Tíminn - 02.11.1982, Side 7
ÞRIÐJUDAGUR 2. NÓVEMBER 1982.
7
■ Brésnjef og Hnsak, leiðtogi tékkneskra kommúnista.
Er Reagan ad sætta
Sovétríkin og Kína?
erlent yfirlit
Ríkin munu halda viðræðum áfram
■ SÍÐASTLIÐINN miðvikudag var
meiri háltar hersýning á Rauða torginu
í Moskvu, sem ekki er nein nýlunda.
Þessi atburður þótti samt tíðindum sæta
vegna þess, að Leonid Brésnjef flutti þar
ræðu, sem hefur orðið mikið umtalsefni
fjölmiðla.
í ræðunni veittist Brésnjef mjög
harkalega að Bandaríkjunum og þeirri
utanríkisstefnu, sem þau hafa fylgt síðan
Reagan kom til valda.
Brésnjef gaf það óspart til kynna, að
stefna þessi markaðist af hatri í garð
Sovétríkjanna og markmið hennar væri
að koma Sovétríkjunum á kné. Tak-
marki þessu ætli Bandaríkin að ná á
tvennan hátt.
í fyrsta lagi með að beita Sovétríkin
sem mestum efnahagslegum þvingun-
um, sem reynt væri að fá bandalagsríki
Bandaríkjanna til að taka þátt í, þótt
það stríddi gegn augljósum hagsmunum
þeirra.
í öðru lagi með stórauknu vígbúnað-
arkapphlaupi, sem hefði það markmið
að tryggja Bandaríkjunum algera yfir-
burði í hvers konar vopnabúnaði.
Þannig ætti að þvinga Sorvétríkin til
undanláts og undirgefni.
Brésnjef lýsti síðan yfir því, að þetta
skyldi Bandaríkjamönnum aldrei takast.
Rússar myndu leggja harðara að sér,
auka vígbínað sinn og koma þannig í veg
fyrir yfirburði Bandaríkjanna á víg-
búnaðarsviðinu. Aldrei aftur skyldu
óvinir Sovétríkjanna mæta herjum
þeirra óviðbúnum eins og hefði gerzt
1914 og 1941.
ÞAÐ voru ekki aðeins þessar yfirlýs-
ingar Brésnjefs, sem voru harðorðari en
slíkar yfirlýsingar hafa verið um langt
skeið, sem vöktu athygli. Hitt vakti
jafnvel enn meiri athygli að Brésnjef vék
að sambúðinni við Kína og taldi
mikilvægt að hún kæmist í nýtt og betra
horf.
Þetta er í þriðja sinn í stórræðu á
þessu ári, að Brésnjef ræðir um
sambúðina við Kína á þennan hátt.
Margir fréttaskýrendur víða um heim
hafa þótzt lesa út úr þessari ræðu
Brésnjefs, að veruleg breyting væri í
aðsigi á utanríkisstefnu Sovétríkjanna.
Valdhafar Sovétríkjanna þættust sjá
fram á, að engir samningar myndu nást
milli Sovétríkjanna og Bandaríkjanna
meðan Reagan eða skoðanabræður
hans fari með völd í Bandaríkjunum og
því yrði að reikna með því, að
vígbúnaðarkapphlaupið færðist í
aukana.
Jafnhliða þessu yrði Sovétríkin að búa
sig undir auknar viðskiptaþvinganir af
■ Deng.
hálfu Bandaríkjanna og þeirra ríkja,
sem fylgja þeim að málum. Þetta neyddi
Sovétríkin til að snúa sér meira í aðrar
áttir og leita sér þar viðskipta og vina. í
þeim efnum myndi það reynast mikil-
vægast að bæta sambúðina við Kína.
Brésnjef hefur ekki látið sér nægja
orðin ein, hvað þetta snertir. Hann
hefur haft forgöngu um, að aftur yrðu
hafnar viðræður milli kínverskra og
rússneskra stjórnvalda, sem hófust
nokkru fyrir innrásina í Afganistan, en
Kínverjarslitu þeim þá í mótmælaskyni.
Kínverska stjórnin hefur fallizt á þetta
og hófust þessar viðræður í Peking fyrri
hlutann í september. Þeim lauk fyrir
nokkru, án þess að nokkur tilkynning
væri gefin út um þær. Því var aðeins lýst
yfir að þeim yrði haldið síðar áfram í
Moskvu.
