Tíminn - 07.11.1982, Síða 30
* ý's
30
> v j.M.f m ' <■ yj.
i »*
4 * . . ; Vy
mtmtm
SUNNUDAGUR 7. NÓVEMBER 1982.
■ Lögmaðurinn dr. Hans Dietrich
Gottwald frá Diisseldorf getur varla
talist á meðal þeirra manna, sem eru
meðbræðrum sínum hjálplegir í vand-
ræðum þeirra. Gottwald, sem nú er 43ja
ára, er nefnilega maður sem í meira lagi
kann að skara eldi að köku sinni. Nú
dynja á honum ákærur frá yfirvöldum
sem telja hann morðingja fjölda fyrir-
tækja, sem hann hefur komið á kaldan
klaka með svikagjaldþrotum. Séu þær
ákærur réttar sem fram eru bornar gegn
honum þá hefur hann auðgast á
misgjörðum sínum um að minnsta
kosti átta milljónir marka og um það bil
þúsund fjölskyldur hafa misst framfæri
sitt af hans völdum vegna þess atvinnu-
leysis sem skapast hefur. Stærsta bitann
gleypti þessi virðulegi og hægláti lög-
fræðingur í þorpinu Sinn í Westerwald.
Ógæfan dundi yfir þorpið á fyrra ári
er árleg hátíðarhöld þorpsbúa stóðu
yfir. Hápunktur hátíðarhaldanna var sá
að forstöðumenn stærstu iðnfyrirtækj-
anna á staðnum hugðust bjóða elstu
konunni sem til hátíðarhaldanna kæmi í
einstakt ferðalag. Átti hún að fá ferð á
garðyrkjusýninguna í Kassel og fenginn
lúxusbíll og einkabílstjóri til umráða.
Svikamakk
En. ekki gat af þessu orðið. Fjórum
dögum eftir að gleðskapnum lauk fóru
framkvæmdastjórar hins 130 ára gamla
fyrirtækis, „Haas und Sohn“ á vit
fógetans í Hebrorn og lýstu fyrirtækið
gjaldþrota. Ástæðuna sögðu þeir vera
„óyfirstíganlega greiðsluöröugleika".
„Haas und Sohn“ framleiddu arna og
ofna og skömmu áður hafði litið svo vel
út með pantanir frá ýmsum löndum á
vörum fyrirtækisins að nýlega var búið
að semja við starfsmannaráðið um
verulega yfirvinnu. Eitthvað var þetta
nú skrýtið. Formaður starfsmannaráðs-
ins, Josef Rupp sagði: „Annað hvort
voru stjórnendurnir ekki starfi sínu
vaxnir, eða þá að hér var eitthvert
ógurlegt svikamakk á ferðinni."
Svikamakkið áti sér tveggja ára langa
sögu, og það hafði byrjað þegar nýir
eigendur komu að hinni gömlu og
virðulegu verksmiðju. Var einn þeirra
ungur maður frá Dússeldorf, kominn af
nafnkunnri fjölskyldu ríkismanna þar í
borg. Sú var Kaiser fjölskyldan, sem átti
verslanakeðju sem sérhæfði sig í kaffi.
Fjölskyldan hafði nú selt verslanirnar og
sagði ungi maðurinn, Peter Kaiser, að
hann hefði hug á að kaupa „Haas und
■ Vamarmálaráðherra V-Þýskalands, Hans Apel, er hér t heimsókn hjá Gottwald í Sinn. Svindlarinn hngðist selja
ráðherranum 600 úti-eldhús handa heraum, sem „Haas und Sohn“ skyldi framleiða. En fyrirtækinu vora búin svipleg
örlóg... >
þrotayfirlýsinguna til baka. Þar með var
líka bann dómstóla við því að selja eitt
eða annað af birgðum og eignum úr
sögunni.
Nýi framkvæmdastjórinn Klaus Witt-
ek hét því á fundi sem hann átti með
blaðamönnum, að hann mundi „koma
skipinu á flot að nýju“, en vildi ekki
segja hvernig, enda voru að sögn hans
ekki nema 24 stundir liðnar frá því er
hann fyrst heyrði á fyrirtækið minnst.
Taldi hann að ef til vill þyifti ekki nema
fimm milljónir marka til þess að halda
mætti rekstrinum áfram, eins og ekkert
hefði í skorist.
Líkt og hér hefði verið komið að
stikkorði í leikriti, stakk nú maður á
fimmtugsaldri inn hausnum um gætt á
blaðamannafundinum, sléttgreiddur
með grátt hár: „Ég vildi aðeins láta yður
vita að bankarnir standa að baki yður,“
sagði hann. Starfsmenn og blaðamenn
sem voru viðstaddir spurðu hver þessi
maður væri og í nafni hvaða banka hann
starfaði, en Wittek varðist allra fregna.
