Tíminn - 30.11.1982, Side 4
ÞRIÐJUDAGUR 30. NÓVEMBER 1982.
Áfengi og
tóbak
hækkar um
8%
■ Verð á áfengi og tóbaki hækkaði
nú eftir helgina um 8%. Sem dæmi um
verð á þessurn vörum eftir hækkun þá
kostar brennivínsflaskan nú 282 kr.
(var á 261 kr.) pólskur vodki 393,
bandarískur vodki 405 kr. og algeng
tegund af viskí 393 kr. Sígarettupakk-
inn fer nú í 28.90 kr.
Flugstöðin f Keflavík rafmagnslaus er
eldingu sló niður f spennistöð:
„HREINT NEYÐARÁSTAND”
— segir Grétar Haraldsson flugafgreiðslustjóri en neyðarljósin
dugðu aðeins í tvo tfma og er hlánaði fór allt á flot f stöðinni vegna
leka „Á við sturtubað f vegabréfsskoðuninni”
Stúdenta
leikhús med
„Bent” eftir
M. Sherman
■ Stúdcntaleikhús Háskóla Islands
mun n.k. sunnudag frumsýna leikritið
„Bent'* eftir Martin Sherman en þetta
er fyrsta sýning ieikhússins eftir að það
var endurvakið í janúar 1981. Frum-
sýning verður í Tjamarbíói
Leikstjóri er Inga Bjarnason, þýð-
andi Rúnar Guðbrandsson sem jafn-
framt er aðstoðarleikstjóri. Með aðal-
hlutverk fara Andres Sigurvinsson,
Magnús Ragnarsson, Árni Pétursson
og Þórarinn Eyfjörð en alis tóku um
50 manns þátt í uppfærslunni. Leik-
mynd annaðist Karl Asperlund.
Leikritið gerist í fangabúðum nasista
í scinni heimsstyrjöldinni og fjallar um
líf og kjör fanganna. Það hefur verið
sýnt víða um heim og allsstaðar vakið
mikla athygli.
- FRI
Haffari SH
seldi afla f
Fleetwood
■ Haffari Sh 275 frá Grundarfirði
seldi í gær afla í Fleetwood í Englandi
og er Haffari þar með eitt fyrsta skipið,
og fyrsta íslenska fiskiskipið sem selur
í Flcctwood eftir að höfnin þar opnaði
eftir að hafa vcrið lokuð f tæpt ár.
Samkvæmt upplýsingum Kristjáns
Ragnarssonar formanns LÍÚ seldi
Haffari 41.5 tonn af góðum fiski og
fengust 767 þúsund krónur fyriraflann,
eða um 18.50 krónur fyrir hvert
kólógramm. Svo virðist því sem að
viðræður LÍÚ og scndinefndarinnar
frá Fleetwood sem var hér fyrr í
þcssum mánuði, séu þegar farnar að
bera nokkurn árangur. Buðu Flect-
wood-menn í viðræðum upp á lægstu
löndunargjöld oglöndunarkostnaðsem
þekkist í Brctlandi, ef íslenskir útgerð-
armenn vildu selja þar afla. Einnig var
rætt um ákveðiðlágmarksverð, þannig
að íslensku skipin slyppu við fiskupp-
boðin, ef af sölum yrði.
- ESE
Alþingi
Hótað að fella
fjáröflunar-
frumvarp
■ Ragnar Arnalds fjármálaráðherra
mælti í gær fyrir frumvarpi um skatt á
verslunar- og skrifstofuhúsnæði. Er hér um
að ræða framlengingu á lögum um tekju-
stofn, sem reiknað cr með í fjárlögum fyrir
næsta ár.
Frumvarpið var lagt fram í efri deild.
Eiður Guðnason tilkynnti að þingmenn
Alþýðuflokksins mundu greiða atkvæði á
móti frumvarpinu. Aðrir tóku ekki til máls
og var málinu vísað til nefndar.
Hér er um að ræða eitt af fylgifrumvörp-
um fjárlaga. Ef Sjálfstæðismenn greiða
einnig allir atkvæði á móti frumvarpinu
verður því hætt í neðri deild, þar sem mál
falla á jöfnum atkvæðum ef öll stjómar-
andstaðan er á móti. En í efri deild eru
stjórnarsinnar í meirihluta og ætti fmm-
varpið að renna greiðlega f gegn þar.
