Tíminn - 17.12.1982, Blaðsíða 10

Tíminn - 17.12.1982, Blaðsíða 10
10 FÖSTUDAGUR 17. DESEMBER 1982 heimilistíminn umsjón: B.St. og K.L. ■ Pétur Bjarnason er fæddur á Bíldudal, 1941, ólst upp á Tálknafirði, kennari síðan 1964, þar af skólastjóri á Bíldudal í tíu ár, en þar var hann jafnframt oddviti hreppsnefndar í fjögur ár og vasaðist í mörgu. Er nú skólastjóri Varmárskóla í Mosfells- sveit og situr þar einnig í hreppsnefnd. Kl. 7.20. Eg rumska, rýk framúr og uppgötva að kerfið hefur brugðist mér rétt einu sinni enn og ég er orðinn í seinna lagi. „Kerfið" er fólgið í því að ég hef að jafnaði tvær vekjaraklukkur, þegar sú fyrri hringir stoppa ég hana og dorma síðan í nokkrar mínútur, þar til hin síðari hrekur mig framúr. En hún liggur sem sé á hliðinni og glottir framan í mig, hefur stoppað um þrjúleytið. Þá er að ýta við konunni og krökkunum tveimur, haska sér í fötin og drífa sig. Síminn hringir, það er nágrannakonan sem vinnur með kon- unni minni, hafði séð að ljós voru upp með seinna móti. Ég nota tækifærið og panta far fyrir konuna í vinnuna, hún hafði fallist á það að lána mér bílinn í dag, ég þarf að skreppa í bæinn. Lánið er samt með okkur, krakkarnir þurfa ekki að mæta fyrr en undir níu í skólann, svo þau hafa nógan tíma. Ég næ að skófla úr einni dós af jógúrt en verð að sleppa því að lesa Tímann, það bíður þá kvöldsins - vonandi. Leikhúsumræður á kennarastofunni Ég hef það af að mæta á réttum tíma, enda stutt að fara . Dagurinn þar byrjar síðan með kaffibolla ásamt samloku, með kæfu að þessu sinni. Á kennarastofunni ræðum við leikhús- ferðina í gærkvöldi. Við fórum í gamla góða Iðnó og sáum Skilnað, eftir Kjartan Ragnarsson. Almennt eru menn afar ánægðir með kvöldið, þótt sitt sýnist hverjum um einstök atriði. Það er hressandi og gaman að kynnast Iðnó sem hringleikahúsi, að fornum sið, kannske smærra þó en flest þeirra voru. Fimmtudagur er kennsludagurinn minn, svo • framundan eru annir af þeim sökum, en einnig sú notalega Pétur Bjarnason í heimsókn á Tímanum. (Tímamynd Róbert) að hér sit ég kófsveittur og skrifa. Eins og venj ulega kann ég ekki að segj a nei. Ég ofmetnast þó engan veginn út af þessu, því af málsatvikum þóttist ég sjá að val hennar á mér í þetta hlutverk flokkast undir neyðarúrræði. Klukkan 17.00 er ég mættur suður í Hamraborg í Kópavogi og sit þar fund í stjórn SSH, sem útleggst Samtök Sveitarfélaga á Höfuðborgarsvæðinu. Það eru samtök, sem eru enn fremur ung en þeirra bíður að líkindum mikið hlutverk. Nóg um það. Það á að verða kvöldvaka hjá fjórða bekk og ég hafði lofað einni kennslu- konunni - kennaranum - ég biðst afsökunar - að leysa hana af með bekkinn, hún var bundin í stórafmæli einhvers staðar. Mér léttir eftir því sem fundurinn dregst á langinn yfirþví að hafa leyst þetta mál með því að fá annan kennara í minn stað til að vera með krökkunum. Ég er þó kominn heim um hálfátta og meðan beðið er eftir mat förum við Bjarni, strákurinn minn, þrettán ára, í heita pottinn. Víð tökum með okkur stóran þvottabala og setjum hann fullan af vatni á stéttina við hliðina á pottinum. Þangað