Kátlegast af öllu var þó þegar hann sagði
að hann vissi ekki í umboði hverra hann
starfaði, - hann þekkti aðeins fulltrúann
frá lögfræðifyrirtækinu, Hans Dietrich
Gottwald frá Dússeldorf, sem hefði sent
hann.
Upp frá þessum degi var hið riðandi
fyrirtæki „Haas und Sohn“ nefnt
„Skuggasveinar hf.“ manna á meðal.
Krafíst gjaldþrotaskipta
Haldnar voru kröfugöngur, þar sem
starfsmenn höfðuðu til verkalýðsfélaga,
kirkju og þingmanna allra flokka og
kröfðust skýringa. Krafist var að fram-
kvæmdastjórnin gerði grein fyrir því í
hvað þær 13 milljónir sem styrkja áttu
reksturinn hefðu farið. Framkvæmda-
stjórnin þagði.
Á fundi með ellefu bönkum sem lánað
höfðu fyrirtækinu, gaf Wittek í skyn að
„nýir hluthafar" sem áður höfðu lýst sig
tilbúna til meiri fjárfestinga, hefðu kippt
að sér hendinni. Við þessi tíðindi reis
Bæverski verðbréfa og viðskiptabank-
inn, sem fyrirtækið skuldaði tvær mill-
jónir marka, upp öndverður og krafðist
gjaldþrotaskipta.
Skiptaráðandi var settur lögfræðingur-
inn dr. Wilhelm Schaaf frá Frankfurt og
eftir skamma rannsóknavinnu gat hann
staðfest að „Haas und Sohn“ hafði fallið
„slátrurum" í hendur. Þessi lögfræð-
ingur, sem fjallað hefur um 130 gjald-
HRÆGAMMAR
SVIKAGJALD-
ÞROTANNA
Lögfræðingurinn Hans Dietrich Gottwald kom fjölda fyrirtækja
fyrir kattarnef og hagnaðist vel á öllum saman
Sohn“ fyrir 4.6 milljónir marka. Þar sem
hann vildi aðeins leggja til fjármagnið,
en standa að öðru leyti að tjaldabaki, lét
hann lögfræðifyrirtækið „Jurkeit“ í
Dússeldorf um að skipa fulltrúa sinn við
kaupin. í nafni lögfræðifyrirtækisins
kom nú fram á sjónarsviðið dr. Hans
Dietrich Gottwald og skyldi hann hafa
vald til hvaða ráðstafana sem var í
samvinnu við Kaiser.
Ekki hafði fyrr verið gengið frá
undirritun samninga en nýju eig-
endurnir seldu lóðir og byggingar í eigu
„Haas und Sohn“ fyrir 26.9 milljónir
marka og var kaupandinn „Deutsche
Anlagen-Leasing“ í Mains (hér eftir
nefndur DAL). Nýju eigendurnir leigðu
svo eignirnar aftur til baka af DAL til
25 ára á þrjár milljónir marka á ári.
Slíkri aðferð er ekki óalgengt nú á
dögum að þau fyrirtæki beiti sem eiga í
kröggum.
13 milljónir
Af þesum 26.9 milljónum fóru um það
bil 14 milljónir til greiðslu á skuldum
fyrirtækisins, en þær tæplega 13 milljónir
sem eftir urðu, áttu að notast til þess að
hressa upp á reksturinn. Töldu þær fimm
þúsund sálir sem bjuggu í Sinn að nú
gæti ekki annað gerst en leiðin lægi upp
á við hjá fyrirtækinu. En þrátt fyrir
þessar 13 milljónir var fyrirtækið lýst
gjaldþrota þann 19. ágúst 1981. í hinu
litla þorpi voru menn gripnir skelfingu
og óhug.
Daginn eftir að kunnugt varð um
gjaldþrotið, skaut upp kolli í Sinn Klaus
nokkur Wittek frá Dússeldorf og hafði
hann pappíra meðferðis sem sönnuðu
að búið var að gera hann að fram-
kvæmdastjóra við „Haas und Sohn“. Lét
hann það verða sitt fyrsta verk að reka
stjórn fyrirtækisins og draga gjald-
þrotamál segir: „Slíka ræningjastarfsemi
hefi ég aldrei hitt fyrir áður.“
Þar með var komið að rannsóknarlög-
reglunni og ríkissaksóknaranum. Þegar
Klaus Wittek mætti þann 31. ágúst í
gjaldþrotaskiptaréttinn í Herborn í
Mercedes Benz bifreið í eigu fyrirtækis-
ins, var hann tekinn fastur og settur í
fjögurra mánaða gæsluvarðhald í Lim-
burg an der Lahn. Er hann grunaður um
að hafa á þeim tíu dögum er hann var