Tíminn - 11.12.1982, Qupperneq 13
12
LAUGARDAGUR 11. DESEMBER 1982
LAUGARDAGUR 11. DESEMBER 1982
13
teknar tali
Kvennaathvarf opnad í Reykjavík:
KONUR
BEITTAR ERU OF
BELDI KJÓSA AÐ LEYNA ÞVÍ
Rætt við Cathy Roberts og Agöthu Agnarsdóttur um gridastad fyrir konur
sem orðið hafa ffyrir ofbeldi á heimilum
■ í vikunni var opnað í Reykjavík fyrsta KVENNA ATHVARFIÐ á íslandi, en Jiað er
griðastaður fyrir konur sem orðið hafa fyrir andlegu eða líkamlegu ofheldi á heimilum
sínum og neyöst til eða kosið að yfirgefa þau, oft með börn sín, og ciga ekki neinn
samastað. Slík kvennaathvörf eru víða til erlendis, s.s. á Bretiandi, í Bandaríkjunum og
á Norðurlöndum, og hefur farið fjölgandi þann áratug sem liðinn er frá því fyrsta athvarfið
af þessu tagi kom til sögunnar.
Helgar-Tíminn hitti að máli cinn forvíg-
ismanna kvennaathvarfsins í Reykjavík,
Agötu Agnarsdóttur, og Cathy Robcrts,
breskan félagsfræðing sem sérfræðingur cr
á sviði kvennaathvarfa, og stödd er hér á
landi til að leiðbeina íslenskum konum í
þessu efni.
■ Talið barst fyrst að reynslunni af kvenna-
athvörfum erlendis. Cathy kvað víða um
tvenns konar athvörf að ræða: annars vegar
athvörf sem einbeita sér að liðsinna konum
sem verið hefur nauðgað og hins vegar
athvörf sem opin eru konum sem orðið hafa
fyrir annars konar ofbeldi, andlegu eða
líkamlegu. Athvarfið í Reykjavík sameinar
þetta tvennt og taldi Cathy það mjög
heppilegt.
„Þegar þessi athvörf komu fyrst til
sögunnar í Englandi fyrÍT tíu árum síðan var
hlegið að okkur“, sagði Cathy, „en það er
ekki gert lengur. Mönnum hefur smám saman
orðið ljóst hve þýðingarmiklu hlutverki slík
athvörf gegna og hve útbreitt ofbeldi geen
konum á heimilum í rauninni er. Það er
algengara en nokkrar tölur geta sagt um, og
í löndum eins og t.d. Bretlandi virðist það
fara vaxandi samhliða kreppu og atvinnu-
leysi.“
f framhaldi af þessu benti Agatha á grein
í nýlegu hefti GEÐVERNDAR þar sem
fram kemur að margar konur leita til
slysalækna með áverka sem þær hafa
augsýnilega hlotið eftir erjur á heimili. Oftar
en ekki kjósa þær hins vegar að halda því
leyndu hvernig áverkinn kom til að spinna
upp sögur um óhöpp. Þær blygðast sín að
segja frá þessu og finnst oft að þær beri
sjálfar þar á nokkra ábyrgð.
Eru þær konur sem leita til athvarfanna
úr einhverjum sérstökum þjóðfélagshóp
öðrum fremur ? spyrjum við.
„Nei, svo er ekki“, svara Caty. „Þær koma
úr öllum stéttum og mjög misjöfnu um-
hverfi. Menntakonur leita til okkar, en
algengast er að það séu heimavinnandi
húsmæður senr eru fjárhagslega háðar
eigimanni sínum. Þær virðast helsta fórnar-
Iamb heimilisofbeldis."
Hvað um samstarf við lögreglu?
Það er misjafnt eftir löndum sögðu þær
Agatha og Cathy. Á íslandi hefur engu
formlegu sambandi verið komið á en
undirtektir lögreglu virðast góðar. Engir
lögregluþjónar hér eru þjálfaðir í að fást við
mál sem tegjast ofbedisverkum gegn konum
á heimilum eða nauðgunarmálum, og fram
kom í máli lögreglukonu á fundi á Hótel
Borg á dögunum að í því efni verður
lögreglan að beita brjóstvitinu.
