Tíminn - 26.10.1982, Page 11

Tíminn - 26.10.1982, Page 11
ÞRIÐJUDAGUR 26. OKTÓBER 1982 Tímamynd Ella ■ Frá sýningunni Norðan 7 að Kjarvalsstöðum. NORDAN7 KJARVALSSTAÐIR NORÐAN7 Myndlístarmenn frá Akureyri. Samsýning. 114 verk. Opið á venjulegum tímum 16. okt. -3. nóv. 1982. Norðan 7 Að Kjarvaisstöðum sýna nú sjö myndlistarmenn frá Akureyri, og nefna í skiltamáiningu Norðan 7. Þetta eru aUt vel kunnir myndiistarmenn, a.m.k. meðal þeirra er fylgjast með myndlist á íslandi að staðaldri. Að visu hafa þeir ekki allir jafn mikla reynslu á opinberum vettvangi, ef svo má taka tíl orða. Þeir sem sýna eru: Aðalsteinn Vestmann (1932), en hann nam við Handíða - og myndlistarskól- ann á árunum 1949-1951. Einar Helgason (1932). Hann tók teiknikennarapróf frá Handíða-og myndlistaskólanum árið 1952 og nam síðan við Statens kunstakademi 1978- 1979. Guðmundur Ármann (1944), er nam við Myndlista- og handíðaskóla íslands 1963-1967 og stundaði framhaldsnám í Svíþjóð 1967-1971. Helgi VUberg (1951), er nam við Myndlista- og handíðaskóla íslands 1968-1973 og er nú skólastjóri Mynd- listarskólans á Akureyri. Kristinn G. Jóhannsson (1936) er nam við Myndlista- og handíðaskólann 1956- 1957 og í Edinburgh Collage of Art 1957-1959. ÓU G. Jóhannsson (1945) en hann hefur stundað myndlist í fjölda ára og að lokum er það Örn Ingi (1945), sem er sjálfmenntaður myndlistarmaður, er starfað hefur lengi að myndlist. Eins og sjá má af þessari upptalningu, þá eru þetta allt vel skólaðir menn, bæði í stofnunum og í lífsins skóla, og allir hafa tekið þátt í fjölda sýninga og þeir hafa haldið einkasýningar víða. Ég lít ekki á Norðan 7 sem sérstaka Akureyrarkróniku í myndlist. í rauninni eiga þessir menn ekkert annað sameigin- legt en að vera sveitfastir í Eyjafirði, að ég best veit, og fást við myndlist. Á hinn bóginn er fengur að því að fá þessa Akureyringa til þess að sýna verk sín saman, því í myndunum getum við greint hvað aðallega er hugsað í myndlist fyrir norðan fjöllin. Þetta er heldur ekki í fyrsta skipti, sem svona sýning kemur frá Akureyri. Fyrir tæpum áratug, eða svo komu þeir' suður í gamalli sprengjuflugvél, í vondu veðri, með myndlistarlega aleigu sína oná sprengjuhlerunum og þeir sýndu í Norræna-Húsinu. Hlaut sú sýning dá- góðar undirtektir. Ekki man ég nú lengur upp á hár, hverjir af þeim Norðan sjö sátu á sprengjuhlerunum, en ósjálfrátt hlýtur maður þó að taka mið af þeirri loftárás á höfuðborgina, við mat á þessari sýningu, sem nú stendur á Kjarvals- stöðum. Sýningin. Ef maður fer almennum orðum um þessa samsýningu, þá sýnir hún okkur að eyfirskir listamenn eru á mjög svipaðri leið og aðrir hér á landi er sækja föng sín í Evrópulist og ameríska teikningu. í þessu blaði er á hinn bóginn ekki unnt að gefa mjög nákvæma umsögn, heldur verður að stikia á stóru, ef þær væru einhvers virði. Guðmundur Árnason er með 12 myndir. Sex tússteikningar og sex olíumálverk. Tússteikningamar, sem eru sex tilbrigði við þjóðsögu, sýna að þarna er góður teiknari að verki. Olíumálverk hans em ekki eins sannfær- andi, enda