Tíminn - 03.10.1982, Side 26
llillAMUL'lll'
SUNNUDAGUR 3. OKTÓBER 1982
26
riútíminn
— byggt á sölu I
STUÐ-búðinni
■ Nútíminn hefur ákveöið, meö
mikilli ánægju, að taka ábendingu
eins iesenda okkar um að birta óháða
vinsældalistann og er hann byggður
á sölu í STUÐ-búðinni. Á listanum
eru' tvær plötur Crass, einhverrar
„óháðustu“ sveitar sem til er og er
það við hæfi en auk þess er
athyglisvept að Sex Pistols, einir af_
frumkvöðlum pönksins eiga plötu á
listanum sem að öðru leyti ætti að
skyta sig sjálfur.
. í endann á listanum eru svo þrjár
Vmsælustu litlu plöturnar en þar
, p-jónar Purrkur Pillnikk í cfsta sæti
og eru vinsældir hennar „alveg
meiriháttar" svo notuð séu orð
Sævars í Stuðinu.
- FRI
1. Crass/Christ The Album
2. Cure/Phurnography
3. ^ Cabarett Voltaire/2x75
4. Eyeless in GAZA/Drumming in
the Beating Heart
5. Crass/Penis Envy
6. Discharage/Hear nothing, See
nothing, Say nothing
7. Sex Pistols/The Great rock
n’roll swindle
8. New Order/Temptation
9. Tangerine Dream/Sorcerer
10. Clash/Combat rock
1. Purrkur pillnikk/No timc to
think
2. Anti Nowhere League/1 hate
peopie
3. Zounds/Dancing
Siggi Karls
■ Trymbillinn víðkunni, Sigurður
Karlsson scndir frá sér sína fyrstu
sólóplötu um þcssar mundir og
nefnist hún Veiuleiki. Platan er
tekin upp t Stemmu og gcfur
Sigurður hana út sjálfur á vegum
eigin útgáfufyrirtækis. Heitir útgáfu-
fyrirtækið Vcran. Með Siguröi á
plötúnpi er citt af „róterandi"
landsliðum íslands í undirleik, eða
Pálmi Gunnarsson, Björn Thoradd-
sen, Tryggvi Hubner og Pétur
Hjaltcsted. - ESE
OHÁÐI
VINSÆLDA-
LISTINN
Nýtt START:
■ Höfundar efnis
á nýju plötu
Magnúsar Þórs.
Margrét Jóns-,
dóttir og Magnús
Þór Sigmundsson.
Óneitanlega dá-
lítill svipur með
þeim, eða eins og
Magnús sagði -
kannski hefur hún
líka verið álfur.
— með blóm í haga.
■ - Ég held að það sé óhætt að segja
að'þctta sé friðarplata, um leið og ég
reyni að túlka tilfinningar þeirra kyn-
slóðar sem nú er að hvcrfa. Það er
Magnús Þór Sigmundsson, tónlistar-
maðurinn góðkunni sem þetta mælir,
sem nokkurs konar „hestaskál" með
nýrri plötu sinni, „Draumur aldamóta-
bamsins", sem hann fylgdi úr hlaði um
síðustu helgi.
„Draumur aldamótabarnsins” er sjö-
unda plata Magnúsar og hefur hún að
eigin sögn nokkra sérstöðu í tónlistar-
gerð hans. Á plötunni er fjallað um
drauma, vonir og hugsjónir, þeirrar
kynslóðar sem fæddist um aldamótin
þegar þjóðleg reisn, bjartsýni á betri
tíma og fegurra mannlíf voru efst í
hugum manna samfara heitum baráttu-
anda fyrir sjálfstæði þjóðarinnar. Öll
ljóð plötunnar eru eftir Margréti
Jónsdóttur, kennara og fyrrverandi
ritsjóta Æskunnar, en ljóðin eru úr
Ijóðabók hennar. Ný ljóð sem út kom
árið 1970. Margrét andaðist árið 1971
tæplega áttræð.
