Tíminn - 21.11.1982, Blaðsíða 23

Tíminn - 21.11.1982, Blaðsíða 23
Smuga á völiuidarhúsinu — „í Dyflinni” eftir James Joyce Jamcs Joyce: í Dyflinni Sigurður A. Magnússon íslenskaði Mál og menning 1982 ■ Með árunum hefur aukist óttinn við Joyce. Hann er nú viðurkenndur sem einhver stórkostlegasti og altént einn áhrifamesti rithöfundur á þessari öld, en eins og vanalega fylgir böggull skamm- rifi. Eftir því sem skilgreiningum, skýr- greiningum og rannsóknum á verkum hans hefur fjölgað þá hefur Joyce lokast tryggilegar inni í völundarhúsi fræði- mennskunnar, og nú er svo komið að margir virðast álíta að völundarhúsið sé Joyce og Joyce völundarhúsið. (Hann lagði nú svo sem sitt af mörkum til þess, blessaður.) Skrifaði hann ekki bara eitthvert rosalegt torf, gasalega menn- ingarlegt og merkilegt, en ekkert fyrir venjulegt fólk. Jæja, hér hafa íslending- ar fengið tækifæri til að sannreyna að Joyce var þrátt fyrir allt aðeins rit- höfundur með sömu markmið og aðrir slíkir, en að sönnu sínar eigin leiðir. í Dyflinni eru fimmtán smásögur þar sem Joyce leitast við, og tekst, að lýsa heimabæ sínum og fólkinu þar. Ekkert torf, ekkert menningarlegt og akkúrat fyrir venjulegt fólk. Svoleiðis sögur eru óteljandi. Undir snyrtilegu yfirborði Joyce býr aftur á móti óvæntur hlutur; nefnilega sjálf snilligáfan. Uppgjöf eða uppreisn Eað mun hafa farið framhjá fáum að á þessu ári eru rétt hundrað ár liðin frá því Joyce kom í þennan heim; hann kvaddi árið 1941. Hann ólst upp í Dublin og milli hans og borgarinnar tók snemma að þróast undarlegt ástarhaturssam- band. Hann var með Dublin á heilanum; það er engin frágangssök að segja að hann hafi unnað þessari borg, en enginn sá betur en hann missmíðarnar á henni en einkum íbúum hennar. Smásálarhátt- urinn, hrokinn, óttinn og einmanaleik- inn, vonbrigðin og vítahringurinn - allt lá þetta í augum uppi og á árunum 1904-06 skrifaði Joyce smásögur til að lýsa því. Með tilliti til þess hversu heitar tilfinningar Joyce bar til Dublin og íbúanna þar mun líklega koma ýmsum á óvart hve hljóðlátar þessar sögur virðast vera. Einu gildir hvílíkri örvænt- ingu hann er að lýsa, hvílíkri heimsku og ruddaskap; aldrei grípur hann til ódýrs skops eða stóryrða. Þegar upp er staðið kemur vitanlega í ljós að þessi aðferð, sem virðist svo kurteisleg, hefur reynst máttugri í höndum Joyce en skopstælingin eða ógurlegur reiðilestur í höndum annarra. Þema flestra eða allra sagnanna er ýmist uppgjöf gagnvart þrúgandi um- hverfi, eða misjafnlega markvissar upp- reisnartilraunir gegn því hverfi. í sög- unni „Eveline" hefur umhverfið kúgað svo unga stúlku að hún þorir ekki að leggja út í ævintýri með unnusta sínum, brjötast burt. í „Skýhnoðri" rennur það upp fyrir manni hversu fánýtt og lítilsiglt líf hans er þegar hann hittir þann mann sem hann hefði sjálfur getað orðið - kannski. í „Samstæðum“ er því lýst hvernig hver kúgar annan; í „Arabíu" hrynja draumar skólapilts um æsandi framandleika til grunna; „Náð“ lýsir hinni kölkuðu gröf kirkjunnar sem Joyce sleit sig snemma frá, og „Minning- ardagur á kosningaskrifstofunni“ fjallar á svipaðan hátt um pólitíkusa; tilveran