■ „Það er alveg óhætt að segja að
hreint neyðarástand hafi skapast hér er
rafmagnið fór af húsinu og í þessu óveðri
kom beriega í Ijós hve stöðin hér er
vanbúin ef svona kemur upp á“ sagði
Grétar Haraldsson flugafgreiðslustjóri í
flugstöðinni á Keflavíkurflugvelli í sam-
tali við Tímann en á sunnudag í óveðrinu
er þá skall á hér SV-lands sló eldingu
niður í litla spennistöð við flugstöðina
með þeim afleiðingum að allt rafmagn
fór af húsinu. Gerðist þessi atburður um
fimm leytið og var rafmagnið ekki
komið á aftur fyrr en eftir kl. 21.
„Þetta kom á ákaflega slæmum tíma
því við vorum með um 300 farþega í
stöðinni. Það sýndi sig að neyðarljósin
eru mjög bágborin, loguðu þau aðeins í
um tvo tíma auk þess sem þau þurftu
að vera um tíu sinnum fleiri svo gagn
væri að“ sagði Grétar. „Því þurftu
farþegarnir að vera hér í myrki mestan
þennan tíma því ófært var til Reykjavík-
ur. Að vísu var náð í kerti en birtan af
þeim dugði skammt."
Vatnsflaumur
„Þegar svo hlánaði um kvöldið kom
mikill leki í stöðina, vatnið fossaði niður
á einum átta stöðum í húsinu, ekki í
dropum heldur bunum. Sem dæmi má
nefna að við vegabréfsskoðunina var
vatnsflaumurinn á við meðal sturtubað"
sagði Grétar og lét hann þess ennfremur
getið að ekki hefði ástandið batnað við
það að í fríhafnarversluninni sjálfri
sprakk heitavatnsofn með þeim afleið-
ingum að allt fór á flot þar.
Að þessum 300 farþegum voru annars-
vegar Lundúnafarþegar og hinsvegar
farþegar á leið til Chicago/Baltimore og
sagði Grétar að til þess ráðs hefði verið
gripið að hafa Bandaríkjafarþeganna
um borð í DC-8 vél og var þeim þar
boðið upp á kaffi og með því. Þeim
leiddist þó setan er til lengdar dró og
komu aftur inn í stöðina.
Byggingin vanhæf
„Það má segja að fólkið hafi fengið
smjörþefinn af hve þessi bygging er í
rauninni vanhæf er svona kemur upp á.
Neyðarljósin eru alltof fá til dæmis er
aðeins eitt slíkt í allri innritunni auk þess
sem þau entust í alltof skamman tíma.,
Þegar rafmagnið fer svo af þá virka ekki
rafmagnshurðirnar hér og þegar um er
að ræða að eldingu slær niður hefði alveg
eins mátt búast við að eldur kviknaði í
húsinu en til þess hugsar maður með
hryllingi" sagð Grétar.
Hann sagði að tollgæslan hefði nú gert
mjög ákveðnar tillögur til úrbóta enda
ekki hægt að láta þá sinna störfum sínum
í myrkri en það sem fyrst og fremst þyrfti
að gera væri að bæta neyðarljósaástand-
ið.
- FRI
„Harma ef um-
mæli mín hafa
verið misskilin”
— Við nánari athugun reyndist þetta vera haganlega
gerð brúða í fullri líkamsstærð
■ „Ég sá manninn liggja þversum á veginum, beinl fyrir framan bflinn,
og mér rétt tókst að beygja þannig að ég æki ekki yfir hann.“ Þannig
sagðist Herði Davíðssyni, frá Efri-Vík, Landbroti frá í samtali við Tímann
í gær, er hann lýsti þeirri óskemmtilegu reynslu sinni frá í fyrrakvöld, er
hann ásamt Ijölskyldu sinni voru á leið til Reykjavíkur, og óku fram á það
sem þau töldu vera mann, liggjandi hreyfingarlaus, efst í Kömbunum. Við
nánari athugun reyndist þetta var haganlega gerð brúða í fullri líkamsstærð.
