Tíminn - 21.11.1982, Side 13

Tíminn - 21.11.1982, Side 13
SUNNUDAGUR 21. NOVEMBER 1982 13 ast fór í saumana á umræðunni um Vínlandskortið var Haraldur Sigurðsson bókavörður, sem er fróðastur manna hér á landi um landakort fyrri alda og m.a. höfundur Kortasögu Islands í tveimur bindum. í grein í tímaritinu Sögu 1967 leiðir Haraldur að því rök að ef kortið sé ófalsað hljóti það að vera yngra en útgefendur haldi fram, og að auki af öðrum stofni en þeir telji réttast Það geti ekki verið yngra en frá því um 1500, en þá hafði Kólumbus fundið Ameríku. Kemst hann að þessari niðurstöðu með því að bera það saman við önnur þekkt landakort, og samanburði texta kortsins við þekktar ritheimildir. Haraldur getur þess að sumir fræði- menn telji Vínlandskortið falsað. í þeim hóp sé m.a. prófessor Eva Taylor, kunnur breskur sérfræðingur um foma siglingafræði og sögu landafundanna, sem staðhæfi að kortið sé nútíma fölsun. í ritgerð sem hún birti í Sunday Times (endurbirt í Vísi 12. mars 1966) telur hún upp allmargt korta og kortasafna sem hún hyggur að liggi til grundvallar fölsuninni. Aðrir fræðimenn hugðu kortið fremur. ófalsað en hitt, þótt þeir hefðu sitthvað við tímarök útgefenda og önnur vinnu- brögð að athuga. G.R. Crone, kunnur sérfræðingur í kortasögu, taldi kortið ekki gert fyrr en eftir fund Ameríku í lok 15. aldar oghöfundur þess hafi þekkt fornar frásagnir af Vínlandsferðum ís- lendinga og nýjar af síðari fundi Amer- að játa trú á gripinn í dagblöðum og vitna við hátíðlegar athafnir en heyra hlutlausa gagnrýni af vísindamönnum þeirra lærdómsgreina sem kortið snertir...“ Halldór vitnar í ritgerð Evu Taylor þar sem hún segir: „Einsog við er að búast, þá kemur falsari einatt uppum sig af því það vantar herslumuninn á að hann kunni það sem hann er að bauka við.“ Frúin bendir á þann annmarka kortsins sem allir reka augun í um leið og litið er á það, en það er mynd Grænlands; hún er óþekkjanleg frá Grænlandi einsog það er dregið upp á hvejru 2ostu-aIdarkorti í sömu hlut- föllum. Ef tekið væri mark á að grænlandsmynd Vínlandskortsins kæmi frá íslendíngi á 13du öld hlyti það að leiða til þeirrar ályktunar að norrænir menn hefðu siglt kríngum Grænland, í alltað 6 mælistiga fjarlægð frá norður- skrautinu, á opnum skipum sínum. ... Svona kort af Grænlandi er fjarstæða áðuren menn höfðu kríngsiglt landið á 19du öld.“ Loks vitnar Halldór Laxness til fyrrum forseta breska landfræðifélagsins Sir. James Marshall Cornwall. H ann hefur „ekki viljað taka dýpra í árinni en svo að telja þann annmarka á Vínlandskort- inu helstan, að það sanni ekki neitt né breyti neinu sem ekki var áður vitað. Enskt understatement, það sem við köllum að hafa taumhald á túngu sinni, kemst stundum nokkuð nærri kjarna máls.“ ■ „Þetta er kort úr myrkri“ skrifaði Halldór Laxness. ■ Haraldur Sigurðsson sýndi fram á að kortið gæti ekki verið frá því um 1440. íku. Auk þess dregur hann í efa að sama rithöndin sé á kortinu og fylgiritum þess. Francis Wormald, kunnasti sérfræðingur Breta á fornar rithendur, tók í sama streng. Vínlandspúnktar Halldór Laxness var einn þeirra sem gagnrýndu Vínlandskortið hér á landi. í bók hans Vínlandspúntkum átelur hann pukrið í kringum kortið og telur „þar- með girt fyrir raunverulega rannsókn þess; þetta er kort úr myrkri" segir