í „Tveimur kvalérum" er hreint út sagt ömurleg. Og svo framvegis og svo framvegis. í síðustu sögunni og þeirri lengstu, „Framliðnum", kemur svo dauðinn sjálfur til skjalanna; í einu eða öðru formi má kalla hann meginþema allra sagnanna. Þessi saga um valdið sem hinir framliðnu hafa yfir þeim sem eftir lifa hefur löngum verið talin hin besta í safninu. Ef Joyce hefði leyft sér að gefa þessari sögu viðlíka lykilorð og hann gerði með nafninu á Ulysses, þá hefði þessi saga verið látin heita „Orfeus". Vald Joyce á slfl sínum Það er sem sé ekkert sérstaklega létt yfir Dublin þeirri sem Joyce segir frá í sögum sínum. Þær eru ekki gamansögur en þær eru heldur ekki dapurlegri en ástæða er til. Hér má alveg vitna til formála þýðandans, Sigurðar A. Magn- ússonar: „Þær eru einungis það sem þær eru: fullgerðar myndir sem þola mætavel nánari skoðun og leiða lesandann þang- að sem höfundur ætlar sér og vekja með honum tilfmningu listrænnar lausnar: þetta er rétt, ómótmælanlegt, fullgert." Þetta með nánari skoðun, það er alveg satt. Þó þessar sögur virðist einfaldar á ytra borði er það fjarri sanni þegar nánar er að gáð. Það má njóta þeirra mjög vel sisona, en það má líka sökkva sér ofan í þær - ekki síður en hin sfðari stórvirki Joyce - þræða Dublin þvera og endilanga eftir þeim, kanna list höfundarins í hnitmiðuðum persónulýsingum sem virðast svo auðveldlega upp dregnar og síðast en ekki síst hvemig hann notar sér stílinn. Að líkindum hefur enginn höfundur, hvorki fyrr né síðar, notað stílinn jafn markvisst, beygt hann jafn miskunnarlaust undir vilja sinn. Það má efunarlaust finna höfunda sem eru glæsilegri stílistar að eðli, en sá er vandfundinn sem hefur jafn afdráttar- laust vald á tóli sínu. Því látið ykkur ekki detta í hug að Joyce hafi sett eitt einasta orð á blað án þess það gegndi sérstökum tilgangi; einmitt þetta orð en ekki eitthvert annað. Nákvæmlega þetta orð er það sem viðkomandi persóna myndi nota við tilteknar aðstæður því, vel að merkja, kemur höfundurinn sjálfur hvergi nærri. Frásagnaraðferðin, orða- valið; hvorttveggja er brennt marki þeirra persóna sem segir frá í það og það skipti. Þetta er það sem bandaríski (eða er hann kanadískur?) bókmenntafræð- ingurinn Hugh gamli Kenner hefur kallað „Lögmál Charles frænda" eftir einni persónunni í Portrait of the Artist as a Young Man. Það segir sig sjálft að slíkt getur verið erfitt, eða illmögulegt, ■ James Joyce - „með Dublin á heilanum“. að þýða en mér þykirsamt að Sigurður A. Magnússon hefði mátt gæta meiri nákvæmni. Svo ég taki eitt dæmi - sem líka er komið óbeint frá Mr. Kenner - fyrstu setninguna í „Framliðnum“. Lily, dóttir umsjónarmannsins „Lily, the caretaker’s daughter, was literally run off her feet.“ Þetta þýðir Sigurður A. Magnússon svo: „Lily dóttir umsjónarmannsins fékk bókstaflega ekki stundlegan frið.