Tíminn - 03.10.1982, Blaðsíða 21

Tíminn - 03.10.1982, Blaðsíða 21
SUNNUDAGUR 3. OKTÓBER 1982 hafíð gert, þó að við bætum nú ekki við einum 25 eins og þið Palme talaði annars talsvert um fortíð verkalýðshreyfingar og kratanna, og málaði það allt í rósrauðu og gylltu. Við kratar höfum komið allri félagslegri þjónustu á í þessu landi, -þið hafið alltaf verið á móti. Svo reynið þið að eignast heiðurinn eftirá. Og þannig verður það líka með launþegasjóðina, sem þið mótmælið í dag, sagði hann. Komst Palme að þeirri niðurstöðu að Fálldin væri eins konar eftirásósíalisti. - En ekki er nú víst að launþegasjóðimir verði eins farsælt mál og t.d. almannatryggingarn- ar voru á sínum tíma. Enda alls ekki víst að þeir komi nokkru sinni til fram- kvæmda. En hins vegar er talið hugsanlegt að vinstri armur Miðflokks- ins gangi undir forystu Olof Johansson til samstarfs við kíatana áður en langt um líður, en Fálldin dragi sig í hlé. Þrjú ár í senn Nú eru kosningarnar um garð gengnar og Fálldin hefur beðist lausnar. Niður- stöðurnar urðú í skemmstu máli þær áð Þjóðarflokkurinn tapaði mestu og fékk 21 þingsæti (áður 38), Miðflokkurinn fékk 56 (áður 64), Hægriflokkurinn 86 (73), Sósíaldemókratar fengu 166 (154) og Vinstrisósíalistamir-kommúnistamir 20 menn eins og á síðasta þingi. Kratar hafa því meiri þingstyrk en borgara- flokkarnir samanlagðir, en þó ekki hreinan meirihluta. Miðflokkurinn tap- aði dálitlu, en mestur sigurvegari má segja að Hægriflokkurinn hafi verið. Nú bera menn saman þróunina hér og í Danmörku og Noregi. Hægrimenn eru greinilega á uppleið og forystutíð miðflokkanna í Skandinavíu virðist liðin í bili. Um tíma var Þjóðarflokkurinn aðalandstæðingur sósíaldemókrata, svo tók Miðflokkurinn við; en nú hlýtur Fálldin að víkja úr sæti fyrir Adelsson rétt eins og Henning Christoffersen fyrir Poul Schlyter í Danmörku og Per Borten fyrir Káre Willoch í Noregi. Sósíaldemókratar hljóta óneitanlega að eiga mikinn heiður af því í Skandinavíu að félagslegur stuðningur er mikill, skólakerfið fullkomið o.s.frv. Þegar litið er nokkra áratugi aftur í tímann fá kratar góða einkunn ef gætt er að svonefndum velferðarmálum almenn- ings. En sú spurning sem brennur á mönnum er með hvaða hætti kratarnir bregðast við kreppunni nú, hvort lausnir þeirra duga enn, hvemig þeim gengur að finna annað ráð en sparnaðarstefn- una o.s.frv. Afsögn Ankers í Kaup- mannahöfn er lítil hvatning fyrir Palme. Fjárhagur ríkisins er slæmur, en Palme er væntanlega nauðbeygður til að standa við loforð sitt um að veita fulla sjúkratryggingu frá fyrsta veikindadegi (afnema „karensinn") og að hindra niðurskurð á leigustyrkjum, barna- styrkjum o.fl. Annars var eitt helsta kosningaloforð hans að engar félagsleg- ar umbætur skyldu gerðar á kjörtímabil- inu, - aðeins haldið í horfinu. Kjörtímabilið er þrjú ár. Nú horfa menn á Dallas aftur um skeið. Kosning- arnar hljóta að hafa verið með vinsælasta efni sjónvarpsins. Til dæmis var kosningavakan send á báðum rásum og leiðtogadeilan tveim dögum fyrir kosningar var það