Tíminn - 30.11.1982, Síða 3
ÞRIÐJUDAGUR 30. NÓVEMBER 1982
fréttir
Allt tiltækt lið lögreglu og hjálparsveita á
höfuðborgarsvæðinu kallað út í óveðrinu:
Aberanm hve menn voru
VANBÚNIR TIL VETRARAKSTU RS
Segja má að allt lögreglulið Reykja-
víkur og nágrannabæja hennar hafi
verið upptekið í u.þ.b. 5 tíma í
fyrrakvöld við að aðstoða ökumenn í
óveðrinu sem þá gekk yfir. Auk lögreglu
voru björgunarsveitir kallaðar út og
hjálparsveitir skáta, en svo giftursam-
lega tókst til að ekki er vitað til að slys
hafi orðið á mönnum svo orð sé á
gerandi. Neyðarástand ríkti á vegum allt
frá Hafnarfjalli til Reykjavíkur, í borg-
inni sjálfri, á Keflavíkurveginum og
leiðinni austur yfir fjall. Bflar fuku út af
vegum, en hálka var gífurleg og mikið
var um að bflar tækju inn á sig bleytu
og dræpu á sér.
í Reykjavík var ástandið verst í
Breiðholti, þar sem mikið var um að fólk
þyrfti að ganga frá bílum sínum og skilja
þá eftir á götunum. Strætisvagnaferðir
lágu að mestu leyti niðri um tíma og
þurfti lögreglan meðal annars að aðstoða
mikinn fjölda unglinga og barna, sem
ekki komst heim til sín eftir bíóferðir.
Vitað er um eina konu sem þurfti að
flytja á slysavarðstofuna til aðhlynningar
eftir að hafa þurft að ganga frá bíl sínum
þegar óveðrið stóð sem hæst. Hjálpar-
sveit skáta og flugbjörgunarsveitin að-
stoðuðu lögregluna, sem þurfti að nota
rútur til að flytja fólk heim til sín.
Jafnframt tók lögreglan á leigu marga
jeppa á bílaleigu til sömu nota. Það var
álit Reykjavíkurlögreglunnar að fólk hafi
verið mjög vanbúið og mikið um að bílar
sem lentu í vandræðum væru á sumar-
dekkjum.
Sá varla fram fyrir
höndina á sér
„Kófið var svo mikið að maður sá varla
fram fyrir höndina á sér sagði lögreglu-
maður í Hafnarfirði," en mikið
vandræðaástand skapaðist á Arnarnes-
hæðinni. Fólk varð að ganga frá bílum
sínum þar sem þeir voru komnir.
Óveðrið hafði greinilega komið fólki í
opna skjöldu, flestir voru aðeins búnir
til að skreppa milli húsa í venjulegar
sunnudagsheimsóknir. Til dæmis vai
lögreglan með nokkurra mánaða gamalt
barn og foreldra þess í bíl sínum á annan
tíma. Kjósin og Kjalarnesið heyrir undir
Hafnarfjarðarlögregluna og þar voru
björgunarsveitir frá Hafnarfirði og úr
Mosfellssveit að störfum, en mjög
■ Lögreglumenn höföu nóg að starfa meðan óveðríð gekk yfir.
margir lentu þar í vandræðum. Hafnar-
fjarðarlögreglan sagði að það hefði verið
sláandi hve margir hefðu verið á
sumardekkjum, og hefði það verið megin-
ástæðan fyrir hve margir bílar stöðvuð-
ust og tepptu aðra umferð.
Biðu í bflum sínum
á þriðja tíma
Keflavíkurlögreglan hafði nokkuð
Tímamynd Róbert
aðra sögu að segja en starfsbræður
þeirra í Reykjavík og Hafnarfirði varð-
andi búnað fólks og bíla, flestir voru
ágætlega búnir en það dugði ekki til.
Margir bílar lentu í vandræðum á
Keflavíkurveginum vegna kófs og veður-
hæðar og margir fuku út af veginum. Hins
vegar sýndi fólk rósemi og beið í bílum
sínum þar til hjálp barst frá lögreglu og
hjálparsveitum, sumir á þriðja tíma.
JGK
Sendinefnd frá Bremerhaven
ræðir við LÍÚ og stjórnvöld:
Vilja jafnari sölur ís-
lenskra f iskiskipa
■ Jón Baldursson, með höndina á tígulfimmunni, og Sævar Þorbjömsson við
spilaborðið í Reykjavikurmótinu í tvímenning. Guðlaugur Nflsen er sagnhafi en
blindur er Gísli Tryggvason. Sveinn Helgason og Elín Bjarnadóttir horfa á.
