Tíminn - 07.11.1982, Side 10

Tíminn - 07.11.1982, Side 10
10 SUNNUDAGUR 7. NÓVEMBER 1982. ■ „Þrettánda dag hins tólfta mánaðar - það er mánuðurinn adar - þann dag er óvinir gyðinga höfðu vonað að fá yfirbugað þá, ... söfnuðust gyðingar saman í borgum sínum um öll skattlönd Ahasverusar konungs til þess að leggja hendur á þá, er þeim leituðu tjóns. Og enginn fékk staðist fyrir þeim, því að ótti við þá var kominn yfir allar þjóðir. Og allir höfðingjar skattlandanna og jarlamir og landstjóramir og embættis- menn konungs vejttu gyðingum lið, því að ótti við Mordekai var yfir þá kominn. I»ví að Mordekai var mikill orðinn við hirð konungs, og orðstír hans fór um öll skattlöndin, því að maðurinn Mordekai varð æ voldugri og voldugri. Og gyðingar drápu óvini sína í hrönnum; vógu þá með sverði, myrtu þá og tortímdu þeim, og fóm þeir með hatursmenn sína eftir geðþekkni sinni. Og í borginni Súsan drápu gyðingar og tortímdu 500 manns. ... En aðrir gyðingar, þeir er bjuggu í skattlöndum konungs, söfnuðust saman og vörðu líf sitt með því að hefna sín á óvinum sínum og myrða 75.000 meðal fjandmanna sinna, - en eigi lögðu þeir hendur á fjármuni þeirra.“ Á þennan hátt er sagt frá hetjudáðum gyðinga í Esterarbók og hefur mörgum að vonum þótt slíkt rit eiga lítið erindi í helgiritasafn Biblíunnar. Engu að síður ■ Titus, rómverski hershöfðinginn sem lagði Jerúsalem í rúst árið 70. ■ Upphaf Esterarbókar þar sem segir frá „hetjudáðum" gyðinga. Gyðingastríð 20. aldar er bókin þar, og hefur margur þjóðremb- ingsfullur gyðingur fengið særðum þjóð- armetnaði og stolti svalað við lestur þessarar bókar. Nútíma biblíurannsókn- ir líta yfirleitt á bókina sem sögulega skáldsögu, sem samin hafi verið ein- hverntíma á 4. öld f. Kr. til að skýra uppruna púrímhátíðar gyðinga. Höf- undur bókarinnar hefur eflaust verið einn af þeim mikla fjölda gyðinga í dreifingunni - eða diaspóra - sem náin kynni hafði af fran þeirra tíma og persneskum háttum, þótt öll sé sagan með ævintýra- og kynjablæ. En sagan speglar þó fyrst og fremst hlutskipti gyðingsins um aldir - hins ofsótta manns þjóðar brots sem býr undir refsivendi duttlungafullra harðstjóra og verður skotspónn spilltra stjórnvalda, sem at- hygli lýðsins og hatri er beint að, þegar viðkomandi landsfeður hafa sjálfir leitt ógæfu og hrun yfir þjóð sína. Hefnd eða refsing Hermdarverk gyðinga í Esterarbók eru vísast draumar ofsótts manns og tálsýnir einar, sem enga stoð eiga sér í sögulegum veruleik þess löngu liðna tíma - valdaskciðs Ahasverusar, það er Xerxesar persakonungs. En það sem mér finnst eftirtektarverðara við þessa frásögn er það, að hún gæti með örlitlum orðalagsbreytingum verið lýsing á atferli þeirra gyðinga á okkar dögum, sem komið hafa á fót fsraelsríki í Palestínu. Árum saman höfum við ekki þurft annað en líta í dagblöð eða fylgjast með fréttum útvarps og sjónvarps til að heyra dögum oftar greint frá hefndaraðgerðum ísraelsmanna gegn Palestínuskæruliðum eða arabískum nágrönnum, þótt aðgerð- ir þessar séu oft nefndar því furðulega nafni „refsiaðgerðir“. Þó fréttum við sennilega minnst af því sem gerist. ísraelsmenn virðast hafa getað ráðið furðumiklu um það, hvaða fréttir birtast af ástandinu í fsrael hér á