- Ég fékk þessa bók frá Æskunni fyrir
þó nokkru síðan og síðan lá hún hjá mér
óhreyfð í rúmlega ár, áður en ég fór að
glugga í hana. Þá fóru hlutirnir líka að
gerast og áður en ég vissi var ég kominn
með um 15-20 lög, segir Magnús í
samtali við Nútímann.
Að sögn Magnúsar fór hann þá að
leita að útgefanda og varð það úr að
hljómplötufyrirtæki Rúnars Jú líusson-
ar, Geimsteinn tók að sér að gefa
plötuna út.
„FRAMHALD
AFBANDINU”
segir Pétur Kristjánsson „prím-
us mótor” hljómsveitarinnar
■ „Þetta er bara framhald af bandinu,
við lékum fyrst saman um síðustu helgi
og erum bókaðir nokkrar helgar fram í
tímann" sagði Pétur Kristjánsson
DRAUMUR ALDAMÓTABARNSINS:
MEÐ VON UM
BETRI TÍD
•
■ Pétur Kristjánsson á fullu í gamla
daga.
„prómus rnótor” hljómsveitarinnar
START í samtali við Nútímann en hann
hefur á ný komið fótunum undir sveit
sína og eru þeir félagar famir að leik á
fullu.
„Þeir sem skipa START núna, auk
mín, eru þeir Jón Ólafsson á bassa,
Davíð Karlsson á trommur, Eðvarð
Lárusson úr Tíbrá á gítar og Ágúst
Ragnarsson úr Lanshornarokkurum á
gítar, hljómborð og syngur.“
„Þetta er áfram rokk n’roll sveit,
svona þungt með í bland“ sagði Pétur.
Það kom fram í máli Péturs að nóg
væri að gera fyrir þá og virtust ekki vera
margar sveitir nú sem stæðu í ballstússi
en þeir væru í því á fullu léku á
sveitaböllum og skólaböllum og annað.
Pétur sagði að þeir ætluðu að spila
bandið vel áfram fram að áramótum
áður en þeir færu að huga að nýrri plötu.
„Við erum bara hressir á þessu“ sagði
þessi lífseigasti poppari landsins að
lokum. . - FR|
Um yrkisefni Margrétar segir Magnús:
- Það er greinilegt að hún hefur verið
mikill friðarsinni og hún talar um þá
erfiðleika sem þá var við að glíma í
þjóðfélaginu. Að mörgu leyti eiga því
orð hennar mjög vel við ástandið í
heiminum í dag, þó að þau vopn sem
hún yrkir um í Ijóðum sínum séu úr
heimsstyrjöldunum tveim og þar af
leiðandi bara barnaleikur miðað við
atómvopn nútímans ( ath. nútímans
með litlu enni). En hugsunin að baki
vopnabröltsins er samt sem áður hin
sama og því eiga Ijóð Margrétar erindi
til fólks enn þann dag í dag og því miður
líklega einnig í náinni framtíð. Annars
er Margrét bjartsýn í Ijóðum sínum og
hún fjallar sérstakelga mikið um þær
vonir sem bundnar eru við komandi
kynslóðir. Hvort að þær hafa ræst verður
svo hver og einn að dæma um fyrir sig.
Að sögn Magnúsar er „Draumur
aldamótabarnsins” einhversstaðar mitt
á milli „Börn og dagar” og „Álfar“ í
tónlisterlegum skilningi og sagðist
Magnús vonast til þess að hægt yrði að
fylgja plötunni eftir með hljómleika-
haldi á næstunni.
Auk Magnúsar koma við sögu á
plötunni, Jóhann Helgason, Ellen Krist-
jánsdóttir, Pálmi Gunnarsson, Þórir
Baldursson, Eyþór Gunnarsson, G.
Rúnar Júlíusson og Tryggvi Hubner.
Útsetningar eru í höndum Magnúsar,
Þóris og Eyþórs.