Hvers vegna ofbeldi á heimilum?
Um rætur ofbeldisverka er auðvitað alltaf
erfitt að dæma, en Agatha og Cathy töldu
að ein höfuðorsök ofbeldisverka gegn kon-
um væri staða þeirra í þjóðfélaginu. Meðan
litið væri á konur sem annars flokks borgara,
karlmönnum óæðri, hlyti ástand af þessu
tagi að vara áfram.
Kvennaathvarfið í Reykjavík er sem
stendur í leiguhúsnæði, en ekki er gefið upp
hvar í bænum það er. Síminn á staðnum er
21205 og geta konur hringt þangað og leitað
ráða, og ef þær vilja verður þeim Ieiðbeint
á staðinn. Unnt er að hafa börn með sér og
dvelja þar lengri eða skemmri tíma eftir
atvikum. Nöfn kvenna sem hafa samband
við athvarfið verða ekki skráð og nafnleyndar
gætir í hvívetna.
Starfsmenn kvennaathvarfs eru tveir, en
auk þeirra starfa allmargir sjálfboðaliðar í
vaktavinnu, en ráðgjafarþjónusta í síma er
opin allan sólarhringinn. GM
Cathy Roberts félagsfræðingur og Agathu Agnarsdóttir, einn forsvarsmanna kvennaathvarfs í Reykjavík.
Timamynd: GE
Bókakönnun Tfmans
KRISTJÁNS
SVEINSSONAR
Alistair MacLean
GUNNAR GUN
wwm
KINIRIN
ifii
Bóksölukynning Tímans:
ALBERT SKAUST UPP
ÞRIÐJA SÆTIÐ
Kristján aftur í fyrsta saeti
■ Þá birtir Tíminn annan listann í
bókasölukönnun sinni, og að þessu sinni
er öllu athyglisverðara að bera hann
saman við lista bókaútgefenda, en var í
fyrsta sinnið, fyrir einni viku, því
listarnir eru mjög ólíkir nú, að því
undanskildu að tvær efstu bækurnar á
bá 'um listum, eru þær sömu. Ævi-
miimingar Kristjáns Sveinssonar eru
aftur í fysta sætinu, en það voru þær
einnig í fyrstu könnuninni og Dauða-
fljótið er aftur í öðru sæti.
Að öðru leyti, hefur listi Tímans
breyst verulega, því bækur sem eru til
þess að gera nýútkomnar hafa verið
rifnar úr hillum bókaverslananna og eru
þar af leiðandi strax komnar á Tímalist-
ann yfir söluhæstu bækurnar. Má nefna
bækur eins og Bréfin hans Þórbergs og
Albert í þessu sambandi. En lítum nú á
listann yfir 10 söluhæstu bækurnar þessa
viku og í sviga sjást hvaða sæti þær
skipuðu á listanum fyrir einni viku, ef
þær á annað borð voru á listanum þá.
1. Æviminningar Kristjáns Sveinssonar (1) Gylfi Gröndal skráði (Setberg) 80 stig.
2. Daudailjótið eftir Alistair Maclean (2) (Iðunn) 63 stig.
3. Albert, Gunnar Gunnarsson skráði (var ekki á lista) (Setberg) 39 stig.
4. Hverju svarar læknirinn.'eftir Claire Rayncr, Bertil Mortensson og Guðmund
Þengilsson (7) (Iðunn) 34 stig.
5. Persónur og leikendur eftir Pétur Gunnarsson (6) (Punktar) 31 stig.
6. í kvosinni eftir Flosa Ólafsson (10) (Iðunn) 28 stig
7. Bréfin hans Þórbergs, Hjörtur Pálsson bjó til prentunar (var ekki á lista) (Vaka)
28 stig.
8. Landiðþitt ísland eftirSteindór Steindórsson, Þorstein Jósepsson og Pál Líndal.
3. bindi. (4) (Örn og Örlygur) 23 stig.
9. 555 gátur, Sigurveig Jónsdóttir þýddi og staðfærði, (9) (Vaka) 19 stig.
