Tíminn - 21.11.1982, Side 10

Tíminn - 21.11.1982, Side 10
Pólitíkus sem eitt sinn var mnnkur ■ Spurningakeppnin á dagskrá, rétt einu sinni. Formið er orðið gamalkunn- ugt og ætti að vera óþarft að útskýra það hér. Látum nægja að geta þess að hafir þú, lesandi góður, rétt svar strax í fyrstu vísbendinu færðu fimm stig, fjögur ef svarið kemur í annarri tilraun, þrjú fyrir þá þriðju og svo koll af kolli. Mest er því hægt að fá fimmtíu stig en minnst ekki neitt! Spurt er hvaðeina milli himins og jarðar. Pér, áðurnefndur lesandi, til saman- burðar eru hér neðst á síðunni tveir kappar að heyja sömu keppni. Sá heldur áfram eftir hálfan mánuð sem vinnur hinn. Svör eru við hlið krossgátunnar. 1. spurning Fyrsta vísbending Önnur vísbending Þriðja vísbending Fjórða vísbending Fimmta vísbending Hann er sagður hafa getað birst á tveimur stöðum í einu, stjórnað villidýrum, talað við höfuðskepnumar o.s.frv. Nafn hans þýðir enda „sjá- andi„ eða „spámaður“. Hann bjó til það fræga orð „fflósóP* sem merkir „vinur vísdómsins“ en er í flestum tungum notað yflr heimspek- inga. Hann fæddist á eynni Samos. Auk heimspekiiðkana var 1 hann stærðfræðingur og fyrir I það er hann frægastur nú; við 1 hann er kennt lögmál sem skóianemendur læra. 2. spnrning Aðalbær þessa lands er Borg heilags Jóhannesar. Þangað kom John Cabot fyrír enskum kaupmönnum 1497. . • En rúmum 200 áram fyrr hafði svonefndur Landa-Hrólfur gert þar tilraun til landnáms. Árið 1933 var landið lýst gjaldþrota og glataði sjálfstæði sínu. Þar er Vínland talið hafa verið. verið. 3. spurning Þetta ár var almyrkvi á sólu hérlendis, mestur á Suður- landi. Salka Valka var kvikmynduð í Grindavík. Nasser tók við völdum í Egyp- talandi. Steinkista Páls biskups fannst í Skálholti. Og stríð braust út í Alsír. 4. spurning Hér er spurt um pólitíkus; hann var einu sinni múnkur. Hann var eitt sinn viðriðinn söngkonuna Lindu Ronstadt. En í hópi stuðningsmanna hans er Jane Fonda talin vera, hann er sem sé amerískur. Og langar mikið til að verða forseti. Faðir hans var fyrrum ríkis- stjóri í Kaliforníu; það er ekki alveg laust við að sonurinn hafi fetað í fótspor hans. 5. spurning Á latínu heitir þetta „carccr“. En á spönsku t.d. „carcel" eða „calabozo“. Þýskarar segja „Gefángnis“... ...og Frakkar „geole“. Englendingar „prison“. 6. spurning Þessi maður fæddist í Meðal- nesi í Fellum í Norður-Múla- sýslu. Hann skrifaði m.a. bókina um Eirík Hansson. Einnig Vornætur á Elgsheiði. Og Brasilíufarana. Hann fluttist ungur til Kanada og bjó þar síðan. 7. spurning Einu sinni gekk þessi maður fram fyrir skjöldu til að verja Rubin no kkurn Carter gegn samsæri vondra manna. Hann lenti í mótorhjólaslysi og var lengi að ná sér. Konan hans fyrrverandi hét, ,og heitir væntanlega enn, Sara. Það vakti athygli er hann frelsaðist fyrir nokkra. Þetta er auðvitað hann Zim- mermann, eins og hann hét réttu nafni. 8. spurning Skepna þessi heitir á fræðimáli „cetorhinus maximus“. Og hún fastar þrjá fjóra mán- uði á ári, yfir veturinn. Þrátt fyrir mikla stærð og ógurlegt útlit er aðalfæðan jurtasvif. Þessi flskur, þvi flskur er það, á að geta orðið 21 metri á lengd. Hræ hans hafa iðulega verið álitin hræ af sjóormum eins konar. 9. spurning Sá fyrsti sem vitað er að bjó á þessum bæ var Baugur Rauðs- son. En á 17. öld bjó þar Gísli Magnússon sýslumaður og framfaramaöur. Þar fæddist Þorlákur biskup helgi. Og þar ólst Bjarni Thorarens- en upp. Þar bjó, og dó, Gunnar nokkur Hámundarson. 10. spurning Maður þessi er frægastur þeirra sem vom í hljómsveit- inni Lísu. En lengst var hann í Pónik og Einar. Hann samdi lagið Braggablús. Og eins Einhversstaðar ein- hveratúna aftur. Og auðvitað Draumaprinsinn. / Utvarpsmaðurinn sigraði jarðfræðinginn ■ Að þessu sinni eru keppendur okkar í spurningarleiknum þeir Oddur Sigurðs- son járðfræðingur hjá Orkustofnun, sem sigraði síðast, og Ævar Kjartansson dagskrárfulltrúi hjá Ríkisútvarpinu. Keppnin varð jöfn og hörð, og litlu munaði að þeir skildu jafnir. Á endanum skildi eitt stig þá að. En lítum nánar á stigin: Oddur og Ævar biðu báðir eftir síðustu vísbendingu til að átta sig á því hvað um væri spurt. Báðir fengu eitt stig. Næst áttaði Oddur sig eftir aðra vísbendingu, en Ævar beið eftir þeirri síðustu. Fær Oddur 4 stig, en Ævar áfram 1. í þriðju spurningu urðu þeir enn að. bíða eftir síðustu vísbendingu og gátu þá rétt. Þeir fá eitt stig hvor um sig. í fjórðu spurningu gataði Ævar og kom nafninu ekki fyrir sig. Oddur mundi nafnið þegar hann hafði fengið aðra vísbendingu og fær 4 stig. í fimmtu spurningu kom spænsku- kunnáttan Ævari að gagni og hann gat upp á réttu svari í annarri vísbendingu, en Oddur í þeirri þriðju. Oddur fær 3 stig, en Ævar 4. Varla var spyrill búinn að láta frá sér fyrstu vísbendinguna þegar Oddur svar- aði rétt. Ævar hinkraði við en gat síðan í 4.atrennu. Oddur fær stig en Ævar 2. í sjöundu spurningu reyndist Oddur alveg standa á gati. Ævar hafði rétt svar á reiðum höndum í annarri tilraun og fær fjögur stig. Áttunda spurning reyndist báðum jafnerfið og það var ekki fyrr en fjórða vísbendingin kom að þeir gátu báðir rétt. Tvö stig á mann. í níundu spurningu fékk Oddur eitt stig, en Ævar var fyrr til að átta sig og uppskar 4 stig fyrir það. Tíunda spurningin reyndist úrslita- spurningin. Þar fékk Ævar þrjú stig en Oddur ekkert. Þegar þessi úrslit lágu fyrir rannsök- uðu dómarar skýrslur sínar og kváðu ■ Ævar Kjartansson. upp þann úrskurð að Ævar Kjartansson hefði sigrað með 22 stigum, en Oddur lotið í lægra haldi með 21 stigi. ■ Oddur Sigurðsson. Við þökkum Oddi fyrir samveruna og ágæta keppni, og bjóðum Ævar velkom- inn til næstu keppni.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.