Tíminn - 12.11.1982, Blaðsíða 3

Tíminn - 12.11.1982, Blaðsíða 3
FÖSTUDAGUR 12. NÓVEMBER 1982. 3 fréttir Neikvæd lausafjárstada viðskiptabankana midað við innistæður þeirra: STABA UTVEGSBANK- ANSERMJÖG SLÆMl — samanborið við aðra banka sem hafa neikvæða stöðu ■ Lausafjárstaða Útvegsbankans var orðin neikvæð um 195 miilj. kr. hinn.30. sept. s.l., sem jafngilti þá nær fjórðungi af öllum innistæðum bankans (831 millj.) eða 23,4%. Á sama tíma í fyrra var lausafjárstaða bankans aðeins nei- kvæð um 15 millj. Útlán Útvegsbankans voru í septemberlok orðin 1.161 millj. króna á móti 588 millj. ári áður og hafa því aukist um 97,4% á einu ári. Innistæður alls voru 831 millj., sem fyrr segir, á móti 499 í fyrra og hafa því aukist um 66,5%. Slíkur mismunur þykir Seðlabankamönnum langt umfram það sem góðu hófi gegnir. Þótt lausafjárstaða Landsbankans hafi einnig verið neikvæð um stórar upphæð- ir, eða 386 millj. á sama tíma, þá er sú upphæð hins vegar ekki nema 12,9% af innistæðum bankans, sem voru 2.980 millj. í septemberlok s.l. Útlán Lands- bankans jukust á þessu eina ári úr 2.336 millj. króna í 2.980 millj. sem er 53%. Búnaðarbankinn hafði hins vegar 56 milljóna króna jákvæða lausafjárstöðu á sama tíma. Útlánin í septemberlok s.l. námu 1.432 millj. króna sem var 69% aukning frá fyrra ári, en innistæður voru alls 1.547 millj. og höfðu aukist um 64% á umliðnu ári. Af öðrum bönkum var Iðnaðarbank- inn hinn eini með jákvæða stöðu upp á 5 millj. króna en hinir með neikvæða.frá 11 til 31 millj. Sem hlutfall af innistæðum alls eru þessar tölur: 9,7% hjá Verslun- arbankanum, 8,7% hjá Samvinnubank- anum og 5,7% hjá Alþýðubankanum. Seðlabankinn gaf sem kunnugt er þeim bönkum sem höfðu neikvæða stöðu kost á að breyta þeim í nokkurra mánaða víxillán til þess að þeir sliguðust ekki undan þeim gífurlegu refsivöxtum sem bankinn ákvað nýlega og að bankarnir fengju nokkurn aðlögunar- frest að hinu nýja stranga kerfi. Búið ér að breyta mestum hluta yfirdráttarins við Seðlabankann í slík lán. Pau reiknast þó eigi að síður sem stutt skuld bankanna við Seðlabankann og eru inni í myndinni: staða gagnvart Seðlabanka. Jafnfram er búið að semja við hvern og einn þeirra banka sem þessi „reddingar- lán“ fengu um að þcir geri sitt ítrasta til að bæta útlánastöðu sína, svo og um ákveðin útlánamörk. Er Ijóst að því verri sem lausafjárstaða hvers banka er þeim mun meira verður hann að draga úr útlánum sínum næstu mánuðina. -HEI Hellafundur við Svartsengi: Jarðýtan fór niður um þak hellisins ■ Inn um þennan hellismuna - sem opnaðist þegar þak hellisins brotnaði niður undan ýtunni-séstíhleðsluogbeinaleifar. - Myndir Guðmundur Ólafsson ■ Ingibjörg Guðmundsdóttir tekur við vinningnum og þakkar Gísla Sigurðssyni, framkvæmdastjóra Tímans, fyrir sig. TímamyndtG.E Fyrstivinningshafinn í áskriftargetraun Tímans: TTStrax ákvedin í því að velja hjónarum” — segir Ingibjörg Guðmunds- dóttir, sem býr á Patreksfirði ■ „Þessi heppni mín, kom mér svo sannariega á óvart, og þá ekki síður það hversu rausnarlegur vinningurinn var og hversu mikið ég get fengið fyrir hann,“ sagð Ingibjörg Guðmundsdóttir, sem