Tíminn - 30.11.1982, Blaðsíða 10
10____________
heimilistíminn
WUÐJUDAGUR 30. NÓVEMBER 1982
■ Fyrsti öruggi jólaboðinn er, þegar að-
ventuljósin eru sótt inn í geymslu, sett á sinn
stað og tendruð, og þá ekki síður, þegar
kveikt er á fyrsta kertinu á aðventukransin-
um.
Á mörgum heimilum eru til nokkurs konar
eilífðar aðventukransar, sem taka má fram
ár eftir ár og eiga sér hefðbundinn sess í öllu
jólatilstandinu, En flestir eignast nýjan krans
fyrir hver jól. Þá má vitaskuld kaupa tilbúna
í verslunum, en óneitanlega er bæði gaman
og talsvert ódýrara að útbúa sinn krans
sjálfur.
Þó að þegar séjiðinn fyrsti sunnudagur í
aðventu, eru e.t.v. einhverjir, sem ekki hafa
drifið sig enn í að verða sér úti um
aðventukrans. Við hringdum í nokkrar versl-
anir til að kanna hvaða efni þarf til
kransagerðarinnar og hvaða verð væri á því,
og vonum að þeir síðbúnu geti haft nokkurt
gagn af.
í Gróðurhúsinu Blómavali er hægt að fá á
einum stað allt efni, sem þarf til kransagerð-
ar. Þar er fyrst að telja kransinn sjálfan, hring
úr basti, sem kostar kr. 49.50. hann er
skreyttur með greni, sem selt er í búntum á
59 kr. búntið. Til að festa grenið á sinn stað,
er notaður vír. Rúllan af honum kostar 17.50.
Þá er að skreyta kransinn. Nú má
ímyndunaraflið leika lausum hala og fer þá
náttúrlega verðið á skreytingunni eftir því.
Kertin fjögur eru ómissandi og þau kosta
4.50 kr. stykkið, hlífar undir þau eru seldar
í kössum, sem kpstar 7.80, en þær eru
talsvert flciri en nota þarf á einn krans. Gott
er að festa kertin betur en með hlífunum. Til
■ Hvaða klaufi sem er gctur gert sinn aðventukrans sjálfur
Það er audvelt og
ódýrt að gera að-
ventukransirm sjálfur
Smáhlutirnir eru
adalmálid:
Legghlífar,
belti og hattar
svip á
vetrartískuna
■ „Svart, sinnepsgult og grátt eru aðallitimir núna“, sagði
Erla Ólafsdóttir, verslunarstjóri í versluninni Garbó, þegar við
báðum hana að segja okkur helstu fréttir af tískunni nú í haust.
Hún sagði einnig, að mikið væri lagt upp úr hinum ýmsu smá-
eða fyigihlutum, sem settu mikinn svip á tískuna nú. Pilssíddin
er mjög frjáls, en stutt pils (minipils) eru vinsæl hjá þeim ungu.
Annars eru alls konar buxnadress ráðandi hjá ungum konum
núna, allt frá leður- og prjónabuxum upp í þunnar
samkvæmisbuxur, sem sagt buxnadrcss við öll möguleg
tækifæri.
Beltin eru mest höfð á mjöðmum, en líka eru breið belti
notuð í mittið, sem þá þarf auðvitað að vera mjótt og nett. í
peysutískunni eru mest móðins núna víðar peysur, með
„leðublökuermum“.
Verslunarstjórinn sýndi okkur hið vinsælasta sem þarna var
á boðstólum, og Ijósmyndari Tímans - GE smellti af nokkrum
myndum.
þess er notaö „fix“ grænt lím, sem selt er í
bútum og kostarókr. á kransinn. Flestir vilja
síðan skreyta kransinn sinn með könglum og
kúlum. Köngla má fá 18-20 litla saman, í
einum poka, sem kostar 10 kr., og kúlur fást
í pökkum, 4-8 eftir stærð. Þeir kostar 9.50
kr. Og þá má ekki gleynta borðunum, sem
notaðir eru í slaufur, cn nóg er að kaupa 5
m á boröliggjandi krans og kostar slíkur
borði 15 kr. og 12 kr. mjórri gerð. Lengri
borða þarf, ef „statífr" er kcypt með til að
Itengja kransinn upp. Þá þarf borðinn að vera
7 in, en slíkan borða má fá í poka á 28 kr.
