Tíminn - 07.11.1982, Side 18
SUNNUDAGUR 7. NÓVEMBER 1982.
BENONI-
BYRJUN
■ Benoni-byrjun gefur hörðum
sóknarskákmönnum ýmis tækifæri.
En hvað 'skeður ef hvítur er jafn
harður í sókninni og svartur? í
Moskvu lék Velimirovic þessa byrjun
oft, en gegn Beljavsky og Tal gekk
dæmið ekki upp. Hann gafst upp
eftir 25. og 23. leik. Sovésku stór-
meistararnir léku ekki sama afbrigð-
ið á hvítt. Kannske finnast fleiri en
eitt gott afbrigði, þegar maður þekkir
allar gildrurnar í þessari lúmsku
byrjun.
Beljavsky : Velimirovic. 1. d4 Rf6 2.
Rf3 c5 4. d5 exd5 5. cxd5 d6 6. Rc3
g6 7. e4 Bg7 8. Be2 (Gamla
aðalleiðin. Hins vegar gat Beljavsky
ekki teflt hina hvössu leið, f4. í
þessari skák brá svartur sér ekki út í
Benoni fyrr en hvítur hafði leikið
Rf3 og lokað f-peðið af.) 8. . 0-0 9.
0-0 He8 10. Rd2 a6 11. a4 Rb-d7 12.
f4 (En nú kemur það.) 12. . c4 13.
Khl Rc5 14. e5 (Þetta er allt saman
vel þekkt.) 14. . dxe5 15. fxe5 Hxe5
16. Rxc4 He8 17. Bg5 h6 18. Bh4
Rc-e4 19. d6 g5 (Eða 19. . Rxc3 20.
bxc3 g5 21. Bf2,meðéætluninni 21.
. Re4 22. Bb6 Dd7 23. Bd4, eða 22.
. Rxc3 23. Db3 Dd7 24. Bh5. En
svarta staðan fellur mér þó alls ekki
í geð.) 20. Bel Be6? (Nauðsynlegt
var b6 eða Hb8, en staðan er erfið.
Svartur hefur tilbúna leikfléttu, en
hvítur hefur reiknað lengra.) 21.
Rxe4 Rxe4 22. Ba5 Bxc4 (Áætlunin
22. . Dd7 23. Rb6 leiðir til tapaðs
endatafls.) 23. Bxd8 Bxe2 (Hvítur
hefur ekki efni á að gefa þrjá menn
fyrir drottninguna og 24. Dxe2 Rg3+
25. hxg3 Hxe2 26. Be7 gefur í mesta
lagi jafntefli. 26. .Bf8..) 24. d7!
(Pessi millileikuF eyðileggur allt.) 24.
. He6 25. Dxe2 Gefið. Ástæðan er
25. . Rg3+ 26. hxg3 Hxe2 27. Bc7.
■ " . « * • * • h
STILLTI
SIGUM
HEFND-
AR-
SKAK
■ Kannski minnast lesendur skákar
þeirra Koutly : Hulak, frá milli-
svæðamótinu í Mexíco, þar sem
frípeð hvíts komst upp á 7. reitaröð,
en svartur vann. Sama byrjanaaf-
brigði var teflt einum mánuði síðar
á millisvæðamótinu í Moskvu, en hér
urðu úrslit önnur. Tal: Velimirovic.
Benoni.
I. c4 e6 2. d4 Rf6 3. Rc3 c5 4. d5
exd5 5. cxd5 d6 6. e4 g6 7. f4 Bg7 8.
Bb5+ rf-d7 9. a4 Dh4+ 10. g3 De7
II. Rf3 0-0 (Augsýnilega er mjög
áhættusamt að tefla upp á peðsvinn-
ing með Bxc3+.) 12.0-0 Ra613. Hel
(Mjög eðlilegur leikur, en fyrrnefnd
skák tefldist 13. e5 dxe5 14. d6 Dd8
15. Rd5 e4. Vafalaust þekktu Tal og
Velimirovic báðir til þessarar
skákar.) 13. . Rb4 14. e5 a6 (Þó ég
telji svörtu stöðuna tapaða, treysti ég
mér ekki til að finna verulegar
endurbætur.) 15. Bfl dxe5 16. d6
De8 17. fxe5 b6? (Hann varð að
reyna Rxe5 18. Rxe5 Bxe5 19. Bh6'
með óljósri stöðu. Sama gilti um 19.
d7 Bxd7 20. Hxe5.)
