Tíminn - 07.11.1982, Qupperneq 9

Tíminn - 07.11.1982, Qupperneq 9
SUNNUDAGUR 7. NÓVEMBER 1982. - 9 menn og málefni MEGINLEIÐIRNAR í VIÐUR- EIGNINNIVIÐ VERÐBÓLGUNA Niðurtalningin ■ Af hálfu andstæðinga Framsóknar- flokksins er lögð rækt við þann áróður, að niðurtalningarstefnan, sem hann boðaði fyrir síðustu þingkosningar, hafi brugðizt og sé því úr sögunni. í ræðu, sem Halldór Ásgrímsson flutti nýlega í efnahagsumræðum á Alþingi, sýndi hann fram á, að niður- talningarstefnan sjálf hefði ekki brugðizt, heldur þær aðferðir, sem hefur verið beitt við framkvæmd hennar. Halldór Ásgrímsson sagði: „Þegar núverandi ríkisstjóm var mynduð, hafði niðurtalningarstefna Framsóknarflokksins fengið mikinn hljómgmnn. Ríkisstjóminvarmynduð eftir langa stjómarkreppu og setti hún sér það mark að hefta verðbólguna í áföngum, án þess þó að lögbinda aðgerðimar í uphafi tímabilsins. Fara átti leið samninga og samkomulags og grípa inn í þegar það teldist nauðsyn- legt. Því verður ekki neitað, að við framsóknarmenn emm óánægðir með að ekki hefur náðst meiri árangur en raun ber vitni. Fyrir því em ýmsar ástæður. Áhrif hagsmunahópa í þjóðfélaginu em öflug. Hinir ýmsu hópar hafa mikinn metnað fyrir hönd umbjóðenda sinna svo oft sjást þeir ekki fyrir. Þessi sami metnaður hefur í reynd stórlega dregið úr möguleikum ríkisstjómar til virkrar hagstjórnar. í nafni þröngra sérhagsmuna er haldið uppi baráttu undir ýmsum kjörorðum, eins og um aukin ríkisútgjöld, lægri skatta, lægri útlánsvexti, hærri innlánsvexti og jafn- vel á tímum samdráttar í þjóðartekj- um, krefjast menn hærri launa og minni verðbólgu, sem í raun þýðir meiri skuldir og aukna verðbólgu. Því skulum við gera okkur ljóst að lífskjör, sem haldið er uppi með taprekstri og erlendri skuldasöfnun, eru skaðleg stundarblekking, sem munu leiða til enn meiri erfiðleika í framtíðinni. Vegna þeirrar stöðu, sem nú hefur verið lýst og þeirrar ákvörðunar ríkis- stjómarinnar að lögbinda ekki ákveðin þrep í niðurtalningunni reyndist nauð- synlegt að ganga til langvinnra samn- inga um sérhvert skref í baráttunni við verðbólguna. Þetta reyndist seinvirk leið og höfum við framsóknarmenn ekki dregið dul á óánægju okkar um framvindu mála, enda þótt segja megi að skilningur hafi farið vaxandi hjá samstarfsmönnum okkar í ríkis- stjóm.“ Tvær leiðir Halldór Ásgrímsson vék síðar í ræðu sinni að leiðum til að ráða niðurlögum verðbólgu. Halldór Ás- grímsson sagði: „Ef ráða á niðurlögum verðbólgu em aðeins tvær meginleiðir: Sú fyrri byggist á niðurtalningu, sem verður að vera í markvissum og undanbragðalausum skrefum í stað tímafreks samningaþófs, sem sýnt hefur að leiðir ekki til viðunandi niðurstöðu. Ég vil taka sérstaklega fram, að í ljósi reynslunnar er það mín skoðun að aðgerðir til niðurtalningar verðbólgu verði að lögbinda, eigi að ná tilætluðum árangri í baráttu gegn henni. Síðari meginleiðin er leiftursókn, sem landsfræg er orðin og miðar að því að ná sem mestum árangri í einu vetfangi án tillits til annarra áhrifa, þar á meðal á atvinnu. Valið á næstunni mun því standa á milli markvissrar hjöðnunar verðbólgu með aðgerðum er hafi undanbragða- lausan stuðning í lögum og leiftursókn- ar í nýjum búningi. Við framsóknarmenn erum sann- færðir um að