Tíminn - 03.10.1982, Blaðsíða 14
14
SUNNUDAGUR 3. OKTÓBER 1982
við erum aðeins enn
einn steinn í veggnum...”
■ Ein umdeildasta kvikmynd þessa árs
er án efa mvnd Alan Parkers „Pink
Floyd - The Wall“, eða „Pink Floyd -
Veggurinn". Þegar hún var sýnd í Cann-
es í vor áttu margir erfitt med að sitja í
salnum til enda, og síðan hefur myndin
mætt tvenns konar viðbrögðum: aðdáun
eða fordæmingu.
Hugmyndin að kvikmyndinni er
fengin úr hljómplötu Pink Floyd -
hljómsveitarinnar sem bar nafnið „The
Wall“ eða „Veggurinn", og fjallar um
einangrun einstaklingsins og firringu.
„...all in all, were just another brick in
the wall“,er sungið þar: „...þegar allt
kemur til alls, erum við aðeins enn einn
steinn í veggnum“, og er þá jjtt við stöðu
einstaklingsins í þjóðfélagi nútímans.
Alan Parker hefur ásamt Roger
Waters, sem samdi handritið, gert á
þessum grunni svakalega kvikmynd um
útjaskaða rokkstjörnu, sem einangrast
ekki aðeins frá þjóðfélaginu heldur brátt
einnig frá sjálfum sér og missir allt
veruleikaskyn. Petta er Pink, sem
leikinn er, að sögn mjög vel, af Bob
Geldof, sem annars mun þekktari sem
forystusauður í Boomtown Rats, en svo
heitir bresk hljómsveit. Pink er staddur
í hótelherbergi í Los Angeles og starir
þar á sjónvarpið. Fram í huga hans
koma margvíslegar endurminningar frá
æskuárunum; um föðurinn sem lést í
heimsstyrjöldinni síðari, um móðurina
sem ofverndaði hann, um skólann, sem
honum fannst einkennast af harðstjórn
og andstöðu við sjálfstæði einstaklings-
ins, og þá uppreisn, sem nemendurnir
gerðu. Jafnframt fáum við að sjá ýmis
atvik úr lífi hans á fullorðinsárum;
hjónabandið sem fór út um þúfur þegar
eiginkonan tók saman við annan mann,
poppferðalögin og skyndikonurnar. For-
tíð og nútíð, raunveruleiki og ímyndun,
blandast brátt saman í huga Pinks þar
til hann gerir sér enga grein fyrir hvað
eræu veruleiki. í slíku hugarástandi er
hann rekinn af umboðsmanni sínum til
■ Á skólabekk: Qöldaframleiðsla og harðstjóm.
o
Kvikmyndir
Alan Parkers:
Bugsy Malone
Miðnæturhrað-
lestin 1978
Fame 1980
Shoot the Moon
1982 ° '
Pink Floyd -
The Wall 1982
o
að.mæia á fasista hljómleika,sem enda í
ofbeldi og villimeqnsku. Eftir réttar-
höld, þar sem persónur sem hann hefur
kynnst með einum eða öðrum hætti á
lífsleiðinni (sá kafli myndarinnar er
teiknaður) vitna gegn honum, brýtur
Pink niður vegginn sem hann hafði reist
umhverfis sig.
Það, sem öðru fremur hefur valdið
deilum í myndinni, eru ýmsar ofbeldis-
senur, sem sumar hverjar eru mjög
sjúklegar og aðrar bera fasistískt
yfirbragð. Fleiri en einn gagnrýnandi
hefur þannig játað það í skrifum um
myndina, að á sumum augnablikum hafi
þeir fundið sig knúða til að loka
augunum um stund; atriðin hafi reynst
•of óhugnanleg.
— ESJ.
■ Skólabömin gera uppreisn gegn kerfmu.