Tíminn - 30.11.1982, Síða 18
ÞRIÐJUDAGUR 30. NÓVEMBER 1982.'
wm
eftir helgina
flokksstarf
:\y
k
w
5«? t ■Jjr "■* ■
-• • rsTi. .
_ ’* * ■ .
v •
Hit
Fátækt fólk
og kjötprísar
Helgin gekk í garð með heldur
skuggalegri veðurspá fyrir Suð-vest-
urhornið. Manni skildist það á
spámanninum í sjónvarpinu á föstu-
dagskvöld að stormurinn væri að
skella á, og bæri með sér hríð og
stórdroparegn.
Þessum þægindum átti að rigna
yfir okkur um helgina, en sem
kunnugt er, geta óveður aldrei séð
okkur í friði um helgar. Veðurguðinn
er, þannig séð meira fyrir atvinnu en
frídaga. Ef til vill er þetta líka
nokkur kostur.
En bylurinn lét á sér standa og á
laugardag var hann enn hægur, þrátt
fyrir boð yfirvalda. Himininn var
hinsvegar úr blýi, þannig að deginum
gekk heldur illa að opna augun, með
svo þungan harm yfir sér.
Lægðin hafði sumsé hægt á sér,
líka hæðin, þannig að unnt var að
spara í spámennskunni og nota sama
veðurkortið aftur á laugardagskvöld.
Þannig að þrátt fyrir allt, græddi
veðurstofan nú á þessum seinagangi,
og við fengum að sjá mynd af vetri
konungi, tekna úr gervihnetti. Hann
er í síðri kápu.
Á laugardagskvöld byrjaði hann
að snjóa og aðventan gekk auðmjúk
í garð í hvítum klæðum í Vesturbæn-
um, rétt eins og ekkert hefði í
skorist. Logn var á jörðu.
Stormurinn hélt hinsvegar
sjó vestur af Reykjanesi og undirbjó
áhlaup á skipin og landið.
Um helgina var mest rætt um
sauðaketið og prófkjörið. Sagt er að
það ameríska fyrirkomulag mikilla
prófkjöra, kosti nú vonda frambjóð-
endur um 100.000 krónur. Fátækir
menn og þingmenn munu komast af
með 22.000 krónur, sagði sérfræð-
ingur landsins í að búa til þingmenn
með símum og kvenfólki handa
Sjálfstæðisflokknum. Er þetta ekki
selt dýrar en keypt var, fremur en
sauðaketið.
Mun minna var rætt um prófkjör
Alþýðuflokksins, enda áhöld um það
hvort nokkur kemst þar á þing fyrir
Reykjavík, eins og atkvæðisréttinum
í landinu er háttað. Stundin okkar er
sumsé ekki komin, - því miður.
Að vísu á maður ekki von á að
vökulagakratar og kirkjugarðskratar
fari að kjósa anarkisma, sem er
nýjasta aðförin að bákninu. Grand-
varir menn vilja nefnilega fremur
hafa of stóra stjórn í landinu, en
öngva. Og þótt örðugt sé orðið að
greina stjórnmálaflokkana frá
sjúkrasamlögum landsins, þá er nú
líklegt, að þeir hjari enn um sinn,
þrátt fyrir dauf útspil.
Hitt málið, sem talað var um, var
kjötsalan til Hollands. Það verð sem
menn á Niðurlöndum vilja borga
fyrir kjöt þykir nokkuð niðrandi fyrir
sauðkindina. Mun það verð, sem í
boði er vera allt að því 50 prósent
lægra en Sambandið getur fengið á
hinum dapurlega Evrópumarkaði
Upplýst er, að dilkakjöt ofan af
heiðum á íslandi, ereitthvert dýrasta
kjöt í veröldinni. Sláturkostnaður
mun vera um 18 krónur á kílóið, sem
mun algengt verð á ódýru keti !
erlendis, t.d. kjúklingum. Alls mun
það nú kosta um 250 krónur að slátra |
kind á skurðstofum landbúnaðarins.
og þar með er sláturhúsið alfarið |
orðin sú helvítismaskína í landbún-
aðinum, sem örðugast er að fást við.
Samt er þessi dýra slátrun ekki betri I
en það, að hún er ekki tekin gild í
Bandaríkjunum, þykir þar loðin og
hárug, að sögn Gunnars á Hjarðar-
felli,.sem telur þó á hinn bóginn, að |
sláturdómur þessi sé tæknibragð, til
að losha við sauðkindina frá fslandi.