líka og þýðing á táknmáli fylgdi á annarri rásinni. Kosn- ingavakan var mjög kostulega sett upp frá fagurfræðilegu sjónarmiði. Þetta leit út nokkurn veginn eins og geimstöð. Tölvunum var tryg'gður sigurinn fyrir- fram og fyrstu tölvuspár reyndust sannar (jafnvel sannari en úrslitin). Óteljandi sjónvarpsskermar blikkuðu og trufluðu á bak við þulinn, tveir afspyrnugáfulegir og höfuðstórir tölfræðingar sátu honum á hægri hönd ásamt tölvusérfræðingi; hinum megin voru stjórnmálafræðingar og einn Norðmaður til skemmtunar. Tölurnar birtust hraðar en auga á festi í öllum regnbogans litum, undirfurðuleg kosningaplaköt (ólesanleg af hlutleysis- ástæðum) í baksýn ásamt fomfálegu skjaldarmerki ríkisins sem trúlega var fengið að láni úr leikntunasafni Þjóðleik- hússins. Auk alls þessa gat að iíta nokkrar tómar sódavatnsflöskur fyrir framan hvern mann, og settu þær nokkuð bæjarbraginn. Ekki vil égsleppa því að minnast á sjálft borðið sem véfréttamennirnir sátu við, en það var völundarsmíð úr hnot að mér sýndist, panell í áþekkum stíl og finna má í Menntaskólanum í Reykjavík (byggður um 1850). Kveðjur, ÁS 21 (Verzlun & Þjónusta ) ■ Körfubílaleigan, háþrýstiþvottur, og húsaviðgerðir Leigjum út körfubíl, lyftigeta allt að 12 m. Tökum einnig að okkur glugga- þvotta, sprunguviðgerðir, hreinsun á rennum og fl. Guðmundur Karlsson símar 51925 og 33046 Er stíflað? Fjarlægi stíflur. Úr vöskum, WC rörum, baðkerum og niðurföllum. Ný tæki. Vanir menn. Geymið auglýsinguna. Valur Helgason, sími16037 Ný traktorsgrafa til leigu, vinnum líka á kvöldin og um helgar. Getum útvegað vörubíl. Magnús Andrésson. sfmi 83704. 23611 Húsaviðgerðir 23611 Tökum að okkur allar viðgerðir á húseignum, stórum sem smáum, s.s. múrverk, trésmíðar, járnklæðningar, sprunguþétt- ingar, málningarvinnu og glugga-og hurðaþéttingar. Nýsmíði- innréttingar-háþrýstiþvottur Hringið í síma 23611 Skjót viðbrögð Það er hvimleitt að þurfa að bíða lengi með bilað rafkerfi, leiðslur eða tæki. Eða ný heimilistæki sem þarf að leggja fyrir Þess vegna settum við upp neytendaþjónustuna - með harðsnunu liði sem bregður skjótt við. RAFAFL Smiðshöfða 6 símanúmer: 85955 Er miðstöðin í ólagi? Auk nýlagna tökum viö aö okkur kerfaskiptingar og setjum Danfosskrana á ofna. Einnig meirihátt- ar breytingar og viðgerðir á vatns- og miðstöðva- kerfum. Kristján Páimar & Sveinn Frímann Jóhannssynir, Löggiltir pípulagningameistarar Uppl. í síma 43859 & 44204 á kvöldin. SF 750 þurrljósritunarvél mmmam m a SF 750 Ijósritar á allan venjulegan pappír og flestan óvenjulegan, þykkan sem þunnan. Hámarks framköllunargæði og sérstaklega einföld í notkun. Innbyggö örtölva tryggir fullkomið eftirlit með viðhaldi og aðgerð. Sérstaklega ódýr í viðhaldi og rekstri. SF750 STÆRÐ: 43X42 CM HÆÐ: 28 CM AÐEINS 32 KG. STÆRÐIR PAPPlRS: Frá A6 — B4 ÞYNGD PAPPÍRS: Frá 60 160 Q FJÖLDI EINTAKA: 10 st. á minútu. HLJOM-HEIMILIS-SKRIFSTOFUTÆKI 10jT HLJOMBÆR HLJOMBÆR SHARPvtj __ __ _ ^^— - m Kannið verð og greiösluskilmála.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.