Tíminn - 17.12.1982, Blaðsíða 4

Tíminn - 17.12.1982, Blaðsíða 4
4 FÖSTUDAGUR 17. DESEMBER 1982 Dregið hefur verið í Jólagetraun Tímans og Einars Farestveit & Co. h.f. Sá heppni reyndist vera Jökull Sigurðsson, Vatni, Haukadal, Dalasýslu og verður vinningurinn, sem er TOSHIBA örbylgjuofn af gerðinni ER 672 Deltawave að verðmæti kr. 9.200 - afhentur þegar vinningshafi hefur tækifæri til að taka á móti honum. Dregið í Jólagetraun Eygló Stefánsdóttir starfsstúlka á Tímanum hefur dregið getraunaseðla Jökuls úr kassanum og reyndust þeir allir réttir. Góðar fréttir fyrir gamla og nýja áskrifendur Tímans: Síminn er 8 63 00 fréttir Bóksölukönnun útgefenda: ENN ER KRIST- JÁN NÚMER EIH Bréfin hans Þórbergs komin í 6. sætið ■ Enn eru það sömu bækurnar sem skipa tvö efstu sætin í bóksölukönnun Félags ísl. bókaútgefenda, sem nú er birt í þriðja sinn, en það eru Æviminningar Kristjáns Sveinssonar og Dauðafljótið. Könnun bóksalanna var gerð sl. þriðju- dag, og að þessu sinni tóku 17 verslanir þátt í henni. Listi bókaútgefenda er eftirfarandi, og í svigum er sætið í síðustu könnun: 1. (1) Æviminningar Kristjáns Sveinssonar augnlæknis, Gylfi Gröndal skráði (Setberg) 2. (2) Dauða- fljótið eftir Alistair Maclean (Iðunn) 3.-4. (3) Jólalögin í léttum útsetningum fyrir píanó eftir Jón Þórarinsson, 3.-4. (4) Persónur og leikendur eftir Pétur Gunnarsson (Punktar) 5. (8) Hverju svarar læknirinn? eftir Claire Rayner, Bertil Mártensson og Guðstein Þengils- son (Iðunn) 6. Bréfin hans Þórbergs. Hjörtur Pálsson sá um útgáfuna (Vaka). Var ekki á lista síðast. 7. (6) Landið þitt, ísland eftir Þorstein Jósepsson, Steindór Steindórsson og Pál Líndal. 3. bindi. (Örn og Örlygur) 8. (5) Riddarar hringstigans eftir Einar Má Guðmunds- son (AB) 9. Borgfirsk blanda, safnað hefur Bragi Þórðarson. 6. bindi (Hörpu- útgáfan) Var ekki á síðasta lista. 10. Albert. Gunnar Gunnarsson skráði (Setberg). Var ekki á síðasta lista. Fimm efstu bækurnar á lista vfir barna-og unglingabækur eru: 1.(4) Mömmustrákur eftir Guðna Kolbeinsson (Vaka) 2. (1) 555 gátur. Sigurveig Jónsdóttir þýddi og staðfærði (Vaka) 3. (2)Svalur og félagar: Móri eftir Fournier (Iðunn) 4. (3) Lukku Láki: Sara bein- harða eftir Morris, Fauche og Leturgie (Fjölvi) 5. Leikir fyrir alla. Sigurður Helgason þýddi og staðfærði (Vaka) Var ekki á lista síðast. Bætur almanna- trygginga hækka ■ Tekjutrygging hækkar um 2.68% frá 1. jan. næstkomandi, samkvæmt reglugerð sem heilbrigðisráðherra hefur gefið út. Þá hækkar heimilisuppbót um 4.5% og er gert ráð fyrir því að vasapeningar hækki að sama skapi. Þessir bótaflokkar skerðast ekki þrátt fyrir ákvæði bráða- birgðalaganna. Ellilífeyrir, tekjutrygging og heimilis- uppbót var 1. des. kr. 6.106 og hækkar 1. jan. í kr. 6.274, eða 2.75% Annar lífeyrir hækkar, frá því sem nú er um 2.1% ■ N.k. sunnudag verður bamaföndur á prestsetrinu á Möðruvöllum fyrir öll börn prestakallsins. Þar munu börnin búa til jólaskraut, sem þau ætla síðan að færa dvalargestum á Elliheimilinu í Skjaldarvík fyrir jólin. Föndrið hefst kl. 13.30 og stendur til kl.16. Foreldrar munu aðstoða börnin. Um kvöldið verður aðventukvöld í Möðruvallakirkju og byrjar það kl.21. Félagar í Æskulýðsfélagi prestakallsins munu sjá að mestu um undirbúning. Sungin verða jólalög, lesin jólasaga og Möðruvallaklaustursprestakall: Guðsþjonustur um jól og áramót flutt jólakvæði. Magnús Aðalbjörnsson yfirkennari á Akureyri flytur ræðu, en aðventukvöldinu lýkur með ljósahelgi- leik undir stjórn sóknarprestsins sr. Péturs Þórarinssonar. Organleikari verður Birgir Helgason. Guðsþjónustur í prestakallinu um jól og áramót verða sem hér segir: Aðfangadagur jóla: Aftansöngur í Skjaldarvík kl.16. Hátíðarguðsþjónusta í Glæsibæjar- kirkju kl. 14. Annardagur jóla: Hátíðarguðsþjónusta í Bakkakirkju kl.14 Gamlaársdagur: Aftansöngur í Skjaldarvík kl. 16. Nýársdagur: Hátíðarguðsþjónusta í Bægisárkirkju kl. 14. Jóladagur: Hátíðarguðsþjónusta í Möðruvalla- kirkju kl. 11. 2.janúar (annar í nýári): Hátíðarguðsþjónusta í Möðruvalla- kirkju kl. 14. ÞORSKVEIÐIBANN AÐ HEFJAST ■ Þorskveiðibann hefst á miðnætti 20. desember nk. og tekur bann þetta til allra annaFa en þeirra sem falla undir „skrapdagakerfið',' Á timabilinu 20.-31. desember eru allar netaveiðar óheimilar, en hlutur þorsks í afla báta, sem veiðar studna með öðrum veiðarfærum, má ekki nema meiru en 15% af afla hverrar veiðiferðar. Jafnframt hefur ráðuneytið gefið út reglugerð og eru samkvæmt henni allar þorskveiðar í net bannaðar frá 1. janúar til og með 15. janúar 1983. Á þeim tíma, sem þorskveiðar eru bannaðar í net, má hlutur þorsks í heildarafla hverrar veiðiferðar netabáts ekki nema meiru en 20%

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.