Tíminn - 13.11.1982, Side 2
LAUGARDAGUR 13. NÓVEMBER 1982.
LEÐURTÍSKA FRA
HAMBORG
■ Ekki þykir líklegt, að þessi leðurföt
séu sérstaklega hentug fyrir mótorhjóla-
dömur, en þessar leðurtískuflíkur
voru kynntar sem slíkar.
Mini-pilsið ætti ekki að flækjast fyrir
á fullri ferð, og svo er hafður við pilsið
gamaldags flugmannajakki úr leðri,
sem hefur verið skreyttur með ýmis
konar drasli og dóti, svo sem keðjum,
nautshaus o.fl. Punk-eyrnalokkar eru
auðvitað nauðsynlegir við og svartir
netsokkar, eða sokkar með ofnum
doppum, eins og er á myndinni. Svo er
vafamál að þessir fallegu háhæluðu
skór passi á ungar píur, en þeir þóttu
við hæfí á tískusýningunni a.m.k.
Stúlkan í rykkta leðurpilsinu, er eigin-
lega í samkvæmiskjól úr leðri, sem lítill
mittisjakki fylgir.Kjólinn kallahönnuð-
irnir „Sprungnu blöðruna“.
Þessi Ieðurföt eru hönnuð og seld í
Hamborg í Þýskalandi og eru sögð mest
keypt af því unga fólki, - sem hefur
meiri peninga en þeim er hollt á milli
handanna, í það minnsta meiri peninga
en fatasmekk.
■ Giskað er á að þessum
búningi fylgi leðurnærbuxur,
því að pilsið er það stutt, að
þær hljóta að sjást við minnstu
hreyfingu.
■ „Sprungna blaðran“ heitir
kjóllinn hennar og kostar
ofijár, enda úr silkimjúku
leðri.
Frægð og frami
framundan hjá
hinni ungu söng-
konu Jade
■ Popp-söngkonan Jade má
segja að sé „stóreign“, og sá
sem er eigandinn heitir I.arry
Page, og er umboðsmaður
poppara. Jade var ekki nema
17 ára, þegar Larry heyrði
hana syngja og hann varð svo
hrifinn að hann gerði strax
samning við stúlkuna, sem þá
hét Arlene Williams, frá Tony-
refail, MidGlamorgan. Hann
ákvað, að fjárfesta 250.000
sterlingspund í framtíð hennar,
- koma henni á framfæri og
stjórna henni á framabraut i-
inni.
Fyrst byrjaði umboðsmaður-
inn á því að gefa henni lista-
mannanafnið Jade, síðan setti
hann hana í tískuskóla svo hún
lærði að snyrta sig og koma
fram í tískufötum. Einnig
stundaði Jade söngnám, en lét.
gamla skólann sinn lönd og
leið.
Nú þegar er Larry Page
farinn að fá ágóða af fjárfest-
ingunni í Jade, því að plata
með söng hennar hefur runnið
út eins og heitar lummur, og
hún hefur þegar komið frma í
sjónvarpsþáttum í Bretlandi,
svo sem „The Video Entertain-
ers“ og „Summertime Special“,
eða sumargleði Bretanna.
Ráðgerð er ferð Jade til
Bandaríkjanna og Japans til
að kynna nýju plötuna. Jade
sagði, þegar hún var spurð um
hvernig henni líkaði: „Ég verð
að klípa mig í handlegginn, til
að vita hvort þetta er ekki allt
saman draumur.“
Jade hélt upp á afmæli sitt
með því að kaupa sér bleikan
sportbíl, og litla íbúð með
bleikum húsgögnum!
- Hvers vegna bleikt? Það
er svo sætur og dömulcgur
litur, sagði Jade.
■ „Bleikt er uppáhaldsliturinn minn,“ sagði Jade, „en framtíðin
er rósrauð".
Nokkuð
svartur
grikkur
■ Allir í réttarsalnum í Rio
de Janeiro voru sammála um
að þetta væri mikið grín, þegar
Ricardo Foreza stóð fyrir rétt-
inum og gaf vitnisburð um
framkomu sína. Hann sagði
„þetta var nokkuð svartur
gríkkur hjá mér, ég viðurkenni
það. Ákæran á hann hljóðaði
upp á ósæmilega framkomu.
Hann sjálfur gaf skýringu á
þessa leið:
„Þetta er satt og rétt sem ég
er ákærður fyrir. Ég tók sáp-
urnar á karlasnyrtingunni á
borgarstjórnarskrifstofunum
og setti i staðinn efni, sem gerir
það að verkum, að hörund
manna verður svart í nokkurn
líma.
Ég þurfti að fá upplýsingar
um smáatriði viðvíkjandi skött-
unum mínum, og mætti svo
miklum hroka og rembingi, að
mér fannst ég verða að gera
eitthvað til að ná mér niðri á
þeim. Ég þoli ekki hrokafulla
menn.
Dómarinn lét Foeza lausan
eftir að hafa gefíð honum
áminningu.
Nokkrum mínútum eftir að
sá ákærði hafði yfirgefíð réttar-
salinn gaus upp hin versta
fúleggjalykt. Þá sagði dyra-
vörðurinn: „Það virðist sem
þessi prakkari hafí skilið eftir
sig nokkrar ólyktarkúlur í
réttarsalnum. Honum hefur ef
til vill þótt dómarinn of hroka-
fullur.
Þetta varð til þess að Foreza
fékk 100 punda sekt fyrir vikið.