þótt góð teikning og lifandi, bjargi þar líka miklu. Öm Ingi er enn með tilraunir í myndgerð. Smíðar myndir og málar. Örn Ingi er góður handverksmaður, en vont handbragð hefur oft truflað nýjungar í myndlist á íslandi. Hans hlutur í sýningunni er ef til vill sá frumlegasti, en kemur ef til vill ekki eins mikið á óvart, vegna þess að hann lék á svipuðum nótum að Kjarvalsstöðum í fyrra. Öm Ingi er vaxandi myndlistar- maður, og verður fróðlegt að sjá hvaða leið hann fer. Hann ræktar enn hinn heimspekilega þátt myndlistarinnar, sem aðrir telja að ef til vill sé auðveldara að skrifa með nótum, eða í kvæði. Myndlist Óla G. Jóhannssonar hefur tekið hvað mestum breytingum, en hann sýnir um það bil 20 akrýlmyndir undir gleri. Maður greinir framför í teikningu, og þótt myndir hans séu ekki eins persónulegar og þær sem ég sá síðast, þá finnur maður vissan þroska í myndum hans eða festu, sem ekki var þar áður að finna. Meðferð lita er hófsöm og persónuleg. Einar Helgason er á svipaðri línu og Erró, þótt vitanlega sé of skammt síðan Erró sýndi hér, þannig að þetta séu stælingar. Það er aðeins verið að fara leið, er þúsundir myndlistarmanna fara um þessar myndir. Sækja föng í forna kúnst og stilla saman ólíkum viðhorfum og tímatali. Einar er bráðflinkur málari, og það er líklegra að menn meti myndir hans, eða greini út frá skáldskapargildi þeirra, en annarri færni, eins og til að mynda handverki. Hann minnir einnig dálítið á suma ameríska málara, er róa á þessi mið. Vatnslitur hans virðist vera einlægari. Aðalsteinn Vestmann er dálítið gamaldags, þótt í sumum myndum greini maður áhrif nútímans. Hand- bragðið er fínlegt, einkanlega í vatns- litamyndunum, sem enn eru „blautar", sem er öfundsverður kostur. Talsverður styrkleikamunur er milli mynda, og ef til vill ætti hann að stækka myndeiningar sínar, eða fækka atriðum. Helgi Vilberg kemur þarna mjög á óvart. Þetta eru ljómandi skemmtileg verk, sem hann sýnir og þau vinna saman með sérstæðum hætti. Auðvitað greinir maður margvísleg áhrif á þessum myndum, sem fengin eru frá öðrum stöðum en úr Norðurlandi. Þetta er málverk heimsmannsins, gæti maður sagt, og myndir hans hafa óvenjulega töfra. Helgi málar með olíu. Að lokum er það svo Kristinn G. Jóhannsson, sem maður hefur eiginlega’ lengsta samfellda sögu að segja um. Það er líklega bráðum aldarfjórðungur síóan hann sýndi fyrst myndir, þótt hann legði fyrir sig aðra lífsbaráttu en málverkið síðar, en hann stýrði skólum, m. a. gagnfræðskólanum á Ólafsfirði um langa hríð, ef ég man rétt. Mér þóttu krítarmyndir hans skemmtilegastar, og verður líklega að leita allt til heimskreppunnar fyrir stríð, til að finna hliðstæðu. Þá eru dúkskurð- armyndir hans áhugaverðar, en þar beitir hann tækni, sem ekki er oft viðhöfð hér á landi. Sýningu Norðan 7 lýkur 2. nóvember og ættu þeir er áhuga hafa á myndlist, ekki að láta þessa sýningu fram hjá sér fara, og er þá ekki verið að drífa fólk í útkjálkalist, heldur var það hitt, að það er ekki svo mikið um stórar heimsóknir myndlistarmanna frá öðrum landshlut- um. Jónas