10. Mömmustrákur eftir Guðna Kolbeinsson (8) (Vaka) 18 stig.
Fjöldi annarra bóka hlaut einnig
nokkuð mörg stig, og má þar nefna
bækur eins og Ljósmyndabókina frá
Setberg, Kvisti í lífstrénu eftir Árna
Johnsen Dýragarðsbörn og Stefán 'og
Maríu.
Þegar lesendur Tímans skoða þennan
lista, er vert að þeir hafi í huga að
bækurnar Albert og Bréfin hans Þór-
bergs eru báðar nýkomnar á markaðinn,
en samt sem áður komnar í hóp þeirra
10 sem selst hafa mest þessa vikuna.
Rétt er að greina í lokin frá því hvernig
þessi listi var unninn, einkum og sér í
lagi fyrir þá sem ekki sáu fyrsta listann:
Blaðamaður Tímans hafði í gær sam-
band við 10 bóksala, að þessu sinni voru
það bóksalar í eftirtöldum verslunum:
Penninn, Hafnarstræti, Bókabúð Vest-
mannaeyja, Bókabúð Grönfeldts, Borg-
arnesi, Bókadeild Hagkaupa, Skeifunni,
Bókhlaðan, Glæsibæ, Bókabúð
Fossvogs, Bókabúð Braga, Lækjargötu
Gríma, Garðabæ, Aðalbúðin Siglufirði
og Bókabúð Jónasar Tómassonar, tsa-
firði. Bóksalarnir veittu blaðamanni
upplýsingar um 10 söluhæstu bækur
liðinnar viku, og nefndu þá fyrst þá
söluhæstu og síðan koll af kolli. Bók sú
sem efst var á listanum hjá hverjum
bóksala, fékk 10 stig, sú í öðru sæti 9
stig, og svo framvegis. Síðan eru stig
hverrar bókar lögð saman og heldar-
summan birtist á listanum hér að ofan.
Þriðji bókasölulisti Tímans verður á
sínum stað í blaðinu að viku liðinni.
- AB
„KEMUR
MÉR EKKI
ÁÓVART
— segir Gunnar Gunnars-
son, sem skrádi ævi-
minningar Alberts
Guðmundssonar
■ „Nei, ég get ekki sagt að þetta komi mér á óvart," sagði Gunnar Gunnarsson
rithöfundur, þegar blaðamaður Tímans spurði hann hvort það hefði komið honum
á óvart að bókin Albert, sem Gunnar skráði, væri komin í þríðja sæti, á lista Tímans
yfir söluhæstu bækumar.
Ég vissi náttúrlega fyrirfram,“ sagði
Gunnar, „að Albert er maður sem nýtur
mikillar hylli og fólk virðist vera forvitið
um hann og því hafa væntanlega margir
áhuga á því að fá eitthvað að lesa um
hann.“
- Gunnar var spurður að því hvort
hann og Albert hefðu þekkst vel, áður
en hann tók að sér verkefnið að
skrásetja frásögur Alberts: „Nei, ég
þekkti hann ekki neitt." Og spurning-
unni hvort Albert hefði reynst vera
önnur persóna en Gunnar hefði vænst
svaraði Gunnar á þessa leið: „Nei,
eiginlega ekki.
Þá var Gunnar spurður hvað honum
fyndist um skrif Einars Karls Haralds-
sonar, ritstjóra Þjóðviljans,um bókina
Albert: „Mér fannst þetta ágætur dómur
um bókina,“ sagði Gunnar, „og er alveg
sáttur við hann. Það var ýmislegt í
þessari grein sem Einar Karl hugsar
ÞITT EIGIÐ
RAFMAGN
Nú er rétti tíminn
skammdegið er skammt undan
Getum útvegað allt frá 50 - 750 kw. rafstöðvar
með stuttum fyrirvara.
wM
■ Gunnar Gunnarsson.
prívat um Albert og kemur bókinni
ekkert við“ - AB
Leitið upplýsinga
m CATERPILLAR
L □ SALAS.ÞJÚNUSTA
Caterpillar, Cat ogSeru skrásett vörumerki