Tíminn - 17.12.1982, Blaðsíða 2

Tíminn - 17.12.1982, Blaðsíða 2
FÖSTUDAGUR 17. DESEMBER 1982 KVENNAGULUD JUUO IGLESIASl HEFUR EKKI FMD FYRIR KONUM — en hann kvartar ekki! ■ „Ég hef aldrei haldið því fram, að ég hefði bestu söngrödd í heimi, en ég legg alla mína tilfinningu á sönginn, og það virðist hafa sitt að segja“, sagði Julio Igles- ias söngvari í blaðavitali. Hann var spurður hvern- ig honum líkaði að vera svo eftirsóttur og dáður af konum, og sagði þá: „þetta hefur alltaf verið svona, svo langt sem ég man, að konur voru hrifn- ar af mér, - og ég kvarta ekki yfir því.“ „Julio, Julio,“ (Þið vitið auðvitað, að þið eigið að segja Hulio - með svolitlu kokhljóði) hrópa konur á öllum aldri þegar söngvarinn kemur fram. Hann rennir flau- els-brúnum augunum yfir hóp- inn og syngur með sínum heimsfræga „smjör-tenór“ og áheyrendur bráðna af hrifn- ingu. Julio Iglesias er 38 ára gamall Spánverji, fráskilinn og á þrjú börn. Hann var frægur fótboltamaður í sínu heima- landi, en lagði þá íþrótt á hilluna og söngurinn varð hans atvinna þaðan í frá. Vinsældir hans sem söngr vara jukust hröðum skrefum á Spáni, og síðan kynntust hinir óteljandi ferðamenn þar í landi, þessari sykursætu rödd, úr útvarpinu eða af plötum þar í landi, svo frægð hans barst fljótt um Evrópu. Nú orðið á hann hin íburðarmestu stórhýsi viðs vegar um veröldina, svo sem Madrid, Miami Beach og á Tahiti, og flytur sig á milli heimsálfa eftir geðþótta. ■ Sjaldan er tekin mynd af Julio Iglesias án þesss að fögur kona sé honum við hlið. Þessi kom með honum fram í sjónvarpsþætti. ■ Candice Bergen, sem orðin cr 34 ára, licfur loks fundið þann eina rétta og vinir hennar segja hana nýja og meira heillandi persónu en nokkru sinni fyrr. Eiginmaður Candice er franski kvikmyndaleikstjór- inn Louis Malle, sem er tólf árum eldri en kona hans. Þrátt fyrir að Candice, sem nú vill láta kalla sig Candy hafi verið eftirsótt allt frá 19 ára aldri og síðar einnig Ijósmynd- ari, hefur hún til þessa verið fremur einmana. Ekki svo að skilja, að hún hafi verið óvin- sæl. Hún hefur notið aðdáunar allra eftirsóttustu piparsveina Hollywood. Má þar nefna nöfn eins og Jack Nicholson, Ter- ence Stamp, Warren Beatty, Burt Reynolds, Terry Mclcher, son Doris Day, kvikmynda- framleiðandann Burt Schnei- der og Henry Kissinger. En enginn þeirra náði neinu tang- arhaldi á Candy. Það var ekki fyrr en Lois kom á vettvang, að Candy fór örlítið að bráðna. Hann tók hana með trompi og sex mán- uðum eftir að þau hittust í fyrsta skipti voru þau harðgift. ' Nokkrum mánuðum eftir brúðkaupið fór Candy til Ind- lands að taka þátt í kvikmynd um frelsishetju Indverja, Ma- hatma Gandhi. Louis, sem sjálfur hafði gcrt heimildamynd um Indland 12 árum áður, fylgdi konu sinni í ferðina og notuðu þau tækifærið til að ferðast um landið og kynnast fólkinu. Þetta ferðalag varð Candy endanleg sönnun þess, að hún hefði valið sér réttan lífsförunaut. Louis notaði tækifærið og heimsótti þær slóðir, sem hann hafði dvalist mest á 12 árum fyrr. Ekki gat hann merkt, að mikið hefði breyst, að undan- skildu því, að fókinu myndi hafa fjölgað um helming. Þau tóku þátt í lífi innfæddra, neyttu sama matar og vatns án allra varúðar- ráðstafana, sem þeim hafði þó verið stranglega ráðið frá, nutu lífsins með fólkinu. Þeim varð ekki meint af þessari óvarkárni sinni, en Candy Bergen fann þann eina rétta ■ Loks tókst einum