxg6+ hxg6
20. Dxg6+ Kd8 (Eða 20. .. Ke7 21.
Hel d6 22. Dg7+. Eða20. .. Kf8 21.
Df5+). 21. Dg5+ Re7 22. Bxe5 Hg8
23. Df4 Dc8 24. Hcl Gefið. -
Vonlaust væri að gefa drottninguna
fyrir hrók, ogeftir24... Rc625. Bd6
er þetta búið spil. Falleg skák, og
falleg lokastaða. Andras Adorjan er
aftur með í baráttunni.
Skák
Belgíu
Hverju leikur hvítur?
í Skákblaðið skrifar Rini nokkur
Kuyf um skák í Belgíu. Margt kemur
þar einkennilega fyrir Hollendings
sjónir. T.d. þegar flokkakeppnini
var aflýst sunnudag einn vegna
veðurs. Blindbylur, dettur manni
fyrst í hug, en veðrið var gott og
deildakeppnin í knattspyrnu fór
fram eins og vant var.
Eftir því sem Hollendingurinn
ungi segir, hugsa belgískir skákmenn
aðeins um Elo-skákstigatölu sína og
gamlir skákstjórar hugsa um það eitt
að halda ungum skákmönnum frá
aðalliðinu. Gömlu skákmeistararnir
tefla sáralítið og þá helst innbyrðis.
Með nokkrum jafnteflum halda þeir
svo stigatölu sinni óskertri. Þegar
nemandi frá Nicaragua vann
unglingameistaramótið var hann
sendur á heimsmeistaramótið í
Dortmund 1980. FIDE hafði tjáð, að
hann gæti ekki teflt þar sem fulltrúi
Belgíu, en sendur var hann samt!
Belgarnir vita semsagt hvernig FIDE
skal meðhöndlast. Og Kuyf segir
bjórstofurnar opnar allar nætur og
mjöðurinn er ódýr. Skák!
Inn á milli eru þó tefldar
athyglisverðar skákir. Hér kemur
ein, frá keppni klúbbanna Crab og
Mat.
Jadoul: Willacrt
1. e4 e6 2. d4 b6 3. Rf3 Bb7 4. Bd3
c5 5. c3 cxd4 6. cxd4 Bb4+ 7. Rc3
Rf6 8. e5 Re4 9. 0-0! Rxc3 10. bxc3
Bxc3? (Full græðgislegt. Be7 var
rétta svarið.) 11. Bg5! f6 (Ekki dugar
heldur II. .. Dc7 12. Hcl.) 12. exf6
gxf6 13. Re5! Ke7 Ef 13. .. 0-0
vinnur hvítur með 14. Bxh7+, en
einfaldara er 14. Bh6.) 14. Dh5 Dg8
15. Bxf6+! Kxf6 16. Dh4+ GeHð.
Ástæðan er 16... Dg5 17. Rg4+, eða
16. .. Kg7 17. Del+ Kh6 18. Df6.
Stutt og laggott. Belgarnir hafa þrjár
deildir í skák, vallónska, flæmska og
hina þriðju, þar sem þýska er
aðalmálið.
Bent Larsen, (
stórmeistari, skrifar
■ Kasparov
Átta manna kandi
datahópurinn
fullskipaður:
Karpovstafar
mest hætta
af Kasparov
• Að millisvæðamótinu í Moskvu
loknu, er 8 manna kandidatahópurinn
fullskipaður: Kasparov, Beljavsky og
Smyslow, Sovétríkjunum, Portisch og
Ribli Ungverjalandi, Kortsnoj Sviss,
Hubner V-þýskalandi og Torre Filips-
eyjum. Trúlega mun Karpov stafa mest
hætta af Kasparov, sem unnið hefur
hvern sigurinn á fætur öðrum undan-
farið. Þær raddir hafa heyrst, að hinn 19
ára gamli Kasparov hafi ekki neina
reynslu í einvígjum. Slíkt hið sama var
sagt um Tal, er hann tefldi við Botvinnik
um heimsmeistaratitilinn árið 1960.
Ekki varð reynsluleysið honum að falli,
því Tal vann öruggan sigur gegn
reyndasta einvígisskákmanni heims á
þeim tíma. Petroshan tefldi opinbert
einvígi í fyrsta sinn árið 1963 um
heimsmeistaratitilinn gegn Botvinnik,
og vann.