hann. Og Halldór heldur áfram: „Einsog áðan var getið gerir ritverk það sem kortinu fylgir þann réttarlega áskilnað af hendi höfunda, að einginn má skírskota til bókarinnar, hvortheldur í lángri eða stuttri uppprentun úr textan- um, nema samkvæmt skriflegu leyfi. Þó mega dagblöð vitna í ritið undir nafni ábyrgra ritdómara sinna. Minnir óþægi- lega á skilyrði sem miðlar setja á andafundum; umfram alt slökkva ljósin. I þessu falli er bersýnilega meiri áhersla lögð á að fá lítt dómbæra heldrimenn til Efnarannsókn leiðir fals í Ijós Þrátt fyrir allar þær efasemdir um kortið sem hér hafa verið raktar voru þeir nógu margir til að trúa því að það væri ófalsað til að unnt væri að ferðast með það víða um heim og sýna lærdómsmönnum og almenningi við hátíðlegar athafnir. Árið 1974 leiddu hins vegar efnafræði- legar rannsóknir Bandaríkjamannsins Walter McCrone í ljós að kortið gat ekki hafa verið gert á þeim tíma sem vísindamenn við Yale héldu fram. í kortinu fundust efni sem ekki voru til á 15. öld, og að öllum líkindum ekki fyrr en á 20. öld. Þessi niðurstaða McCrone batt enda á frægðarsögu kortsins, og þegar hún lá fyrir rifjuðu menn upp þann leyndarhjúp sem hvílt hefuryfiruppruna kortsins og ályktuðu að það hefði ekkert fræðilegt gildi. Sú skoðun er enn ríkjandi, og Vínlandskortið sem áður naut öflugrar lögregluvemdar allan sólar- hringinn rykfellur nú í bókageymslum háskólasafnsins í Yale. „í landi auðnar og dauða“ ■ Út er komin hjá Iðunni ný saga eftir hinn kunna breska höfund, Hammond Innes. Nefnist hún í landi auönar og dauða og er sextánda bók höfundar sem út kemur á íslensku. Álfheiður Kjartans- dóttir þýddi. Saga þessi gerist á Labrador. Efni hennar er kynnt á þessa leið á kápubaki: „Frá eyðislóðum Labrador barst neyð- arkall. Enginn heyrir það nema lamaður fyrrverandi loftkeytamaður, og nú er hann dáinn, eftir stendur aðeins hrafl í minnisbók. Ferguson er sannfærður um að faðir hans heyrði þessi radíóboð í raun og veru, en hvernig á hann að sannfæra menn um að þetta hafi verið annað en hugarórar sjúks manns? Og það því fremur sem enginn lifandi maður var á þessum slóðum þegar boðin voru send. Eða hvað?“ í landi auðnar og dauða er 220 blaðsíður. Prentrún prentaði. Draumur barna barbie dúkkur föt bílar húsgögn barbie hestar barbie sundlaugar barbie píanó Fisher-Price leikföng barbie hundasleðar Leikfanga húsið Sími 14806 Póstsendum —r Sunnudagsstund með Jóni Baldvini og Bryndísi á Broadway sunnudaginn 21. nóv. kl. 14:30 Dagskrá fyrir alla fjölskylduna: Eftirtaldir listamenn koma fram: Snæbjörg Snæbjarnar og Sigfús Halldórsson Haukur Morthens Aðalsteinn Bergdal og Ragnheiður Steindórsdóttir Þorgeir Ástvaldsson Nikki Vaughan Atli Heimir spilar ragtime Jón Baldvin talar Sigurður E. Guðmundsson, og Sjöfn Sigurbjörnsdóttir, flytja stutt ávörp Ferðakynning frá Útsýn Bingó: vinningar ferð með Útsýn o.fl. Skólalúðrasveit Árbæjar og Breiðholts leikur í upphafi fundar undir stjórn Ólafs L. Kristjánssonar Hljómsveitin Hafrót leikur nokkur lög Bryndís og Laddi skjótast inn á milli atriða. Kynnir: Bryndís Schram Þetta er sunnudagsstund fyrir alla fjölskylduna Allir velkomnir Aðgangur ókeypis Stuðningsmenn Jóns Baldvins í prófkjöri Alþýðuflokksins helgina 27. og 28. nóv. 1982

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.