Tíminn - 27.10.1982, Blaðsíða 1
íslendingaþættir fylgja biadinu í dag
TRAUST OG
FJÖLBREYTT
FRÉTTABLAÐ
Miðvikudagur 27. okt. 1982
244. tbl. - 66. árgangur.
Niðurstöður mælinga fiskifræðinga á íslenska loðnustofninum:
ENGAR LODNUVEIÐAR
LEVFDAR Nl) í VETUR
— „Góðar vonir um sæmilega loðnuveiði
haust’% segir sjávarútvegsráðherra
■ Kynþroska loðna mældist 265
þúsund tonn samkvxmt mælingum
sem gerðar voru fyrr í þessum mánuði
á íslenska loðnustofninum. Er þetta
heldur meira magn en mældist í fyrra.
Þetta magn er þó langt undir þeim
mörkum sem miðað er við þegar leyfi
eru veitt til loðnuveiða, en þau miðast
við 400 þúsund tonn. í nýrri skýrslu
Hafrannsóknarstofnunar sem kynnt
var í gær kemur fram að ekki sé hxgt
■ Mikil leit var gerð á sjó og úr lofti
að tveggja hreyfla einkaflugvél, TF
MAO frá fsafirði, í allan gærdag.
Flugmaðurinn Hafþór Helgason,
kaupfélagsstjóri á ísafirði, var einn í
vélinni þegar síðast var vitað um hana.
Hann var j afnframt eigandi vélarinnar.
Það var laust eftir klukkan sex í
gærmorgun að Guðni Einarsson,
skipstjóri á mótorbátnum Sigurvon ÍS
500 gerði flugstjórnarmiðstöðinni í
Reykjavík vart um óvenjulega ferð
flugvélar inn á Súgandafirði. „Það var
í sjálfu sér ekkert óvenjulegt við flug
vélarinnar annað en það hversu
snemma hún var á ferðinni. Hún
klifraði upp yfir þorpinu og flaug síðan
inn fjörðinn í áttina til ísafjarðar,"
sagði Guðni í samtali við Tímann í
gær.“
Það var svo Iaust fyrir klukkan 07.40
í gærmorgun að loftskeytastöðin í
Gufunesi tilkynnir að skipverjar á
vélbátnum Þrym BA 7 hefðu orðið
flugvélarinnar varir. „Við vorum að
draga línu um 25 sjómílur N-V af
Bakkanum þegar flugvélin kom á
mikilli ferð úr norðri og flaug mjög lágt
rétt hjá okkur. Þegar hún var þvert á
okkur sendi hún frá sér tvö rauð
að mxla með loðnuveiðum á vertíð-
inni haustið 1982 og veturinn 1983.
Steingrímur Hermannsson, sjávar-
útvegsráðherra, sagði að ljóst væri að
loðnuveiðar kæmu ekki til greina í ár,
en góðar vonir stæðu til að sæmileg
loðnuveiði gæti orðið næsta haust.
Ljósi punkturinn í skýrslunni er hins
vegar sá að nú mældist meira af
ársgamalli loðnu en áður, eða 260
tonn, en í fyrra mældust 5 tonn og árið
1980 171 tonn. Þess ber þó að geta að
allar tölur frá í fyrra eru mjög
óáreiðanlegar, þar sem aðstæður til
loðnuleitar voru þá afar erfiðar vegna
óhagstæðs veðurs og mikils íss á
leitarsvæðinu. Aðstæður nú voru hiris
vegar mjög hagstæðar svo að á betra
verður vart kosið og segir í skýrslunni
að nær engar líkur séu á viðlíka
skekkjumörkum og í fyrra. Jón
Jónsson forstjóri Hafrannsóknastofn-
unarinnar sagði í samtali við Tímann
í gær að þessar niðurstöður gæfu
ástæðu til að vona að farið verði að
glaðna til í lok næsta árs, en þessar
niðurstöður ætti eftir að sannprófa.
Væntanlega yrði farið í nýjan rann-
sóknaleiðangur eftir áramótin.
Mælingamar voru gerðar sameigin-
lega af íslendingum og Norðmönnum
og leiðangursstjórar voru Hjálmar
Vilhjálmsson, Páll Reynisson og Are
Domasnes.
JGK
■ Hafþór Helgason, kaupfélagsstjóri á ísafirði, flugmaður TF-MAO, stendur hér við hlið vélarinnar sem saknað er, en
ekkert hefur spurst til hennar frá þvi snemma í gærmorgun.
Arangurslaus leit ad tveggja hreyfla einkaflugvél frá ísafirði í gær:
SENM UPP 7VÖ NEYÐAR-
BLYS 0G HVARF SfDAN
Leit verður haldið áfrarn í dag
neyðarblys. Síðan hélt hún áfram í
suður þar til hún hvarf sjónum okkar.
Bátar sem staddir voru sunnan við
okkur urðu einskis varir svo ég býst
við að vélin hafi hafnað í sjónum,"
sagði Þorsteinn Jónsson, skipstjóri á
Þrym í samtali við Tímann í gær.
Strax og fyrri tilkynningin barst til
flugstjórnar þótti ástæða til að grennsl-
ast um eftir vélinni þar sem ekki var
vitað um neina flugumferð í grennd
við Súgandafjörð. Margir bátar sem
voru á næstu grösum tóku þátt í
leitinni. Á vettvang fóru flugvél
flugmálastjórnar, Herculesvél og
þyrla frá varnarliðinu á Keflavíkur-
flugvelli. Leitin bar engan árangur og
var henni hætt um klukkan 17 í gær.
Verður henni haldið áfram í birtingu
í dag.
Kvikmynda-
hornið:
ÓuppfylBt
fyrirheit
- bls. 23
Svidsett
stórslys
- bls. 4-5
Skída-
bunadur
— bls. 10
Kona
„Kládí-
usar
— bls. 2