Tíminn - 12.11.1982, Qupperneq 13
FÖSTUDAGUR 12. NÓVEMBER 1982.
21
Tþróttir
Umsjón: Sigurdur Helgason
KR-INGUM VIRTIST NÆR
FYRIRMUNAÐ AÐ HITTA
— í fyrri hálfleiknum gegn Val í úrvals-
deildinni í körfuknattleik
Stórsigur IS
— Unnu UMFG 105-58
■ I gærkvöldi léku lið Stúdenta og ar stórsigur á andstæðingum sínum.
Grindvíkinga í 1. deildinni í körfu- Lokatölur leiksins urðu 105 stig gegn
knattleik. Leikið var í íþróttahúsi 58.
Kennaraháskólans og unnu stúdent- sh
Bíðum eftir
upplýsingum
— segir form. KKÍ um mál Péturs
Leikinn dæmdu Björn Ólafsson og oft á tíðum sérkennilegir, en það réði
Þráinn Skúlason og virtust dómar þeirra engum um úrslit leiksins. sh
■ Allt snýst um Stewart Johnson í leik KR-inga
Þróttarar
til T romsö
— Leika þar í Evrópukeppni í blaki
■ KR-ingar eru áreiðanlega ekki hress-
ir með hittnina ■ fyrri hálfleiknum gegn
Valsmönnum í úrvalsdeildinni í körfu-
knattleik í gærkvöldi. Þeir skoruðu
aðeins 28 stig í hálfleiknum og segja má
að léleg hittni þeirra þá hafl komið í veg
fyrir möguleika þeirra á að veita Vals-
mönnum verðuga samkeppni.
Valsmenn byrjuðú leikinn annars af
gífurlegum krafti og komust í 7-0 og það
sáust tölur eins og 15-4 á stigatöflunni.
Allan fyrri hálfleikinn höfðu Valsmenn
örugga forystu yfirleitt um 10 stig og
þeim tókst að auka hana í 15 stig fyrir
leikhléið. í hálfleik var staðan 48 stig
gegn 28 Valsmönnum í hag.
Síðari -hálfleikurinn var mun jafnari,
enda var hittnin hjá Stewart Johnson þá
miklu betri en í þeim fyrri. Þá tók Ágúst
Líndal vel við sér í síðari hálfleiknum.
En Valsmenn héldu öruggri forystu og
juku hana aðeins undir lokin. Lokatölur
í leiknum urðu 89 stig gegn 71 Val í hag.
í heild var leikurinn síakur. Mikið var
um mistök og fátt virtist ganga upp hjá
sumum leikmönnum liðanna. Og sann-
ast sagna er ótrúlegt að KR-ingar eigi
annan jafn slakan hálfleik og þann fyrri
í gærkvöldi á næstu árum.
Bestir hjá Val voru Torfi Magnússon
og Tim Dwyer. Hann er að því leyti
ólíkur landa sínum hjá KR, að hann
leikur félaga sína muh meira upp, en hjá
■ „Frá því að Pétur Guðmundsson fór
til Bandaríkjanna í atvinnumennsku
hefur legið ljóst fyrir að hann komi ekki
til með að leika oftar með landsliðinu í
körfuknattleik," sagði Helgi Ágústsson
formaður KKÍ í samtali við Tímann.
„Það liggur heldur ekki ennþá ljóst
fyrir hver staða hans er með ÍR og við
eigum von á upplýsingum frá bandaríska
körfuknattleikssambandinu í því sam-
bandi. Ég veit að Pétur hefur sótt um
að fá að nýju áhugamannaréttindi sín,
en hann hefur enn ekki fengið nein
viðbrögð frá bandaríska sambandinu í
því sambandi."
Næsti leikur ÍR-inga er gegn Keflavík
föstudaginn 19. nóvember og þá verður
að vera Ijóst hvort Pétur má leika .»Stjórn
KKÍ mun halda fund á mánudag og þá
verður þetta mál rætt og væntanlega
tekin afstaða, ef þau gögn sem beðið er
eftir verða komin.
Það veldur hins vegar íslenskum
körfuknattleiksunnendum miklum von-
brigðum, að Pétur skuli ekki geta leikið
framar með landsliðinu. Hann hefur
sýnt að hann er yfirburðamaður í sinni
stöðu meðal íslenskra körfuknattleiks-
manna og hefur oft sýnt frábæra leiki
með landsliðinu.