■ Q4U verða á SATT-kvöldinu þriðjudag.
Öflugt starf hjá SATT:
FERNIR TONLEIK-
AR HVERN MÁNUÐ
Vetrarstarf SATT er nú að komast
í gang af fullum krafti og óhætt er að
segja að það verði öflugt í vetur. Að
sögn Hallvarðs Þórssonar starfs-
manns SATT mun vera ætlunin að
hafa fema tónleika í hverjum
mánuði, og verða hinir fyrstu á
þriðjudag í Klúbbnum og síðan í
Tónabæ á fimmtudag.
Ætlunin er að tónleikar verði í
Klúbbnum fyrstu og þriðju viku
hvers mánaðar, og í Tónabæ í fyrstu
viku hvers mánaðar en þeir tónleikar
eru í samvinnu við Æskulýðsráð.
Ekki er endanlega búið að ganga
frá hvaða hljómsveitir verða í
Klúbbnum á þriðjudagskvöldið en
Q4U mun örugglega koma fram,
Tappi tíkarrass er heitur og ef til vill
Grýlurnar einnig auk einnar af
„eldri” hljómsveitum hérlendis.
A þessum kvöldum verður hljóm-
plötukynning og fyrsta kvöldið verða
kynntar ný sólóplata Þorsteins Magn-
ússonar úr ÞEY en hún kemur
sennilega út undir mánaðarlokin og
nýjar upptökur með Sonus Futurae
en þeir ætla að þrykkja einhverju á
plast á næstunni.
- FRl
Plötur
Á togara
með þá
Imagination
ln the heat of the night
Steinar
ÞETTA ER PLATAN...
• ísem væri sú síðasta sem ég
myndi hafa mcð mér á
eyðieyju
• sem cr sú vonlausasta og
lciðinlcgasta sem ég hef
hlustað á síðan „kjötsúpan”
var soðin úm árið
• scm ckki cr einu sinni hægt
að nota sem „brokkmúsikk”
fyrir tískuSýningar
• sem einn gagnrýncnda
Melody Maker hefur greini-
lega orðið brjálaður af að
hlusta á, miðað við allt
bullið (lofið) sem hann
skrifar um Imagination
• sem ég skil ekki aljhverju
Stcinar hf, er að láta pressa
til brúks hérlendis
• sem svæfir eins og skot, ef
mcnn geta þá sofnað fyrir
lciðindum
• sem Gibb a la Gibb hefðu
gefið út ef þeir hefðu
einhvcrn tíman hætt í mút-
um og yerið gjörsneyddir
allri tónlistargáfu
• scm hægt væri að skrifa
milljón svona vonda punkta
um til viðbótar án alls
samviskubits, ef það krefð-
ist ekki þess að hlusta þyrfti
á plötuna oftar en þrisvar
(en það er meira en hægt að
leggjií á einn mann þcgar
svona hljómsveit á hlut að
máli).
Formsins vegna skal það
tekið fram að Imagination er
skipuð „þrem litlum negra-
strákum”. sem tónlistarrýnir
Melody Makcr segir að standi
Comsat Angels og Ecco and
the Bunnymans, að öllu leyti
framar. (Mikið hefur þeim
hrakað). Eitt laganna „Music
and lights" af þessari plötu,
„In the heat of the night“
(Svitinn perlar af manni við
hlustunina) er að finna á
samansafnsplötu Steina.
„Glymskrattinn" og þar er
það bara vel geymt. En að gefa
út sjö lög til viðbótar - það er
'algjör „horror”. Að lokum
legg ég til aö Imagination, sem
cru breskir, verði sendir á
togara.
- ESE
Þessir
strákar
kunna að
stafa
ABC - LEXICON OF LOVE
FÁLKINN
■ Það er alltaf gaman að
hlusta á plötur með hljóm-
sveitum sem maður vcit ná-
kvæmlega ekki baun í bala um.
