Tíminn - 26.10.1982, Síða 5
ÞRIÐJUDAGUR 26. OKTÓBER 1982
iHliiíiÍÍ
''k'k'kit'k'k'k'kir'k'k'k'kif'k'k'k'k'k'k'k'k'kti'k'k'fc 'k'k'k'k'k'k'k'&'k'fc'k'k'k'k'k'k'k'k'kikit
Erum með: VHS - og 2000 með ogántexta
VIDEOSPORT
Miðbæ Háaleitrsbraut 58-60 Sími 33460.
Opiðalla daga
kl. 13.00-23.00
Ævintýraheimurinn
fréttirl
BELU STEFNIR EIGIN-
MANNI SÍNUM KORTSNOJ
— krefst aukins framfærslueyris af manni sínum
Frá Illuga Jökulssyni í Luzern:
■ Viktor Kortsnoj, stórmeistara í skák,
hefur nú verið stefnt fyrir rétt í Sviss þar
sem hann er búsettur. Stefnandinn er
enginn annar en Bella Kortsnoj,
eiginkona hans og krefst hún aukins
framfærslueyris af manni sínum, en þau
eru nú að skilja.
Forsaga þessa máls er flestum kunn.
Fljótlega eftir að Viktor Kortsnoj yfirgaf
Sovétríkin árið 1976, sóttu Bella
eiginkona hans og Igor sonur þeirra um
leyfi til að flytja til Vesturlanda en fengu
synjun. Notaði Kortsnoj þá synjun
óspart í áróðursherferð sinni gegn
sovéskum skákyfirvöldum og stóð í
þessu stappi í mörg ár. Þann fjórða júlí
síðastliðinn fengu þau Bella og Igor loks
leyfi til að flytja vestur yfir jámtjald, en
þá kom í ljós að ekki var allt með felldu
í hjónabandinu. Viktor kom ekki til að
taka á móti konu sinni og syni, og brátt
fréttist að skilnaður væri í vændum.
í gær slógu svissnesk blöð því upp að
Bella hefði stefnt manni sínum og krafist
aukins framfærslueyris. Undanfarið hef-
ur Viktor Kortsnoj greitt þeim mæðg-
inum þrjú þúsund svissneska franka á
mánuði en það samsvarar rúmum 20
þúsund íslenskum krónum. Þetta telur
Bella ekki nægja enda geti hún ekki
notað verkfræðimenntun sína í Sviss og
eins eigi Igor sonur þeirra eftir að ljúka
námi, í efna- og stærðfræði. Viktor
Kortsnoj, sem lét komu mæðginanna
vestur á bóginn ekki hafa nein áhrif á
sambúð sína og Petru Leeuwerik hefur
ekkert viljað um málið segja, né
ráðgjafar hans, en Petra Leeuwerik
hefur aftur á móti lýst yfir áhyggjum
sfnum vegna fjármálanna. Bella Korts-
noj kveðst viss um að samkomulag muni
nást en um skilnaðinn var hún fáorð.
-ESE/U-Luzem
Vélbáturirm Sif
hætt kominn
eftir brotsjó
■ Áttatíu rúmlesta fiskibátur, Sif ÍS
225, fékk á sig mikinn brotsjó þar sem
hann var staddur úti af Hornvík á leið
frá Siglufirði til Flateyrar aðfaranótt
iaugardagsins. Þrír menn vom um borð
í bátnum þegar brotið reið yfir.
Skipstjórinn var í brúnni og kastaðist
hann til svo hann hlaut mikið höfuðhögg
og rotaðist. Hinir tveir sluppu ómeiddir.
Brotið reið yfir af miklum þunga á
stjórnborðshlið. Brúarvængur möl-
brotnaði, svo og lunning á afturbóg.
Lestarlúga rifnaði upp svo sjór komst í
lestina. Öll ljós slökknuðu um borð en
þó tókst að halda vélinni gangandi.
Talstöð bátsins fór úr sambandi en
skipverjunum tókst að ná sambandi við
Bæjarfoss Eimskipafélagsins, sem var
nærstaddur, um neyðartalstöð.
Það var svo um klukkan fimm á
laugardagsmorguninn að Bæjarfoss
sigldi fram á Sif þar sem hún var
hjálparvana. Var þegar hafist handa við
að koma taug milli Sifjar og Bæjarfoss,
en ekki tókst betur til en svo, að taugin
fór í skrúfu Bæjarfoss. Þar með voru
bæði skipin hjálparvana.
. Hafði þá tilkynningaskyldan í
Reykjavík samband við nærliggjandi
báta og fóru varðskipið Týr og
vélbáturinn Öm á vettvang. Náðu
varðskipsmenn að koma taug í Sif þegar
hún var stödd um 0,7 sjómflur frá landi
og rak upp. Dró varðskipið Sif út af
hættusvæði en síðan tók Öm við. Hélt
varðskipið til aðstoðar við Bæjarfoss, en
þegar að honum kom hafði skipverjum
tekist að losa taugina úr skrúfunni og
komst hann á eigin vélarafli inn til
Flateyrar.
