Tíminn - 17.12.1982, Blaðsíða 12

Tíminn - 17.12.1982, Blaðsíða 12
20 FÖSTUDAGUR 17. DESEMBER 1982 Vegghúsgögn No: 120 kr. 13.450,- Þú færð jólagjöf íþróttamannsins í Spörtu Stretch skíðabuxur - skíðagallar úlpur - barna-, unglinga- og fullorðinsstærðir skíðaskór - skíðagleraugu - skíðahanskar dúnvatt-skíðahúfur eyrnaskjól - skíðalúffur - barnaskíðasett. SKAUTAR - SKAUTAR mjög vandaðir skautar stærðir — 29—45. litir: hvítt og svart. efni leður/gallon SPORTVÖRUVERSLUNIN Póstsendum. Ingólfsstræti 8. Sími 12024 íþróttamenn heiðraðir ■ Hópur íþróttamanna og forvígismanna úr íþróttahreyfmgunni voru viðstaddir afhendingu viðurkenninga til íþróttamanna ársins. Kona valin körfuknattleiksmaður ársins 1982 ■ í gærkvöldi var tilkynnt í hópi á Hótel Loftleiðuin útnefning íþrótta- manna ársins í hinum ýmsu íþróttagrein- um scm stundaðar eru innan vébanda Iþróttasambands íslands. Það er íþrótta- blaðið og Iþróttasambandið sem standa jað þessari verðlaunaveitingu og velur hvert sérsamband einn íþróttamann sem ! Iþróttamann ársins í viðkomandi grein. I Til hófsins var boðið forvígismönnum I sérsambanda ISI, íþróttamönnunum 'sem titilinn hlutu auk fréttamanna. Þeir voru sautján íþróttamennirnir sem heiðraðir voru að þessu sinni. Þar af voru fjórar konur. íþróttamaður ársins úr röðum fatlaðra var valin Elísabet Vilhjálmsson ÍFR. Hún keppir í bogfimi og hefur verið ósigrandi á mótum hér á landi á undanförnum tveimur árum og fyrir skömmu vanri hún glæstan sigur á Solna-leikunum í Svíþjóð. Fimleikamaður ársins var kjörinn Kristín Gísladóttir Gerplu. Hún var bæði unglingameistari og íslandsmeistari og náði góðum árangri á Unglingamóti Norðurlanda sem haldið var í Laugar- dalshöll. Kvenmaður varð fyrir valinu sem körfuknattleiksmaður ársins. Var það Linda Jónsdóttir KR, en hún er í íslandsmeistaraliði félagsins og hefur leikið mjög vel með því á undanförnum árum. Er hún áreiðanlega ein allra fremsta körfuknattleikskona landsins. Borðtennismaður ársins var Ásta Ur- bancic Erninum. Hún varð þrefaldur íslandsmeistari á árinu og er fastur leikmaður í landsliðinu. j Oddur Sigurðsson KR var valinn frjálsíþróttamaður ársins. Oddur náði mjög góðum árangri á síðasta ári, einkum í 400 metra hlaupi og setti m.a. nýtt íslandsmet 46,43 sek. Pétur Yngvason Þingeyingur var val- inn glímumaður ársins. Hann bar höfuð og herðar yfir keppinautana á glímuvell- inum á árinu og vann til flestra þeirra verðlauna sem glímumenn geta hlotið hér á landi. Bjarni Friðriksson var valinn judo- maður ársins. Hann varð Norðurlanda- meistari í apríl síðastliönum í sínum þyngdarflokki og auk þess hlaut hann tvenn silfurverðlaun á mótinu, í opnum flokki og í sveitakeppni. Þar varð íslenska sveitin í 2. sæti. Landsliðsmarkvörðurinn í knatt- spyrnu Þorsteinn Bjarnason var valinn knattspyrnumaður ársins. Góð mark- varsla hans í landsleikjum sumarsins tryggir honum þennan titil, en hann sýndi til dæmis frábæra markvörslu í leiknum gegn Spánverjum í Malaga. Þá er hægt að nefna fleiri leiki, þar sem Þorsteinn