Það væri óskandi að málið leystist
farsællega og að Pétur gæti leikið með
ÍR-ingum, því þar með ætti keppnin í
Johnson er það einstaklingsframtakið
sem gildir. Einnig sýndi Jón Steingríms-
son mjög góðan leik. Hann er drjúgur
leikmaður, sem ekki lætur mikið yfir sér,
en skilar hlutverki sínu með mikilli
prýði. Þá er ástæða til að nefna þá
Ríkharð og Kristján Ágústsson.
Hjá KR gengur allt út á Stewart
Johnson. Og enda þótt hann hafi skorað
36 stig í þesum leik, þá átti hann
ótölulegan fjölda skota sem ekki rötuðu
rétta leið. Aðrir leikmenn virka á
köflum eins og statistar, en það er ekki
hægt að vinna leiki á einum manni, þó
góður sé. Það var einna helst að Ágúst
Líndal sýndi spretti og þá einkum í
síðari hálfleik. Einnig voru þeir Páll
Kolbeinsson og Jón Sigurðsson sæmileg-
ir.
Liði Vais í leiknum stýrði Douglas sá,
er nýlega var rekinn frá Fram. En hann
fékk ekki að sitja á bekknum nema fram
í miðjan síðari hálfleik. Var honum þá
vísað úr húsinu fýrir að mómæla dómum.
Er þessum manni að því er virðist hvergi
vært hér á landi.
Stigin: KR: Stewart Johnson 36,
Ágúst Líndal 11, Jón Sigurðsson 8, Páll
Kolbeinsson og Stefán Jóhannsson 6 stig
hvor, en aðrir minna. Valur: Torfi
Magnússon 23 stig, Tim Dwyer 16, Jón
Steingrímsson 15 stig, Kristján Ágústs-
son 14, aðrir minna.
■ Pétur Guðmundsson.
úrvalsdeildinni að geta orðið geysispenn-
andi bæði á toppi og botni. Möguleikar
liðsins eru mjög mikið undir því komnir
að þeir geti notað Pétur í leikjum sínum,
en eins og kunnugt er hafa ÍR-ingar ekki
unnið leik í úrvalsdeildinni í ár.
sh.
■ íslandsmeistarar Þróttar í blaki fóru
í morgun til Noregs til þátttöku í
Evrópukeppni mcistaraliða í blaki.
Þróttarar munu leika báða leikina ytra
á laugardag og sunnudag. Þetta er í
annað skipti sem Þróttur tekur þátt í
Evrópukeppninni, en í fyrra lék liðið
gegn KFUM Osló, sem voru þáverandi
Noregsmeistarar. Að þessu sinni er það
BK Tromsö sem eru andstæðingarnir.
Þróttarar töpuðu fyrri leiknum gegn
Norðmönnunum í fyrra með þremur
hrinum gegn engri, en sá leikur fór fram
í Reykjavík. í leiknum í Oslógekk betur
hjá Þrótti, en úrslit hans urðu 3-2
Norðmönnum í hag og þá endaði
úrslitahrinan 15-13 KFUM í hag.
Lið Tromsö vann bæði deildar- og
bikarkeppnina í Noregi á síðasta ári. í
liðinu eru fimm landsliðsmenn, þar af
fjórir úr byrjunarliði Noregs. Og einn
þeirra var einmitt með KFUM Osló í
fyrra. Þetta er þriðja árið sem Tromsö
er með í 1. deild í Noregi. Fyrsta árið
varð liðið í 2. eða 3. sæti, en annað árið
urðu þeir meistarar og nú í ár hafa þeir
unnið alla sína leiki.
Allir leikme'nn Þróttar sem þátt taka
í Evrópukeppninni eiga landsleiki að
baki, en 7 Icikmenn fara utan til
þátttöku í leikjunum tveimur. Þróttarar
leika sinn 200. leik í blaki frá upphafi
og hefur einn leikmaður Þróttar verið
með í öllum leikjum liðsins til þessa og
leikur því sinn 200. leik með Þrótti frá
því að blakdcild félagsins var stofnuð
árið 1974. Þar á undan hafði Gunnar
leikið í þrjú ár með öðrum liðum í
íslandsmótinu í blaki.
Þróttarar gera sér engar gyllivonir
áður en þeir leggja í þennan leik, en þeir
munu leggja sig alla framm við að ná
sem allra bestum árangri.