Vesturlöndum. Svo hefur þetta a.m.k. verið allt fram til innrásarinnar í Líbanon nú í sumar, en þá virtist mælirinn fylltur. Fréttamenn sáu skyndilega refsivönd ísraels í réttu Ijósi. Enn í dag, heilum mannsaldri eftir að meiri hlutinn af innfæddum íbúum landsins hefur flúið heimkynni sín í Palestínu, eru gyðingar Ísraelsríkis að „refsa" Palestínumönnum, bæði heima- fyrir og þar sem þeir dveljast í útlegð í nágrannalöndum. Þúsundir heimila hafa verið lögð í rúst, m.a. hafa heil sveitaþorp verið jöfnuð við jörðu „af öryggisástæðum" eins og það er kallað. Sagt er að venju, að skæruliðar hafi leynst þar, og ekki er þá þörf að bíða rannsóknar málsins og enn síður dóms. Fangelsanir hafa verið daglegt brauð, aðstandendur fá engar fregnir af þeim sem handteknir eru og mánuðum saman er mönnum haldið í fangelsi án þess mál þeirra komi fyrir dóinstóla, en þegar það er gert er það venjulega ísraelskur herdómstóll sem um málin fjallar. Dómar eru miskunnarlitlir eða misk- unnarlausir, sem ráða má af því, að 16 ára unglingar hafa verið dæmdir í allt að 25 ára fangavist fyrir yfirsjónir sínar. Nú er það einnig opinbert leyndarmál að pyndingum er beitt gegn föngum í fangelsum ísraels. Samviskan vaknar Út yfir allt sem áður var skeð tóku þó síðustu atburðir í Líbanon, í Týrus, Beirút og víðar, þar sem ísraelsher hefur farið um og jafnað allt við jörðu, stráfellt varnarlaust fólk og horft á morðsveitir vina sinna, hinna líbönsku falangista, fullkomna „refsiaðgerðirnar", þegar enginn var lengur til varnar í hálfhrund- um flóttamannabúðum Palestínumanna. Sannarlega minnir allt þetta óhugnan- lega á lýsingu Esterarbókar, þar sem segir að gyðingar hafi farið með haturs- menn sína eftir geðþekkni sinni. En þessir síðustu atburðir í Líbanon hafa þó rumskað við samvisku heimsins, sem sofið hefur fast til þessa, þegar málstað Palestínumanna hefur borið á góma. Eða hefur það ekki verið svo, að sum mannvíg virðast öðrum voðalegri í okkar augum, hættir okkur ekki til að vinsa úr þá atburði, sem okkur finnast eiga samúð okkar og siðferðislega vand- lætingu skilda, en gefum öðrum atburð- um hliðstæðum engan gaum? Leynist ekki með okkur dulin fyrirlitning á fórnarlömbum ísraelskra hermanna, sem sáldra eldi yfir þeirra fátæklegu hús? Erum við ekki á sama hátt að samgleðjast hinum langhrjáðu gyðing- um, þegar þeir loks hafa rétt úr kútnum og eru farnir að haga sér hermannlega ■á evrópska vísu? Skyldi það ekki hafa verið dulin sektarkennd gagnvart gyð- ingum, sem fram kom í hrifningarbríma vestrænna fjölmiðla, þegar lýst var sigrum ísraelsmanna í 6 daga stríðinu svonefnda 1967? Þeir réðu Guði bana Yfirleitt má telja að mikill hluti skrifa hér á landi og fréttaflutningur um málefni landanna og þjóðanna fyrir botni Miðjarðarhafs hafi einkennst af tilfinningamóði og hleypidómum fremur en þekkingu og raunsæi. Eftir síðari heimsstyrjöld var sem kristnir Vesturlandamenn vöknuðu skyndilega til meðvitundar um sekt sína gagnvart gyðingum, þessum eilífu syndahöfrum, sem hafa á liðnum öldum verið bornir flestum þeim sökum sem upphugsaðar verða. Þeir höfðu ráðið Guði bana á krossi, sú var synd þeirra stærst, og þeir voru ætíð reiðubúnir að ganga í lið með erkióvininum gegn hinum kristnu, eitra