“ Jæja? Málið er að íslensku þýðinguna má til sanns vegar færa; það getur vel verið að Lily hafi ekki fengið frið eina einustu stund. „Run off her feet“, er aftur á móti orðtak sem stenst auðvitað ekki í þessu sambandi. Engu að síður notar Joyce orðið „bókstaflega" um líkingu. Hvers vegna? Jú, vegna þess að orðið „bókstaf- lega“ er komið frá Lily, dóttur umsjón- armannsins. Það er hún sem segir að hún hafi „bókstaflega“ verið komin að fótum fram - eða eitthvað í þá áttina - þó hún hafi í raun og veru alls ekki verið það. Þetta er sem sé örlítið smáatriði sem lýsir stúlkunni Lily en glatast í íslensku þýðingunni. Fleiri dæmi mætti tína til, en ég ætla að láta þetta nægja. Önnur ■ Sigurður A. Magnússon - „Þetta er rétt, úmótmælanlegt, fullgerf". ónákvæmni í þýðingunni er að stundum eru götunöfn þýdd, stundum ekki, ög ég kann alls ekki við að nafnið á Dublin sé þýtt. Dyflin er tilgerðarlegt orð, þykir mér, en það er víst smekksatriði. Það er á hinn bóginn hárrétt sem Sigurður A. Magnússon segir í formála að erfitt sé fyrir okkur að gera okkur grein fyrir því hversu óvenulegar og í raun frumlegar þessar sögur voru þegar þær komu fyrst út á bók. Síðan eru liðin tæp sjötíu ár (þær komu ekki út fyrr en 1914) og ótal höfundar hafa reynt með mísjöfnum árangri að tileinka sér aðferð- ir Joyce. Líkast til hefur engum þeirra tekist jafn vel upp og honum sjálfum. Maðurinn var séní! Það er í sjálfu sér þakkarvert að hann sé nú kynntur íslendingum, þó ekki væri til annars en þeir sjái að hann var hvorki skrímsli né völundarhús heldur bara rithöfundur. Mjög góður rithöfundur. Illugi Jökulsson skrifar um bók- menntir A GLERBROTABALLI Páll Pálsson: Hallærisplanið, Iðunn 1982 ■ Nokkur undanfarin ár hafa svolítið verið í tísku bækur sem greina opinskátt og á nýjan hátt frá unglingsárunum; áhugamálum unglinga, vandamálum og tilhugalífi. Og þá vel að merkja oftast frá þeirra sjónarhorni. Meðal þessara höfunda eru Pétur Gunnarsson, Egill Egilsson og Ólafur Gunnarsson, svo einhverjir séu nefndir. í þennan hóp má nú setja Pál Pálsson og hans fyrstu bók, Hallærisplanið. Oft fannst mér hún líka minna mig sterklega á bók Péturs, Ég um Mig frá Mér til Mín. Það er greinilegt að höfundur þessarar bókar, þekkir út í ystu æsar söguefni sitt. Þar héld ég að ekkert gerist, sem ekki gæti' átt sér stað. Við lesturinn fannst mér það einmitt einn höfuðkosturinn; frásögnin öll er trúverðug og persónur flestar líka. Aðalpersónan er Eiríkur og bekkjarsystkini hans. Foreldrarblandast að sjálfsögðu líka í málið, en gera ekki miklar kröfur um persónusköpun. Höf- undur dregur á hinn bóginn upp skýra mynd af nokkrum „venjulegum" ung- lingum. Um það bil helmingur bókarinn- ’ ar gerist á einu kvöldi. Þarer lýst, — held ég megi segja - dæmigerðu unglingafyll- eríi... „Ha? sagði Mogginn“ Samúð höfundar er unglinganna megin, í togstreitunni við foreldra sína, fmnst þeir lítt áhugasamir um afkvæmin. „Mamman hékk bara í símanum og pabbinn bakvið Moggann." (46) Annað dæmi má taka, þegar Eiríkur þarf að biðja föður sinn um peninga: „Eh, hérna pabbi, hvíslaði hann að Mogganum. - Pabbi... Humm, varstu að segja eitthvað væni minn, sagði Mogginn.“ En það verður líka að segjast, að áhugi aðal- persónunnar, Eiríks, er frekar takmark- aður, á samskiptum við foreldrana. Og stúlkan sem hann er hrifinn af, finnst það tómur slettirekuskapur, þegar móðir hennar færir þeim kók og popp. „Hún er bara að fylgjast með því að við séum ekki að gera neitt ljótt af okkur. Það er alltaf eins og maður sé smábarn. Aldrei treyst til neins. Ég meinaða. Ekki ætla ég að tortryggja mín börn svona þegar þar að kemur.