En hvað um það. Það hlytur að I
draga að því, að fjárbændur verða að |
lóga fé sínu á öðrum prísum, en nú
viðgangast. Einnig verða menn að I
hætta að skemmta sér við að rækta
fé, en sauðfjárrækt mun nú vera eina
íþróttagreinin í þéttbýli, er nýtur
fullra útflutningsbóta.
En það var salan til Hollands eða
sölutilboðið þaðan, er mest var rætt
um. Hollendingar bjóða krónur
22.68 fyrir kílóið, eða rúmlega
sláturkostnað, sem var 18 krónur.
Sambandið hefur á hinn bóginn
getað selt samskonar kjöt fyrir 29.24
krónur.
Ekki munu Hollendingar þó hafa
í hyggju að borða þetta dýra kjöt
sjálfir, heldur selja annað, og þá
hugsanlega á íslenskum markaði
erlendis, í samkeppni við Búvöru- |
deildina.
Margt hefur verið reynt til að losna
við kjöt, og til að gefa kjöt frá
íslandi, og þá gjarnan leitað að fólki
sem gengist hefur undir hörmungar |
og er peningalaust að draga andann.
Ekki skal það dregið í efa að illa
árar víða um heim, til dæmis í I
Póllandi, en maður spyr þó: Hvers |
vegna er þetta kjöt ekki gefið líka
innanlands? Ellilffeyrisþegar og aðrir
landsmenn verða nú að greiða kr.
60.25 fyrir niðurgreitt súpuket, eða
hina seljanlegu gerð þess. Einstæð-
ingar á ellilaunum fá nú mest innanvið
6000 krónur á mánuði, og þá með
öllum tiltækum kerfisbótum. Þegar
þeir hafa greitt húsaleigu, ljós og
hita, hafa þeir ekki peninga fyrir
kjöti. Þetta eru fátækhngar íslands,
og maður spyr eru þeirra aurar verri
en hollenskir?
Við lifum á erfiðum tímum.
Skerða verður allt kaup. Væri nú
ekki hugsanlegt að nota óselda ketið
til verðbóta handa láglaunafólki?
Það hefur áður veriö gert, ef ég man
rétt. Hér er ekki átt við kjötútsölu.
Hún kæmi aðeins frystikistufólki og
peningamönnum til góða. Ódýrt
kjöt, þó án allrar auðmýkingar,
myndi prýða þetta iand mikið í
augum hins fátæka manns.
Sjónvarpsveðrið leit við á sunnu-
dagskvöld. j5nas Guðmundsson.
Jónas Guðmundsson,
rithöfundur skrifar
Framsóknarkonur í Reykjavík
Tekið er á móti munum á basarinn alla daga milli kl. 13 og 17 að
Rauðarárstíg 18.
Sameinumst um að gera basarinn sem glæsilegastan.
Félag framsóknarkvenna.
Basar - basar
Hinn árlegi basar félags framsóknarkvenna í Reykjavík veröur
Iaugardaginn4. des. kl. 14að Rauðarárstíg 18.Stórglæsilegirmunir.
Laufabrauðið vinsæla og smákökur. Einnig verður happdrætti.
Stjórnin.
Bingó
Félag ungra framsóknarmanna heldur bingó n.k. sunnudag kl. 14.30
að Hótel Heklu Rauðarárstíg 18.
Húsið opnað kl. 13.00
Kaffiveitingar.
FUF Reykjavík
Skoðanakönnuní
Vestfjarðarkjördæmi
Kjördæmisráð Framsóknarmanna á Vestfjörðum haldið að Núpi s.l.
haust samþykkti að fram skyldi fara skoðanakönnun um val
frambjóðenda tll næstu alþingiskosninga.
Skoðanakönnunin verður opin öllum þeim er undirrita stuðningsyfir-
lýsingu viö stefnu Framsóknarflokksins og fer skoðanakönnunin fram
í byrjun janúar.
Auk tilnefningar frambjóðenda frá einstökum framsóknarfélögum er
öllum flokksbundnum Framsóknarmönnum heimilt að bjóða sig fram
enda fylgi meðmæli 10-15 flokksbundinna Framsóknarmanna.
Framboð þurfa að berast til formanns kjörstjórnar Kristins Jónssonar
Brautarholti 13 ísafirði í síðasta lagi 18. des. n.k.
Jólabingóið
verður haldið I Sigtúni fimmtudaginn 2. desember. Að venju verður
margt verðmætra vinninga á boðstólum, sem enn er ekki tímabært
að segja nánar frá, þar sem söfnun er í fullum gangi.
Húsið verður Oþnað kl. 19.30 og byrjað verður að spila kl. 20.30.
Ath. Spilaðar verða 18 umferðir.