Guðmundsson skrifar um myndlist Sinfóníu- tónleikarnir ■ Á öðrum tónleikum Sinfóníu- hljómsveitarinnar, 21. október í Háskólabíói, voru tveir píanókon- sertar aðal-aðdráttarstykkin, nr. 1 eftir Liszt, og konsert fyrir píanó, trompet og strengi eftir Sjostakovits. Jacquillat stjómaði, en bandaríski píanistinn Eugene List lék einleik. Húsfyllir var eins og fyrri daginn, enda hefur píanóið sérlegt aðdrátt- arafl fyrir áheyrendur. Fyrst á efnisskránni var samt „Karneval í París“ eftir norska tónskáldið Johan Svendsen (1840-1911) sem var mesta tónskáld Norðmanna á sinfóníska sviðinu á öldinni sem leið. Þetta er fjörugt verk og litskrúðugt, einsog náfnið bendir til; það er með mestu ólíkindum, hve langt íslendingar voru á eftir „frændum sínum“ í tónlist allt fram til vorra daga - lík- lega höfum við ekki náð þeim fyrr en fyrir svosem 10 eða 20 árum - og hitt, hve lítið þekkt þessi skandinavíska og danska tónlist er hér á landi. En þetta Karneval Svendsens var bara reglulega skemmtilegt. Því miður vandaði Eugene List sig varla nægilega við píanókonsert Liszts - þar moraði í ónákvæmni af ýmsu tagi. Varla ætti það þó að stafa af kunnáttuleysi, ef marka má skráðan frægðarferil frá 10 ára aldri í tónleikaskrá. Tónskáldið Liszt stóð lengi í skugga píanómeistarans Liszt, en nú viðurkenna flestir að Franz Liszt var merkilegt tónskáld, enda segir í skránni að þessi píanókonsert hafi þótt býsna nýstárlegur í formi og hugsun, jafnvel byltingarkenndur, þegar hann var frumfluttur árið 1855. Hvort Eugene List komst í rauninni betur frá Sjostakovits- konsertnum skal ósagt látið, en sú tónlist er þannig að ýmislegt gróm getur sloppið óheyrt undan vökulum eyrum. En þá skiptir það líka engu máli, enda þótti mér hann takast vel og vera skemmtilegur, eins og raunar flest eftir þetta tónskáld. Lárus Sveinsson spilaði þarna ofurlítið hlutverk á trompet. Síðust á efnisskrá var 4. sinfónía Schumanns. Fræðimenn finna það tvennt að sinfóníum Schumanns, að hann hafiverið tónskáld hinna smáu forma en ekki stórrar úrvinnslu, eins og sinfónía hljóti að vera, og að hann hafi verið vondur útsetjari. Enda vissi hann víst lítið um hin ýmsu hljóðfæri sinfóníuhljómsveitar. En burtséð frá þessu þykja sinfóníur hans mjög geðugar og fallegar, og það á ekki síst við hina fjórðu. Höndum sveiflað Einar Markússon píanóleikari heiðraði Háskólatónleika í fyrri viku og lék nokkur smástykki eftir sjálfan sig og aðra. Einari þykir mest gaman að spila lög þar sem tækniþrautir - helzt nær því óyfirstíganlegar - eru fyrirliggjandi: hlaup og stökk, eða óumræðileg grip. Tónleikar eiga að vera eins og loftfimleikar án öryggis- nets, og slíkt taka áhorfendur og áheyrendur jafnvel ekki fyllilega alvarlega nema fimleikamanninum skriki fótur einu sinni eða tvisvar. Einar tilheyrir semsagt þeim skóla píanista, sem ekki leggja nauðsyn- lega mesta áherzlu á að flytja músík, heldur öllu fremur að spila á áhrifamikinn hátt á hljóðfærið. Sýningin í heild skiptir máli. Þannig skilst mér menn hafi litið á hljóðfæra- leik Paganinis og Liszts - ég er