brunna, ræna börnum til fórna og kvelja frelsarann með því að stinga oblátur klerkanna prjónum, svo nefnd séu nokkur dæmi frá miðöldum um ávirðingar sem bornar voru á gyðinga og urðu oft upphaf að ofsóknum gegn þeim. Á 20. öld voru ■ Palestínubörn. Fyrsta grein gyðingar sagðir undirbúa það heimssam- særi, er tryggja skyldi þeim endanleg yfirráð yfir heimskringlunni. Til að stemma stigu við þessari plágu í mannheimi gripu hinir þýsku nasistar til þeirra sem seint gleymast. Þegar þessi dapurlega saga er höfð í huga, verður það e.t.v. skiljanlegt að menn reyni að réttlæta þær baráttuaðferðir sem gyðing- ar sjálfir hafa beitt andstæðinga sína. Ef þetta er raunverulega svo, að dómar okkar og mat á atburðum líðandi stundar á Austurlöndum nær byggist á tilfinningasemi fremur en skynsamlegri yfirvegun og þekkingu - og jafnvel á dulinni sektarvitund gagnvart gyðingum annars vegar og aldagömlum fordómum gagnvart aröbum og íslam hins vegar, þá er fyllsta ástæða til að reyna að leiðrétta þann misskilning. Sögulegar forsendur Hér á eftir verður reynt að gera nokkra grein fyrir sögulegum forsendum þeirra átaka sem orðið hafa fyrir botni Miðjarðarhafs síðan Ísraelsríki var stofnað og raunar allt frá þeim tíma að Balfouryfirlýsingin var birt 2. nóv. 1917. Ég mun reyna að svara nokkrum spurningum, sem miklu máli skiptir að eiga rétt svör við, eigi að vera hægt að gera sér skynsamlega grein fyrir atburð- um líðandi stundar á þessum slóðum, atburðum sem hafa verið rangtúlkaðir oft og fiðum í æsifréttum fjölmiðla á okkar dögum. Hverjir eru gyðingar? Hvað er zionismi? Hvað veldur gyð- ingahatri? Hverjir eru Palestínubúar? Þetta eru spurningar sem mönnum finnst ef til vill óþarfi að gera að umræðuefni, svörin liggi öll í augum uppi. En því miður eru svörin við ýmsum þessara spurninga ekki jafnaug- ljós og skyldi, né liggja þau í augum uppi. Við skulum fyrst athuga síðustu spurninguna: Hverjir eru Palestínu- menn? Eru þeir ekki til sem þjóð. Að dómi Goldu heitinnar Meir eru þeir ekki til sem þjóð og hafa aldrei verið. Að dómi þeirra sjálfra eru þeir ein elsta þjóð heims, með sérstæða lifnaðarhætti og menningararfleifð, sem nær langt aftur fyrir upphaf tímatals okkar. Það er margra álit, að þeir arabar sem á okkar dögum byggja Palestínu séu afkomendur þeirra araba er lögðu landið undir sig fyrir 1300 árum. Þetta er þó ekki svo. Palestínuarabar, sem ýmist eru kristnir eða fylgjendur islams (oft ranglega nefnd Múhameðstrú), eru langflestir niðjar þess fólks sem landið hefur byggt frá því í árdaga: Filista, Kanaanita, Hittíta, Jebúsíta o.fl. Þetta fólk var löngu sest að í landinu þegar hinir fornu gyðingar, þ.e. Hebrear, réðust inn í landið um 15 öldum f. Kr. Eins og kunnugt er tók það Hebrea margar aldir að ná lokayfirráðum yfir landinu, og þótt svo ætti að heita að þeir næðu yfirhöndinni að lokum, þá voru jafnan stór landsvæði á valdi þeirrar þjóðar eða þjóðabrota, sem fyrir höfðu verið í landinu. Eftir að rómverski hershöfðinginn Titus, er síðar varð keisari í Róm, lagði Jerúsalem í rúst árið 70 og felldi eða hrakti í útlegð ungann úr gyðingaþjóðinni, þá varð þetta fólk eftir í landinu. Þegar hinir arabisku herir spámannsins frá Mekka leggja landið undir sig á 