innan allra flokka eru sterk ábyrg öfl, sem eru sammála meginsjónarmiðum okkar í baráttunni gegn verðbólgu. Sjálfstæðisflokkurinn mun reyna að segja að niðurtalningin hafi verið reynd, og ekki skilað nægilegum árangri. Því verði að reyna nýja, bragðbætta leiftursókn. Ég vara við slíkri stefnu. Verum þess minnug, að við höfum þrátt fyrir allt fetað okkur áfram, og minnumst þess einnig, að í þjóðfélagi okkar, sem var komið á ystu nöf þjóðfélagsátaka árið 1978, gætir nú á ný aukins skilnings og samstarfsvilja. Áframhaldið verður að byggja á þeim grunni, en með meiri festu. Leiftursókn mun kollvarpa þessum grundvelli og leiða til átaka og skiln- ingsleysis. Ékki er að efa að böl atvinnuleysisins mun einnig eitra and- rúmsloftið í þjóðfélaginu.“ Leið Thatchers Til að gera sér gleggri grein fyrir afleiðingum leiftursóknar í efnahags- málum, getur reynslan, sem fengizt hefur af henni í Bretlandi, verið allgóð vísbending. Mikið er nú látið af því, að Thatcher hafi tekizt að koma verðbólgunni niður í 7.3. I þessu sambandi sést mörgum yfir það, að hún var ekki nema 10.3%, þegar Thatcher kom til valda vorið 1979. í fyrstu leiddi leiftursókn hennar til þess, að verðbólgan meira en tvöfald- aðist, en síðan hefur dregið úr henni. Nú er hún því ekki nema 7.3%, eins og áður segir. Ýmislegt þykir hins vegar benda til, að það haldist ekki nema stutta stund. Kaupgjaldi hafi verið haldið svo niðri, að ný hækkunarbylgja sé óhjákvæmi- lega framundan. En hvað hefur hún kostað þessi þriggja prósenta lækkun verðbólgunn- ar í stjórnartíð Thatchers? Hún hefur kostað stórkostlega aukið atvinnuleysi. Atvinnuleysingjum hefur fjölgað talsvert á aðra milljón. Lífskjör láglaunafólks og millistétta hafa versnað. Mikill fjöldi fyrirtækja hefur farið á hausinn. Önnur fyrirtæki hafa dregið saman seglin. Batinn, sem átti að koma til sögunnar, er ekki sýnilegur enn. Fordæmi Thatchers er vissulega ekki til eftirbreytni. Verðhækkanir Verulegar verðhækkanir hafa orðið að undanfömu. Ýmsir hafa reynt að kenna viðskiptaráðuneytinu um. Það hafi ekki veitt nægilegt aðhald. Þessir sleggjudómar stafa ekki minnst af því, að mönnum virðist ókunnugt um, að verðlagsmálin heyra undir fleiri ráðuneyti. Undir viðskiptaráðuneytið heyrir aðallega eftirlit með verðlagi á er- lendum varningi og flutningsgjöldum. Eins og nú háttar er það sérstök verðlagsnefnd, sem hefur þessi mál með höndum. Hún er skipuð að talsverðu leyti fulltrúum launþega. Nú eiga t.d. sæti í henni Ásmundur Stefánsson, Snorri Jónsson og Harald- ur Steinþórsson. Að því bezt er vitað hefur enginn ágreiningur orðið í nefndinni að undanförnu um verðlagn- ingu aðfluttra vara. Erlendar vörur hækka eðlilega í samræmi við gengissig og gengisfelling- ar. Hvort tveggja hefur haft veruleg áhrif til verðhækkunar á þessu ári. Við bætast svo kauphækkanir. Þá geta skattar haft sín áhrif. T.d. hefur hækkun vörugjaldsins haft nokkur áhrif. Verðlagning landbúnaðarvara heyr- ir undir landbúnaðarráðuneytið, en í reynd er verðlagið ákveðið af svokall- aðri sex manna nefnd, þar sem eiga sæti jafn margir fulltrúar neytenda og framleiðenda. Af neytendafulltrúum er einn skipaður af sjómönnum og annar af iðnaðarmönnum. Alþýðu- sambandið átti að tilnefna þriðja full- trúann, en