Það eina sem maður veit áður
en plötunni er skellt á fóninn
er hvernig umslagið utan um
plötuna lítur út og ef viðkom-
andi er vel að sér í „umslaga-
sálarfræði” þá gctur hjnn í
mesta lagi skipað plötunni-á
einhvern ímyndaðann bás í
huganum. Oftast er það nú svo
að það cr merkileg fylgni á
milli þess sem innviðir „plötu-
sálarinnar" í manni segja til
um og þess sem síðar kemur á
daginn, en sem betur fer eru
til undantekningar.
Platan með Imagination sem
fjallað er um hér að framan
kom mér ekki á óvart að neinu
leyti, nema þá því að hún var
mikið lélegri en mig hafði órað
fyrir í upphafi og samkvæmt
fordómum mínum hefði fyrsta
hljómplata brcsku hljómsveit-
arinnar ABC heldur ekki átt
að koma mér á óvart. En nú
kemur það sem er svo spenn-
andi - hún gerði það...
„Lexicon of love”, cn svo
nefnist platan, hcfur að sögn
fróðra manna notið mikilla
vinsælda í Bretlandi að undan-
förnu og að sögn sömu manna
þá er hljómsveitin sprottin úr
„nýrómantískum” jarðvcgi og '''
SUNNUDAGUR 3. OKTÓBER 1982
27
Umsjón: Friðrik Indriðason og Eiríkur S. Eiríksson
Bodies
að lifna?
■ Nútíminn hefur heyrt að hljóm-
sveitin Bodies sé nú að lifna við en
eins og greint var frá hér á síðunni
fyrir þó nokkru siðan var Danny
Pollock orðinn einn eftir í sveitinni.
Hann mun hafa fullan hug á að
sveitin starfi áfram og er nú að Dæla
í nýju verkefni á því sviði. -FRI
START ungar úl nýrri
hljomsveit:
BERSERKIR
■ Hljómsveit Péturs Kristjánssonar
START klofn.aði eigi alls fyrir löngu,
þ.e. hluti hennar klauf sig frá móður-
skipinu sem nú er aftur komið á réttan
kjöl eins og sést af stuttu spjalli við Pétur
annarsstaðar í Nútímanum en afkvæmið
á að heita Berserkir eftir því sem
Nútíminn kemst næst.
Meðlimir Berserkja eru þeir Kristján
Edelstein, Eiríkur Hauksson, Rúnar
Erlingsson, Sigurgeir Sigurðsson og
upphaflegi trommuleikari Tappa tíkar-
rass, hans nafn höfum við ekki á hreinu.
Rúnar vinnur nú að gerð nýrrar plötu
með Egó en eins og Bubbi sagði hér í
síðustu viku ,þá er hann session maður
þar en ekki um að ræða að hann hafi
gengið í Egó.
Búast má við að tónlist þeirra
Berserkja sé rokk í þyngri kantinum.
-FRIi
HEFÐUM LUBAR-
IÐ SVERTINGJA’
— ef við hefðum þekkt einhvern.” — Haraldur Sigurðsson
varar við uppgangi nasismans og segist fyrirlíta
nasistastælana hjá Þey
■ Það var kominn tími til að einhver
vekti athygli á því að nasistastælarnir
hjá Þey eru ekki eins góður brandari og
þeir halda. Ég þakka ESE kærlega fyrir
greinina ADOLF ER EKKI HÉR... í
síðasta Nútíma (19. september). Þeys-
ararnir verða að átta sig á því hvað þeir
eru að gera.
Fyrir nokkrum árum vorum við kunn-
ingjarnir í kafi í KIZZ og Queen. í
fáfræði héldum við að þær hljómsveitir
væru nasistar út af því að ZZ í KIZZ
var skrifað eins og nasista-essin og
Queen voru oft í „uniformi" eins og
nasistarnir. Okkur þótti þetta góður
brandari og við heilsuðum með SIEG
HEIL og töluðum um júðahunda og alls
konar lægri kynflokka. Við gerðum
púragrín að hálfútlenskum krökkum og
allt eftir því. Ég er viss um að ef við
hefðum þekkt svertingja þá hefðum við
lúbarið hann.