Jón Baldursson
með MþrennuM
á Skaganum
■ Um helgina héldu Bridgeklúbbur
Akraness og Hótel Akraness Opna
Hótel Akranessmótið í bridge. 28 pör
frá Akranesi, Reykjavík, Hafnarfirði og
Keflavík tóku þátt í mótinu og því lauk
með yfirburðasigri Jóns Baldurssonar og
Sævars Þorbjörnssonar sem fengu 259
stig yfir meðalskor. í öðru sæti voru
Eríkur Jónsson og Jón Alfreðsson með
137 stig og í þriðja sæti Alfreð Viktors-
son og Karl Alfreðsson með 132 stig.
Alls voru 20.000 krónur í verðlaun á
mótinu: 10.000 krónur fyrir fyrsta sætið,
6.400 krónur fyrir annað sætið og 3.600
fyrir það þriðja. Jón og Sævar tóku
forustuna þegar mótið var hálfnað og
sigur þeirra var aldrei í hættu. Baráttan
um hin verðlaunasætin var hörð í lokin
en heimamennirnir voru sterkastir á
endasprettinum því bæði pörin í öðru og
þriðja sætinu eru frá Akranesi.
Þetta er í þriðja skiptið sem Akranes-
búar halda helgarmót í bridge og Jón
Baldursson hefur unnið öll þjú mótin, í
fyrstu tvö skiptin með Val Sigurðssyni.
- GSH
■ Níu manna sendinefnd frá vestur-
þýska útgerðarbænum Bremerhaven er
nú stödd hér á landi í því skyni að ræða
við forráðamenn Landssambands ís-
lenska útvegsmanna og stjórnvöld um
möguleikana á jöfnum og stöðugum
sölum íslenskra fiskiskipa í Bremerha-
ven. Steingrímur Hermannsson, sjávar-
útvegsráðherra átti viðræður með þess-
um sömu aðilum úti í Þýskalandi í haust
og buðust þeir þá til að tryggja íslenskum
útgerðarmönnum ákveðið láginarks-
verð, ef nægilegt hráefni fengist.
Að sögn Kristjáns Ragnarssonar,
formanns LfÚ þá áttu sendinefndar-
menn viðræðufund með stjórnar-
mönnum LÍÚ þegar eftir komuna til
landsins og verður þeim fundum fram-
haldið í dag. Þá munu Þjóðverjarnir
jafnframt ræða við Steingrím Hermanns-
son í sjávarútvegsráðuneytinu, en segja
má að þessi sendinefnd sé að nokkru
leyti sambærileg við sendinefndina frá
Fleetwood í Englandi sem var hér á ferð
fyrr í þessum mánuði. Það eina sem þar
skilur á milli er að Bremerhaven er öflug
höfn, en Fleetwood að opna aftur eftir
umtalsverða örðugleika í tæpt ár.
í sendinefndinni frá Bremerhaven,
sem nú reynir að laða íslenska útgerðar-
menn til að selja þar gegn föstu
lágmarksverði og sleppa þannig við
fiskuppboðin, er viðskiptaráðherra
Bremen-héraðs; sérfræðingur frá sjávar-
utvegsraouneytmu, ytirmaður tiskmark-
aðarins, tveir útgerðarmenn og þrír
fulltrúar fiskvinnslunnar í borginni.
- ESE
Aöalfundur LIÚ:
Félagi úr Alpa-
klúbbnum
týnist fTind-
fjöllum:
Fannst
eftir
mikla
leit
■ Mikil leit var gerð að einum
meðlima Alpaklúbbsins 17 ára strák
í Tindfjöllum á sunnudagsnóttina en
hann hafði þá um orðið viðskila við
félaga sína. Fannst maðurinn svo um
fjögur leytið um nóttina en hann hafði
grafið sig í fönn.
„Við vorum á leið úr efsta skálanum
í Tindfjöllum og niður í þann neðsta
er allt í einu skall á okkur blindbylur.
Við höfðum talað um að halda hópinn
og er strákurinn þurfti að stoppa biður
aftasti maður okkur alla að stoppa
einnig og bíða eftir honum. Hann
hefur svo farið framhjá okkur, en
skyggni var ekki ncma um 3-4 metrar.
Við áttum þá stutt í ncðsta skáiann,
fórum þangað og settum útbúnað
okkar inn og ljós í gluggann og hófum
svo leit“ sagði Guðjón Magnússon
formaður Alpakiúbbsins Fsamtali við
Tímann en hann var með hópnum.
„Þetta var síðdegis um daginn og
leituðum við í þrjá tíma en héldum svo
aftur í skálann enda ekki forsvaranlcgt
að tapa fleiri mönnum, Tvcir voru
síðan sendir niður í byggð að ná í hjálp
og komu Ieitarsveitir um kl. 22
uppeftir og þá hófst leit aftur. Veður
hafði þá skánað að mun. Sá sem villtist
hafði grafið sig í fönn og hélt þar til í
svefnpoka sínum en um nóttina fór
hann á stjá til að halda á sér hita, sá
þá vélsleða leitarmanna og cltu þá
uppi“.