hefur vikið sér undan því að gera það. Hann hefur þvf verið tilnefndur af félagsmálaráðherra. Verðlagning á sjávarafurðum fylgir ákvörðun verðlagsnefndar, sem er skipuð fulltrúum sjómanna, útgerð- armanna og fiskvinnslustöðva. Verðlagning á rafmagni og vatni frá hitaveitum heyrir eingöngu undir iðn- aðarráðuneytið. Þar hafa orðið veru- legar verðhækkanir á þessu ári, t.d. verð á rafmagni hækkað um 125% Þetta mun stafa af því, að raf- magnsverði hefur verið haldið niðri á undanförnum árum. Þetta stuttlega yfirlit sýnir, að verð- lag og eftirlit með því er síður en svo á einni hendi. Þetta heyrir ekki nema að takmörkuðu leyti undir viðskiptaráðu- neytið. Heimskreppan Stundum mætti álykta af skrifum stjórnarandstæðinga, að hvergi sé glímt við efnahagserfiðleika, nema á íslandi. Þetta er mikil blekking, efnahags- kreppa ríkir nú hvarvetna í heimin- um. Hún er mikil og vaxandi í kapitalískum löndum. Hún er enn meiri í kommúnistaríkjum og mest í ríkjum þriðja heimins. Sé gerður hlutlaus samanburður á fslandi og öðrum löndum í þessum efnum, verður hann hagstæður íslend- ingum. ísland er eitt örfárra ríkja í heiminum, þar sem ekki er atvinnu- leysi. ísland er í hópi þeirra landa, þar sem kreppuástandið hefur valdið minnstum samdrætti kaupmáttar. ís- land er einnig meðal þeirra landa, þar sem framkvæmdir hafa verið hvað mestar á síðustu árum. Þótt hinir efnahagslegu erfiðleikar séu víðast meiri en hér, dregur það ekki úr því, að hér er glímt við mikinn og vaxandi efnahagsvanda, þar sem samdráttur í fiskveiðum hefur komið til viðbótar verðlækkun á ýmsum íslenzkum útflutningsvörum og þrengri mörkuðum fyrir aðrar þeirra. Þess vegna benda allar líkur til þess, að þjóðartekjur muni dragast verulega saman á næstu misserum. Við þeim vanda verður að bregðast. Þar veltur ekki sízt á því, að þjóðin geri sér grein fyrir erfiðleikunum og bregðist við samkvæmt því. Samstaða Sá stuðningur, sem bráðabirgðalög ríkisstjórnarinnar hefur hlotið, bendir hiklaust til þess, að þjóðin geri sér grein fyrir efnahagsvandanum. Lögin eru sprottin af illri nauðsyn og margir telja að í þeim felist veruleg kjara- skerðing. Menn gera sér hins vegar ljóst, að enn meiri kjaraskerðing myndi hljótast af vaxandi verðbólgu. Bráðabirgðalögin eru verulegt spor í þá átt að draga úr hraða verðbólgunnar og þeirri erlendu skuldasöfnun, sem fylgir henni. Það væri undir þessum kringum- stæðum illt verk og óþarft, ef stjórnarandstaðan stæði við þá hótun sína að fella bráðabirgðalögin. Stjórnarsinnar myndu vafalítið hagnast pólitískt á því, ef stjomarand- staðan gerði sig seka um siíkt óhæfu- verk. En það má ekki láta stjómast af slíkum sjónarmiðum. Þess vegna mæltist það vel fyrir hjá þjóðinni, þegar formaður Framsókn- arflokksins lagði til, að stjóm og stjómarandstaða ræddu málin og leituðu samkomulags, þótt ekki væri um að ræða nema fyrstu aðgerðir til að draga úr vandanum. Þessar viðræður em nú hafnar. Þótt ekki blási byrlega í fyrstu vegna undirtekta stjórnarandstöðunnar, verður að vona að það breytist. Það væri þjóðargæfa, efsamkomulagtækist um nauðsynlegustu aðgerðir og kosn- ingadag í samræmi við það. Þórarinn Þórarinsson, ritstjóri, skrifar

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.