18. e6! fxe6 19. Bc4 Bb7? (Betra var
Kh8 en svarta staðan er hrunin.) 20.
Hxe6 Kh8 21. Hxe8Haxe8 22. Bf4
g5 (Eða 22. . Bxf3 Dxf3 g5 24. Dg4.)
23. Rxg5 Gefið. Eftir 23. . Bd4+ er
sýndarsókn svarts fyrir bí. Hann
stillti sig þó um hefndarskákina.
Bent Larsen,
stórmeistari skrifar
um skák
ÓLYMPÍU-
SKÁK
Rifjnð upp saga fyrstu
ólympíuskákmófanna
í tilefni af
því 25. I Luzern
■ Hér birtist síðari hluti
upprifjunar IUuga Jökuls-
sonar um fyrstu Olym-
píuskákmótin og hefst frá-
sögnin með sjötta Ólym-
píumótinu, sem á ýmsan
hátt var sögulegt.
Sjötta ólympíumótið var haldið í
Varsjá og voru tuttugu þjóðir meðal
þátttakenda, fleiri en nokkru sinni fyrr.
Pólverjar höfðu reynt mikið að fá
Sovétríkin til þáttktöku en árangursl-
aust; á hinn bóginn komu margir ungir
og efnilegir skákmeistarar fram á
mótinu. Nefna má Eistlendinginn Kéres
og Finnan Böök á fyrsta borði, Jacob
Bolbochan frá Argentínu, Lilienthal frá
Ungverjalandi og Pólverjann Frydman
á öðru borði, Najdorf frá Póllandi á
þriðja borði, Júgóslavann Trifunovié,
Svíann Danielsson og Ungverjann
Szabó á fjórða borði. Svíar (Stahlberg,
Stoltz, Lundin og Danielsson) virtust
um tíma öruggir um sigur en undir lok
mótsins skriðu Bandaríkjamenn fram úr
þeim. Fine var nú á efsta borði hjá
Könum en gekk fremur illa, síðan kom
Marshall, þá Kupchik, Dake og
Horowitz var varamaður. Lokastaðan
var sú að Bandaríkin fengu 54 vinninga,
Svíar 52.5, Pólverjar 52 og Ungverjar
voru fjórðu með 51. Athygli vakti að
Salo Flohr skaut Alekhine ref fyrir rass
á efsta borði og náði bestum árangri þar,
en á öðru borði var Lilienthal efstur,
Eliskases frá Austurríki á því þriðja,
Dake (upprunalega Pólverji) stóð sig
best á fjórða borði og náði raunar hæsta
vinningshlutfalli yfir allt mótið, en
hæstur varamanna varð Horowitz. í
þætti um Kéres í ágúst var birt
snilldarleg skák sem hann tefldi gegn
Englendingnum Winter, en það var
Eliskases sem fékk fegurðarverðlaunin
fyrir skák sína gegn Frakkanum
Muffang. Eliskases hefur hvítt.
1. d4-d5 2. c4-dxc43. Rf3-Rf64. e3-e6
5. Bxc4-a6 6.0-0-c5 7. De2-Rc6 8. a3!-b5
9. Ba2-Bb7 10. dxc5-Bxc5 11. b4-Be7
12. Bb2-0-0 13. Rbd2-Db6 14.
Rb3-Hfd8 15. Hacl-Hac8
16. Rc5-Rd5 17. Hfdl-Ba8 18.
Bxd5-exd5 19. Rh4!-Rb8 20. Dg4-Bf6
21. Bxf6-Dxf6 22. Re4!-De6 23. Rf5-g6
24. Hxc8-Hxc8 25. Re7+ og hér gafst
Muffang upp.
1937 var sjöunda ólympíumótið
haldið í Stokkhólmi og 19 þjóðir mættu
til leiks. Athygli vakti að Frakkar voru
ekki meðal þátttakenda í fyrsta sinn og
þá ekki Alexlander Alekhine, sem nú
var fyrrverandi heimsmeistari, en
Hollendingar komu hins vegar með
Euwe á efsta borði. Þar virtist ljóst frá
upphafi hverjir myndu sigra því í
bandakrísku sveitinni voru fjórir
stórmeistarar: Reshevsky á fyrsta borði,
síðan Fine, þá Kashdan og Marshall á
því fjórða en Horowitz var varamaður.