sigraði í fyrsta hluta áskrifendagetraunar Tímans, og hlaut í verðlaun vöruúttekt fyrír 25 þúsund krónur í versluninni Nýform, Hafnarfirði. Ingibjörg býr ásamt manni sínum, Svein Rasmussen, á Patreksfirði, en hann gegnir þar embætti héraðslæknis. Þau fluttu til Patreksfjarðar nú í haust og sagði Ingibjörg í viðtali við Tímann í gær, að þeim líkaði ágætlega á Patreksfirði, þar væri gott fólk og rólegt að búa þar. Blaðamaður spurði Ingibjörgu hvað hún hefði nú valið sér, en hún kom gagngert til Reykjavíkur til þess að velja sér muni fyrir vinningsféð. Hún sagði að maður hennar hefði ekki getað komið með tímans vegna, og hefði hann því orðið að treysta henni einni fyrir valinu: „Ég var strax ákveðin í því að velja hjónarúm, því það vantaði okkur. Ég hafði svolitlar áhyggjur af því að ég myndi ef til vill ekki finna neitt sem mér líkaði í þessari verslun, Nýform, en þær áhyggjur voru óþarfar rneð öllu, því úrvalið var mikið, og mikið af fallegum húsgögnum þar. Það sem ég átti einna verst með að átta mig á, var að þegar ég var búin að velja þetta fína hjónarúm, með náttborðum og dýnum, þá átti ég enn eftir 15 þúsund krónur af vinning- num, þannig að ég gat valið mér stóran og fallegan borðstofúskáp og einnig kommóðu. Finnst mér sem við höfum fengið mikil og falleg húsgögn fyrir verðlaunaféð. Mér finnst þetta ef til vill hvað skemmtilegast, vegna þess að þetta kom mér svo á óvart. Það er svo mikill fjöldi sem tekur þátt í svona getraunum, að ég taldi ekki mikla möguleika á að ég myndi vinna. Auk þess þá var það hálfgerð tilviljun að ég kom því í framkvæmd að setja úrlausnina í umslag og pósta hana“! Ingibjörg gerðist áskrifandi að Tím- anum í haust, þegar hún fluttist til Patreksfjarðar, og sagðist hún vera mjög ánægð með þessa byrjun. Alþingi: „Umrædan er til skammar” — sagði Jón Baldvin um málflutning Vilmundar ■ „Manni dettur helst í hug að þarna hafi kannski verið útilegumaður eða einhver í felum einhverntíma", sagði Guðmundur Ólafsson, safnvörður, sem í gær var að skoða víðáttumikinn helli sem fannst af tilviljun. Verið var að jafna út fyrir nýrri borholu við Svartsengi þegar jarðýtan fór niður um þak hellis- ins. Er nánar var að gætt kom í ljós hleðslur og leifar af suðabeinum voru í hellinum. Er komið var inn í hellinn sagði Guðmundur hafa fundist inngang í þaki hans, sem greinilega hafi verið lokað af mannavöldum, þannig að giska megi á að þar hafi einhver verið sem ekki vildi að hellirinn hans fyndist. Þarna hafi líka einhverntíma verið greni og því spurning hvort beinaleifamar séu af manna- eða tófu völdum. Ýtan hrundi niður í þann hluta hellis- ins er notaður hefur verið af íbúanum. Sagði Guðmundur hugmyndina að fjar- lægja grjótið og þar ætlar hann síðan að leita frekari mannvistarleifa, kannski svefnbálks, eldstæðis eða einhvers því um líks sem bendi til að þar hafi verið hafist við. Svo virðist sem nokkuð langt sé frá því hellirinn var notaður. „Já, jafnvel nokkrar aldir.