Tíminn - 07.11.1982, Síða 31

Tíminn - 07.11.1982, Síða 31
SUNNUDAGUR 7. NÓVEMBER 1982. 31 ■ Ungar og fagrar konur löðuðust að hinum viðfelldna lögfræðingi Hans Dietrich Gottwald, - enda skorti ekki fé og óhófsmunað í návist hans. framkvæmdastjóri „Haas und Sohn“ að hafa dregið sér fé úr hinu bágstadda fyrirtæki. Peter Kaiser var tekinn fastur á hóteli í Munchen. Að þrem vikum liðnum leysti faðir hans hann út með hálfrar milljón marka greiðslu. Lög- fræðingurinn Hans Dietrich Gottwald var hins vegar gripinn á skrifstofu sinni í Dússeldorf og settur í fjögurra mánaða gæsluvarðhald. Allir þrír eru grunaðir um aðild að svikagjaldþrotinu. Við athugun á skrifstofu Gottwalds fann rannsóknalögreglan einstök gögn. Voru þar komin frumgögn verslunar- dómstólsins í Stuttgart sem vörðuðu svikagjaldþrot byggingafyrirtækis eins sem kostað hafði 350 manns vinnuna. Vegna þess að málsgögnin höfðu týnst, gekk hvorki né rak með rekstur málsins. Leikur nú grunur á að sá sem stóð að baki svikunum sé enginn annar en Gottwald. Málið er nú komið á fullan skrið að nýju. Samkvæmt ákærunni hafði Gottwald selt 70 íbúðir í eigu þessa gjaldþrota fyrirtækis með aðstoð aðila sem voru leikbrúður hans og fengust fyrir íbúðirnar 700 þúsund mörk. Auk þess á hann að hafa stungið mörg- hundruð þúsund mörkum í eigin vasa. Þá mun málmvöruverksmiðja ein í Göttingen og gluggaverksmiðja í Kel- berg hafa lent fyrst í höndum Gottwalds og þá í díki gjaldþrotsins, að sögn saksóknarans. Snyrtilega að farið Smátt og smátt kom í Ijós hvernig þrjótarnir höfðu farið að við gjaldþrot „Haase und Sohn.“ Rannsóknamennirn- ir urðu að pæla í gegn um stafla af skjölum og gögnum til þess að finna út hvernig öllum milljónunum hafði verið skotið undan á afar snyrtilegan hátt. Með símskeytasendingum til saksókn- arans í Limburg tókst DAL (sem er dótturfyrirtæki Dresdner Bank í Frankfurt og fleiri banka) að varpa ljósi á það hverjir „Skuggasveinarnir" voru. Þegar í ársbyrjun 1979 hafði Peter Kaiser ásamt Gottwald lögmanni boðið DAL til sölu iðnaðarlóðir í þorpinu Sinn, þar sem lögfræðifyrirtækið „Jurkeit" hefði tekið „Haas und Sohn“ yfir. Þeir Kaiser og Gottwald fullvissuðu menn um að af hálfu „Jurkeit“ stæðu þeir einnig að sölunni Richard-Antonius Steinfeld frá Lugano og Gerd Goschau frá Zurich. Fyrir jólin 1981 viðurkenndi svo lögfræðingurinn í gæsluvarðhaldinu að þeir Steinfeld og Goschau væru alls ekki til. Fleiri „dauðar sálir“ komu við sögu. Ekki færri en átta slíkar vofur hafði Gottwald notað sér við svikagjaldþrot sín. Hvað Steinfeld varðaði þá kom það í ljós að maður einn hafði mætt hjá fógeta og framvísað fölsuðum skilríkjum er samningar og gjörningar aðrir voru í smíðum. Þá hafði Gottwald oftsinnis sjálfur skrifað nafnið Steinfeld undir skjöl. DAL, sem látið hafði plokka af sér 27 milljónir marka af því kynlega fyrirtæki „Jurkeit“ hafði ekki kannað málflutning og gögn Gottwalds, enda átti DAL lóðirnar, sem stóðu fyrir sínu. Framkvæmdastjóri DAL, Jurgen Jug- hard segir: „Við veittum engin lán, heldur keyptum við lóðir. Hvernig innviðum viðskiptafyrirtækja okkar er háttað er okkur undir flestum kringum- stæðum ekki mikið áhugaefni. Segjum svo að við gerðum hliðstæðan samning við Daimler-Benz. Ættum við þá að kanna mál allra hluthafa í fyrirtækinu, áður en af samningum yrði? Slíkt gengi ekki.