Fréttaskýrendur áttu ekki heldur von
á meiru að þessu sinni. Vitað var að
Kínverjar myndu ekki fara að neinu
óðslega. Það hafa Rússar líka vafalaust
gert sér ljóst. Það þykir hins vegar segja
sína sögu, að viðræðunum verður haldið
áfram.
Viðræðunum, sem fóru fram í Peking
að þessu sinni, er yfirleitt lýst sem
„viðræðum um viðræður," þ.e. að hér
hafi aðeins verið um undirbúning
viðræðna að ræða. Fulltrúar hvors ríkis
um sig hafi haldið ræður og skýrt
viðhorfin frá sínu sjónarmiði, án þess að
ræða þau svo frekar að þessu sinni. Eftir
þetta viti hvor aðilinn um sig betur um
afstöðu hins og á þeim grundvelli verði
svo ræðzt við áfram.
AF HÁLFU Kínverja var því yfirlýst
áður en viðræðurnar hófust, að Rússar
þyrftu að gera þrennt áður en raunveru-
legar viðræður gætu hafizt. Þeir þyrftu
að draga úr herbúnaði sínum við
kínversku landamærin, aflétta herset-
unni í Afganistan og hætta stuðningi við
Víetnama í Kampútseu.
Vafalaust hafa Rússar ekki fallizt á
neitt af þessu, a.m.k. ekki að sinni. Þrátt
fyrir það hafa orðið veruleg blæbrigði á
umræðu kínverskra fjölmiðla um af-
stöðuna til Sovétríkjanna. Þau eru að
vfsu áfram gagnrýnd fyrir yfirdrottn-
unarstefnu, en tónninn er ekki eins
harður og áður. Jafnframt eru Sovét-
ríkin og Bandaríkin nú oft lögð að jöfnu,
en um skeið voru Sovétríkin talin enn
hættulegri.
Þessara blæbrigða hefur einkum gætt
eftir að flokksþingi kínverskra kommún-
ista lauk, en þar þykir Deng, sem enn
er lalinn hinn sterki maður Kína, hafa
styrkt stöðu sína.
Þessi breytti tónn í kínverskum
fjölmiðlum er m.a. talinn stafa af því,
að leiðtogar Kína telja Reagan leika
tveimur skjöldum í sambandi við
afstöðuna til Taiwan. Hann haldi áfram
verndarhendi yfir útlagastjórninni þar.
Hjá kínversku stjórninni virðist það
ekki aðeins vera metnaðarmál að
innlima Taiwain í Kínaveldi. Hún virðist
einnig óttast, að þaðan verði rekinn
áróður, sem gæti valdið óróa á
meginlandinu.
Þannig virðist stefna Reagans eiga
sinn þátt í því, að heldur dregur nú
saman með stjórnum Kína og Sovétríkj-
anna.
Ef til vill á bætt sambúð þessara ríkja,
styttra í land en margan grunar. Telji
valdhafar þessara ríkja, að það sé
hagsmunamál þeirra að bæta sambúð-
ina, er það auðveldara fyrir þá að ryðja
ágreiningi úr vegi en það myndi reynast
forustumönnum lýðræðisríkja.
Þórarinn Þórarinsson,
ritstjóri, skrifar
Hverfisteinar
Rafdrifnir hverfisteinar 220 volt. Steinninn snýst 120 snúninga á
mínútu í báðar áttir.
Verð kr. 1.897,- m/söluskatti.
Rendum hvert á land sem er.
Ármúli 8, 105 Reykjavík. S: 8-5840
Startarar og Alternatorar
Fyrir:
Datsun Land Rover
Toyota Cortína
Mazda Vauxhall
Galant Mini
Honda Allegro o.fl. enskar bif reiðar
Kveikjuhlutir fyrir japanskar bifreiðar. Útvegum með stuttum
fyrirvara diselvélar I Bedord c 330 cup Ford D 4 cyl og BMC 4
cyl. með og án gírkassa.
Einnig ýmsa aðra varahluti í enskar vinnuvélar.
ÞYRILL SF. SS5ST
Kjarnaborun
Tökum úr steyptum veggjum fyrir hurðir, loftræstingu, glugga,
og ýmisskonar lagnir, 2", 3", 4", 5", 6" og 7" borar.
HLJOÐLÁTT OG RYKLAUST. Fjarlægum múrbrotið, önnumst
ísetningar hurða og glugga ef óskað er. Hvert á land sem er.
Skjót og góð þjónusta.
Kjarnaborun sf.
Símar 38203-33882