“ -HEI ■ - Þessi umræða er til skammar. Menn eru sakaðir um að túlka lög sér í hag, um að vera aldraðir, þingsköp brotin og ráðist ósæmilega að forseta, sagði Jón Baldvin Hannibalsson, um það fyrirbæri sem upp kom í sameinuðu þingi í gær, að það tók hálfa aðra klukkustund að koma tilteknu máli til nefndar. Lengstan part var hávaðinn út af því hvort fyrr ætti að bera upp tillögu um að vísa málinu til allsherjarnefndar eða utanríkismálanefndar. Vilmundur Gylfason og Ólafur Ragn- ar Grímsson töluðu oftast og lengst. Úm var að ræða tillögu Alþýðuflokksmanna um úttekt á verktakastarfsemi á Kefla- víkurflugvelli. Lagt er til að Alþingi feli sérstakri rannsóknarnefnd að láta fara fram ítarlega úttekt á fyrirtækinu ís- lenskir aðalverktakar, og öll önnur viðskipti við vamarliðið. Umræður höfðu farið fram og aðeins var eftir að greiða atkvæði um nefnd er fundur hófst í sameinuðu þingi. Flutning6maður, Vilmundur Gylfason, lagði til að málið yrði sent til allsherjarnefndar, en Ólafur Jóhannesson utanríkisráðherra gerði til- lögu um utanríkismálanefnd. Rök hans voru að svipaðar tillögur hafi áður verið sendar til þeirrar nefndar og að fyrirtæk- ið starfaði samkvæmt samningi sem utanríkisráðherra standi að. Jón Helgason forseti sameinaðs þings bar undir atkvæði að vísa málinu til utanríkismálanefndar. Vilmundur kvaddi sér hljóðs um þingsköp, og fór mikinn. Forseta sakaði hann um hlut- drægni og utanríkisráðherra og forsætis- ráðherra fengu sinn skammt og m .a. að þeir notuðu lærdóm sinn til að túlka lög sér í hag og krafðist þess að tillaga sín um allsherjarnefnd yrði tekin á undan. Forseti varð fljótlega í umræðunni við því og taldi enda að vilji þingmanna mundi ekki breytast í neinu við það hvort tillagan yrði borin upp á undan. En málið var ekki svo einfalt. Áfram var haldið og félagarnir Vilmundur og Ólafur Ragnar héldu allsherjarnefnd stíft fram og leiddu að því margháttuð rök. Matthías Bjarnason kallaði úr sæti sínu, þegar þófið hafði staðið lengi, hvort orðið væri of seint að vísa málinu til heilbrigðis- og trygginganefndar. Margir þingmenn voru til kallaðir að tjá hug sinn. Við nafnakall var fellt að vísa málinu til allsherjarnefndar með 30 atkv. gegn 19. 28 samþykktu að vísa því til utanríkismálanefndar, 4 voru á móti og 9 greiddu ekki atkvæði. Þangað fer því málið. Enn var eftir að ræða þingsköp eftir að atkvæði voru greidd. Ólafur Ragnar vill láta forseta úrskurða hvort hann sé hæfur til að fjalla um máiið í utanríkis- málanefnd, þar sem hann treysti sér ekki til að halda leyndum upplýsingum sem þar kunna að koma fram. Formaður nefndarinnar Geir Hall- grímsson taldi nefndina vel færa um að fjalla um málið og væru nefndarmenn því aðeins bundnir þagnarskyldu ef formaður eða utanríkisráðherra kvæðu svo á um í einstökum tilvikum. En ástæðulaust væri að gera nefndina tor- tryggilega og vænti þess að góð samvinna tækist nteð nefndarmönnum um þessa tillögu. Ólafur Jóhannesson sagðist ekki óska þess af sinni hálfu að nein leynd hvíldi yfir því sem fram kann að koma í málinu og og mundi hann láta nefndinni í té allar þær upplýsingar sem hann hefði yfir að ráða. Geta má að formaður allsherjarnefnd- ar er Jóhanna Sigurðardóttir, en hún er ein af flutningsmönnum tillögunnar.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.