Síðan fórum við tveir kunningjarnir
til Englands og þar kynntumst við
alvörunasistum, sem eru hreint út sagt
snarbrjálaðir. Við sáum þá oft svoleiðis
lúberja litað fólk og við fréttum af
morðum. Hugsunarhátturinn hjá þess-
um mönnum er alveg ga ga. Einhvern
veginn misstum við allan áhuga á KIZZ
og Queen við þessi kynni, þó við vitum
vel núna að þær eru engir nasistar. Ég
veit ekki einu sinni hvort þær eru með
nasistafíling viljandi. Ég stórefa það því
þær eru báðar frekar vinstrisinnaðar og
Queen studdi ANTI-NAZI-LEAGUE.
Mér er sagt að Þeysarar séu líka
vinstri-sinnaðir svo ég skil ekki af
hverju þeir gera svona mikið í
nasistastælum, þó þetta eigi sennilega
að vera bæði brandari og auglýsinga-
brella hjá þeim. Ég fyrirlít þessa stæla
hjá Þey og þó mér finnist Þeyr vera besta
íslenska hljómsveitin þá skal ég aldrei
kaupa neina plötu með þeim og ég skal
aldrei mæta á konsert njá þeim. Ég
skora líka á alla hugsandi menn, vinstri
sinnaða og hægri sinnaða en andnasista,
að láta auglýsingabrelluna hjá Þey falla
um sjálfa sig. Að lokum þakka ég svo
fyrir góðan .Nútíma og legg til að þið
birtið textann SIEG HEIL með EGO.
Þar eru orð í tíma töluð. Svo finnst mér
að þið mættuð halda áfram að birta
Óháða vinsældalistann hjá Stuðbúðinni
sem þið birtuð alltaf fyrr í sumar. Hann
er miklu raunhæfari en skallapopplisti
húsmæðranna. Mér finnst líka að þið
mættuð kynna meira pönk og nýbylgju,
t.d. Dead Kennedys, Crass, Infra Riot,
Discharge, GBH, Sjálfsfróun, Von-
brigði og Anti Power.
Bx!
Haraldur Sigurðsson
Allt leyfilegt nema klám
og níð
Við þökkum Haraldi bréfið um leið
og við hvetjum aðra lesendur til að láta
í sér heyra um þetta mál eða önnur sem
efst eru á baugi í poppheiminum. Síður
Nútímans standa lesendum opnar til
skoðanaskipta og í því sambandi má
nefna að engar reglur gilda á blaðsíðum
26 og 27 aðrar en þær að högg neðan
beltisstaðs eru bönnuð og eins eru orð
Jóns Sig. fýrrum ritstjóra og núverandi
skólastjóra höfð að leiðarljósi. Sem sagt
ekkert klám og ekkert níð ( - það
skemmtilegasta er alltaf bannað) og
vinsamlegast skrifið undir nafn, nafn-
númer og heimilisfang. Ef þess er óskað
verður nafni haldið leyndu, þ.e.a.s. ef
framangreindum skilyrðum er fullnægt
og þá getur ekkert komið upp um
bréfritara. Varir okkar verða innsigl-
aðar og jafnvel þó að Frikka verði
stungið í Steininn, mun ekkert út leka.
Umsjónarmenn Nútímans.
ætti því að höfða vel til Rómeó
og Júiía nútímans (með litlu
eða stóru N-i eftir þörfum).