“ DAL undirritaði samninginn því án nánari athugunar.skrifaði 26.9 milljóna króna ávísun. Þær 13 milljónir sem eftir urðu þegar skuldir höfðu verið greiddar, og áttu að koma fyrirtækinu til góða, lentu hins vegar í vasa þeirra Gottwalds og Kaisers. Auk þessa tók pappírsfyrirtækið „Jurkeit“ 2.6 milljónir króna sem lán út úr sölunni. Það var fyrsta afborgunin við sölu hins gamalgróna fyrirtgekis „Haase und Sohn.“ Úr einum vasa í annan Gottwald hélt því fram að hann hefði endurgreitt þessar 2.6 milljónir „til Haas und Sohn Eina milljón kvaðst hann hafa greitt sjálfur með ávísunum inn á reikning þess og 1.6 milljónir kvaðst hann hafa reiknað með ágóðahlut ársins 1980. Skiptaráðandinn Schaaf segir: „Það voru einnig fjármunir í eigu Haas. Gottwald tók peninga úr einum vasa sinna og flutti þá yfir í annan. Ágóða- hluturinn varð aðeins til með bókhalds- brellum." Þegar búið var að koma láninu í kring, lét Gottwald „Jurkeit" kaupa lóðirundir atvinnurekstur af fyrirtæki í Bösel fyrir eina milljón marka, en hann var sjáífur í tygjum við umrætt fyrirtæki. Síðan keypti Haas und Sohn, sem nú var í eigu „Jurkeit“, lóðirnar og var verðið þá komið upp í 4.1 milljón marka. Af þeim peningum greiddi Gottwald lokaafborg- anirnar til fyrri eigenda vegna kaupa á „Haas und Sohn.“ Þannig keypti „Jur- keit“ eignir„Haas und Sohn' mei) eigin peningum þess fyrirtækis og án þess að láta krónu ,aí eigin fé. Þegar þetta hafði allt tekist svo vel, tók Gottwald sig nú til og seldi „Haas und Sohn“ enn eina lóðina, með tilstyrk ýmissa meðeigenda sem aldrei höfðu verið til og upploginna fyrirtækja. Sú lóð var í Wuppertal-Langerfeld og kostaði „Haas und Sohn“ 2.8 milljónir. Sló hann svo lán út á lóðina hjá banka í Köln að upphæð þrjár milljónir marka. Af þeim peningum runnu tvær milljónir inn á reikning Gottwalds sjálfs. Sáu þeir heiðursmennirnir „Steinfeld“ og „Gos- chau“, sem aldrei voru til, um þessa flutninga fjárins. Peter Kaiser, en nafn hans skipti sköpum fyrir allt þetta brall, naut góðs af pappírsvinnu Gottwalds. Tókst hon- um að hremma eina milljón marka með hinu fáránlegasta móti. Fékk hann „Jurkeit" til þess að greiða fyrir því að hann hefði forkaupsrétt á 50 prósentum í fyrirtækinu „Haas und Sohn“, en seldi síðan forkaupsréttinn enskum fjármála- manni (sem Gottwald bjó til) er nefndist Peter Noris. Peningamir mnnu beint í vasa Kaisers, en ekki komu þeir þó frá London, heldur voru þeir teknir út af reikningi „Haas und Sohn.“ Schaaf segir: „Þeir hljóta að hafa talið sig alveg ömgga, því annars hefðu þeir varla farið svo h eimskulega að.“ Vitanlega þóttist „Jurkeit“ þurfa að fá eitthvað fyrir sinn snúð . Tók fyrirtækið 575.614.09 mörk fyrir ómak sitt við ráðsmennsku, eftirlit og samstarf við „Haas und Sohn.“ Gottwald, sem ók um á dimmbláum Mercedes-Benz 450 SL og Kaiser, sem átti kaffibrúnan Porsche 911 SC, deildu með sér summunni. Rétturinn í Hessen hefur áætlað skaða „Haas und Sohn“ nema minnst 10.2 milljónum marka. Schaaf gjald- . þrotaskiptaráðandi segir: „Þessi við- skipti höfðu það eitt að markmiði að slátra fyrirtækinu „Haas und Sohn.“ Verst var að hér hrundi fyrirtæki sem annars stóð á sæmilega tryggum grunni.,, Ekki tókst að bjarga nema tæplega 400 stöðugildum af 859, en hluti fyrir- tækisins er nú rekinn áfram. Nokkrir fyrri starfsmanna hafa fundið sér vinnu annars staðar, en hundruð hafa enga vinnu fengið. í afmælisriti sem nýlega var gefið út í tilefni af 750 ára afmæli héraðsins Sinn, látast bæjarstjóri, prestar, héraðsstjóri og aðrir í ávarpsorðum vera mjög hreyknir af viðgangi og véxti atvinnulífs þar. Þar er ekki minnst einu orði á hrægammana og fórnardýr þeirra. Þýtt - AM

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.