Týr tók hins vegar skipverjana af Sif
og flutti þá til ísafjarðar þar sem hinum
slasaða var komið undir læknis hendur.
Mun hann ekki alvarlega slasaður. Síðar
kom Örn með Sif í togi til ísafjarðar.
-Sjó
■ Mikill kraftur var í brotsjónum sem reið yfir Sif, náði hann að brjóta lunninguna
á stjómborðshlið niður að mestu, auk þess braut hann stóran hluta
stjómborðsbrúarvængs og reif upp hluta af lestarlúgu sem var tessuð niður.'
Tímamynd Guðmundur Sveinsson/ísafirði.
.>! V
S'Ví V
■5ÍS 5
■ Harður árekstur varð milli steypubfls og fólksbfls á gatnamótum Suðurlands-
brautar og Skeiðarvogs um klukkan 14 í gær. Ökumaður fólksbflsins var fluttur á
slysadeild. Ekki tókst að fá upplýsingar um hversu alvarlega hann slasaðist.
Tímamynd Sverrir
konur
■ Tvær fullorðnar konur kærðu rán
lögreglunnar í Reykjavík um helgina.
Fyrra ránið átti sér stað á laugardags-
kvöld. Gömul kona var á gangi nálægt
versluninni Hamborg við Klapparstíg.
Skyndilega viku sér að henni tveir
unglingspiltar og hrifsuðu af henni
handtösku. Hlupu piltarnir síðan á brott
og hefur ekkert til þeirra spurst síðan. í
handtösku gömlu konunnar voru sex
hundruð krónur í peningum, auk
gleraugna og skilríkja.
Á sunnudagskvöldið var önnur gömul
á gangi eftir Ægisgötunni þegar
tveir ungir menn réðust skyndilega að
henni. öamla konan er örlítið bækluð
og gekk hún því við staf. Hrintu ungu
mennirnir henni í götuna, rifu af henni
veskið sem hafði að geyma gleraugu og
skilríki og hlupu á brott.
Skömmu síðar gekk maður fram á
gömlu konuna þar sem hún lá á
gangstéttinni. Kvartaði hún yfir eymsl-
um í mjöðm og var hún flutt á slysadeild.
Hvorugt málið hefur tekist að upplýsa.
-Sjó
Akureyri:
Árekstur
flugvéla
■ Talsvert tjón varð á tíu sæta flugvél
af gerðinni MU 2, í eigu Flugfélags
Norðurlands, þegar Fokker vél frá
Flugleiðum lenti með vængenda í
stýrisfleti vélarinnar á Akureyrarflug-
velli um klukkan 9 í gærmorgun.
„Þarna var greinilega um að ræða
mismat á fjarlægð. Flugmaður Fokk-
ersins hélt sig fjær litlu vélinni en raun
bar vitni,“ sagði Gunnar Egilsson,
flugumferðarstjóri á Akureyri í samtali
við Tímann í gær.
Aðspurður um tjónið sagði Gunnar
að ljóst væri að flugvél Flugfélags
Norðurlands kæmist ekki í loftið um
óákveðinn tíma. Hins vegar sagði hann
að Fokkerinn hefði ekkert skemmst.
-Sjó
í Iffshættu
eftir fall af
svölum á
þriðju hæð
■ Liðlega fimmtugur maður hlaut
miki l höfuðmeiðsl þegar hann féll niður
af svölum á þriðju hæð fjölbýlishúss við
Gnoðarvog í Reykjavík um hádegisbilið
á laugardag. Maðurinn lenti á stein-
steyptri gangstétt og er talið að hann hafi
komið niður á höfðinu. Var hann fluttur
á slysadeild og þaðan á gjörgæsludeild.
Síðast þegar fréttist lá hann enn á
gjörgæsludeild og var talinn í lífshættu.
-Sjó
Ólympíumótid
í Luzern:
sveitin
tilkynnt
■ Sovéski útlaginn Viktor Kortsnoj
mun tefla á fyrsta borði fyrir Sviss á
Olympíumótinu sem hefst í Sviss n.k.
laugardag. Að venju er sovéska sveitin
talin sigurstranglegust og nú hefur verið
tilkynnt hverjir skipa hana. Á fyrsta
borði er Karpov heimsmeistari, á öðru
borði hinn ungi Kasparov, á þriðja borði
Beljavski, og á fjórða borði Poluga-
jevsky. 1. varamaður er Mikael Tal en
2. varamaður Arthur Yusupov. Athygli
vekur að Smyslov, einn áskorendanna
átta, er ekki í liðinu, en það er hins vegar
Polugajevsky, sém ekki hefur staðið sig
ýkja vel undanfarin ár. Er hann meir að
segja iekinn fraÉi yfir Tal, sem hefur
unnið mörg mót upp á síðkastið. Ekki
er vitað hvernig stendur á fjarveru
Smyslov, en helst giskað á að hann sé
þreyttur eftir millisvæðamótið í sumar
og mjög sterkt skákmót í Hollandi nú í
haust. JGK/U-Luzem