“ (39-40) Eiríkur er semsagt ástfanginn. Eða er í það minnsta sannfærður um það. Og hann lætur sig dreyma um að „þau mundu eiga heima í gömlu húsi í Vesturbænum, sem búið var að gera töff. Flottan bíl. Það yrði miklu skemmtilegra að fara í bíltúr með Stínu og börnin... Börnin?... Pabbi,... Það yrði skrítið að vera sjálfur pabbi. Hann ætlaði að vera miklu skemmtilegri við sin börn, en pabbinn við hann. Ekki eyða samverustundum sínum með fjöl- skyldunni á bakvið Moggann.“ (41) Fálmkenndum ástartilburðum Eiríks lýsir höfundur einkar skemmtilega. Svo og efanum og vangaveltunum...“ skyldi hún vilja mig??“ Það fer lítið fyrir rósrauðum ástarsenum: „Hann vildi aldrei hætta. Það var svo gott að kyssa hana. Helst vildi hann vera svona alltaf. Loks, eftir um það bil kortér, dró Stína tungu sína til baka, lokaði munninum og kyngdi. Hún var að drukknaúr slefi.“ (40) ...einsog almennilegur maður Sem áður var á tæpt, gerist helmingur bókarinnar á einu kvöldi. Þar fylgjumst við með Eiríki og vinum hans, - sem lenda í ýmiss könar uppákomum. Þeim sem ekki til þekkja, þykir kannski frásögnin t.a.m. af Hallærisplaninu ós- ennileg eða út í hött. En kunnugum kemur hún á hinn bóginn einkar trú- verðuglega fyrir sjónir. Og þar liggur hundurinn grafinn; höfundur er svosem ekki að segja neitt nýtt, en hinsvegar er tillegg hans þeim mun skemmtilegra og fróðlegra fyrir sakir hins raunverulega umhverfis sem honum tekst að skapa og persóna sem hann glæðir lífi. Og höfundur hefur lag á því að vera svolítið fyndinn stundum. Oftast undir rós, og nóg er af orðaleikjum. ■ Páll Pálsson: „Samúð höfundar er unglinganna megin...“ . Það er skoðun mín að höfundur hafi beitt ansi vönduðum vinnubrögðum við ritun þessarar bókar. Hvergi, - svo ég fengi auga á komið - voru alvarlegir hnökrar á stíl eða framsetningu. Ég held að þessi bók gæti orðið mörgum um- hugsunarefni, sem hingað til hafa býsn- ast og hneykslast á unglingum fyrir það að safnast saman, skemmta sér og drekka brennivín. Það er staðreynd, sem ekki verður framhjá horft. „Djöfull vildi ég að maður kæmist á Borgina. Ævar blés reyknum útámilli gnístra tannanna og fékk sér sjúss. - Þá gæti' maður sko fengið sér í glas einsog almennilegur maður og setið við borð. Hinir voru sko sammála. Eða Óðal. Ekki væri það verra. í staðinn skelltu þeir sér á glerbrota- ballið í Fógetagarðinum." (82) Hallærisplanið segir ekki margt nýtt. En höfundur setur efni bókar sinnar fram á læsilegan og oft á tíðum hnyttinn hátt. Hann tekur fyrir efni, sem hefur verið hitamál lengi, - og hann gerir það vel og af skilningi. Ég vil að lokum óska hinum nýja höfindi til hamingju með verk sitt, þar er svosem ekki á ferðinni neitt meiri- háttar bókmenntaverk - enda varla ætlunin - hinsvegar bók sem skrifuð uppúr raunveruleikanum. Og skrifuð vel. Svo legg ég til að bókin verði gerð að skyldulesningu fyrir uppalendur... - Hrafn Jökulsson

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.