Tíminn - 12.11.1982, Page 10
FÖSTUDAGUR 12. NÓVEMBER 1982.
Glampar í íjarslai
á gullin þil
FrásðguþæUlr
PORSTEINN GUÐMUNDSSON
SKÁLPASTÖÐUM
Glampar í fjarska á gullin
þil
■ Glampar í fjarska á gullin þil-frá-
söguþættir er ný bók, sem Hörpuútgáfan
á Akranesi hefur sent frá sér. Höfundur-
inn, Þorsteinn Guðmundsson á Skálpa-
stöðum í Lundarrcykjadal, hefur verið
virkur í forustusveit borgfirskra bænda
um flest sem til heilla horfir. Hann hefur
fengist nokkuð við ritstörf. Kvæði og
greinar eftir hann hafa birst í blöðum og
tímaritum. Þættirnir í þessari bók eru af
sönnum atburðum sem höfundur hefur
upplifað á langri ævi. M.a. af snörpum
viðskiptum hans við laxinn í Grímsá, þar
sem snilli og þolinmæði ráða úrslitum
leiksins. Bókin lýsirvel næmri tilfinningu
höfundar fyrir náttúrunni og lífinu í
kringum hann.
Þættirnir heita:
Gunnar og Kola
Stóri laxinn
Tveir búferlaflutningar
Sörli
Mávurinn
Sagan um járnklippurnar
Fyrsti laxinn minn
Tveir smáþættir frá Grafarhyl
Droplaug og dóttir hennar
Öræfageigur
Riddarinn á hvíta hestinum
Glampar í fjarska á gullin þil
Bókin er 134 bls. Prentuð og bundin
í Prentverki Akraness hf.
mj ✓ A
. 'M . , 1
If £ $ * \ m1 1
P| > s*, i
l!l> i' J i|
m i 1
»| c." >« 8 JH. % 4 ' p 1 $ 1
1 > |
Hélublóm endurútgefin
■ Hélublóm, Ijóðabók Erlu, koma nú
út í annarri útgáfu, en þau hafa verið
ófáanleg á almennum markaði um
fjörutíu ára skeið.
Hélublóm voru fyrst gefin út 1937.
Endurútgáfan er aðeins í 250 eintökum
og verður bókin einungis seld í Bókinni,
Skólavörðustíg 6, Reykjavík.
Ritsafn Bólu-Hjálmars
endurprentað
■ Bókaforlag ísafoldar hefur sent frá
sér endurprentun á Ritsafni Bólu-
Hjálmars. Ritsafnið hefur verið ófáan-
legt um alllangt skeið. Verkið er
heildarútgáfa af Bólu-Hjálmari í þremur
bindum.
Fyrsta tilraunin til' heildarútgáfu af
Bólu-Hjálmari var gerð á Akureyri
1879. Að henni stóðu síra Arnljótar
Ólafsson og fleiri. En hún datt niður
með upphafinu. Svo kom hin snotra
útgáfa Hannesar Hafsteins 1888, en hún
var ekki nema kver. Næst kom útgáfa
dr. Jóns Þorkelssonar í tveim bindum,
1915-19, og var merkileg. Þá tók við
útgáfa Finns Sigmundssonar landsbóka-
Bændur
Leysið mykjuvandamáiin í eitt skipti fyrir öll
með Gundersted mykjudælu og mykjudreifara.
S- <=/J
O 'O
o
. c'
★ Lágt verð.
★ Góðir greiðsluskilmálar
★ Til afgreiðslu strax.
★ Leitið upplýsinga.
BOÐIf
Sími 91-44573
Ásbúð 12, Garðabæ.
HALLVE/GARSTÍG 7 SÍMI 26010-
/ / / / / / / /
varðar 1949. Hún var í fimm bindum og
tók með óbundið mál Hjálmars. Síðan
kom út 1960 sjötta bindið, æviágrip
Hjálmars og ýmsir þættir um hann. Allt
ritsafn Hjálmars var endurprentað og
nokkuð aukið 1965 og kom út í þremur
bindum: Ljóðmæli, rímur og laust mál.
Finnur Sigmundsson sá um útgáfuna. Er
það endurprentun þessarar útgáfu sem
forlagið sendir frá sér nú.
Þrautir fyrir börn
■ BókaútgáfanVakahefursentfrásér
bókina Þrautir fyrir börn og er hún
þriðja bókin í flokki þeim, sem hefur
hlotið nafnið Tómstundabækurnar. Slík-
ar þrautabækur hafa verið afar vinsælar
í nágrannalöndunum, en á íslenskum
markaði hafa þær verið næsta sjaldséðar.
Guðni Kolbeinsson þýddi og staðfærði.
Þrautir fyrir böm hefur að geyma
hundrað skemmtileg, þroskandi og
myndræn viðfangsefni fyrir börn. Sumar
þrautirnar eru léttar en aðrar svolítið
þyngri. Við val á þrautunum hefur verið
tekið tillit til þess, að börn á aldrinum
frá 6-12 ára fái hér frístundaverkefni við
sitt hæfi. En bókin er í raun fyrir börn
á öllum aldri.
Á bókarkápu segir meðal annars, að
þrautirnar þroski ekki síst athyglisgáfu
barnanna, einbeitingar- og skipulags-
hæfileika þeirra. Hér er aðfinna talna-,
stafa- og orðaþrautir, samanburðarleiki
ogfjölda annars konar gamanverkefna.
Með þessa bók í höndunum geta
krakkar unað klukkustundum saman,
því að fátt þykir þeim skemmtilegra en
að glíma við þrautir, segir enn fremur á
bókarkápu.
ÞRáUTœæ
jVF.BNER NtELSEN GUONt KOLBEINSSON JORGEN LOVGNET O. FL.
& 1MK4
„Yirgill Iitli“
ný bamasaga eftir Ole Lund Kirke-
gaard
IÐUNN hefur gefið út nýja barnasögu
eftir danska höfundinn Ole Lund
Kirkegaard. Nefnist hún Virgill litli og
er sjötta bók þessa höfundar sem út
kemur á íslensku. Kirkegaard var
kunnur höfundur barnabóka. Hann
myndskreytti jafnan sögur sínar sjálfur.
Þessi nýja bók, Virgill litli fjallar um
lítinn dreng og tvo vini hans. Við sögu
koma einnig storkur og dreki með átta
iappir. Virgil litla þýddi Þorvaldur
Kristinsson. Bókin er 102 blaðsíður.
Prisma prentaði.
og brúnbæsuðu. Áhersla er
lögð á vandaða lökkun.
Stærðir: 65x161 cm og 75x190 cm.
Sendum gegn póstkröfu.
Furuhúsið hf.,
Suðurlandsbraut 30,
sími 86605.
Lifiarkæfa
Opiö í kvöld til kl. 3.
Efri hæð — danssalur.
Dansbandið
leikur fyrir dansi.
Eitthvað fyrir alla,
bæði gömlu og nyju
dansarnir.
Neðri hæð diskótek.
Borðapantanir í síma
23333. Snyrtilegur
klæðnaður.
STAÐUR HINNA VANDLÁTU