Það fór líka svo að Bandaríkjamenn
unnu mjög öruggan sigur, fengu 54.5
vinning en Ungverjar urðu númer tvö
með 48.5 vinninga. Lilienthal var á
fyrsta borði fyrir þá, síðan Szabó og
þriðji A. Steiner. Pólverjar og
Argentínumenn urðu í 3.-4. sæti með 47
vinninga (Guimard stóð sig best í
síðarnefnda liðinu), síðan komu
Tékkar, þá Hollendingar og síðan
Litháar (Mikenas á efsta borði) og
Eistlendingar (Kéres). íslendingar urðu
númer 16. Flohr varð efstur á fyrsta
borði en síðan kom Kéres og Euwe
heimsmeistari varð þriðji. Fine varð
efstur á öðru borði, síðan Szabó og þá
Trifunovié, en Kashdan stóð sig best á
þriðja borði og Danielsson, Svíþjóð, á
fjórða. Lítum yfir skák þá sem Böök,
Finnlandi, tefldi gegn Pólakkanum
Najdorf, sem hefur svart.
1. e4-c5 2. Rf3-d6 3. d4-cxd4 4.
Rxd4-Rf6 5. Rc3-e6 6. Bg5-a6 7. Dd2-h6
8. Bxf6-Dxfd6 9.0-0-0-Rc610. Rb3-Dd8
11. f4-Dc7 12. h4-Bd7 13. Hh3-0-0-014.
Df2-Kb8 15. Hhd3-Be716. Kbl-Bc8 17.
g3-b5 18. a4-b4 19. Ra2-Bb7 20. c3-Ra5
21. Rxa5-Dxa5
22. Rxb4-d5 23. exd5-Bxb4 24.
cxb4-Dxa4 25. Bg2-exd5 26. Db6-Ka8
27. Hld2-De8 28. Hxd5-Hxd5 29.
Bxd5-Del+ 30. Ka2-Bxd5+ 31. Hxd5
og nú gafst Najdorf upp.
Áttunda ólympíumótið var haldið í
Buenos Aires 1939 í Argentínu og 27
þjóðir tóku þátt, svo margar að þeim var
skipt upp í fjóra milliriðla með sjö
þjóðum hverri en í þeim fjórða voru
aðeins sex þjóðir. Fjórar efstu í hverjum
riðli fóru í undanúrslitin umHamilton-
Russell bikarinn en hinar kepptu um
svokallaðan forsetabikar sem forseti
Argentínu gaf í því skyni. Mótið varð
sögulegt á ýmsan máta. Strax í byrjun
vakti mikla athygli að Bandkaríkjamenn
tóku ekki þátt vegna þess að
skákmönnunum voru ekki tryggðar
Iágmarksgreiðslur fyrir þær vikur sem
mótið tók, og Ungverjar og Júgóslavar
voru heldur ekki með af svipuðum
ástæðum. Það kom á óvart að
Hitlers-Þýskaland skyldi senda sveit til
keppni því skáksambandið þar hafði átt
í miklum deilum við FIDE en nú voru í
þýsku sveitinni ekki aðeins Þjóðverjar
sjálfir heldur og Austurríkismenn, því
Hitler hafði sem kunnugt er lagt
Austurríki undir sig. Eliskases, áður
Austurríkismaður, tefldi nú á efsta
borði fyrir Þýskaland. Fulltrúar Tékka
töldust nú fulltrúar „Tékkó-Móravíu
verndarsvæðisins", tilbúnings Hitlers,
en tékknesku skákmennirnir gerðu sitt
besta fyrir land sitt og náðu sjötta sæti.
Það vakti líka athygli að Kúbumenn
tóku nú þátt í fyrsta sinn en á efsta borði
þeirra var enginn annar en Jose Raúl
Capablanca, fyrrum heimsmeistari.
Alekhine sem nú var aftur orðinn
heimsmeistari tók einnig þátt í mótinu
en þeir höfðu einmitt háð heimsmeistar-
aeinvígi sitt þarna í Buenos Aires. Þeir
tefldu þó ekki hvor gegn öðrum í þetta
sinn.