lék vel. Lyftingamaður ársins var kjörinn Jón Páll Sigmarsson KR. Hann setti á árinu Evrópumet í réttstöðulyftu og setti auk þess fjölda íslandsmeta á árinu. Hann hefur átt við meiðsli að stríða og hefur því ekki getað keppt jafn mikið og ella. Siglingamaður ársins var valinn Gunn- laugur Jónasson Ými. Hann hefur náð mjög góðum árangri á árinu og má þar nefna þátttöku hans í Norðurlanda- meistaramóti á Laser-bátum, en þar gekk honum best allra íslensku keppend- anna. Carl Eiríkssón skotfélagi Reykjavíkur var valinn skotmaður ársins. Hann er meðal elstu keppenda í skotfimi hér á landi, en jafnframt sá besti. Broddi Kristjánsson hefur ekki tapað leik í einliðaleik í badminton hér á landi á þessu ári og því var hann kjörinn badmintonmaður ársins. Hann var og eini keppandinn á NM í badminton sem sigraði andstæðing sinn í einliðaleik. Það þarf ekki að koma neinum þeim sem með handknattleik hefur fylgst á þessu ári, á óvart, að Kristján Arason skyldi verða fyrir valinu sem handknatt- leiksmaður ársins. Hann hefur verið yfirburðamaður í liði sínu FH og oft hefur hann sýnt mjög góða leiki með landsliðinu. Einar Ólafsson skíðagöngumaður frá ísafirði var valinn skíðamaður ársins. Hann náði bestum árangri íslendinga á HM í Osló á árinu. Þá vann hann 10 og 15 km. göngu í aldursflokki 17-19 ára. íslandsmeistarinn í golfi Sigurður Pétursson var valinn golfmaður ársins 1982. Hann lék frábærlega á Landsmót- inu í Grafarholti í ágúst og þá lék hann einnig vel á Heimsmeistaramóti áhuga- manna í haust. Leifur Harðarson Þrótti var valinn blakmaður ársins. Hann leikur með íslandsmeistaraliði Þróttar í blaki og hefur leikið með og þjálfað liðið frá árinu 1980 og hefur liðið ekki tapað leik gegn íslensku liði á því tímabili. Leifur hefur leikið 24 blaklandsleiki fyrir ísland. Að síðustu var kynnt val á sundmanni ársins. Það var vitaskuld Ingi Þór Jónsson ÍA. Hann náði mjög góðum árangri á árinu og átti besta sundafrek ársins í 200 metra skriðsundi. Hann er nú handhafi 8 íslandsmeta í sundi. Magnús Hreggviðsson afhenti verð- laun, fallega vasa til allra íþróttamann- anna eða fulltrúa þeirra. Sveinn Björns- son forseti ÍSÍ þakkaði íþróttablaðinu fyrir samstarfið og jafnframt Adidas umboðinu á íslandi fyrir að veita matinn í hófinu. sh ■ Kristján Arason FH er vel að því kominn að vera valinn handknatt- leiksmaður ársins 1982. Hann hefur sýnt mjög góða leiki á keppnistíma- bilinu. Körfubolta- liðið tapaði í Chicago ■ Eins og fram kom í blaðinu á föstudag er landslið íslands í Körfu- knattleik skipað leikmönnum 21 árs og yngri í keppnisfcrð í Bandaríkjun- um. Þeir léku í fyrrakvöld við skólalið í Chicago og töpuðu naum- lega eða með þriggja stiga mun. Bandaríska liðið skoraði 73 stig gegn 70 stigum íslenska liðsins. Stigahæstir Islendingar voru Valur Ingimundar- son UMFN, Axcl Nikulásson úr Keflavík og Pálmar Sigurðsson Haukum. Valur skoraði 18 stig, Axel 16 og Pálmar 14 stig. Liðið leikur fleiri leiki í ferðinni. sh

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.