Sjálfum hefur mér leiðst þetta
„nýrómantíska” tuð og allir
þeir hljóðgerflar og hvað það
nú heitir sem fylgt hefur
þessari nýjustu tík. En ABC
hafa bara eitthvað við sig sem
komst í gengum þykkan skráp-
inn á mér og þó vissulega örli
á ofhlæði í tónlist þeirra starf,-
rófsmanna, þá hafði ég bara
gaman af plötunni. Jú, jú, það
eru strengir hér og stengir þar,
en ABC-menn komast snyrti-
lega frá öllu saman, a.m.k.
hengjasf þeir ekki í stengjun-
um eins og svo margir kollegar
þeirra, og útkoman er klassa
„skemmtirokk” eins og ég vil
kalla það. Reyndar er ég ekki
frá því á DV hafi hitt naglann
á höfuðið þegar hann kallaði
þetta „rokk I kjólfötum” (það
er samt óþarfi að lesa þann
snepil fyrir það), þannig til að
bæta um betur segir ég bara
„rokk t' smóking í baði með
bindi“.
Það var og. Fín plata hjá
ABC, en hvar eru DEF og G?
Við viljum meira, en takið
eftir. Við getum alveg leyft
okkur að vera það svartsýn eða
bjartsýn eftir atvikum, að
ABC eigi eftir að springa
(blúbb) eins og sápukúla og
því skulum við ekki taka þá í
dýrlingatölu að svo komnu
máli.
- ESE
Uppog
ofan
■ UPP OG OFAN er félagsskapur án
nokkurs markmiðs annars en að halda
þrumutónleika í Féiagsstofnun stúdenta
næstu helgi, bæði föstudags - og laugar-
dagskvöld.
Tilgangurinn með skemmtuninni er, eins
og segir í tilkynningu, sá sem er öllum æðri:
að halda lífinu í fólki - ekki einungis þeim
■vsem mæta á sviði heldur einnig gestum en á
sviðið munu koma fram'eftirfarandi aðilar:
Jonee Jonee., Þór Eldon, Vonbrigði, Magnús
í Hvalnum, Einar öm, ÞEYR, Vébandiðo.fl.
Gjald inn á tónleikana er 80 spesíur en
hægt er að fá miða á bæði kvöldin fyrir litlar
120. Þá fá félagar f UPP OG OFAN 25%
afslátt.
- FRI
(Bauknecht
Frystiskápar
og kistur
Fljót og örugg frysting.
Örugg og ódýr í rekstri.
Sérstakt hraðfrystihólf.
Einangrað að innan með áli.
Eru með inniljósi og læsingu.
3 öryggisljós sem sýna
ástand tækisins.
Greiðsluskilmálar eða
staðgreiðsluafsláttur.
Utsölustaóir DOMUS
og kaupfélögin um land allt
Iféladeild
Sambandsins
Ármúta 3 Reykjavík Simi 38900
Atvinna
Opinber stofnun óskar að ráða til sín mann til
skrifstofustarfa.
Þarf að hafa góða bókhaldsþekkingu, vera
reikningsglöggur og kunnugur íslenskum
landbúnaði.
Umsóknir er greini aldur menntun og fyrri störf
sendist blaðinu fyrir 10. þ.m. merkt „Bókhald og
skýrslugerð.
STÁL-ORKA
SIJDIJ- OG V IIMfKilDAÞJDNIJSTAN
KJARRHÖIMAIO
200 KDPAVOGI
SÍMI 40SB0.
Leigufyrirtæki
Höfðar þjónusta okkar til
þín? Veltu því fyrir þér.
Við höfum yfir aö ráöa þjónustubifreiö m/öllum bún-
aöi, sem viö getum sent hvert á land sem er ásamt
starfsmönnum. Er fyrirtækið þitt yfirhlaöiö verkefn-
um? Hefur þú oröið aö vísa frá þór verkefnum vegna
mannaleysis?
Ef svo er, haföu þá samband viö okkur og viö veitum
þér tímabundna aöstoö. Athugaöu þaöl!
Biiaíeigan\ §
CAR RENTAL
£* 29090 SSS”1
REYKJANESBRAUT 12 REYKJAVIK
Kvöldsími: 82063