„Klukkan var um ellefu, þegár ég var
staddur efst í Kömbunum," sagði
Hörður," og það var mikið myrkur og
þoka. Ég snarhemlaði að sjálfsögðu og
þaut út úr bíinum til mannsins. ásamt
konu minni og dætrum, sem voru
reyndar á undan mér til hans. Okkur var
auðvitað mjög brugðið, að halda að við
hefðum rétt getað afstýrt því að aka yfir
manninn, og létti því einnig því meir,
þegar við komum að manninum, og
sáum að þetta var brúða. Hún var í fullri
stærð, í regngalla og strigaskóm og í
höfuðstað var fótboltatuðra. Hún var
svo haganlega gerð að ekki var hægt að
sjá það tilsýndar, í þessu slæma skyggni,
að þetta væri brúða."
Hörður var að því spurður hvort hann
taldi að brúðan hefði verið lögð þarna á
veginn af ásettu ráði, eða hvort hann
héldi að einhver hefði glatað henni: „Ég
ætla engum að hafa gert þetta af ásettu
ráði, enda væri slíkt uppátæki stórháska-
legt við aðstæður þær sem voru í gær,
og við vorum reyndar stórheppin að ekki
var neinn bíll á móti, þegar ég snar-
beygði svona yfir á hinn vegarhelming-
inn. Ég tel frekar að brúðan hafi dottið
af bíl hjá einhverjum og Iýsi hér með
eftir eigandanum," sagði Hörður. Þeim
sem kynni að eiga brúðuna títtnefndu er
bent á að snúa sér til Tímans. -AB
segir Kristján Ragnarsson,
formadur LÍÚ um viðbrögd
togaraskipstjóra
■ -Ég harma það að ummæli mín um
smáfiskadráp hafi verið þess eðlis að þau
gætu valdið misskilningi. Þetta er ákveð-
ið vandamál sem aUir vita um og ummæli
mín voru einungis ætluð til þess að skapa
umræðu um þessi mál. Þama var ekki
verið að leita að neinum sökudólgum,
saj>ði Kristján Ragnarsson, formaður
LIÚ í samtali við Tímann, er hann var
inntur álits á áskorun togaraskipstjóra
þess efnis að Kristján færði sönnur fyrir
máli sínu um smáfiskadráp.
Að sögn Kristjáns virðist svo sem
viðtal sem við hann var tekið í
hádegisfréttum útvarpsins fyrir skömmu
hafi valdið miklum misskilning. Sagði
Kristján að aðeins fyrri hluti viðtalsins
hefði verið birtur, en þar ræddi hann
m.a. um smáfiskadráp í sömu andrá og
togarana. Þetta taldi Kristján að togara-
menn hefr u tekið óstinnt upp og margir
hverjir skilið sem svo að verið væri að
bera þessar sakir upp á togarana, án þess
að minnast á bátaflotann. - En um það
mál ræddi ég í seinni hluta viðtalsins,
sagði Kristján.
Kristján Ragnarsson, sagðist gera sér
grein fyrir því að stjórnendur togaranna
ættu við mikil vandamál að glíma
varðandi veiðarnar. Verið væri að opna
og loka svæðuni og oft kæmust þeir
hvergi annars staðar að en þar sem
ungviðið héldi sig.
Varðandi ummælin um fiskifræðing-
ana sem einnig hafa ollið nokkrum
úlfaþyt, sagði Kristján í iokaræðu sinni
á aðalfundi LÍ Ú að hann harmaði að þau
hefðu verið misskilin. Hann hefði ekki
verið að ráðast á fiskifræðinga á neinn
hátt og þetta teldi hann að fiskifræð-
ingarnir vissu manna best sjálfir. A.m.k.
hefðu þeir fiskifræðingar sem hann hefði
rætt við ekki tekið þetta sem neina árás.
ESE
■ Hér er Hörður með brúðuna, sem hann hirti upp í Kömbunum, eftir að hafa
naumlega forðast að aka yfir hana, en eins og fram kemur í samtali við Hörð, taldi
hann að um mann væri að ræða.
Tímamynd - Róbert
Ökumaður verður fyrir óskemmtilegri reynslu efst í Kömbunum:
HÉLT SIG HERUMBIL HAFA
EKID A UGGIANDI MANN