1. september, þegar úrslitakeppnin
var að hefjast bárust þær fréttir að Hitler
hefði ráðist á Pólland og nokkrum
dögum seinna lýstu England og Frakk-
land yfir stríði á hendur Þjóðverjum.
Ensku sveitinni var skipað að snúa þegar
í stað heim, en Frakkar, Pólverjar og
Palestínumenn (gyðingar) lýstu því yfir
að þeir myndu ekki tefla gegn þýska
liðinu, né heldur hinu „tékkneska“.
Ákveðið var að skrá jafntefli, 2-2 í
þessum tilfellum. Þetta átti eftir að hafa
mikil áhrif á lokaniðurstöðuna vegna
þess að aðalkeppinautarnir um efsta
sætið voru engir aðrir en Þjóðverjar og
Pólverjar. Þeir áttu að mætast í síðustu
umferð og voru Þjóðverjar hálfum
vinningi ofar. Með því að vinna
Þjóðverja hefðu Pólverjar því unnið
Hamilton-Russel bikarinn en keppnin
fór aldrei fram og þýska sveitin taldist
hafa sigrað. Hún fékk 36 vinninga,
Pólverjar 35.5, Eistlendingar 33.5, Svíar
33, Argentínumenn 32.6, „Tékkar“ 32,
Lettar 31.5, Hollendingar 30.5, Pale-
stínumenn 26, Frakkar 24.5, Kúbumenn
22.5, Chile-búar 22 og Litháar líka,
Brasilíumenn 21 og Danir voru neðstir
í úrslitákeppninni með 17.5. Það hafði
aðeins munað hálfum vinningi á Dönum
og íslendingum í milliriðli en íslend-
ingar stóðu sig mjög vel í keppninni um
forsetabikarinn og unnu hann eftir
harða keppni við Kanadabúa.
Hamilton-Russell bikarinn fór aldrei
til Þýskalands vegna þess að öll þýska
sveitin baðst hælis í Argentínu, bæði
Austurríkismennirnir Eliskases og
Becker og Þjóðverjarnir Engels, Micha-
el og Reinhardt. Sama gerði pólska
sveitin með Najdorf í broddi fylkingar,
og margir skákmeistarar þar fyrir utan.
Á fyrsta borði varð Alekhine efstur,
síðan Kéres og Capablanca þriðji,
Petrov fjórði og Stahlberg fimmti.
Yanofsky frá Kanada varð efstur á öðru
borði (14 ára gamalll), síðan kom
Foerder-Porath frá Palestínu og síðan
Najdorf, Þjóðverjinn Engels varð aftur
á þriðja borði, Búlgarinn Kandartiev á
því fjórða og Pleci frá Argentínu varð
hæstur varamanna.
Þó farið væri að halla undan fæti hjá
Capablanca tefldi hann oft og tíðum
frábærlega vel, vann sjö sinnum, gerði
níu jafntefli en tapaði engri skák. Lítum
að lokum á sigurskák hans gegn
Czerniak frá Palestínu, það er heims-
meistarinn fyrrverandi sem hefur hvítt
og sýnir snilldartakta.
1. e4 - c6 2. d4 -d5 3. exd5 - cxd5 4.
c4 - Rc6 5. Rf3 - Bg4 6. cxd5 - Dxd5 7.
Be2 - e6 8. 0-0 - Rf6 9. Rc3 - Da5 10.
h3 - Bh5 11. a3 - Hd8 12. g4 • Bg6 13.
b4 - Bxb4 14. axb4 - Dxal
abcdefg.h
15. Db3 - Hxd4 16. Ba3! - Bc2 17. Dxc2
- Dxa3 18. Rb5 -Dxb4 19. Rfxd4 - Rxd4
20. Rxd4 - 0-0 21. Hdl - Rd5 22. Bf3 -
Rf4 23. Kh2 - e5 24. Rf5 - g6 25. Re3 -
Re6 26. Rd5 - Da3 27. Hd3 - Dal 28.
Dd2 - Kg7 29. De2 - f6 30. De3 - a6 31.
Hdl - Db2 32. Rc3 - Rd4 33. Hbl - Dc2
34. Be4 og Czerniak lagði niður vopnin.
Eftir stríð rann upp öld Sovétmanna.