ekki að líkja Einari við þá heiðursmenn, heldur afstöðunni til „showsins11. Enda leiðist engum á tónleikum hjá Einari Markússyni. Einar flutti fyrst eigin útsetningu á Svanahljómum, lagi eftir Maríu Markan. Einar hefur, í stíl píanista fyrri tíma, gert talsvert af því að útsetja og semja tilbrigði við verk, auk þess sem hann er sagður harðsnúinn snarstefjari (sá, sem leikur tilbrigði af fingrum fram); og Svanahljómar var mjög smekklega gert. Þá fylgdi Marzuka eftir Mariu Szymanowsku, Fantasia eftir Kupl- onoff, Poem eftir Godowski, og tvær etýður eftir Daniel Steibelt (1765- 1823) - allt sjaldheyrð tónskáld. f lokin lék Einar nokkur aukalög, þ.á.m. Lándler eftir Schubert, og etýður fyrir vinstri hendi eftir Levitzky - þá etýðu samdi tónskáldið handa píanistanum Wittgenstein, sem missti hægri handlegg í fyrra Stríðinu. En Wittgenstein píanisti var bróðir Wittgensteins heimspek- ings, sem var áhuga-klarinettisti. Einar Markússon hefur nú spilað tvisvar á Háskólatónleikum, en þrátt fyrir það heldur hann áfram að vera jafn óþekkt stærð og fyrr. Sem er aðalsmerki kúnstnersins: „Religions die when they are proved to be true“. Páll Jóhannesson, tenór- söngvari Nýr tenórsöngvari, Páll Jóhannes- son frá Akureyri, söng í sal Menntaskólans við Hamrahlíð sunnudaginn 24. október. Jónas Ingimundarson spilaði undir. Páll var nemandi Magnúsar- Jónssonar við Söngskólann í Reykjavík í fimm ár, og hefur nú lokið fyrsta framhaldsári sínu á Ítalíu. Á efnisskránni voru þrenns konar verk: fyrst lög eftir ítalina Caccini (1546-1618) og Pergolesi (1710- 1736), og Þjóðverjann von Gluck (1714-1787); síðan ýmist óperuaríur eftir 19.-aldar ítali eða lög íslenzkra tónskálda (Sigfús Einarsson, Inga T. Lárusson, Sigvalda Kaldalóns og Eyþór Stefánsson). Páll Jóhannesson hefur ákaflega fallega tenórrödd, ekki gilda en bjarta og tæra, einkum um miðsvið- ið. Mér fannst hann syngja öll þessi verk vel, en þó yfirleitt hin erlendu betur - ég ímynda mér að þar njóti hann tilsagnar kennara sínna á Ítalíu og þarlendrar hefðar. Tónleikum Páls var afarvel tekið af hlustendum og hann söng mörg aukalög, ekki sízt Hamraborgina, uppáhaldslag allra akureyrskra tenóra. Framkoma Páls er mjög látlaus; hann lætur „lögin syngja sig sjálf“, ef svo nætti að orði komast. Slík framkoma, og slíkur flutningur, eru vafalaust af hinu góða frá tónlist- legu sjónarmiði, þótt e.t.v. mætti halda því fram að söngvarinn hafi lagt fulllítið frá sjálfum sér til sumra laganna. Jónas Ingimundarson er sívaxandi undirleikari - mér fannst hann gera þetta prýðilega. Það er ekki oft sem maður skemmtir sér eins vel á tónieikum og nú, á þessum tónleik- um Páls Jóhannessonar - hann söng svo dæmalaust fallega. Sjálfsagt á hann margt eftir ólært, annars væri hann ekki í framhaldsnámi á Ítalíu, en þótt mér þættu óperuaríumar yfirleitt bezt sungnar hjá honum tel ég að röddin mundi hæfa ljóðasöng ennþá betur. Og núna er Ijóðsöngur einmitt á uppleið með þjóðinni. Sigurður Steinþórsson á skrifar um tónlist ———

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.