„Statífið" sjálft kostar 60 kr.
Sé miðað við borðliggjandi krans, er
verðið nú komið upp í tæpar 200 kr.
1 versluninni Handíð má fá ýmsar stærðir
af krönsum og kosta þeir frá 42 kr. upp í 78
kr., en þá eru þeir mjög stórir. Meðalstærð
kostar 54 kr. Köngla og skrautber er hægt
að fá í pokum, bæði sitt í hvoru lagi og
blandað, og kosta pokarnir 36 kr. og 49 kr.,
eftir því, hvað mikið er í þeim. Auk þess má
fá þar kertastanda úr kopar og járni í tveirn
litum, þeir kosta 4 saman 49 kr. Rauðir
borðar eru seldir í þriggja metra lengdum og
kosta 9 kr., en ekki dugir einn borði, þeir
þurfa að vera tveir. Vfrinn kostar 11.50 kr.
eru alls 100 m á rúllunni, sem er margfalt
meira en þarf á einn krans. Borðstandar fást
og kosta 85 kr.
Sem eðlilegt er, cr ekkert greni selt í
Handíð.
í Skógræktinni í Fossvogi eru seldar
furugreinar, sem hafa þann stóra kost að fella
ekki barrið. Það er selt í kílóavís og þyrftu
þvf helst tveir að taka sig saman, ef nýta á
alla furuna í aðventukransagerð, en ekki þarf
nema u.þ.b. 1/2 kíló í hvern krans. Verðið
lá ekki alveg ljóst fyrir, þegar við spurðum
um það, en búist við, að það yrði milli 50 og
60 kr.
Þar má líka fá litla fjallafuruköngla, sem
kosta 170 kr. kílóið, en von var á öðrum
ódýrari næstu daga. Sökum þess, hvað selt
er í stórum einingum hjá Skógræktinni, er
að öllum líkindum heppilegra fyrir nokkrar
fjölskyldur að taka sig saman, ef þeir vilja
njóta góðra kjara þar.
En ekki dugir öllum aðventukransinn einn
til að vekja tilhlökkun til jólanna. Jólaskreyt-
ingar ýmislegar eru settar upp og er þá
vinsælt að velja falleg kerti, koma því
örugglega fyrir á tréplatta og skreyta síðan í
kringum það með ýmiss konar jólaskrauti.
Slíkir plattar fást í stórum stfl hjá Skógrækt-
inni og kostar 5-15 kr. eftir stærð. Þá er
ógetið um litla jólasveina, sem kallaðir eru,
skáskorna litla kubba, sem eru síðan skreyttir
og sett húfa á. Þessir jólasveinar eru
geysivinsæl föndurverkefni og kostar ekki
nema 5 kr. stykkið.
Af þessari grófu upptalningu má sjá, að
■ Á myndinni er hluti af því efni, sem notað er við skreytingar á aðventukransi.
(Tímamynd Róbert)
það er hreint ekki svo dýrt að gera sinn
aðventukrans sjálfur og ólíkt verður hann
persónulegri en „búðarkrans".
■ Þarna er Erla í leöurbuxum og „leðurblöku“- ■ Svartur og hvítur smáköflóttur jakki, sen
peysu með svartan hatt. Leður- og rúskinnsbuxur gengur við allt mögulegt, má nota utan yfir kjól
fást þarna núna á 1790 krónur, „en næsta sending blússu eða einan sér við pils eða buxur.
verður öiiu dýrari“, sagði verslunarstjórinn.
■ Hattarnir í röðum frá 495 krónum. „Konur á öilum aldrí
koma og máta hattana“, sagði afgreiðslufólkiö.
(Tímamyndir: GE)
■ Fallegur prjónakjóll
(minipils) með rauðum
röndum, rauðu belti og hatti,
einnig er rauður hálsklútur
góður fylgihlutur með
kjólnum.