Aðgangur er ókeypis og öllum heimill, meðan húsrúm leyfir. Nánari
upplýsingar I síma 24480.
Framsóknarfélag Reykjavíkur.
Skagfirðingar - Sauðárkróksbúar.
Stefán Guðmundsson alþingismaður verður til viðtals í Framsóknar-
húsinu Sauðárkróki fimmtudaginn 2. desember kl. 2-5 síðdegis.
Stjórn Framsóknarfélagsins.
Prófkjör framsóknarmanna á
Austurlandi— Framboð
Kjördæmisþing Kjördæmissambands framsóknarmanna á Austur-
landi þann 24. og 25. september ákvað að fram fari prófkjör um
framboð flokksins í kjördæminu við næstu alþingiskosningar.
Framboðsnefnd flokksins hefur nú ákveðið að framboðsfrestur verði
til 10. desember næstk.
Hér með er auglýst eftir framboðum í prófkjörið.
Hvert framboð skal stutt stuðningsyfirlýsingu minnst 25 flokksmanna.
Framboðum skal skilað til formanns framboðsnefndar Þorvalds
Jóhannssonar Seyðisfirði, eða varaformanns Friðriks Kristjánssonar
Höfn, sem veita allar nánari upplýsingar.
Prófkjör fer fram eftir reglum sem samþykktar voru á kjördæmisþingi
í september síðastliðnum.
Prófkjörsdagur mun verða auglýstur síðar.
Framboðsnefnd.
Vegna skoðanakönnunar
á Suðurlandskjördæmi
Á 23. Kjördæmisþingi Framsóknarflokksins í Suðurlandskjördæmi
sem haldið var í Vík 30. okt. s.l. var ákveðið að efna til
skoðanakönnunar vegna framboðs til Alþingiskosninga. Skoðana-
könnunin fer fram á auka kjördæmisþingi með tvöföldum fjölda
fulltrúa og verður þingið haldið í félagsheimilinu Hvoli Hvolsvelli
laugard. 4. des. n.k. og hefst kl. 13,30. Auktilnefningarframbjóðenda
frá framsóknarfélögunum er öllum flokksbundnum framsóknar-
mönnum heimilt að bjóöa sig fram enda fylgi meðmæli 10-20
flokksbundinna framsóknarmanna.
Framboð þurfa að berast til formanns kjörstjórnar Ingva Ebenhards-
í síðasta lagi fyrir 30. nóv. n.k.
Kjörstjórnin.
Kvikmyndir
Sími 78900
Salur 1
Frumsýnir spennu-
myndina
SNAKURINN
Venom er eln spenna frá upphafi
til enda, tekin i London og leikstýrð
af Piers Haggard. Þetta er mynd
fyrir þá sem unna góðum spenn-
umyndum. Mynd sem skilur mikið
eftir.
Myndln er tekln I Dolby og sýnd
f 4 rása sterio.
Sýnd kl. 5,7,9 og 11.
Bönnuð börnum Innan 16 ára.
Salur 2
Endless Love
Hún er 15 og hann 17. Samband
Brooke Shields og Martins Hewitt
i myndinni er sfórkostlegt. Þetta er
hreint frábær mynd sem ekki má
missa af.
Aðalhlutverk: Brooke Shlelds,
Martin Hewitt.
Leikstjóri: Franco Zeffirelli
Sýnd kl. 5.10 og 9
Pussy Talk
Sýnd kl. 7.15 og 11.15
Salur 3
Number One
Hér er gert stólpagrin af hinum
frægu James Bond myndum.
Charles Bind er númereitt í bresku
leyniþjónustunni og er sendur til
Ameriku til að hafa upp á týndum
diplomat.
Aðalhlutverk: Gareth Hunt, Nick
Tate.
Sýndkl. 5,7,9 og 11.
-----------------S_______
Salur 4
Svörtu Tígrisdýrin
GOOD
GUYS
WEAR
BLACK
Hörkuspennandi amerisk spennu-
mynd með úrvalsleikaranum
Chuck Norris. Norris hefur sýnt
það og sannað að hann á þennan
heiður skilið, þvi hann leikur nú i
hverri myndinni á fætur annarri.
Aðaihlutverk: Chuck Norris, Dana
Andrews, Jim Backus.
Sýndkl. 5,7 og 11
Bönnuð bömum innan 14 ára
Atlantic City
Aðalhlutverk: Burt Lancaster,
Susan Sarandon og Mlchel
Piccoli
Sýnd kl. 9
Bönnuð Innan 12 ára
__________Salur 5___________
Being There
Sýnd kl. 9
(9 sýningarmánuður)