herran- um að ná tangarhaldi á Candy. Brúðkaup hennar og franska kvikmyndaleikstjórans Louis Malle fór fram í Suður-Frakk- landi að viðstöddum vinum og vandamönnum. auðvitað voru þau ekki fyrr sest upp í flugvélina á heimleið en Candy veiktist og var lengi að ná sér. Sérstaklega minnisstæð er Candy heimsókn í musteri í norðurhluta landsins, sem hún segir eitt hið elsta og fegursta í heimi. Hún segist aldrei hafa verið gripin eins sterkri tilfinn- ingu og þar, né fundið annan eins þef. Þau heimsóttu must- erið á öllum tímum sólar- hringsins og alltaf var eitthvað um að vera þar. Eitt kvöldið átti alla athygli þeirra vatns- tankur, þar sem börn voru að svamla um innan um rottur og fisk. Þessi sjón var svo merki- leg, að Candy rakst óvart á ffl, sem hún hafði ekki einu sinni tekið eftir, enda um smávaxna skepnu að ræða, eins og við vitum. Að Indlandsförinni lokinni settist Candy svo við skriftir, en hún hafði hafið að rita endurminningar sínar fyrir fjórum árum. Þessi skrif breyttust svo í það að verða ævisaga föður hennar, Edgar Bergen, en hann var frægur búktalari og eftirlæti banda- rískra barna um langan aldur. Þessi bókarritun gefur Candy tækifæri til að fylgjast með manni sínum, þegar hann nú heldur til vesturstrandarinnar til að leikstýra kvikmynd, en þau eru búsett í New York. ■ Vinir Candy segja hana nýja manneskju eftir að hún giftist Louis Malle ■ Glen Campbell hefur lítið látið á sér bera, segja þeir í Hollywood, síðan hið eldheita ástarsamband hans og söng- konunnar Tany Tucker leystist upp með brauki og bramli. Hann hefur verið önnum kaf- inn við að koma fram í nýjum útvarpsþætti, sem kallaður er „Country CIose-Up“ og eins og nafnið gefur til kynna flytur aðallega bandaríska sveita- músik (kántrí-lög). Líka hefur Glen leikið og sungið inn á plötur og verið að undirbúa tónleikaför um Evrópu og Suður-Afríku, svo það er ekki að undra þótt hann hafi lítið sést í samkvæmislífinu í Holly- wood. ■ Glen Campbell með Kane, 13 ára syni sínum. Söngvarinn Glen Campbell og sonur hans Nú nýlega kom þó sveita- söngvarinn á góðgerðaskemmt- un þar í borg, og með honum var 13 ára sonur hans, Kane að nafni. Þá kom það á daginn, að Glen Campbell á fimm börn úr þremur hjónaböndum sínum, sem öll hafa endað með skilnaði. Glen var hinn montnasti með syninum, og þegar hann var spurður um barnahópinn sinn, sagði söngvarinn: „Við gætum stofnað góðan kántrí kvartett með undirleikurum, börnin og ég, - og svo gætum við líka orðið ágætt handbolta- !ið.“ Glen vildi ekki svara spurn- ingum blaðamanns um það, hvort hann og nýja vinkona hans hygðust ganga í hjóna- band og bæta við barnahópinn. „Það kemur allt á daginn síðar,“ sagði hann og bætti svo við að þau syngju saman róm- antíska ástarsöngva og það væri góð byrjun. Kosinn Ijótasti hundurinn ■ CHI-CHI, litli kínverski hundurinn á myndinni geispar bara af leiðindum. Hann hefur lítinn áhuga á keppninni, sem eigandi hans hefur farið með hann í, en hún gekk út á það, að velja „Ijótasta hundinn á hundasýningunni". Það má kannski segja, að það sé lítið keppikefli fyrir einn hund að fá þann titil, en titill er það engu að síður - og CHI-CHI vann i keppninni. Eigandi hundsins heitir Bee- zlev og á heima í Sunnyvale í Kaliforníu. Hann lýsir hundin- um sínum sem svo: „CHI-CHI er eins og stórvaxin rotta með indíána-klippingu!"

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.