Tíminn - 12.11.1982, Qupperneq 2

Tíminn - 12.11.1982, Qupperneq 2
2 FÖSTXJDAGUR 12. NÓVEMBER 1982. í spegli tímans 1 Umsjón: B.St. og K.L. Jill St. John: Hörkuvinna að halda sér unglegri ■ Það skyldi enginn halda það, að þessar leikkonur og fyrirsætur, sem eru eins og ungar stúlkur fram á miðjan aldur, þurfi ekki að hafa töluvert fyrir því. Það eru matarkúrar og æfingar dag- inn út og inn, fyrirutan allar snyrtistofurnar sem þær stunda og fegrunarsér- ■ Það virðist sem Bikram Choudhury, yogakennari sé á bæn á mjöðmunum á Jill St. John, en hún fær sterka magavöðva og stælist öll fræðingana sem laga þær til. Reyndar gildir þaðp sama fyrir karlmenn, sem ætla að halda í ungdóminn eins lengi og unnt er. Þeir eru 1 farnir að stunda fegrunar- stofur og hafa sérfræðinga sér til hjálpar í öllum grein- um þessarar vísindagreinar, þ.e. að halda sér ungum. YOGA er vanalega talin afslappandi íþrótt fyrir lík- ama og sál. En það virðist svo sem leikkona Jili St. John hafi mikið fyrir sínum yoga-æfingum. Hún hefur sérkennara, Bikram Cho- udhury, sem kennir í einka- tímum í Beverley Hill, og hann gerir sér litið fyrir og stendur á mjöðmum Jill, þegar hún er komin í vissa stöðu. Þetta á að reyna á magavöðvana og herða þá. Jill er 42 ára, en lítur út fyrir að vera að minnsta kosti áratug yngri. Jill St. John hefur alltaf stundað miklar líkams- æfingar, og sjálf segir hún að vegna þess hve hún var stælt og sterk hafi hún komist í James Bond- myndir. Þar gildir það ekki aðeins að hafa gott útlit, vanalega verða Bond-stúlk- urnar að vera fimleikastúlk- ur líka. Diönuog Karls ■ Tvær bandarískar sjónvarpsstöðvar berjast nú konunglegri baráttu um að verða fyrst með að sýna sjónvarpskvikmynd af ástarævintýrinu konunglega í Bretlandi, um ástir Diönu og Karls Bretaprins. CBS-sjónvarpsfyrirtækið er að framleiða mynd, sem á. að heita „Charles and Diana, a Royal Romance. Catherine Oxenberg - sem sjálf er af konunglegri ætt - og Christopher Baines eiga að leika Diönu og Karl, en í öðrum hlutvekum í myndinni eru þekktir leikarar svo sem Olivia De Haviland, Stewart Granger og Dana Wynter. ABC-sjónvarpsstöðin kallar sína mynd „Charles and Diana - A Royal Love Story“, og þar eru í aðalhlutverkum Caroline Bliss og David Robb, því miður fylgdi ekki mynd af þeim með féttinni. ■ Catherine Oxenberg og Christopher Baines sem leika Diönu og Karl prins. Megrunarkúr getur snúist upp í banvænan sjúkdóm/’anorexia nervosa ■ Sem betur fer er það sjaldgæft, að megrunarkúrar- í lengri tíma - valdi hinum hættulega sjúkdónú anorexia nervosa, en það kemur einkum fyrir ungar stúlkur, sem finnst það algjör lífsnauðsyn að losna við nokkur kíló. í fyrstu gengur megrunarkúrinn sinn gang, en ef han hefur verið of strangur - svo líkaminn slappist, þá getur gripið um sig sinnuleysi og síðan ógeð á 'mat, svo viðkomandi getur varla fengið sig til að koma niður nokkurri fæðu. Frægt dæmi um þetta er hin fallega sænska stúlka Pia Degermark. Pia var falleg sænsk skóla- stúlka, sem hafði áhuga á að vinna sig upp sem leikkona. Hún var mjög ung, þegar hún fékk aðalhlutverkið í myndinni „Elvíra Madigan", og um sama leyti birtist falleg mynd af henni í blöðum með þáverandi krónprins Svíþjóðar Carl Gustaf (núverandi Svíakun- f f ungi), og allir dáðust að þessari gullfallegu stúlku. Nokkrum mánuðum síðar átti hún að taka við verð- launum fyrir leik sinn í mynd- inni unt Elviru, en þá brá öllum -í brún að sjá stúlkuna. Blaðamenn og þó einkum ljósmyndarar urðu steinhissa og daprir að sjá Piu, en hún var eins og hryggðarmynd, - grindhoruð og slöpp að sjá og engu líkara en hún hefði engan áhuga á því sem var að gerast í kring um hana. Blaðafulltrúi hennar sagði að hún hefði veikst cftir megrunarkúr, en væri þó á batavegi. Löngu síðar sagði Pia De- germark, að hún hefði ákveðið að fara í megrunarkúr, en svo var eins og hún réði ekki við neitt. Brátt var svo komið, að henni fannst ómögulegt að borða nokkuð, hafði ekki áhuga á nokkrum hlut, en sat aðeins og horfði fram fyrir sig eða svaf. Pia var orðin 35 kíló þegar foreldrar hennar sendu hana til sálfræðings og læknis. Hún segir, að aðvörunarorð þeirra og tár móður sinnar hafi loks haft áhrif á sig. „Þá fann ég, að það var ekki hægt að hjálpa mér, nema ég gerði eitthvað sjálf, og mér fannst ég verða að reyna að borða. Þá var ég 18 ára, og þetta var erfitt stríð.“ Harmleikurinn um Helgu norsku fímleikastúlkuna I Noregi hefur að undan- förnu verið mikið skrifað um dauða leikfimistúlkunnar Helgu Braathen, en hún blátt áfram dó af sulti. Helga var 29 ára þegar hún dó, og líktist þá helst Belsen-fanga. Hún var 165 sm. á hæð en aðeins 25 kg. á þyngd; Læknirinn. sem stundaði Helgu, hefur nú ákært norsku Pia Degermark var ung og falleg - en svelti sig svo hún varð eins og beinagrind. Á myndinni með umboðsmanni sínum er hún þó aðeins farin að hjama við, en hún var algjör hryggðarmynd eftir langvarandi sult. þjálfarana og norsku íþrótta- hreyfinguna fyrir að hafa þvingað hana út í alltof erfiða megrunarkúra, sem enduðu í óviðráðanlegri veiki anorexia nervosa. ' Helga,þá 15 ára og 55 kíló, var besti þátttakandi Noregs í Olympíuleikunum í Mexíkó 1968. Hún varð n r. 1 í norræna meistarafimleikamótinu 1969, en 1971 fékk hún 2. verðlaun. Árið 1973 mistókst henni í keppninni, því þá þótti hún of þung. Þá var lagt hart að henni að losna við nokkur kíló, og Helga byrjaði algeran sultar- kúr. Það varð ekki aftur snúið, því að nú varð hún altekin af hinum sálræna hungursjúk- dómi, anorexia nervosa. Það var reynt að berjast fyrir lífi hennar, en tókst ekki, og 29 ára dó hún af sulti. Það einkennilega við þennan sjúkdóm er, að karlmenn fá hann aldrei og ekki konur, sem átt hafa börn. Unglingsstúlk- um, sem eru yfirspenntar á taugum, er einna hættast að verða fyrir barðinu á honum. ef þær hafa verið í langvarandi megrunarkúrum.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.