Möguleikar Kortsnojs á að tefla eitt
einvígið enn við Karpov eru hverfandi.
Hann átti sér aldrei viðreisnar von í
síðasta einvígi, og ekki verður útlit-
ið bjartara 1984, en þá verður Kortsnoj
orðinn 54ra ára. Portisch, einn mesti
vinnuþjarkur skákborðsins hefur verið
með í heimsmeistaraslagnum frá 1965.
Hæfileika hefur hann næga til að komast
alla leið, en taugaspcnnan hefur jafnan
orðið honum að falli þegar mest hefur
legið við. Sama má segja um Hubner
sem hefur tvisvar sinnum hætt í miðjum
kandidataeinvígjum. Um Torre hefur
Karpov sagt, að hann tilheyri ekki
hinum þrönga hópi þeirra allra fremstu
og aldursforsetinn Smyslov mun tæpast
ógna heimsmeistaranum.Ribli og Belj-
avsky gætu hinsvegar gert stóra hluti og
hleypa alla vegana nýju blóði í
heimsmeistarakeppnina.
Efstur á vinsældalista skákunnenda er
hinn 19 ára gamli Kasparov. Þess var
hreinlega krafist að hann ynni milli-
svæðamótið í Moskvu. Hann gerði það
og svikalaust og lagði marga andstæð-
inga sína á ótrúlega auðveldan hátt. í
eftirfarandi skák er einn aðstoðarmanna
Kortsnojs frá síðasta heimsmeistaraein-
vígi heldur betur tekinn í karphúsið, en
hann gerist svo djarfur að tefla
drottningarindverska vörn gegn Kasp-
arov. Slíkt jafngildir uppgjöf gegn
Sovétmanninum unga, sem heftir gengið
þannig frá þessari byrjun upp á
síðkastið, að ekki hefur staðið steinn yfir
steini.
Hvítur: G. Kasparuv, Sovétríkjunum
Svartur: Y.Murey, ísrael
Drottningaríndversk vöm
■ Torre
1. d4 Rf6 2.c4 e6 3. Rf3 b6 4. Rc3 Bb7
5. a3 d5 6. cxd5 Rxd5 7. Dc2(Með 7. e3
Be7 8. Bb5+ c6 9. Bd3 Rxc3 10. bxc3
c5 11. é4 vann Kasparov auðvelda sigra
gegn Ivkov og Najdorf á stórmótinu í
Bugojnol982. Hér breytir han.i til og
fetar í fótspor Portisch sem gjörsigraði
Christiansen á Philips og Drew 1982
með drottningarleiknum. Hugmynd
hvíts er að vinna tíma með því að leika
e4 í einum leik í stað tveggja.)
7.. c5 8.e4 Rxc3 9. bxc3 Rc6 10. Bb2
Hc8 11. Hdl cxd4 12. cxd4! a6
(Ekki 12. . Rxd4 13. Da4+, né 12. . .
Rb4 13. Bb5+.)
13. Dd2 Ra5 14. d5 exd5 15. exd5 Bd6
(ef 15. . De7+ 16. Be2 Rc4 17. d6 Rxd6
I8.0-0 og slíka vörn vilja menn ekki
tefla gegn Kasparov ótilneyddir.)
16. Bxg7 De7+ 17. Be2 Hg8 18. Dh6 f5
19. Bf6 Df8 20. Dxh7
(allt hefur farið úr böndum hjá svörtum.
Ekki gengur nú 2Q. . Hxg2 21. Rh4
ásamt 22. Bh5.)
20. . Df7 21. Dxf5 Hg6 22.De4+ KÍ8
abcdefgh
23. Rg5! Innsiglar léttan sigur. (23. .
Dxf6 strandar auðvitað á Rh7+.)
23. . HxgS 24. Bxg5 He8 25. Bh6+ Kg8
26 Dg4+ Gefið. EFtir26.. Kh7 23. Hd3
er ekkert eftir nema mátið.
Jóhann Örn Sigurjónsson
Jóhann
Örn
jónsson
skrifar
um skák
■ Portich
■ Smyslov
■ Kortsnoj
■ Hubner