nörrum við hvolp- inn Bangsa, sem er aðeins þriggja mánaða gamall og dembum honum ofan í balann ásamt einu glasi af hvolpasjampó - Tearless, stendur á miðanum. Hvolpurinn grætur þurrum tárum yfir meðferðinnni, fær þó sitt bað, en sleppur nýskolaður inn í stofu og velur þann staðinn helst af öllum til þess að hrista sig. Er samt hinn hressasti á eftir. Lára, bráðum fímmt- án situr við ritvélina og hreinskrifar ritgerð um steinöldina og gefur sig ekki að ærilátum okkar hinna. Rjúkandi pizzan bíður á borðinu eftir baðið og allir taka vel til matar síns. Eftir mat fer ég niður í skóla. Þar er mikið um að vera eins og oft á kvöldin, um eitt hundrað tíu ára krakkar eru búnir að vera í stofum sínum með skemmtiatriði og teknir til við diskódans af miklum móði í nýjum samkomusal á efstu hæðinni. Frí- stundamálarar stunda sína iðju af innlifun í teiknistofunni. Álafosskór- í mörg hom að líta á löngum vinnudegi kennd sem fylgir því að vera í skólastofu með krökkunum. í þessum skóla eru um 620 börn og kennslu- skylda mín er því lítil, 5 stundir á viku. Ég vorkenni stundum krakkagreyjun- um, sem lenda í því að skólastjórinn kennir þeim, þau fá oft nokkuð slitróttar kennslustundir vegna frátafa ýmislegra. Ljósritinn er að angra mig, hann skilar öðru hverju blaði hálfu svörtu, hér var þó viðgerðarmaður í fyrradag, það er hringt í hann og hann lofar skjótum viðbrögðum. Þeir mega eiga það hjá Skrifstofuvélum, þeir standa nokk við slíkt. Ég nota tækifær- ið og bið þá að senda mér upplýsingar um nýjar vélar og hringi á þrjá aðra staði í sömu erindum til að fá samanburð. Agamál rædd - á breiðum grundvelli Eðlisfræðitfminn er að byrja, einn kennarinn kemur stormandi inn til mín og ber fram kvartanir vegna yfirgangs nokkurra nemenda í næstu stofu, ég lofa að athuga málið og mér verður hugsað til nemenda minna. Við förum síðan að bjástra með rafhlöður og perur, víra og klemmur og búum til breytileg viðnám úr saltlausn og kopar- súlfatlausn, sem litar alla fingur á mér blágræna. Ég stel korteri aftan af seinni tímanum þeirra til þess að bjóða tveimur ungum mönnum upp á einka- viðtal á skrifstofu minni. Við ræðum agamál á breiðum grundvelli eins og gjarnan er sagt, skiptumst á ólíkum skoðunum í málinu, sammála um sumt, annað síður, skiljumst síðan og ætlum að hugsa málin vandlega. Ýsan í hádeginu bragðast stórvel, eins og allt sem Unnur matráðskonan okkar fer um höndum, hún er snill- ingur, minnst það, ég á ekki stærri orð í bili. Hennar vegna langar mig alltaf til að fitna svona ofboð lítið, þó ekki væri nema til þess að geta sýnt það í verki hvað ég kann vel að meta list hennar. Það gerist þó ekki, minn þyngdarmunur milli árstíða mælist í grömmum og er lítt sýnilegur. Ég næ tæpum tíu mínútum í mat, það er hringt vegna skólabílanna og kvartað. Ég lofa að koma því á framfæri við rétta aðila og fer aftur að kenna eðlisfræði. Aðstæður eru betri, því Birgir yfirkennari er ekki að kenna og tekur við því sem berst af bráðum úrlausnarefnum, en þau eru mörg og stór á sína vísu. Eðlisfræðitíminn gengur vel fyrir sig og ég bæti meira af blágrænu