Tíminn - 18.11.1982, Side 1
■ í þessu húsi var eitt sinn frystihúsiðHrímnir á Siglufirði, en undanfarið hefur veríð þar beitingaaðstaða. Það er Hákon
Antonsson, sem siglir um og kannar skemmdir eftir ilóðið.
VIÐLAGATRYGGING
BÆTIR NÆR ALLT
TJÓN ÓVEÐURSINS
- hafi mannvirki verið
brunatryggð
■ Þessi mynd er einnig frá Siglufirði og húsið á myndinni gengur undir nafninu
Sheil bragginn, hann var notaður sem geymsla undir ýmsar olíuvörur. Bryggju sem
húsið stóð á skolaði undan því í óveðrinu. — Tímamyndir Róbert Guðfinnsson.
■ Viðlagatrygging mun að
öllum líkindum bæta mest allt
það tjón sem varð víða um land
í ofsaveðrinu í fyrradag. Lang-
mest tjón varð í Hrísey og á
Sauðárkróki og nemur tjónið á
þeim stöðum einum milljónum
króna. Engar endanlegar tölur
liggja fyrir varðandi heildartjón,
en þó er ljóst að það nemur
tugmilljónum króna á landinu
öllu.
Að sögn Magnúsar E. Guð-
jónssonar framkvæmdastjóra
hjá Sambandi íslenskra sveitar-
félaga, þá á viðlagatrygging
lögum samkvæmt að bæta allt
það tjón sem verður af völdum
flóða, hvort sem þar er um
sjávar- eða vatnsflóð að ræða, ef
viðkomandi hús og byggingar
sem tjón verður á eru bruna-
tryggðar. Nær trygging þessi
meira að segja til lausafjár sem
tryggt er samkvæmt brunatrygg-
ingu, en viðlagatrygging nær
ekki til foktjóna.
Pað tjón sem nú varð í
óveðrinu varð nær eingöngu af
völdum flóða og reikna verður
með að flestar byggingar sem
skemmdir urðu á séu bruna-
tryggðar. —ESE
Ung hjón með lítið barn íHllðunum:
FIÝSU ÚR ÍBÚMNNI
VEGNA MMIRAGANGS
■ Ung hjón með lítið bam hafa orðið að
flytja úr kjaliaraíbúð sinni í Hlíðunum
vegna mauragangs en ekki virðist hægt að
losna við þessa plágu með því að eitra fyrir
henni.
„Þetta gaus upp hjá okkur fyrst fyrir sex
mánuðum og þá vom þeir ■
þúsundavis. Síðan datt þetta niður í nokkra
mánuði en kom upp aftur nú“ sagði
heimilisfaðirinn Friðrik Sigurðsson í sam-
tali við Tímann.
„Þetta kom upp fyrst eftir að holræsalögn
hjá okkur stíflaðist og menn frá hreinsun-
ardeild borgarinnar höfðu lagfært stífluna
en ef þessi maur kemur á annað borð upp
á yfirborðið þá virðist það yfirleitt vera
eftir slíkar hreinsanir, a.m.k. sögðu þeir
sem eitruðu fyrir þessu okkur það“ sagði
Friðrik.
Hann sagði ennfremur að þessi maura-
tegund héti Ponera-punctassima og að
eitranir fyrir henni virtust ekki duga að
neinu ráði.
„Þannig er að til staðar er mauradrottn-
ing einhversstaðar djúpt í ræsunum og hún
virkar sem útungunarvél. Meðan ekki tekst
að vinna á henni er vonlaust að eitra fyrir
þessu.“
Sjá bls. 3.