7. öld, þá blanda þeir blóði við íbúa landsins, og hið sama gerðu hinir vígreifu krossfarar, sem komnir voru á 11. öld vestan úr Evrópu til að frelsa gröf Krists úr höndum hinna saracensku villutrúarmanna. Allar þessar aldir og raunar allt fram til ársins 1948 heldur þjóðin sínum sérstöku lifnaðarháttum og siðvenjum. Það er því ekki að ófyrirsynju að Palestínuarabar mótmæla því harðlega, þegar fræða á heiminn um það að þeir séu ekki þjóð og hafi aidrei verið. Það eru ekki margar þjóðir sem rakið geta sögu bólfestu í landi sínu jafnlangt aftur og Palestínuarabar, og gefi jafnlöng bólfesta ekki hverri þjóð rétt á landi sínu, verður vandséð á hverju sá réttur skuli byggður. Að því hafa einnig verið færð gild rök, að við herleiðingu Titusar á gyðingum árið 70 hafi hluti gyðinga orðið eftir í Palestínu, fátækir bændur og handverksmenn, er hinum rómverska herstjóra þótti ekki sá bógur í að tæki að stugga þeim burt út landinu, og séu Palestínuarabar því ef til vill sannari gyðingar að uppruna til en þeir innflytj- endur sem flykkst hafa þangað eftir stofnun Ísraelsríkis. ísraelsmenn nútímans og gyðingar fortíðar En nú kann einhver að spyrja: Hvað varð um þá gyðinga sem hröktust í útlegð eftir ósigurinn fyrir hinum róm- verska her Titusar árið 70 og eyðingu Jerúsalemsborgar. Eru þeir gyðingar sem flust hafa til ísrael síðan 1948 afkomendur þessa fólks, raunverulegir afkomendur hinna fornu Hebrea? Því fer víðs fjarri, og byggist þessi þráláti misskilningur á því, að menn líta á gyðinga sem sérstaka þjóð í okkar skilningi þess orðs eða sem sérstakan kynþátt, eða hvort tveggja. Mannfræðingar halda því hins vegar fram, að gyðingar séu hvorki sérstakur kynþáttur né þjóð í venjulegum skilningi þess orðs, allar rannsóknir bæði mann- fræðilegar og sagnfræðilegar hafi löngu afsannað það. Rannsóknir á höfuðlagi gyðinga sýna að það er harla mismunandi og jafn- margbreytilegt og hjá öllum þjóðum Evrópu til samans. Einnig hafa ýtarlegar rannsóknir á blóðflokkum gyðinga kippt öllum stoðum undan þeirri kenningu, að til sé einhver gyðinglegur kynþáttur. Mannfræðingar hafa skipt gyðingum í eftirtalda hópa eftir uppruna þeirra: í fyrsta lagi gyðinga sem telja má beina afkomendur þeirra er fluttust - ýmist frjálsir eða ófrjálsir- burt frá Palestínu, þeir eru mjög fámennir. í öðru lagi eru svo þeir sem eru afkomendur Asíu-gyð- inga og annarra þjóðabrota eða þjóða (blandaður stofn) og í þriðja lagi eru svo þeir gyðingar sem mannfræðilega séð eru ekki á nokkum hátt skyldir eða í blóðtengslum við þá gyðinga sem eiga uppmna sinn að rekja til Palestínu, heldur hafa orðið gyðingar við það eitt að taka gyðingatrú, og em þeir langflest- ir. Það er því alrangt að tala um gyðingaþjóðina á þann hátt að gefið sé í skyn að þar sé um að ræða hóp manna, sem ekki eigi sér aðeins sameiginlega sögu, heldur sé líka tengdur blóðbönd- um og menningararfleifð. Slíkt getur ef til vill hentað zíonistiskum stjómmála- mönnum í áróðri þeirra, en á bak við allt slíkt tal em þó hinir óhugnanlegu undirtónar kynþáttaþvaðursins - þeirrar kenningar sem orðið hefur gyðingum sjálfum þyngri í skauti en flest annað. Séra Rögnvaldur Finnbogason skrifar

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.