kopar- súlfati á fingurgómana. Ritarinn með bros á vör - og bunka af skilaboðum Guðrún, ritarinn minn tekur á móti mér með bros á vör og bunka af skilaboðum þegar ég kem niður. Guðrún brosir alltaf á hverju sem gengur, þótt þrjátíu kennarar og sex hundruð og tuttugu nemendur eigi stöðugt við hana erindi og kvabb. Guðrún á alltaf tíma til að brosa fyrir alla. Það er henni að þakka, að streita er bara eitthvað sem við á þessum vinnustað lesum um í blöðunum, en þekkjum ekki annars. (Þetta væri kannske rétt að setja innan gæsa - lappa). Formaður leikfélagsins hringir í mig og minnir mig á það að ég, sem fréttaritari útvarpsins hafði lofað að senda pistil af menningarmálum hér í sveit og þar með geta leikfélagsins og Galdrakarlsins í Oz. Ég reyni að stela mínútum í þetta og hringi niður í útvarp. Þar er fúslega tekið við fréttaefni og ég er ávítaður fyrir ótilhlýðilega leti við það að senda slíka pistla, strákur skammast sín og lofar bót og betrun. Grímur í Byko hringirogminnir mig á að ég er í uppstillingarnefnd fyrir prófkjör framsóknarmanna í Reykja- neskjördæmi og boðar mig á fund klukkan átta annað kvöld. Það slapp, því sveitarstjóri var nýbúinn að boða aukafund í hreppsnefnd klukkan fimm, lofaði að hann yrði ekki iangur. Klukkan er orðin þrjú, það er að smáhljóðna yfir skólanum, aðeins yngstu krakkarnir eftir. Formaður skólanefndar kemur með unga og fallega stúlku, kynnir hana fyrir mér, segir þetta gamlan nemanda sinn sem eigi við mig erindi, fer síðan. Stúlkan vill selja mér dagatöl, skilur eftir fallegt nafnspjald, soðið í plast, tvö sýnishorn og kveður. ... þess vegna sit ég hér kófsveittur og skrifa Ég var búinn að lofa að fara niður á Tíma um fjögur leytið og setja texta við myndir úr för okkar Auðuns Braga ásamt fleirum til Þýskalands í haust. Auðunn hefur sett saman rollu langa um för þessa og vill nú hafa myndir með. Sem ég sit við ritvél þarna niður frá heyri ég að blaðamaður að baki mér fær þá hugmynd, sem er þess valdandi inn er nýfarinn og í kjallaranum er jöfnum höndum leikinn borðtennis, beatmusik og blástur í hinar fjölbreyti legustu gerðir lúðra, því þar er skólahljómsveit Mosfellssveitar til húsa undir röggsamlegri stjórn Birgis Sveinssonar. Á daginn heyri ég oft hér á skrifstofunni minni, sem er á miðhæð hljóma samtímis: „Bjart er yfir Betl- ehem“, af efstu. hæðinni, sem er tónmenntastofa jafnframt því að vera samkomusalur og frá neðstu hæðinni er blásið: „Frá ljósanna hásal". Ég er orðinn vel informeraður í músik og sæki mig fremur en hitt. Þessi dagur er að kvöldi kominn. Klukkan er að verða ellefu, krakkarnir eru hætt að dansa, það er að hljóðna yfir byggingunni. Senn loka ég ritvélinni, slekk ljósin og held heim. Dæmigerður dagur í lífi mínu? Líklega, svona að vetri til, það eru eilíf tilbrigði við þetta stef en ævinlega er nóg að gera. Bregðist það er ég óðara búinn að finna mér eitthvað til. Líklega verð ég að líta mjög hratt yfir Tímann minn í kvöld. 99.12.1982 Pétur Bjamason. Dagur í lífi Péturs Bjarnasonar, skólastjóra Varmárskóla:

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.