Guðjón sagði að þeim sem villtist
hefði ekki orðið meint af volkinu. Þátt
tóku í leitinni björgunarsveitirnar
Dagrenning á Hvolsvelli, Flug-
björgunarsveitin á Hellu og Tryggvi á
Selfossi.
-FRI
Trúnadarrádið kallad
saman 15. desember
Kaupmáttarskerðing næstu níu
mánuöi vegna
bráöabirgðalaganna:
Um 2% að mati ASÍ
— ef viöunandi lausn á vanda
útgerðarinnar liggur ekki fyrir
■ Skerðing kaupmáttar vegna bráða-
birgðalaganna er talin verða 2-2,5%
næstu 9 mánuðina (til loka
samningstímabilsins) að mati ASÍ, sé
tekið tillit til sérstakra áætlaðra láglauna-
bóta og aukins orlofsréttar, að því er
fram kemur í „annál kjaramála" frá
sambandsstjórnarfundi ASÍ í gær.
Tekið er fram að erfitt sé að meta áhrif
bráðabirgðalaganna og aðgerða þeim
samfara, þar sem þær dragi úr
verðbólguhraða á næsta ári, þ.e. úr yfir
70% verðbólgu án aðgerða, jafnvel
niður í um 60%. I kaupmætti mælist
kjaraskerðingin mest í desember, 5-6%
en fari niður í átt að 4% í mars 1983.
Líklegt sé að kaupmáttur verði um 4%
lakari næstu 9 mánuði en að óbreyttum
verðbótaákvæðum, og sé þá reiknað
með nokkrum verðlagshækkunum vegna
orlofslengingarinnar. Sé mótreiknað
vegna sérstakra láglaunabóta og aukins
orlofsréttar - sem óvarlegt sé að meta
yfir 2% - fari skerðingin niður í 2-2,5%
að meðaltali næstu 9 mánuði, sem fyrr
segir. HEI
■ Rekstarvandi útgerðarinnar var það
mál sem hæst bar í umræðum á aðalfundi
LÍÚ sem lauk í Reykjavík í gær. Voru
miklar umræður um málið á þinginu og
féllu þar mörg þung orð og stór. Komust
menn m.a. þannigaðorði að ef ckki yrði
undinn bráður bugur að því að leysa
vandamál útgerðarinnar þá væri þess
skammt að bíða að enginn sjálfstæður
útgerðarmaður yrði eftir í landinu og
útgerðin rekin á einhvern annan hátt.
- Það var samþykkt að stjórn LÍÚ
yrði falið að semja um rekstararvanda
útgerðarinnar við stjórnvöld á næstu
vikum og tekið skýrt fram að ef lausn á
málinu lægi ekki fyrirþann 15. desember
þá yrði trúnaðarráð LlÚ kallað
saman og því falið að taka ákvörðun um
upphaf veiðanna á næsta ári, sagði
Kristján Ragnarsson, nýendurkjörinn
formaður LÍÚ í samtali við Tímann,
skömmu eftir að stjórnarkjör hafði farið
fram. Kritsján sagði að í raun væri
ekkert meira um þetta mál að segja að
svo stöddu. Það væri vitað að stjórnvöld
ynnu að þessu máli og það yrði svo bara
að koma í Ijós hvaða tillögur kæmu fram.
Þess má geta að það var einmitt eftir
að trúnaðarráð LÍÚ kom saman í
september að ákvörðun var tekin að
stöðva fiskiskipaflotann vegna rekstrar-
vandans.
- ESE
Flugleiðir í úrslit í Evr-
ópukeppni í skák
Skáksveit Flugleiða er komin í úrslit í
Evrópukeppni flugfélaga í skák. Hér er um
að ræða útsláttarkeppni og hafa Flugleiðir
unnir El A1 og Swissair í 1. og 2. umferð. 1
þriðju umferð vann Flugleiðasveitin Iberia í
Madrid 4:2. Þeir sem tefidu þar tyrir
Flugleiðir voru Elvar Guðmundsson, Þröstur
Bergmann, Stefán Þórisson, Hörður
Jónsson, Hálfdán Hermannsson og Ólafur
Ingason.
Þann 4. desember keppa Lufthansa og
Aviaco og það félag sem sigrar í þeirri keppni
mætir svo Flugleiðum í úrslitakeppninni sem
fram fer snemma á næsta ári.
Skákmenn Flugleiða hafa verið sigursælir
að undanfömu og unnu fyrir stuttu alþjóða-
skákmót flugfélaga sem haldið var í Flórída.