Fram og KR
í úrvalsdeild
■ Einn leikur verður háður í
úrvalsdcildinni í körfuknattleik um
helgina. Fram og KR mætast í
Hagaskóla á mánudagskvöld og hefst
leikurinn kiukkan 20.00.
Á morgun leika I.augvetningar og
Tindastóll í 2. deild og fer sá leikur
fram á Laugarvatni. Á mánudags-
kvöld lcika svo Bræður og HK í 2.
deild í Hagaskóla, strax eftir leik
Fram og KR.
Handbolti -
Stórleikir í
2. deild
■ Ekkert verður leikið ■ 1. deild karia
og kvenna ■ handknattloik um hclgina.
Er það vegna undirbúnings karlalands-
liðsins undir landsleikina gegn Vestur-
Þjóðverjum og vegna keppnisferðar
kvennaliðsins til Spánar.
En keppnin í 2. og 3. deild karla
heldur áfram og sömu sögu er að segja
um 2. deild kvenna og 1. flokk karia.
í kvöld leika á Akureyri í 3. deild
karla Þór og Skallagrímur og hefst sá
leikur klukkan 20.00. í Sandgerði leika
Reynir og Týr og hefst sá leikur klukkan
20.00 og loks leika á Seltjarnarnesi á
sama tíma Grótta og Afturelding í 2.
deild.
Á Akureyri leika á laugardag í 2. deild
karla KA og Þór Ve. og hefst sá lcikur
klukkan 14.00, en strax á eftir lcika
Dalvík og Skallagrímur í 3. deild.
í Keflavík leika klukkan 14.00 ÍBK
og Týr og í 3. deild karla. í Laugardals-
höll leika í 2. deild kvenna klukkan
13.30 Þróttur og HK, síðan leika í 3.
deild karla Fylkir og Ögri og þar á eftir
Fylkir gegn ÍA í 2. dcild kvenna.
í 2. deild karla leika í Hafnarfirði á
morgun Háukar og Árntann. Á Varrná
leika í sömu deild á sama tíma Breiða-
blik og HK. Bæði Kópavogsliðin.
Tveir leikir verða til viðbótar í 2. deild
kvenna á laugardag. f Eyjum leika ÍBV
og ÍBK og í Ásgarði Stjarnan og Selfoss.
Báðir leikirnir verða háðir klukkan
14.00.
sh
★
Brad Miley til
Keflavíkur
■ Urvalsdeildatlið ÍBK sem misti
bandariska ieikmanninn og þjálfar-
ann Tim Higgins á dögunum hefur
fengið annan leikmann í hans stað.
Sá er íslenskum körfuknattleiks-
mönnum ekki alveg ókunnur, en
hann heitir Brad Miley og lék með
Val fyrir nokkrum árum. Miley
kemur hingað tU lands á þriðjudag
og mun að öllum líkindum leika
fyrsta leik sinn gegn í R á flmmtudag.
★
Mátti ekki fara
í uppskurd
■ Danski landsliðsmaðurinn í
knattspyrnu Preben Elkjær leikur
eins og Arnór Guöjohnsen með
Lokeren í Belgíu. Elkjær hcfur átt
við meiðsli að stríða að undanförnu
og var það álit lækna, að eins leiðin
í stöðunni væri sú, að hann færi í
uppskurð á sjúkrahús í Belgíu. En
forráðamenn Lokeren vildu ekki að
hann færi undir hnífinn strax, enda
sýndi hann slórleik með liðinu gegn
Kortrejk á sunnudaginn, en þá
sigraði Lokeren 4-0. Og Elkjær
verður að hlýða forráðamönnum
félagsins og er að visu sáttur við það,
því þar með gat hann leikiö með í
landsleiknum gegn Luxcmburg í
fyrrakvöld.
★
ísland vann
■ íslenska unglingalandsliðið í
knattspymu lék í gær gegn Norður-
írum í Belfast. íslendingar sigruðu
með þremur mörkum gegn tveimur.
Þctta var vináttulandsleikur þjóð-
anna.
★
Björn Borg
kemur til
■ Svo virðist sem sænski tennis-
kappinn Bjöm Borg sé á góðri leið
með að ná fyrri getu i íþrótt sinni.
Hann tók nú um helgina þátt i móti
í Sidney í Ástraliu, þar sem allir
kepptu við alla. Mcðal kcppenda
vora Vitas Gerulatis, Ivan Lendl og
John McEnroc, eða allir bestu
tennisleikarar i heimi. Verðlaunin
sem Borg fékk voru 336.000 dollarar.